Morgunblaðið - 24.08.1979, Síða 1

Morgunblaðið - 24.08.1979, Síða 1
32 SÍÐUR 192 tbl. 66 árg. FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Stuðningsmenn Janatabandalagsins hrópa vígorð gegn Reddy, forseta landsins. Símamynd AP Janatabandalagið: r _ Asakar Reddy um valdníðslu Nýju Dehli, 23. ágúst — Reuter LEIÐTOGAR Janatabandalags- ins á Indlandi hvöttu 30 þúsund stuðningsmenn sína á fundi í Nýju Dehli í dag til að fara í verkfall til að mótmæla þeirri ákvörun Sanjiva Reddys að efna til kosninga. Leiðtogar Janata- bandalagsins segja það samsæri til að koma í veg fyrir að leiðtogi bandalagsins. Jagjiva Ram, verði forsætisráðherra. Þriggja manna nefnd banda- Iagsins hefur verið skipuð til að undirbúa í þinginu ákæru á hendur Reddy um valdníðslu. Til að slík tillaga næði fram að ganga þarf samþykki % hluta þingsins. Olík- legt er talið, að aðrir flckkar styðji Janatabandalagið í þessu máli en bandalagið er í minnihluta í báð- um deildum þingsins. Formaður Janatabandalagsins, Chandra Shekhar, sagði á fundinum í dag: „Ég þekki forsetann mjög vel og mér finnst, að honum eigi ekki að líðast að verða einræðisherra." Annar leiðtogi bandalagsins sagði á fundinum, að Reddy ætti að segja af sér og hvatti flokksmenn til andstöðu við forsetann. Reddy hefur ekkert látið hafa eftir sér um gagnrýni leiðtoga Janatabandalagsins eftir að hann ákvað í gær að kosningar færu fram í nóvember. Fundi um Palestínu- málið var frestað New York. 23. ÓKÚst — AP. Reuter ÖRYGGISRÁÐ Sameinuðu þjóð- anna frestaði f kvöld umræðum um deiluna fyrir botni Miðjarðarhafs- ins. Miklar viðræður fóru fram í hliðarherbergjum eftir að Andrew Young, fulltrúi Bandarikjanna og forseti öryggisráðsins þennan mánuð, hvatti til þess, að um- ræðum yrði frestað. Fulitrúar Araba ræddu síðan við Akporodo Clark frá Nígeríu, sem hafði lagt fram tillögu f ráðinu þar sem réttindi Palestínumanna til að stofna eigið ríki voru viðurkennd. Eftir þann fund var ákveðið að fresta fundinum í ráðinu klukkan 10 í kvöld að fslenzkum tíma. Andrew Young, hinn umdeildi fastafulltrúi Bandaríkjanna, hafði lýst því yfir, að Bandaríkjamenn mundu greiða atkvæði gegn tillög- unni um réttindi Palestínumanna þrátt fyrir að hann sjálfur fylgdi slíkri lausn. Hann hafði lýst því yfir, að hann kysi fremur að þurfa ekki að greiða atkvæði gegn Palestínumönnum. Young varð að segja af sér embætti fastafulltrúa eftir að hafa rætt við Terzi, fulltrúa PLO hjá samtökunum. Fundur ráðsins stóð yfir í tvo klukkutíma og var fulltrúum PLO, Egyptalands, Iraks, Júgóslavíu, Kúbu og Afghanistans leyft að taka þátt í umræðum þó að þessi ríki eigi ekki sæti í ráðinu nú. Andrew Young sagði þegar hann frestaði fundi, að áfram yrði haldið á morgun. Fyrir fundinn í kvöld ræddi Young við Yehuda Blum, aðalfulltrúa Israels og var til þess tekið, að engin óvild virtist á milli Rédust inn í Zambíu Salisbury. 23. ágúst — AP. Rcuter. HER Zimbabwe-Ródesíu fór í dag yfir landamærin til Zambfu og gerði árásir á stöðvar skæruliða Joshua Nkomo, að sögn herstjórn- arinnr í Salisbury f dag. Herflokkarnir voru studdir or- ustuþotum en ekki var skýrt frá hvort manntjón hefði orðið. í gær réðust orrustuþotur á stöðvar skæruliða í Zambíu og kom sú árás í kjölfar yfirlýsingar skæruliða um að þeir tækju þátt í ráðstefnu um lausn deilunnar í Lundúnum en þeir fundir hefjast innan þriggja vikna. þeirra þó að ísraelsmenn hefðu krafist afsagnar Youngs eftir fund- inn með Terzi. ísraelskur hermaður lét lífið og tveir særðust þegar ísraelskur her- flokkur réðst inn í Líbanon og sprengdi í loft upp tvö hús. Israelsk yfirvöld vildu ekki segja hvernig hermaðurinn lét lífið, en atburður- inn átti sér stað í þorpinu Brashit, um 10 kílómetra norðan landamær- anna. Þá var skotið á gæzlusveitir Sameinuðu þjóðanna en enginn særðist. ísraelsk yfirvöld sögðu, að hermenn þeirra hefðu ekki verið þar að verki. The New York Times gagnrýndi Jimmy Carter harðlega í dag fyrir stefnuleysi í deilunni fyrir botni Miðjarðarhafs. Blaðið spurði að því í hverju stefnan væri fólgin og hver mótaði hana. Þar átti blaðið við, að undanfarna daga hefur Carter siglt um Mississippi á fljótaskipinu Delta Queen. „Ég skemmti mér stórkost- lega,“ sagði Carter við mannfjölda og ræddi í fyrsta sinn um borð í skipinu um deiluna og þá óánægju Joseph Strauss að hafa ekki meira svigrúm til samninga og sagði hann, að blöð hefðu ýkt mjög óánægju Strauss. Harðir bardagar um Saqqez í Kúrdistan Stjómarherinn beitti stórskotaliði og þyrlum gegn Kúrdum, sem halda borginni Tcheran, Saqqcz. 23. áqú.st — Reuter AP HARÐIR bardagar stóðu í kvöld um borgina Saqqez í Kúrdistan í íran. íranski herinn beitti stór- skotaliði og þyrlum gegn um tvö þúsund vel vopnuðum Kúrdum og voru margir borgarbúar, sem eru um 40 þúsund, í bráðri hættu þegar þyrlurnar steyptu sér yfir borgina og skutu eldflaugum. Þá flugu orrustuþotur yfir borginni en þær vörpuðu ekki sprengjum. Að sögn fréttamanna á staðnum varð mannfall mikið f hvorum tveggja flokknum og skriðdrekar stjórnarhersins stefndu f átt að borginni. Stjórnarherinn beið öfl- ugri vopna í baráttunni um borgina og liðsauka. Ayatollah Khomeini, trúarleiðtogi írana, varaði stjórnarhermenn í dag við því að hlýðnast ekki skipunum og sagði, að þeir, sem það gerðu, yrðu dregnir fyrir byltingardómstóla. Þá varaði hann Kúrda við frekari mót- stöðu og sagði, að ef Kúrdar héldu áfram baráttu sinni gegn fólkinu þá yrðu þeir að taka afleiðingunum. Áð minnsta kosti eitt þúsund Kúrdar og stjórnarhermenn hafa beðið bana í bardögum síðan í marz. Jimmy Carter, forseti Bandaríkj- anna, sem undanfarið hefur verið á ferð með fljótabáti um Missisippi, Aðaldansari Bolshoiballettsins: Bað um hæli í Bandaríkjunum New York, 23. á«úst - AP ALEXANDER Gudunov, aðaldansari Bolshoiballettsins sovéska, hefur beðið um hæli f Bandarfkjunum sem pólitfskur flóttamaður. Gudunov hefur undanfarnar vikur verið í Bandaríkjunum f sýningaferð með Bolshoiballettinum. Hann lét sig hverfa á sfðustu sýningarviku ballettsins. Lillian Libman, framkvæmda- stjóri Nederlander producing company of America, sem stóð fyrir komu Bolshoiballettsins til Bandaríkjanna, sagði að hvarf Gudunovs hefði komið mjög á óvart í Bolshoiballettinum. Hún sagði að eiginkona Gudunovs væri einnig með ballettinum en hefði ekki beðið um hæli í Banda- ríkjunum. Álexander Gudunov fetar í fótspor þekktra sovéskra dansara er hafa flúið vestur yfir járntjald. Rudolf Nureyev flýði í París 1961, Natalia Makarova strauk í Lond- on 1970 og Mikhail Barysnikov bað um hæli í Kanada árið 1974 en þau voru öll dansarar með Kirovballettinum frá Leningrad. Gudunov hafði ekki áður verið leyft að fara í sýningaferð til Vesturlanda með Bolshoi- ballettinum þar eð Sovétmenn óttuðust að hann kynni að biðja um hæli sem pólitískur flótta- maður. Alexander Gudunov — hefur beðið um hæli í Bandarfkjun- um. Fjórði sovéski stórdansar- inn er svo gerir. Símamynd ap fordæmdi í dag stjórn Ayatollah Khomeinis í Iran en hann varði jafnframt þá ákvörðun sína að hafa sent húshitunarolíu og benzín til Irans fyrr í þessum mánuði. Sú ákvörðun forsetans olli miklum hug- aræsingi þegar hún spurðist út, en Carter varði ákvörðunina með því að vitna til þeirrar nauðsynjar, að góð samskipti væru við írani og að „þeir senda okkur daglega eina og hálfa milljón tunna af olíu“. Eldsneytið var sent til Irans vegna eldsneytis- skorts þegar skemmdarverk höfðu verið unnin á olíuleiðslum. 30 fangar brutust út Jcssup. 23. ájtúst — Rcutcr ÞRJÁTÍU fangar sluppu úr fang- elsi í Maryland í dag og þegar sfðast fréttist hafði lögreglan að- eins haft hendur í hári 16 þeirra. Fangarnir eru sagðir hættulegir, næstum allir þekktir fyrir ofbeldis- hneigð. Lögreglan leitaði ákaft að föngum, notaði þyrlur og sterk leitarljós. Fangarnir komust út úr fangels- inu með því að saga rimla í sundur í glugga á 1. hæð fangelsisins og komust síðan yfir tvær girðingar. Aðbúnaður í fangelsinu er sagður slæmur. Fyrir ári skipaði dómari, að föngum yrði fækkað í 1275 en yfir 1500 fangar eru geymdir í fangels- inu. Talsmaður fangelsisins kenndi flóttann of fáum fangavörðum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.