Morgunblaðið - 24.08.1979, Blaðsíða 30
a
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1979
Úrslitaleikurinn verður
ekki í sjónvarpinu heldur
Eins og frá var skýrt (Mbl. í gær,
verður úrslitaleiknum í bikar-
keppni KSÍ. milli Vals og Fram,
ekki útvarpað. Ok til að kóróna allt
saman. verður honum heldur ekki
sjónvarpað.
UBK-Reynir
Eínn leikur fer fram í 2. deild
Islandsmótsins í knattspyrnu í
kvöld. Þá leika á Kópavogsvelli
UBK og Reynir frá Sandgerði.
Hefst leikurinn klukkan 19.00.
ÞAÐ DRÓ til tíðinda hjá þeim
Teiti Þórðarsyni og Eirfki Þor-
steinssyni. sem báðir leika knatt-
spyrnu í Svíþjóð. Á ýmsu hefur
gengið hjá Teiti og félögum hjá
Oster. en um síðustu helgi birti
þó heldur til með 1—0 sigri gegn
Atvidaberg. Það var Teitur sem
skoraði sigurmark Öster á 67.
mfnútu leiksins, er hann fékk
góða fyrirgjöf á markteiginn f
opnu færi og skallaði f nctið.
Bjarni Felixson skýrði frá því í
gær, að samningar um upptöku á
úrslitaleiknum hefðu strandað á
peningahliðinni. Sjónvarpið hefði
ekki haft ráð á að greiða þá upphæð
sem krafist var fyrir upptökurétt-
indin. Varla hefði það haft umtals-
verð áhrif á aðsókn þó að sjónvarpið
hefði tekið leikinn upp, því að það
stóð aldrei annað til en að sýna
leikinn á skjánum á mánudaginn,
eða rúmum sólarhring eftir að
leikurinn fór fram. Það blasir því
við, að þeir sem hafa hug á að
Eiríkur Þorsteinsson skoraði
eitt mark af fjórum, er lið hans
Grimsás vann stórsigur á útivelli
gegn IFK Malmö, 4—1. Eiríkur
skorar ekki á hverjum degi og því
vert að geta þess þegar honum
tekst svo vel til í útlandinu.
Grimsás er í bullandi fallhættu í
2. deild suður í Svíþjóð, hefur 15
stig eftir 17 leiki. Aðeins 3 lið eru
neðar, með 8, 13 og 14 stig hvert
um sig.
fylgjast með leiknum, hvort heldur
þeir ætluðu sér að hlusta á útvarps-
lýsingu, mæta á völlinn eða horfa á
sjónvarpið, eiga aðeins um það eitt
ÁGÆTUR árangur náðist í
ýmsum greinum á héraðsmóti
Ungmennasambands Borgar-
í Noregi eru allar horfur á því,
að Tony nokkur Knapp leiði
Stavangurs Vikinga til sigurs í
norsku deildarkeppninni. Þegar 7
umferðum er ólokið, hefur Víking-
ur 4 stiga forystu, 23 stig á sama
tíma og Rosenborg og Moss hafa
19 stig hvort félag. Brann, liðið
sem saltaði Fram niður í tunnu í
Evrópukeppni fyrir fáum árum, er
í vonlítilli stöðu neðst í deildinni,
hefur hlotið 9 stig.
að velja að koma sér á völlinn, hvort
sem viðkomandi á heima í Reykjavík
eða á Hornbjargsvita.
fjarðar (UMSB) er fram fór í
Borgarnesi um síðustu helgi.
Einar Vilhjálmsson setti Borgar-
fjarðarmet í kúluvarpi er hann
varpaði 14,44 metra og kringlu-
kasti er hann kastaði 43,17
metra. Einar sigraði einnig í
spjótkasti með 65,14 metra kasti.
Svafa Grönfeldt jafnaði ís-
lenzka telpnametið og setti nýtt
Borgarfjarðarmet í 100 metra
hlaupi er hún hljóp á 12,5 sekúnd-
um. Þá settu sveitir Skallagríms í
Borgarnesi ný héraðsmet í 4x100
m boðhlaupi karla og kvenna.
Konurnar hlupu á 52,7 sekúndum
og karlarnir á 46,9 sekúndum.
Af öðrum árangri má nefna að
Iris Grönfeldt varpaði kúlu 10,75
metra, kastaði kringlu 30,82 metra
Borgfirðingar verða meðal
keppenda í 2. deild Bikarkeppni
FRI á Akureyri um helgina, og ef
að líkum lætur gæti orðið um
spennandi keppni milli þeirra og
Akureyringa að ræða. M.a. kemur
Jón Diðriksson heim frá
Vestur-Þýzkalandi og leggur
sínum sveitungum lið í keppninni.
— ágás.
Erlendur Valdimarsson
þeytir kringlunni lengra og
lengra þessa dagana.
Erlendur
og Guðrún
kasta langt
ERLENDUR Valdimarsson
IR og Guðrún Ingólfsdóttir
Ármanni náðu ágætum
árangri í kringlukasti á
frjálsíþróttamóti í Laugardal
í gærkvöldi. Erlendur náði
sínum bezta árangri í ár er
hann kastaði 59,46 metra og
Guðrún náði sínum
næstbezta árangri frá upp-
hafi er hún kastaði 46,30
metra. Guðrún kastaði 46,60
fyrr í vor og er það íslands-
met,—ágás.
Teitur og Eiríkur
skoruðu í Svíþjóð
-gg.
Ágætur árangur
GRUNDIG
26" 8242
Loekkun kr.181.700.
Núdkr.793.100.
Vildarkjör Nesco
% Útborgun: Mánaðargr.:
20% kr. 160.000 2 X kr. 318.000
30% kr. 238.000 3 X kr. 185.000
40% kr. 318.000 4 X kr. 118.000
50% kr. 397.000 5 X kr. 80.000
60% kr. 476.000 Frjálst innan árs
100% kr. 753.500 (5% staðgr.afsl.)
VEXTIR cw; KOSTNAÐUR F.KKI INNIFALIÐ.
• „HI-BRI“ línumyndlampi. Einingaverk.
Kalt kerfi. AFC og AGC (sjá 4613).
• Ovenjumikil hljómgæði.
Útgangsstyrkur 15w. 2 hátalarar.
• Sjálfvirkur stöðvaveljari (sjá 4632).
• Sjálfvirk miðstilling (sjá 4632).
• Þráðlaus fjarstýring. Fullkomnasta gerð.
(Innrauður stjórngeisli).
• R.G.B. (Rautt.Grænt.Blátt). Leiðrétt-
ingakerfi, sem tryggir hámarkslitgæði.
• Tengimöguleikar fyrir heyrnartæki,
video-kassettur, og hvers konar myndtæki
framtíðarinnar t.d. „TELE-TEXT“.
• Valhnotukassi. Stærð 74 X 55 X 45 cfn.
Leiðandi fyrirtæki
á sviði sjónvarps
útvarps og hljómtækja
Þrostur Magnusson
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SIMI: 27788 (4 LlNUR).