Morgunblaðið - 24.08.1979, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1979
Óskar Ólason, yfirlögregluþjónn umferðamála:
Börnin, umferð-
in og skólarnir
Nú nálgast sá tími, er skólar
borgarinnar taka til starfa. Sam-
kvæmt áætlun Fræðsluskrifstofu
borgarinnar, sem gerð var í maí s.l.
er gert ráð fyrir að börn á aldrin-
um 6 til 12 ára sem sækja eiga
skóla í Reykjavík, verði 8.152. Þar
af verða 6 og 7 ára börn ca. 2.350
eða 1161 barn 6 ára og 1189 7 ára.
Lögreglan mun nú eins og und-
anfarin ár gera sitt til þess að
leiðir barnanna að og frá skóia
verði sem öruggastar, jafnframt
því sem umferðarfræðsla í skólan-
um, jafnt frá hendi kennara og
Iögreglu hefst strax er skólarnir
byrja. Að auki mun svo umferðar-
ráð koma á framfæri bæklingum
„Leiðin í skólann" en þar eru
foreldrum og forráðamönnum
barna bent á ýmsar hættur er
leynast á leið barnanna og foreldr-
ar .hvattir til að fylgja börnunum
fyrstu dagana og velja leið þá, sem
er hættuminnst fyrir barnið. Jafn-
framt er bent á það að stysta leiðin
er ekki alltaf sú öruggasta. Einnig
er bent á að heppilegt sé talið að
áður en barnið er sent eitt í
skólann þá hafi barnið fengið að
sýna aðstandendum sínum kunn-
áttu sína með því að fá að stjórna
ferðinni.
Ekki þarf að taka það fram að
ætlast er til þess að ökumenn og
aðrir vegfarendur geri sitt til þess
að vernda börnin í umferðinni en
það verður ekki gert nema að fólk
almennt láti sér koma þetta við,
minnugt þess að ég hjálpa barninu
þínu þarna og þú mínu á öðrum
stað. Einnig ríður á því að þeir sem
eldri eru hafi það hugfast, að þeir
eiga að vera börnunum til fyrir-
myndar í umferðinni eins og ann-
arsstaðar.
Ég get ekki stillt mig um að
einmitt í sambandi við börnin og
skólana að minnast á eftirfarandi.
Ég las það í dagblöðunum nú
nýlega að Reykjavíkurborg hefði
selt ríkinu hluta af Laugarlækjar-
skóla og var það nefnt í þessu
sambandi að Fósturskólinn ætti að
verða þarna til húsa.
Á ári barnsins virðist engum
hafa dottið í hug að benda á það að
stór hópur barna sem sækir
Laugarnesskóla eru börn sem búa í
blokkunum við Laugarnesveg og
Kleppsveg. Þessi börn verða flest á
leið sinni í og frá Laugarnesskóla
að fara fram hjá Laugarlækjar-
Oskar ólason.
skóla og eiga þá eftir að fara yfir
miklar umferðaræðar eins og
Sundlaugaveg og Reykjaveg. Ef
þessi börn hefðu mátt sækja skóla
í Laugarlækjarskóla þá er auðsætt
að ferðir þeirra að og frá skóla
hefðu verið hættuminni. í Laugar-
nesskóla hefði áreiðanlega farið
vel um fóstrurnar sem eiga allt
gott skilið.
Þó ég hér nefni þetta einstaka
tilvik, þá er mér Ijóst að hætturnar
í umferðinni ekki síst fyrir yngstu
skólabörnin eru víða. að mætti t.d.
nefna að börn sem sækja Breiða-
gerðisskóla eiga mörg heima aust-
an við Réttarholtsveg og fara fram
hjá Réttarholtsskóla á leið sinni í
Breiðagerðisskóla. Börnin verða
þarna að fara yfir mikla umferðar-
æð, sem er Réttarholtsvegur, en
þessi vegur er hættulegur m.a.
vegna mikillar hæðarbungu og
mikillar umferðar. Það mætti láta
sér detta í hug, að áðurnefnd börn,
sérstaklega 6 og 7 ára börn, ættu
að vera í Réttarholtsskóla í stað
Breiðagerðisskóla. i
Fleiri dæmi mætti nefna, en að
lokum vil ég benda á eftirfarandi.
Er ekki hægt að koma í veg fyrir
að 6 og 7 ára börn þurfi að mæta í
skóla í myrkri á morgnana?
Er hægt að sjá til þess að
kennslu yngstu barnanna ljúki
ekki kl. 12:00 en þess í stað t.d. kl.
12:15 og kennsla eftir hádegi hefj-
ist t.d. kl. 13:30 í stað kl. 13:00?
Ef hægt er með breyttu skipu-
lagi að gera á þennan hátt ferðir
barna að og frá skóla öruggari þá á
að gera það. Það er hættuminna að
færa kennara á milli staða en
fjölda ungra skólabarna.
Löngumýrarskólinn er miðsvæðis í sögufrægu héraði.
Haustnámskeið fyr-
ir aldraða að Löngu-
mýri í Skagafirði
NÆR 130 manns hafa dvalið að
Löngumýri í Skagafirði í sumar,
en kirkjan í samvinnu við Akur-
eyrarbæ og Reykjavíkurborg hefur
skipuiagt ferðalög þangað og dvöl
fyrir aldraða. Að jafnaði hafa verið
um 25 manns í hverjum hópi að
sögn Margrétar K. Jónsdóttur
skólastjóra á Löngumýri. Hefur
þetta starf verið undanfarin sumur
við vaxandi vinsældir, en nú á að
brydda upp á þeirri nýjung að hafa
sérstakt haustnámskeið með fjöl-
breyttu formi fyrir aldrað fólk.
„Hugmyndin er,“ sagði Margrét
í samtali við Mbl., að efna til
námskeiða í haust til fróðleiks og
skemmtunar. Margir eldri borgarar
hafa ekki haft tíma eða tæk.ifæri til
mikillar skólagöngu, né heldur tíma
til þess að sinna sínum áhugamálum
til hlítar. Við vitum að ýmsir vilja
gjarnan bæta við sig einhverju nýju
eða hrista upp í því gamla og fólk er
aldrei of gamalt til þess að nema ef
heilsan leyfir það okkur til gleði og
Við erum í Höllinni!
Verið velkomin í sýningardeild okkar nr.18
Þar sýnum við nýjungarnar í okkar glæsilegu
og ótrúlega fjölbreyttu heimilistækjalínu.
, •.
SINGER
PRJÓNA & SAUMAVÉLAfí
llílpÉtfe |
SKmSmSm.
ALÞJOÐLEG
VÖRUSÝNING
INTERNATIONAL
FAIRff=1979
KitchenAid
HRÆRIVÉLAfí
kuknecht
KÆLISKÁPAR
Véladeild
Sambandsins
Ármúla 3 Reykjavik Sími 38900
gagns og tekjuauka ef vel tekst til.“
Efni náskeiðsins verður bæði
bóklegt og verklegt, að sjálfsögðu
engin próf, en um er að ræða
Biblíuleshring, bókmenntir og sögu,
fjallað um það að eldast, kosti og
galla og einnig verða umræður og
erindi um tryggingamál og rétt
fólks í þeim efnum. Þá má af
verklegum greinum nefna bókband,
hnýtingar og vefnað, leiðbeiningar
um mataræði, t.d. hvernig hægt er
að matreiða góðan mát á þægilegan
og fljótan hátt fyrir einn eða tvo og
leikfimi verður við hæfi þeirra sem
námskeiðið sækja. Þátttakendur
geta að sjálfsögðu valið í hverju þeir
taka þátt og þannig verður þetta
mjög frjálst fyrirkomulag með
mörgum möguleikum. Einnig verður
farið í ferðalag um héraðið og
kvöldvökur haldnar. Ferðir aldraðra
í Skagafjörð hafa tekizt mjög vel
undanfarin ár og gistiaðstaða öll og
aðbúnaður í skólanum á Löngumýri
er mjög góð.
Þátttökugjaldi verður stillt í hóf
eins og unnt er, en reiknað er með
að þátttakendur greiði fæði, efnis-
kostnað og ferðir. Þeir sem hafa hug
á þessu nýstárlega námskeiði fyrir
aldraða geta haft samband við
Biskupsstofu eða skólastjórann á
Löngumýri, en námskeiðið verður
haldið 17.—29. september.-
Margrét Jónsdóttir skólastjóri.