Morgunblaðið - 24.08.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1979
Oráðið með viðræður
BSRB og ríkisins
— samningar runnu út fyrsta júlí
BANDALAG starfsmanna ríkis ok
hæja hefur la)?t fram kröfu(?erð
fyrir ríkisstarfsmenn í væntanleK-
um kjarasamnin)?um milli opin-
herra starfsmanna o({ fjármálaráð-
herra fyrir hönd ríkissjóðs. en nú
er unnið eftir samningnum frá
1977 sem gilti til fyrsta júlí síðast-
liðins að sögn Haralds Steinþórs-
sonar varaformanns BSRB. Hann
sagði að samkvæmt lögum skyldi
unnið eftir gildandi samningi þar
til nýr hefur verið gerður. Harald-
ur sagði að kröfugerð BSRB væri
nú í höndum sáttasemjara og það
væri undir honum komið hvenær
samningaviðraHÍur hæfust.
BSRB myndi hins vegar halda
fund með samninganefnd bandalags-
ins upp úr mánaðamótum águst —
september til að ræða stöðuna í
málinu. Hann sagði að kröfugerð
BSRB væri 20 síðna rit og byggðist
að verulegu leyti á kröfugerðinni frá
því 1977. Ekki hefði verið lagður
fram launastigi í kröfugerðinni að
svo stöddu en áskilinn hefði verið
réttur til að gera það þegar fram í
sækti. „En þetta eru það viðamiklir
samningar að ekki er hægt að taka
nein sérstök stærstu baráttumál út
úr,“ sagði Haraldur. Hann sagðist
hins vegar búast við að umræður
yrðu um samningana innan vébanda
BSRB i september og úr því ætti að
komast skriður á málið.
Jón Gunnlaugsson
er látinn
JÓN Gunnlaugsson fyrrverandi
stjórnarráðsfulltrúi lézt á Borg-
arspítalanum í Reykjavík í gær.
Hann fæddist 8. október árið
1890 á Kiðjabergi í Grímsnesi,
sonur Gunnlaugs Þorsteinssonar
bónda og hreppstjóra þar og konu
hans Soffíu Skúladóttur frá
Breiðabólstað. Jón var við nám í
MR, Skov og Ladelund landbúnað-
arskólanum á árunum 1905—1912.
Hann stundaði búskap á Hjalla í
Ölfusi 1913—1915, á Minniborg í
Grímsnesi 1915—16 og í Skálholti
í Biskupstungum árin 1916—22.
Hann starfaði sem fulltrúi í ýms-
um ráðuneytum frá árinu 1920
fram til ársins 1960 og sá meðal
annars um útgáfu Stjórnartíðinda
árin 1936—60. Hann starfaði að
margvíslegum félagsmálum meðal
annars innan Góðtemplararegl-
unnar og einnig starfaði hann
mikið að málefnum vangefinna.
Jón Gunnlaugsson var tví-
kvæntur, fyrri kona hans var
Jórunn Halldórsdóttir sem lézt
árið 1919 en síðari kona hans var
Ingunn Þórðardóttir sem lézt árið
1968. Jón á sjö börn á lífi.
MF A hyggst selja hús forseta ASÍ:
„Hélt húsið vera komið í
hendur þeirra er sæu sóma
sinn í að varðveita það”
segir Þorkell Valdimarsson sem gaf húsið
HÚSIÐ Vesturgata 29 í Reykjavík er nú á söluskrá, en það er í eigu
Menningar- og fræðslusambands alþýðu. Þorkell Valdimarsson
kaupsýslumaður gaf MFA húsið fyrir rösklega ári síðan, vegna þeirra
sögulegu tengsla sem verkalýðshreyfingin á við húsið. Þar bjó áður
Ottó N. Þorláksson fyrsti forseti A.S.L, og þaðan var skipulögð og
gengin fyrsta kröfuganga íslensks verkafólks þann 1. maí árið 1923.
Auglýsing fasteignasölunnar það er núverandi eigenda hvernig
sem auglysti húsið í fyrradag var
svohljóðandi:„Vesturbær.
Gamalt forskalað timburhús, hæð
og ris, ca. 70 fm. grunnflötur til
sölu á hornlóð. Verzlun er í húsinu
í dag. Tilboð óskast. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofunni, ekki í
síma.“
þeif vilja gæta þeirrar vöggu en
ekki mítt. Þeir hafa allan lagaleg-
an rétt sín megin og geta gert það
sem þeim sýnist við húsið, en ég
gaf þeim það í júní á síðasta ári,
þó formleg eigendaskipti færu
ekki fram fyrr en nú nýlega er
þinglýsing fór fram.
Morgunblaðið ieitaði í gær til
Þorkels Valdimarssonar og spurði
hann álits á því að nú stæði til að
selja gjöfina. Þorkell sagði:
„Ég álít þetta hús vera vöggu
vinstri hreyfingar á íslandi, og
Gjöfin var algjörlega kvaðalaus
af minni hálfu, en ástæða þess að
ég gaf þetta hús er að sjálfsögðu
saga þess og fortíð. Hélt ég satt að
segja að húsið væri nú komið í
hendur þeirra aðila er sæu sóma
sinn í að sjá um það og varðveita.
Húsið Vesturgata 29. Hér bjó fyrsti forseti Alþýðusambands Islands,
og héðan fór verkalýðshreyfingin í sína fyrstu kröfugöngu árið 1923,
þann 1. maí. Nú vill Menningar- og fræðslusamband alþýðu selja
hÚSÍð. Ljósm: Ól.K.Mag.
Jonathan Castle skipstjóri svarar spurningum dómarans, Garðars Gíslasonar borgardómara, í
sjóprófunum í gær. Dómtúlkur var Hilmar Foss. — Ljósm.: ól. K. M.
Framburður Greenpeace sam-
hljóða framburði hvalveiði-
manna og varðskipsmanna
SEX skipverjar af 16 manna áhöfn Rainbow Warriors gáfu í gær
skýrslur í Sjó- og verzlunardómi Reykjavíkur um atburðina á
hvalamiðunum sfðastliðinn laugardag. Við yfirheyrslurnar kom í
raun ekkert nýtt fram, en framburður Greenpeace-manna var að
mestu samhljóða vitnisburði áhafna Hvals 7. og varðskipsins Ægis.
Við upphaf sjóprófanna í gær
lagði Hörður Ólafsson hæsta-
réttarlögmaður, verjandi Green-
peace-manna, fram kröfu um að
ríkissaksóknari leysti bæði
áhöfn og skipið úr haldi og að
útbúnaði þeim, sem tilheyrði
Rainbow Warrior og tekinn
hefði verið af Greenpeace-mönn-
um, yrði skilað þegar í stað.
Ákveðið var að kveðja til mats-
menn til þess að skoða 28 feta
gúmbátinn, sem Landhelgis-
gæzlan hafði tekið um borð í
varðskipið Ægi. Einnig var þess
óskað að myndir yrðu teknar af
bátnum.
Fyrst var Jonathan Castle
skipstjóri Rainbow Warriors
yfirheyrður og beindust spurn-
ingar dómsins aðallega að
siglingu gúmbátsins í kringum
Hval 7. Skipstjórinn taldi ekki
að neinar siglingareglur hefðu
verið brotnar, né önnur laga-
ákvæði.
Einnig komu fyrir dóm-
inn tveir stýrimenn, bátsmaður
og Bell Densie, sem sæti á í
stjórn Greenpeace h.f. í London.
Loks kom fyrir dóminn Peter
Wilkinsson framkvæmdastjóri
Greenpeace-aðgerðanna, sem
lýsti því yfir, að hann væri
endanlega ábyrgur fyrir
aðgerðunum þótt öll áhöfnin
tæki ákvörðun um aðgerðir
sameiginlega.
í lok sjóprófanna óskaði lög-
maður Greenpeace eftir því, að
skipi og áhöfn yrði sleppt og
sagði þá fulltrúi ríkissaksókn-
ara, að skipið væri ekki í haldi
hans vegna. Vísaði hann á lög-
reglu og landhelgisgæzlu. Land-
helgisgæzlan kvaðst ekki hafa
skipið í sinni umsjá, aðeins 28
feta gúmbátinn. Greenpeace-
menn áskildu sér rétt til að
krefjast bóta fyrir ólögmæta
handtöku og skipstökuna og bóta
fyrir tjón, sem kynni að hafa
orðið á búnaði þeirra og tækjum.
Þá krefjast þeir alls málskostn-
aðar.
Sjóprófin voru öll tekin upp á
segulband og þegar endurritun
þeirra er lokið, verður málið sent
ríkissaksóknara til ákvörðunar.
Tekur hann ákvörðun um, hvort
ákæra beri Greenpeace-menn
fyrir athæfi þeirra eða hvort
málið verður látið niður falla.
Útsölur á bílum
ORKUKREPPA og erfitt efna-
hagsástand í ýmsum löndum hef-
ur orðið til þess að nokkur
bflaumboð bjóða nú nýjar bifreið-
ar af árgerðinni 1979 á lágu
verði, allt að því á útsöluverði.
Þannig hefur Daihatsuumboðið
til dæmis boðið Daihatsu
Charmant bifreiðar á 3.6 til 3.7
milljónir króna vegna þess að
umboðið í Hollandi gat ekki selt
umsaminn fjölda bifreiða.
Ford-umboðið Sveinn Egilsson
hefur einnig boðið bifreiðar á
lágu verði, Cortínubfla sem fara
áttu til Grikklands. Þá hefur
Fiatumboðið Davíð Sigurðsson
h.f. cinnig auglýst ódýrar bifreið-
ar, útborgunin er einn þriðji
heildarverðs en eftirstöðvar á
einu ári. Þar er að vísu um
notaða bfla að ræða.
Á sama tíma er lítil hreyfing á
notuðum bílum, og standa bílasöl-
ur nú fullar af bílum sem ekki
seljast. Einkum eru það stærri og
BILUN varð í miliistöðvastreng
hjá Pósti- og síma á Hverfisgöt-
unni gegnt Þjóðleikhúsinu í
fyrrakvöld með þeim afleiðing-
um, að ekki hefur verið hægt að
hringja úr símum ef númerin
byrja á 8 og 3 í númer sem byrja
á 1 og 2. í gærkvöldi var ekki
búið að komast að þvf hvað valdið
orkufrekari bifreiðar sem illa
seljast, en auðveldara hefur verið
að selja minni og sparneytnari
bíla, en um leið er framboð á þeim
minna. Að sögn bílasala er því
talsvert um það að bílar séu seldir
með lítilli útborgun, eða þá á lágu
verði við staðgreiðslu. Hafa marg-
ir bifreiðaeigendur orðið að selja
bíla sína á verði undir markaðs-
verði sakir þess að þeir hafa gert
fjárhagsskuldbindingar sem and-
virði bifreiða hefur átt að ganga
upp í-
Framangreint ástand er þó
mjög mismunandi eftir tegundum
eins og fyrr sagði, og þess éru
dæmi að bifreiðaumboð geti ekki
annað eftirspurn og hjá sumum
þeirra eru langir biðlistar og
nokkurra mánaða afgreiðslufrest-
ur. Guðmundur Geir Gunnarsson
hjá Hondaumboðinu tjáði
Morgunblaðinu til dæmis, að um-
boðið fengi mun færri bíla hingað
til lands en óskað væri eftir og
hefði biluninni auk þess sem
aðstæður eru erfiðar til viðgerða.
Þá mun það ekki hafa flýtt fyrir
viðgerð að hitaveiturör var höggv-
ið í sundur þegar farið var að
grafa. Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem fengust hjá Pósti- og síma
í gærkvöldi var allt útlit fyrir að
strengurinn kæmist ekki í lag fyrr
en í fyrsta lagi síðdegis í dag.
markaður væri fyrir. Verksmiðj-
urnar í Japan eru þegar búnar að
selja alla ársframleiðslu ársins
1979, og langir biðlistar eru þegar
á árgerð 1980. Hálfs árs af-
greiðslufrest sagði Guðmundur
vera á bílunum hingað til lands, og
fá færri bila en vilja.
Skemmtiferð
fy rir eldri
borgaraíNes-
og Melahverf i
FÉLAG sjálfstæðismanna í Nes-
og Melahverfi hyggst bjóða eldri
borgurum í hverfinu í
skemmtiferð n.k. sunnudag,
þann 26. ágúst. Verður lagt af
stað frá Neskirkju kl. 1 e.h., ekið
fyrir Esjuna og um Kjósarskarð
til Þingvalla. Þar verður áð,
drukkið kaffi í boði félagsins, en
síðan ekið niður Grímsnes og
heim um Hveragerði. Reiknað er
með að koma aftur til bæjarins
kl. 6—7 á sunnudagskvöld.
I frétt um þessa skemmtiferð
frá félaginu hvetur það alla eldri
borgara í Nes- og Melahverfi til að
slást í hópinn og biður það að
tilkynna þátttöku í síma 25635,
eða skrifstofunni í Sörlaskjóli 3,
kl. 4—7 í dag (föstudag) eða fyrir
hádegi á morgun.
Er síminn bilaður?