Morgunblaðið - 24.08.1979, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 24.08.1979, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1979 + Móöurbróðir minn, SIGURÐUR PÁLMASON Ásvallagötu 16 Reykjavík, andaöist miövikudaginn 22. ágúst. Jaröarförin ákveöin síöar. Fyrir hönd aöstandenda, Einar Jóhannesson. Faöir okkar JÓN Ó. GUNNLAUGSSON, fyrrverandi stjórnarráósfulltrúi, lést í Borgarspítalanum 23. ágúst. Börnin. + Fósturfaöir okkar og tengdafaöir, HALLUR PÁLSSON, frá Garöi í Hegranesi lést 23. ágúst aö Hátúni 10 Reykjavík. Guörún Eiríksdóttir, Ragnar J. Trampe Leifur Unnar Ingimarsson, Steinunn Halldórsdóttir. + Konan mín og móöir okkar MARÍA KRISTÍN JÓNSDÓTTIR Máfahlíö 36 lést á Landakotsspítala 14. ágúst. Jaröarförin hefur fariö fram í kyrrþey aö ósk hinnar látnu. Þökkum auösýnda samúö. Sérstakar þakkir til alls starfsfólks á augnadeild Landakotsspítala fyrir mjög góöa umönnun. Einar Þóröarson og börn. + Dóttir mín, eiginkona, móöir og systir okkar HALLDÓRA SIGRÚN ÁRNADÓTTIR póst- og símstöövarstjóri Grundarfirói andaöist í Landspítalanum 22. ágúst. Kristín Kristmundsdóttir, Friörik A. Clausen, Þröstur Líndal, Friörik Rúnar Friöriksson, Anna Dröfn Friöriksdóttir. Dadda Árnadóttir, Ólafur Árnason, Árni Sædal Geirsson, + Faöir okkar, tengdafaðir og afi SIGURJON K. SIGURÐSSON bifreiöastjóri, Hjarðarhaga 28, R. verður jarösunginn frá Stokkseyrarkirkju laugardaginn 25. ágúst kl. 2 e.h. Jóhanna Sigurjónsdóttir, Smári Jónsson, Sigrún K. Sígurjónsdóttir, Guðmundur Karlsson, Gunnar Sigurjónsson, Hjördís Sigurjónsdóttir og barnabörn. + Útför konunnar minnar, móöur og ömmu SVEINBJARGAR MARÍU JÓNSDÓTTUR Drápuhlíð 9, fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. ágúst n.k. kl. 13.30. F.h. vina og vandamanna Olafur Pálsson, Páll Ólafsson, Sveinbjörg M. Pálsdóttir. + Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og bróöir, SKÍRNIR HÁKONARSON, bóndi, Borgum, Hornafíröi, veröur jarösunginn frá Bjarnaneskirkju laugardaginn 25. ágúst kl. 2 síödegis. Jarösett veröur í heimagrafreit. Þeim, sem vildu minnast hins látna, er bent á aö láta Hjúkrunarheimiliö Höfn, njóta þess. Margot Gamm, Ingiríöur Skírnisdóttir, Hákon Skírnisson, Karl Skírnisson, Ástrós Arnardóttir, Sigurgeir Skírnisson, Hjördís Skírnisdóttir, Björk Hákonardóttir og börn. Laufey Sveins- dóttir—Minning Fædd 6. júní 1913 Dáin 10. júlí 1979 í byrjun þessarar aldar voru fiskiþorp í örri uppbyggingu víða um landið. Mesta breytingin varð- andi sjósókn og aflabrögð fylgdi í kjölfar vélbátaútgerðarinnar. Á Austfjörðum voru víða góð skil- yrði fyrir slíka útgerð, án teljandi hafnarbóta. Aðeins bryggjustúfur fram á marbakkann var látinn nægja, og hafði gjarnan hver útgerð sína bryggju. Svo var um Nes í Norðfirði sem síðar hlaut kaupstaðarréttindi sem kunnugt er, og nefndist Neskaupsstaður. Á Nesi settist að hinn kunni athafnamaður Sigfús Sveinsson kaupmaður. Hafði hann mikla útgerð ásamt verslun og margt dugandi fólk réðst til starfa við hans fyrirtæki, bæði á sjó og landi. Einn af þeim mönnum var Norður-Þingeyingurinn, Sveinn Jónsson mikið karlmenni, sem lent hafði ungur í miklum mann- raunum og sloppið að vísu nauðug- lega vegna meðfædds þreks og kjarks, en komst til heilsu á ný. Sú saga verður ekki rakin hér. Sveinn kvæntist eftir komu sína til Norð- fjarðar, Lukku Aradóttur frá Naustahvammi. Eignuðust þau tvær dætur, Ólu sem var eldri og Laufeyju sem nú er nýlátin. Hjónaband þeirra var skamm- vinnt. Hans unga kona veiktist að segja má i blóma lífsins af þeim sjúkdómi sem dró hana til dauða. Var Laufey þá 7 ára en Óla um fermingu. Má nærri geta hvílíkt áfall það hefir verið fyrir þær systur á þeim aldri og svo föður þeirra. + Ástkær unnusta mín, dóttir okkar, systir og mágkona, ELÍSABET LEIFSDÓTTIR Baldursgötu 12 Keflavík, er lést af slysförum 18. ágúst verður jarösungin frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 25. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vildu minnast hennar er bent á líknarsjóð Keflavíkur- kirkju. Minningabók liggur frammi í Kirkjulundi útfarardag frá kl. 10.00 f.h. Rúnar Þór Sverrisson, Guörún Sumarliöadóttir, Leifur S. Einarsson, Einar S. Leifsson, Hrefna Traustadóttir, Oddný G. Leifsdóttir, Bryndís M. Leifsdóttir, Leifur G. Leifsson, Brynja Hjaltadóttir. + Þökkum sýnda samúö og hlýhug viö andlát og jaröarför JÓHÖNNU ÞORVALDSDÓTTUR, Hjaröarhaga 28. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks á deild A-5 og A-7 Borgarspítalans. Gunnar Sigurósson, Siguröur Atli Gunnarsson, María Gunnarsdóttir, Sævar Jónsson, Jón Gunnar Sævarsson, Ásmundur Sævarsson. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför GUÐRUNAR MAGNÚSDÓTTUR Bergbórugötu 16A Börn og tengdabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug við andlát og útför eiginmanns míns, fööur og tengdafööur FINNBOGA S. JÓNASSONAR forstööumanns Kristneahælis Helga Svanlaugsdóttir, Svanlaug Rósa Finnbogadóttir, Aöalbjörg Jónasína Finnbogadóttir, Jónas Finnbogason, Eyrún EyÞórsdóttir. Síðar fer Laufey að Skorrastað í Norðfjarðarsveit sem nú heitir, til Kristjönu Magnúsdóttur og Bjarna Jónssonar er þar bjuggu. Var Laufey þá 8 ára, þar hefir hún vafalaust átt góðu að mæta, hjá þeim mannkostamanneskjum. Þar er hún, þar til hún flytur til Ólu systur sinnar árið 1927. Þá var Óla gift Þorsteini Stefánssyni trésmið, sem nú er látinn. Þau bjuggu þá að Oddsstöðum á Melrakkasléttu. Ári síðar flytur hún með þeim til Akureyrar og býr hjá þeim þar til hún giftist fyrri manni sínum, Eyþór Tómassyni trésmið þar í bæ. Þau eignuðust 4 börn tvær dætur og tvo syni. Eru þrjú þeirra búsett á Akureyri en önnur dóttir- in í New York. Þau Laufey og Evþór slitu síðar samvistum. Síð- ari maður hennar er Magnús Ágústsson vélstjóri á Raufarhöfn, en þangað flutti hún er þau Magnús giftust, og áttu sitt heim- ili þar alla tíð síðan. Þau eignuð- ust tvær dætur, býr önnur á Raufarhöfn en hin í Neskaups- stað. Þær systur, Óla og Laufey, voru ætíð samrýmdar og samband þeirra náið alla tíð meðan báðar lifðu. Laufey bjó hjá þeim Ólu og Þorsteini sem fyrr er getið og eftir að Laufey stofnaði sitt heimili voru þær nágrannar í sama bæ, fyrst á Akureyri en síðan á Rauf- arhöfn, er þau Þorsteinn fluttust þangað. En á þeim árum var mikil uppbygging á Raufarhöfn vegna síldaræfintýrisins sem og víðar. Laufey reyndist börnum Ólu systur sinnar sem móðir er hún náði til þeirra. Laufey var ein af þeim konum sem hafði stórt hjarta eins og sagt er. Allir nágrannar hennar og kunningjar sem áttu bágt af ein- hverjum ástæðum áttu hennar samúð. Hún leitaðist jafnan við að hjálpa náunganum þar sem henni fannst hjálpar þörf. Hún hafði oft börn annarra manna langtímum saman á sínu heimili sem hafa notið þeirrar ástúðar og móðurumhyggju sem var henni svo eðlislæg. Á heimili þeirra hjóna var ætíð rúm fyrir gesti enda hefir löngum verið sagt að þar sem er hjarta- rúm þar sé einnig húsrúm. Laufey var glæsileg kona, svip- hrein og djarfmannleg. Hún var ávallt hress og glöð og kunni vel að gleðjast í góðra vina hópi og var þar hrókur alls fagnaðar. Þó gat hún eigi síður á döprum stundum lífsins tekið þátt í erfið- leikum og sorgum náungans er þær bar að garði sem svo oft vill vera í lífi voru. Hin sterka og hjartahlýja kona hefur þá eflaust með nærveru sinni og hlýju hand- taki létt þeim erfiðar stundir sem slík manngerð getur á sinn hóg- væra hátt. Síðastliðið vor fóru þau Laufey og Magnús til Norðfjarðar serr voru æskustöðvar Laufeyjar. Hef- ir sú dvöl eflaust orðið þeim tii mikillar ánægju að heimsækja vini og kunningja og dvelja hjá dóttur sinni þar. Eflaust hefir það glatt Laufeyju að sjá hina mynd- arlegu uppbyggingu þar í bæ sem nú er í fremstu röð bæja hér á landi af þeirri stærð, hvað mynd- arskap í uppbyggingu þróttmikils athafnalífs varðar, og mannlífs alls. En Nes í Norðfirði var aðeins barn í reifum þegar Laufey var þar í bernsku. Þá er og mikil myndarleg uppbygging í sveitinni þar sem hún dvaldi næstu árin eftir að móðir hennar féll frá, Kristjana á Skorrastað sem Lauf- ey var hjá sem barn í þessari sviphýru og sumarfögru sveit, er enn á lífi í hárri elli og þangað fóru þau hjón að sjálfsögðu í þessari ferð. Vafalaust hefir fáum dottið í hug að þetta yrði síðasta ferð hennar þangað í þessu lífi. En svo hverfult getur lífið verið og við vitum sem betur fer ekki hvað langt kann að vara eftir ólifað og lífsþráðurinn slitnar stundum svo skjótt. Laufey lést af slysförum á leið frá Norðfirði þar sem hún lifði sína bernsku og móðir hennar hafði átt þar heima sína skömmu æfi. Atvikin hafa hagað því svo að ég sem þessar línur rita átti ekki þess kost að kynnast Magnúsi eftirlifandi manni Laufeyjar, en svo mikið veit ég að hann hefði reynst sinni látnu konu góður eiginmaður. Mikill harmur er honum kveðin nú við lát sinnar ágætu eiginkonu, svo og börnum og aldraðri systur. Við sem viljum trúa því að ekki sé öllu lokið við lok þessa lífs, þykjumst vita að þessi góða kona hafi verið kölluð til starfa þar sem þörf var fyrir hennar ástúð og kærleika. Ég vil að lokum óska þess að höfundur lífsins létti manni henn- ar og öðrum aðstandendum skiln- aðinn sem svo óvænt bar að höndum og minningin um hana megi veita þeim ljós og yl í von um endurfundi að leiðarlokum. ólafur Brandsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.