Morgunblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 1
44 SIÐUR MEÐ 4 SIÐNA POPPBLAÐI
196. tbl. 66. árg.
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979
Prentsmiöja Morgunblaðsins.
Krafa Khomeinis:
Kúrdar verði í
kútinnkvaddir
Teheran, Ankara, 29. ágúat. AP — Reuter.
INNANRÍKISRÁÐHERRA írans
sagði í kvöld að náðst hefði
samkomulag í fjórum liðum við
sendinefnd frá borginni Ma-
habad er Kúrdar hafa á valdi
sínu. Sagði ráðherrann að sendi-
nefndin hefði meðal annars fall-
ist á að íransher héldi inn f
borgina og tæki öryggismál þar í
sfnar hendur.
Páfi fer
ekki til
N-írlands
Vatikanlnu, 29. igúat. AP. Reuter.
JÓHANNES Páll páfi hefur
ákveðið að hætta við ferð sína
til Norður-írlands er hann
heimsækir írska lýðveldið í
næsta mánuði, að því er til-
kynnt var í Vatikaninu í dag.
Var ferðinni aflýst vegna
„illvirkjanna er framin hafa
verið í N-írlandi og norð-
vesturhluta írlands síðustu
daga", er Mountbatten jarl,
fjöldi brezkra hermanna og
nokkrir óbreyttir fórust af
völdum sprenginga írska lýð-
veldishersins, IRA.
Talsmaður Lýðræðisflokks
Kúrda, KDP, sagði að vonlaust
væri með öllu að innanríkisráð-
herrann færi með rétt mál, þar
sem það væri hverjum einasta
ibúa Mahabad mjög á móti skapi
að herinn héldi inn í borgina.
Útilokað væri að sendinefndin
hefði fallizt á innreið hersins í
borgina.
Að sögn innanríkisráðherrans
náðist ennfremur um það sam-
komulag að félagar í KDP, sem er
bannaður, yrðu ekki eltir uppi og
sóttir til saka. Ennfremur að
þegar lög og regla kæmist á í
Kúrdistan á ný yrðu íbúar héraðs-
ins valdir í byltingarsveitir.
Khomeini trúarleiðtogi var
ómyrkur í máli í dag og lagðist
gegn allri friðargjörð við Kúrda.
Hvatti hann til þess að stjórnar-
herinn yrði sendur inn í Mahabad,
en herinn heldur til í um 35
kílómetra fjarlægð frá borginni.
Ennfremur hvatti Khomeini til
þess að skorin yrði upp herör gegn
uppreisnarmönnum Kúrda og þeir
kveðnir í kútinn í eitt skipti fyrir
öll.
Margrét Thatcher forsætisráðherra Bretlands gefur eiginhandarárit-
un sfna brezka hermanninum Donaid Williams f Musgrave Park
hersjúkrahúsinu í Belfast í gær. Forsætisráðherrann fór í gær í
óvænta heimsókn til Norður-írlands. Símamynd - AP.
Fellibylur
gerir usla
San Juan, Puerto Rico. Roseau,
Domíníku, 29. áicúst. AP — Reuter.
FELLIBYLURINN Davíð olli í
dag talsverðum usla á eyjunum
Martinique og Dominíku í Kar-
fbahafi, en fellibylurinn er sá
kröftugasti sem komið hefur í
þessum heimshluta á þessari öld
og var jafnvel búist við að hann
næði til suðausturhluta Banda-
rfkjanna áður en vindhraðinn,
sem náði allt að 225 kflómetrum
á klukkustund, lækkaði verulega.
Er miðja ofviðrisins átti enn
talsvert ófarið til Dominíku var
þar komið fárviðri og vindhraðinn
nam allt að 80 kílómetrum á
klukkustund. Tré rifnuðu upp með
rótum í höfuðborginni, samgöngur
trufluðust og loka varð eina flug-
velli eyjunnar. Búist var við mikl-
um vatnavöxtum af völdum rign-
ingar. Rafmagn rofnaði með þeim
afleiðingum að útvarp eyjunnar
hljóðnaði og veðurstofan varð
sambandslaus. Ekki fóru neinar
fregnir af manntjóni, en óttast var
að ástandið á eyjunni ætti eftir að
versna töluvert.
Sömu sögu var að segja á
Martinique og Barbados, en tjón
varð þó minna þar en á Dominíku
og Martinique.
2 menn í haldi vegna
morðs á Mountbatten
Dyflinni, London, Belfast,
29. ágúst. AP. Reuter.
LÖGREGLAN á írlandi skýrði
frá þvf f kvöld að hún hefði f
haldi tvo menn og hefðu þeir
verið yfirheyrðir í sambandi við
morðið á Mountbatten jarli á
mánudag. Sagði lögreglan að
bifreið mannanna hefði verið
stöðvuð skömmu cftir morðið og
hefðu þeir þá verið á leiðinni til
Dyflinnar frá vesturhluta lands-
ins. Hefðu fundist leifar sprengi-
efnis og saltvatns f fötum þeirra.
Voru mennirnir leiddir fyrir rétt
í dag og sakaðir um aðild að
írska lýðveldishernum, IRA.
Fyrr í dag skýrði varaforsætis-
ráðherra írlands frá því að lög-
reglan hefði fengið áreiðanlega
vitneskju um hvar morðingjar
Mountbattens hefðust við. Hefði
ríkisstijórnin ákveðið að heita
100.000 pundum, eða um 90 millj-
ónum króna, fyrir upplýsingar er
leiddu til handtöku morðingja
Mountbattens.
Fjöldi fólks fagnaði Margréti
Thatcher forsætisráðherra Bret-
lands er ráðherrann kom í óvænta
„Flúði til að þroska
listhœfileika mína”
New York. Moskvu, Washlngton. 29. ágúst. AP. Rcuter.
SOVÉZKI ballettdansarinn Alexander Godunov, sem leitaði hælis
sem pólitfskur flóttamaður f Bandarfkjunum f sfðustu viku. sagði f
dag á fundi með fréttamönnum. að hann hefði flúið Sovétrfkin f
þeim tilgangi að fá ný tækifæri til að þroska listhæfileika sfna.
Godunov, sem var sólóisti með Bolshoi-flokknum í Moskvu, kvaðst
hafa tekið ákvörðunina fyrirvaralaust. Hann hefði brótið
útivistarreglur flokksins meðan á Bandaríkjadvölinni stóð og af
þeim sökum hefði hann ekki átt afturkvæmt til Sovétrfkjanna.
Ennfremur sagðist Godunov
álíta að ef hann hefði haft
tækifæri til að ræða við eigin-
konu sína á flugvellinum í New
York hefði hún ekki farið aftur
til Sovétríkjanna. Hann sagðist
vonast til að sjá konu sína á ný.
Hann neitaði að hafa flúið vegna
gylliboða og þrýstings banda-
rískra embættismanna, eins og
fjölmiðlar í Sovétríkjunum hefðu
haldið fram.
Utanríkisráðuneyti Banda-
ríkjanna skýrði frá því i dag að
sovézk stjórnvöld hefðu farið
þess á leit við ráðuneytið að það
hefði milligöngu um fund
Alexander Godunov ballett-
dansari á blaðamannafundi f
New York í gær. Símamynd - AP.
sovézkra embættismanna með
Godunov. Sagði talsmaður ráðu-
neytisins að það væri venja að
hvetja flóttamenn til að fallast á
slíka fundi, „en við munum þó
ekki neyða Godunov til slíks
fundar," sagði talsmaðurinn.
Ritstjóri tímaritsins „Dance“,
en hann er náinn vinur Godu-
novs, sagði í dag að stofnað hefði
verið til hjónabands Godunovs
og Ludmilu Vlasovu á sinum
tíma af hentisemi. Gift hjón í
Sovétríkjunum fá stærri íbúðir
en fólk er býr í óvígðri sambúð,
sagði ritstjórinn og bætti við að
samband hjónakornanna hefði
breytzt verulega á síðustu árum,
og hefðu þau t.d. verið mjög
samrýnd síðasta mánuðinn.
skyndiheimsókn til Belfast í dag.
Ráðherrann kvaðst hafa farið til
N-írlands til að kynnast af eigin
raun ástandi mála þar og hver
vilji íbúa væri varðandi framtíð
svæðisins. Sagði ráðherrann að
finna yrði leiðir til að binda endi á
öldu hryðjuverka á Norður-írlandi
og væri sér ljóst að sá væri
einlægur vilji óbreyttra íbúa
hverrar trúar sem þeir væru. „Ef
við sigrumst ekki á hryðjuverka-
mönnunum mun lýðræðið líða
undir lok," sagði ráðherrann.
Samkvæmt skoðanakönnun sem
gerðar voru á N-írlandi síðustu
daga eru þrír fjórðu íbúanna
hlynntir því að brezka stjórnin
stuðli að því að báðir trúarhóp-
arnir fái lifað í sátt og samlyndi
og starfað hlið við hlið.
Brezka stjórnin kemur saman
til fundar í fyrramálið og tekur þá
málefni N-írlands, einkum örygg-
isgæslu á svæðinu, sérstaklega
fyrir. í dag fundaði írska stjórnin
um öryggisgæzlu í héruðum við
landamæri N-írlands, en ekkert
var látið uppi um hvort gerðar
hefðu verið einhverjar samþykktir
á fundinum. Talsmaður stjórnar-
innar sagði þó að gremju gætti í
röðum ráðherra vegna skrifa
brezkra blaða í morgun, þar sem
írska stjórnin var sökuð um sinnu-
leysi gagnvart IRA og að slakað
hefði verið á öryggisgæzlu í landa-
mærahéruðunum. Blöðin sögðu
það dæmigert fyrir afstöðu stjórn-
ar lýðveldisins að Jack Lynch
forsætisráðherra hefði ekki séð
ástæðu til þess að snúa heim úr
sumarleyfi í Portúgal vegna
morðsins á Mountbatten jarli.