Morgunblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979
5
Karnabær byggði
2400 fermetra hús
á sjö mánuðum
Okkur vantar þjálfað starfsfólk,
segir Guðlaugur Bergmann
KARNABÆR h.f. flutti nýlega
inn í nýtt húsnæði við Fossháls í
Reykjavík. Húsnseðið er verk-
smiðjuhúsnæði fyrir Karnabæ og
Beigjagerðina, sem nú er búið að
sameina í eina verksmiðju, og auk
þess eru í húsinu lager og skrif-
stofur fyrirtækisins. Sá áfangi
sem nú er tilbúinn er 2400 fer-
metrar að stærð, en áætlað er að
bæta við 1400 fermetrum sem
þegar er byrjað að vinna við.
Bygging hússins hefur tekið mjög
skamman tíma. því hafist var
handa við bygginguna í janúar-
mánuði sfðastliðnum, og hafist
var handa við flutning í júlí og er
þeim nú lokið.
Guðlaugur Bergmann, forstjóri
Karnabæjar, sagði í samtali við
Morgunblaðið, að hann þakkaði
þennan stutta byggingartíma dug-
legum iðnaðarmönnum, og svo því
að verkefnið var unnið undir umsjá
Hauks Björnssonar framkvæmda-
stjóra Félags íslenskra iðnrekenda
sem drifið hefði verkið áfram, en
iðnrekendur hafa haft frumkvæði
að byggingu iðnaðarfyrirtækja á
þessum stað. Haukur mun taka við
störfum hjá Karnabæ um áramót-
in, er hann lætur af störfum hjá
Félagi islenskra iðnrekenda.
Guðlaugur sagði að hagkvæmni
þess að byggja á svona skömmum
tíma væri augljós, ekki þyrfti að
rökstyðja það öllu nánar. Það væru
ekki aðrir en ríkisvaldið sem gæti
leyft sér að taka sér lengri bygg-
ingartíma í þeirri dýrtíð sem hér
ríkir. Sagði hann fyrirtækið í raun
og veru ekki hafa haft efni á öðru
en að byggja á þeim hraða sem gert
var.
Guðlaugur sagði hið nýja hús-
næði nýtast mjög vel til þeirrar
starfsemi sem það var byggt fyrir,
og öll vinnuaðstaða fólks væri þar
Enn um framboð
Svarthöfða Vísis
í tilefni af grein Sturlu Böðv-
arssonar sveitarstjóra í Stykk-
ishólmi, sem birtist í Morgun-
blaðinu (28. ágúst) um áform af
minni hálfu eða annarra fyrir
mína hönd um þingframboð á
lista Sjálfstæðisflokksins í Vest-
urlandskjördæmi í næstu kosn-
ingum vil ég taka eftirfarandi
fram: Enginn hefur rætt við mig
um slíkt framboð né heldur hef
ég leitað eftir stuðningi til þess.
Sturla byggir grein sína á póli-
tískum getspám Svarthöfða
Vísis (2. ágúst): Að mínum dómi
eru þau stjórnmálaskrif með
þeim hætti, að óþarft er þeirra
vegna að setja sig í jafn há-
tíðlegar stellingar og Sturla ger-
ir. Þeim mun síður finnst mér
ástæða til að nota þau skrif sem
tilefni þeirrar áreitni, sem
Sturla stundar undir rós í grein
sinni. Síðdegisblöðin hafa bæði
verið með spádóma um framboð
af minni hálfu á undanförnum
vikum, annars vegar á Suður-
landi og hins vegar á Vestur-
landi.
í Dagblaðinu var jafnframt
látið að því liggja, að ekki væri
ég velkominn til Suðurlands. Og
af grein Sturlu verður ráðið, að
Vestlendingar kæri sig síður en
svo um að Reykjavíkurstrák sé
upp á þá troðið enda séu slíkir
framagosar best geymdir í sinni
heimabyggð auk þess sem hann
býður því, sem hann kallar
„valdakjarna Sjálfstæðisflokks-
ins“, byrginn. Ekki geri ég þá
kröfu til Svartshöfða Vísis, að
skrif hans byggist á staðreynd-
um, en stjórnmálaskrif þeirra,
sem stjórnmál stunda, verða
a.m.k. að byggjast á því, sem
einhver fótur er fyrir. Sturla
hefur fallið í þá gryfju að taka
Svarthöfða hátíðlega. Ég get
fullvissað hann og aðra þá, sem
kunna að hyggja á framboð fyrir
Sjálfstæðismenn á Vesturlandi,
um að þeir þurfa ekki að óttast
keppni við mig og sama er að
segja um þá Sjálfstæðismenn
sem ganga með þingmann í
maganum fyrir Sunnlendinga.
Björn Bjarnason.
23 þúsund hafa
séð kaupstefnuna
TUTTUGU og þrjú þúsund manns höfðu séð alþjóðlegu vörusýninguna í
Laugardalshöllinni í gærkvöldi.
Á sýningunni er dregið daglega í gestahappdrætti. Vinningur hvern dag
er 500 þúsund króna sólarlandaferð með Útsýn.
Dregið hefur verið fjórum sinnum og hafa eftirtalin númer komið upp: 826,
2707, 8398 og 15414. Meðfylgjandi mynd sýnir vinningshafann á mánudag,
Heimi Einarsson, er hann tók við vinningnum úr hendi Bjarna Ólafssonar
framkvæmdastjóra kaupstefnunnar. Með þeim á myndinni er Dísa Dóra
Hallgrímsdóttir starfsmaður Útsýnar.
Hið nýja húsnæði Karnabæjar við Fossháls. Þrátt fyrir erfiðan vetur var húsið byggt á mjög skömmum
tíma, eða á aðeins sjö mánuðum.
mun betri en var í því húsnæði sem
verksmiðjurnar voru í áður. Um
tíma kvað Guðlaugur ugg hafa ríkt
um það að fólk vildi ekki fara í nýja
húsnæðið þar sem það er fjær
miðbænum, en sú hefði ekki orðið
raunin. Starfsfólkið hefði haldið
áfram vinnu sinni hjá fyrirtækinu,
enda væri vinnuaðstaða þess mun
betri eftir en áður. Vegna stækkun-
ar fyrirtækisins hefði hins vegar
þurft að fjölga fólki, en erfitt hefði
reynst að fá þjálfað iðnverkafólk
til starfa, mikill hörgull virtist
vera á slíku vinnuafli. Sagði Guð-
laugur að því hefði orðið að grípa
til þess ráðs að ráða óvant starfs-
fólk og þjálfa það upp. Sagði hann
þetta ástand ef til vill dæmigert
hér á landi, öll áhersla væri lögð á
hinar ýmsu námsgreinar í háskóla,
en engin rækt væri lögð við að
kenna fólki undirstöðuatriði í hin-
um ýmsu iðngreinum í skólum hér
á landi.
Vinnuaðstaða er sem fyrr segir
mjög góð í hinu nýja húsnæði, og
einnig verður þar komið upp
saunabaði fyrir starfsfólk, kaffi-
stofa er mjög vistleg og fleira
mætti nefna. Þá sagði Guðlaugur
að íbúum Árbæjarhverfis sé sér-
staklega boðið að koma og skoða
fyrirtækið, og von Karnabæjar
væri að íbúar hverfisins byrjuðu
ekki á því að fara út fyrir hverfið ef
Ljósm.: Emilía.
þeir fyndu vinnu við sitt hæfi hjá
fyrirtækinu.
Rekstur fyrirtækisins sagði hann
ganga mjög vel, og það væri
hvatning á rekstur saumastofu
Karnabæjar, að þær vörur sem þar
væru framleiddar seldust langbest
af öllum þeim vörum sem til sölu
væri í verslunum Karnabæjar víða
um land. Þá væri starfsfólkið
einnig mjög hæft og duglegt, og því
hefði framleiðni verið hlutfallslega
mjög góð miðað við fyrirtæki
erlendis. Það kæmi sér augljóslega
vel fyrir fyrirtækið, auk þess sem
það skilaði sér í hærri launum til
starfsfólksins vegna bónusfyrir-
komulags.
STERKASTA RYKSUGA
í HEIMI
HOOVER S-3001
Hoover S-3001 er á tnargan hátt lang sterkasta heimilisryksuga
sem þekkist. Af 1340 watta afli hreinsar hún öll þin teþpi af hvers
kyns óhreinindum. Breyta má um sogstyrk eftir því hvað hentar.
Þér til mikils vinnuhagrceðis er rofinn t handfanginu, undir þumal-
fingrinum. Að hreinsa kverkar er aldeilis aUðvelt, stillanlegt sog-
stykki sérfyrir því. Stór hjól og hringlaga lögun gera Hoover S-3001
einkar lipra í snúningum, hún rispar ekki húsgögnin þtn.
Til þœginda er sjálfvirkt inndrag á aðtauginni. Hoover S-3001 ber
sjálf öll hjálpartœki, svo núgetur þú loksins haftfullt gagn af þeim.
Og ekki síst, 12 lítra rykpoki sem enst getur þér í marga máhuði án
tcemingar.
Hringlaga lögunin gefur
hinum risastóra 12 lítra
ryhpoka nœgjanlegt rými.
HOOVER
er heimilishjálp.
FALKIN N
SUfHJRLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA