Morgunblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979 t Maöurinn minn, ÞÓR SANDHOLT ■kólaatjóri andaöist aö heimili okkar, Laugarásvegi 33, aöfaranótt 29. ágúst. Fyrir hönd vandamanna, Guöbjörg Sandholt + Eiginmaöur minn og faðir okkar JÓN E. VESTDAL efnaverkfræóingur lést á Grænlandi 24. ágúst. Jaröarförin hefur fariö fram. Elísabet Veatdal Abéla Jóhannea Veatdal t Móöir okkar, tengdamóöir og amma. ERLENDSÍNA GUÐLAUG ÓLAFSDÓTTIR Tjarnarbraut 9 Hafnarfiröi lést á Landspítalanum aö morgni 29. ágúst. Börn, tengdabörn og barnabörn. + Eiginkona mín, móöir, tengdamóöir og amma INGIBJÖRG GUDJÓNSDÓTTIR Ljóaheimum 4, andaöist í Borgarspítalanum þriöjudaginn 28. ágúst. Þóröur Guömundaaon, Inga Róaa Þóröardóttir Guómundur Steingrímaa&n, Berglind Róa Guömundadóttir, Sunna Björk Guðmundadóttir + Eiginmaöur minn og faöir okkar ÞÓRARINN JÓNSSON frá Starmýri andaöist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund mánudaginn 27. ágúst s.l. Jaröarförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 3. sept. n.k. kl. 10.30. Blóm og kransar afbeöin en þeim sem vildu minnast hans er bent á aö láta elli- og hjúkrunarheimiliö Grund njóta þess. Stefanía Brynjólfadóttir Oddný Þórarinadóttir Elía Þórarinaaon. Dóttir okkar og systir AÐALHEIÐUR ERLA GUNNARSDÓTTIR Syöra-Vallholti sem lést 26. þ.m. veröur jarösungin frá Víölmýrarkirkju laugardag- inn 1. september kl. 5 síðdegis. Fyrir hönd okkar og annarra vandamanna Stefanía Sæmundadóttir Gunnar Gunnaraaon Jónína Gunnaraddóttir. + HALLDÓRA SIGRÚN ÁRNADÓTTIR, póat- og afmatöövaratjóri, Grundarfirðí, veröur jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn 31. ágúst kl. 13:30. Þeim sem vilja minnast hennar skal bent á Krabba- meinsfélagiö eöa Grundarfjaröarkirkju. Fyrir hönd barna, móöur og annarra vandamanna, Frlörik Áakell Clauaen + Útför eiginmanns míns, fööur og afa, EINARS GUDBJARTSSONAR fyrrum kaupfélagaatjóra, Böövaragötu 17 Borgarneai, veröur gerö frá Borgarneskirkju, laugardaginn 1. sept. kl. 2.00. Guörún Grímadóttir Maria Einaradóttir Einar Guömar Halldóraaon + Móöurbróöir okkar SIGURÐUR PÁLMASON Áavallagötu 16, verður jarösunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 31. ágúst kl. 10.30 f.h. Jón Jóhanneaaon, ^'n,r Jóhanneaaon, Guðfinna Jóhanneadóttir og aörir aöatandendur. Vinarkveðja — Hallur Pálsson frá Garði Vinarkveðja Hallur Pálsson frá Garði Hegranesi er látinn. Það er langt síðan fundum okkar bar fyrst saman, ég var víst á níunda árinu. Foreldrar hans, Steinunn Halls- dóttir og Páll Pálsson tóku mig þá undir sinn verndarvæng, og veittu mér skjól til fullorðinsára. Geisla- baugur um það. Heimili þeirra var alltaf ljúft og glatt, hvar sem þau námu land, iðjusemi og regla ríkti þar. Við þessa heimilishætti var einkasonur þeirra, Hallur, alinn upp. Hann átti heima á nokkrum stöðum á sinni lífsleið. Hann var mjög starfssamur, hvar sem hann var. Alúð og trúmennska ein- kenndi allt hans líf, hver sem verkefnin voru, alltaf sami öðling- urinn. Ég þykist þess fullviss, að samstarfsmenn hans, hvar sem er, minnist hans með virðingu og þökk fyrir liðna daga, því að minningin um slíka menn er öllum hugljúf. Það má mikið kynnast persón- um manna, er þeir eru háðir einhverjum erfiðleikum. Hallur hefur verið mjög sjúkur nú um langan tíma, en skaplyndi hans var, eftir þvi sem ég bezt veit, í framúrskarandi jafnvægi, mér fannst alltaf ró og friður ríkja hjá honum, þegar ég kom til hans. Hann hélt alltaf sinni traustu og alúðarfullu reisn. Já, ég hef margs að minnast frá fyrri samvistardögum okkar. Það er stundum margbreytilegt lífið í sveitinni, störfin stundum fjöl- breytt. Þannig var það oft hjá okkur. Það var alltaf gestkvæmt á heimili foreldra hans, svo var einnig hjá Halli og konu hans, Kristínu Sigtryggsdóttur frá Framnesi í Blönduhlíð, en hún er látin fyrir mörgum árum. Hún dró heldur ekki úr því að fagna gest- um. Við hjónin minnumst þess enn í dag, er við heimsóttum þau á Akureyri, móðir hans var þá lifandi. Hvílík alúð og einlægni brosti við okkur. Hallur fékkst við ýmis störf um ævina. Ég fer ekki að rekja bú- skaparsögu hans. Hann fram- kvæmdi margt í Garði, sem enn mun standa. Hann var framúr- skarandi reglusamur og snyrtileg- ur í umgengni, það sýndi sig ekki hvað minnst, er hann bjó einn í Hátúni. Þar var gott.og gaman að heimsækja hann, meðan heilsan entist. Við hjónin þökkum honum fyrir alúð og gestrisni frá fyrstu tíð, og ég fyrir gamla daga. Alla góðar vættir signi leið hans nú. Jónas K. Jósteinsson. Hinn 23. ágúst sl. lést fósturfað- ir minn, Hallur Pálsson frá Garði í Hegranesi í Skagafirði á sjúkra- deild Landsspítalans að Hátúni 10—B, Reykjavík. Hallur var fæddur 18. marz 1898 í Garði og voru foreldrar hans hjónin Páll Pálsson og Steinunn Hallsdóttir er lengst af bjuggu í Garði. Þar ólst hann upp hjá foreldrum sínum, — að undan- skildum 5 árum, er þau bjuggu vestan Héraðsvatna. Hann var einkabarn þeirra hjóna. Hallur mun mjög ungur hafa farið að taka duglega til hendi við búskaparstörfin með föður sínum í hinni erfiðu lífsbaráttu þeirra ára. Vorið 1920 fluttist Hallur með foreldrum sínum frá Garði að Framnesi í Blönduhlíð. Árið 1921 gekk hann að eiga ömmusystur mína og síðar fósturmóður, Krist- ínu Sigtryggsdóttur frá Framnesi í Blönduhlíð, dóttur Sigtryggs Jónatanssonar bónda þar og Sigurlaugar Jóhannesdóttur konu hans. Bjuggu þau Hallur og Krist- ín á 3/4 hluta Framness í 2 ár en fluttust þá í Brimnes í Viðvíkur- sveit og bjuggu þar í önnur 2 ár. Jón E. Vestdal dr. ing - Mnningarorð Þegar mér barst fregnin um lát dr. Jóns E. Vestdals vestur á Grænlandi síðastliðinn föstudag, 24. ágúst, fór ég að blaða í gömlum gerðarbókum félagsins Germaníu. Reyndar mundi ég fullvel þá tíma, eftir síðari heimsstyrjöldina er dr. Jón og nokkrir félagar hans, einkum háskólastúdentar, sem stundað höfðu nám í Þýskalandi, tóku höndum saman og söfnuðu fé til þess að geta sent stríðsþjáðri vinaþjóð þorskalýsi. Margar sögur fara af því, hversu vel þessi litla gjöf var þegin. Félagið Germanía var stofnað árið 1920 og hefir jafnan starfað af miklum krafti, og strax er síðara stríðinu lauk gekkst dr. Jón fyrir því, að tekinn var upp þráð- urinn þar sem frá var horfið 1939. Hann varð fyrsti formaður félags- ins árið 1951 og gegndi formanns- starfinu samfleytt í 19 ár. Síðustu árin var hann eini heiðursfélagi Germaníu. Þegar blaðað er í gerð- arbókunum sést að allir helstu þættirnir í starfi félagsins voru teknir upp af dr. Jóni, sýningar á þýskum kvikmyndum, útgáfa árs- rits á þýsku, með greinum um ísland, fyrst á vegum Germaníu einnar en síðar í samvinnu við vinafélögin í Hamborg og Köln; gagnkvæmar heimsóknir þýskra og íslenskra fræði- og áhrifa- manna, þýskar listsýningar haldn- ar hér á landi eins og t.d. Nolde sýningin, í Listasafni Islands árið 1970, er Germanía varð 50 ára, og íslenskar listsýningar í þýskum stórborgum. Nú síðast í vor var haldin sýning á gömlum íslensk- um landabréfum í sjálfu Guten- bergssafninu í Mainz, að vísu ekki á vegum Germaníu, en á sýning- unni voru landabréf, sem voru eign dr. Jóns Vestdals að miklu leyti. En dr. Jón hafði eignast fleira en þetta dýrmæta landabréfasafn. Bókasafn hans var fágætt, einkum margar gamlar íslenskar bækur og a.m.k. eitt fallegt gamalt ís- lenskt handrit; einnig erlendar bækur, sem varða ísland. Jón var maður listelskur og átti gott safn íslenskra málverka. Hann unni menntun. En hann var þó fyrst og fremst duglegur verkfræðingur og einbeittur framkvæmdamaður. Á því sviði ber Sementsverk- smiðju ríkisins hæst en frumárin var verksmiðjan undir stjórn dr. Jóns. Hann var formaður stjórn- skipaðrar nefndar árið 1949, sem átti að ljúka rannsóknum á vænt- anlegri sementsverksmiðju og staðsetningu hennar, og hann undirbjó einnig dælingu kalk- sands til sementsframleiðslu úr Faxaflóa og stjórnaði dælingar- framkvæmdum. Þetta voru stund- um erfið ár, ekki laust við að tregðulögmálsins gætti nokkuð sem endranær og stundum minnt- ist dr. Jón velþegins stuðnings ólafs Thors, sem þá var atvinnu- málaráðherra. Eins og í Germaníu var dr. Jón allt í öllu í Sements- verksmiðjunni fyrstu árin, og forstjóri hennar var hann um fimmtán ára skeið frá 1955. Jón varð rúmlega 71 árs, fæddur 7. apríl 1908 að Breiðabólsstöðum á Álftanesi. Foreldrar hans voru Erlendur, hreppstjóri þar, f. 1874, d. 1953, Björnsson, og kona hans María, f. 1866, d. 1947, Sveinsdótt- ir, bónda og stórskipasmiðs í Gufunesi. Jón lauk stúdentsprófi 1928, prófi í verkfræði frá TH í Dresden 1932, vann að rannsókn- um við TH í Dresden 1932—33 og hlaut doktorsnafnbót (dr. ing.) Hallur var þá eigandi að hluta í jörðinni Garður í Hegranesi og árið 1926 festi hann kaup í þeim hluta jarðarinnar, er hann átti ekki, og fluttust þau Kristín þá um vorið í Garð. Jörðin var lítil og í niðurníðslu og biðu ungu hjón- anna ótæmandi verkefni við upp- byggingu og ræktun. Þá var sá tími ekki upp runninn að unnt væri að beita stórvirkum vélum við erfiðustu störfin. Hallur var mikill ákafamaður við vinnu og mun oft hafa lagt nótt við dag á búskaparárum sínum. Garður var í þjóðbraut og því jafnan mjög gestkvæmt þar. Árið 1929—1930 byggðu þau nýtt íbúðarhús úr steinsteypu í Garði og stendur það enn og árin eftir byggðu þau hlöður og útihús. Jafnhliða byggingarframkvæmd- um vann Hallur óhemjumikið starf við ræktun jarðarinnar. Vorið 1937 brugðu þau hjónin búi og fluttust til Akureyrar. Bjuggu þau þar í 9 ár og vann Hallur lengst af þar hjá skinna- verksmiðjunni Iðunni. Árið 1946 fluttist Hallur til Reykjavíkur með fjölskyldu sína og tók við Starfi fangavarðar í Hegningarhúsinu, Skólavörðustíg 9. Skömmu síðar var hann skipað- ur yfirfangavörður, þar sem mág- ur hans, Jón Sigtryggsson, er gegndi því starfi, slasaðist og varð að hætta störfum. Alls starfaði hann sem fangavörður í tæp 9 ár, en er hann hætti hóf hann störf sem verkstjóri hjá trésmiðjunni Víði í Reykjavík og vann hann þar til ársins 1965, er hann missti heilsuna í mörg ár. Þeim Halli og Kristínu varð ekki barna auðið en á búskaparár- um sínum í Garði tóku þau að sér tvö fósturbörn, Guðrúnu Eiríks- dóttur, sem gift er Ragnari J. Trampe, búsett á Akureyri, og undirritaðan, sem kýæntur er Steinunni Halldórsdóttur og bú- settur er í Kópavogi. Hjónaband Halls og Kristínar var mjög gott og ríkti hjá þeim mikil samheldni. Kristín átti í mörg ár við vanheilsu að stríða og fyrir ritgerð sína um þessar rann- sóknir sínar 1933. Fyrstu árin eftir heimkomuna vann hann að matvælarannsóknum á vegum heilbrigðisstjórnarinnar og var vorstöðumaður matvælaeftirlits ríkisins 1934—46, einnig var hann kennari í Verslunarskóla íslands um fimm ára skeið. En lengst á þessu æviskeiði var hann sérfræð- ingur í iðnaðardeild Atvinnudeild- ar Háskólans 1936—50. Á þessum árum vann hann mikið stórvirki (ásamt Hermanni Jónssyni lög- fræðingi) við útgáfu Vöruhand- bókar, með tilvísun í tollskrár, í fjórum stórum bindum. Hann var lengi í stjórn verkfræðingafélags Islands og formaður þess (1944—46) og einnig í ritstjórn (og ritstjóri) Tímarits Verkfræðinga- félagsins. Jón vann ásamt Stefáni Bjarnasyni að fyrsta Verkfræð- ingatalinu, sem út kom 1956. Hér yrði of langt mál að telja upp allar þær ritgerðir sem hann skrifaði og birti og fjölluðu um hin óskyld- ustu efni, sement, blý, olíu, brennistein, alginsýrur og þara- vinnslu, undanrennu, mjólk og mjólkurafurðir, kartöflur o.fl. og eitt er mér kunnugt um, að hið rómaða ísl. brennivín var á sínum tíma gert eftir hans forskrift, þá er hann um skeið var ráðunautur

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.