Morgunblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 44
”wL
FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979
PLAST
ÞAKRENNUR VS
Sterkar og endingargoóar
Hagstætt verð
cSþ Nýborg"
Armúla 23 — Sími 86755
HUMARVERTÍÐINNI lýkur á morgun, en veiðitímabilið var framlengt
vegna lélegrar veiði framan af. Upp á síðkastið hafa Hornafjarðarbátar
aflað dável, en gengið heldur illa hjá Eyjabátum. Á þessari mynd
berjast skipverjar á Haferninum við að ná inn trollinu, sem virðist
eitthvað óklárt, en á miðopnu eru fleiri myndir af humarmiðunum
austan við Eyjar. (Ljósm. Mbl. Sigurgeir).
Klak þorskfiska virð-
ist hafa tekizt illa í vor
Vélarbilun
í söluferð
VÉLARBILUN varð hjá
íslenska skipinu Eld-
hamri er það var á leið til
Englands í söluferð, og
munu írsk skip hafa ver-
ið köiluð á vettvang til
aðstoðar.
Að sögn Þrastar Sigtryggs-
sonar hjá Landhelgisgæzlunni
amaði ekkert að hjá skipverj-
um að öðru leyti, en bilun sem
einnig varð í talstöð gerði það
að verkum að illa hefur gengið
að ná sambandi við skipið
héðan frá Islandi. Verður það
því væntanlega dregið til hafn-
ar í Englandi til viðgerðar, en
nærstödd skip munu hafa náð
kalli skipverja.
LAUNAHÆKKUN um næstu mán-
aðamót skal verða samkvæmt út-
reikningi Kauplagsnefndar 9,17%,
svo sem áður hefur verið getið í
Morgunblaðinu. Þessi kauphækkun
mun veita allt frá tæplega 19
þúsund króna iaunahækkun um
mánaðamótin í rúmlega 118 þúsund
króna hækkun og er þá miðað
annars vegar við 4. taxta Dags-
brúnar og hins vegar við laun
forsætisráðherra landsins. Morgun-
blaðið leitaði f gær upplýsinga um
hver þessi launahækkun yrði f
krónutölu miðað við nokkrar
starfsgreinar. Tekið skal fram að
aðeins er miðað við iaun fyrir
dagvinnu.
Fjórði taxti Dagsbrúnar hækkar
úr 205.276 krónum á mánuði í
224.100 krónur eða um 18.824 krónur.
í þessum tölum felast engin álög
fremur en í öðrum tölum, sem
nefndar eru. Trésmiður, almennt
kaup manns, sem unnið hefur í 3 ár,
er nú 213.861 króna en verður
233.474 krónur. Hækkunin á mánað-
en betur hiá loðnunni
SVO VIRÐIST sem klak þorsk-
fiska hafi tekist illa f vor, en klak
loðnunnar hafi hins vegar tekist
betur. Hafrannsóknaskipin Árni
Friðriksson og Bjarni Sæmunds-
son er nú við seiðarannsóknir og
fékk Morgunblaðið þessar upp-
lýsingar hjá Hjálmari Vil-
hjálmssyni fiskifræðingi og leið-
angursstjóra um borð í Árna
Friðrikssyni í gær. Árni Frið-
riksson er væntanlegur inn til
Reykjavíkur í kvöld, en Bjarni
Sæmundsson hins vegar ekki fyrr
en 10. september. Bjarni er nú í
Grænlandshafi, en þar er leiðang-
ursstjóri Vilhelmfna Vilhelms-
dóttir.
— Það er lítið og illt að frétta
af þorski og ýsu, en hins vegar
sýnist mér ætla að verða þokkaleg
útkoma hjá loðnunni, sagði
Hjálmar Vilhjálmsson í gær. —
Ég þarf nokkurn tíma til að skoða
þetta betur eftir að heim er komið
og bera upplýsingar saman við
niðurstöður leiðangra undanfar-
inna ára. í bili vil ég aðeins segja
það að illa líti út með klak
þorskfiska, en skár hjá ioðnunni,
sagði Hjálmar.
Aðspurður um ástæður fyrir
þessu, sagði hann að þær gætu
verið margar og á þessu stigi væri
of snemmt að fullyrða nokkuð um
þær. Hann sagði að undanfarin ár
hefði ekki verið hægt að benda á
beint samband á milli klaks
þorskfiska og loðnu. Þannig hefðu
t.d. árgangar þorsks og loðnu 1976
verið góðir, en svo væru aftur
önnur dæmi hliðstæð við það sem
virtist í ár, þ.e. góðir loðnuárgang-
ar, en lélegri þorskárgangar.
Launabreytingar 1. september:
Laun verkamanns hækka um
18.824 kr. en ráðherra 118.093
arlaununum nemur 19.613 krónum.
Vélstjóri í frystihúsi, sem fær greitt
samkvæmt 4. flokki og hefur 5
starfsár að baki hefur fengið 279.641
krónu á mánuði, en fær nú 305.284
krónur á mánuði. Hækkun mánað-
arlaunanna nemur 25.643 krónum.
Verzlunarmaður, sem fengið hefur
greitt samkvæmt 7. flokki eftir 4ra
ára starf, fær nú 259.417 krónur, en
hækkar í 283.206 krónur. Hækkunin
nemur 23.789 krónum á mánuði.
Kanni maður hins vegar launa-
hækkunina hjá opinberum starfs-
mönnum og þeirra er ráða stjórn
landsins, kemur í ljós að forsætis-
ráðherra hefur haft í laun 1.287.818
krónur á mánuði, en hækkar í
1.405.911 krónur á mánuði. Hækkun-
in nemur 118.093 krónum á mánuði.
Aðrir ráðherrar hafa haft í laun
1.219.130 krónur á mánuði, en fá nú
1. september 1.330.924 krónur.
Hækkun þeirra nemur 111.794 krón-
um á mánuði. Þegar hér er rætt um
ráðherralaun eru það þau ásamt
þingfararkaupi. Þingmaður fær í
mánaðarlaun 555.170 krónur, en
hækkar í 606.079 krónur. Hækkunin
nemur 50.909 krónum á mánuði.
Sé gluggað í iaunataxta BSRB
kemur í ljós að 7. flokkur, sem í eru
talsímakonur og fleiri hækkar úr
250.053 krónum á mánuði í 272.983
krónur. Hækkunin þar er 22.930
krónur á mánuði. Fjölmennasti
iaunaflokkurinn innan ríkisgeirans
er 13. launaflokkur, þar sem aðallega
eru kennarar. Þessi flokkur hækkar
úr 311.624 krónum á mánuði í
340.200 krónur eða um 28.576 krónur
á mánuði. 18. flokkur BSRB hækkar
úr 366.269 krónum á mánuði í
399.856 krónur eða um 33.587 krónur.
Bruni að Lauga-
bóli í Reykjavík
HLUTI af fjárhúsi og hlöðu að
Laugabóli f Reykjavík brann í
fyrrinótt, og urðu miklar skemmd-
ir á húsum og heyi. Kúm í fjósi
tókst hins vegar að bjarga út.
Slökkvilið í Reykjavík kom á
vettvang og tókst að ráða niðurlög-
um eldsins, en vakt var höfð við
heyið áfram vegna hættu á að
eldurinn næði sér upp á ný. Ekki er
vitað um eldsupptök, en grunur
leikur á að um íkveikju hafi verið
að ræða.
Eyjólfur Konráð um Rockall og Breta:
Tökum ekki tillít tQ land-
yinnmgstilrauna Breta
Bretar vinna við að koma upp sjálfvirkum stefnuvita á Rockall
til að undirstrika kröfu sfna um yfirráðarétt yfir klettinum.
ÞAÐ ER ekkert ákveðið um
þessi landgru’-nsmörk,“ sagði
Eyjólfur Konráð Jónsson
alþm. er Morgunblaðið bar
undir hann fregnir í dönskum
og færeyskum blöðum um deilu
milli Dana og Færeyinga ann-
ars vegar og Breta hins vegar
um rétt til hafsvæða á Atl-
antshafi í námunda við Rock-
all. „Alþingi gerði ályktun um
það hinn 22. des. sl.,“ sagði
Eyjólfur Konráð ennfremur,
„að ekki beri að taka tillit til
þessara landvinningstilrauna
Breta og ákvað að samvinnu
eigi að hafa við Færeyinga um
að tryggja sameiginleg rétt-
indi Færeyinga og Islendinga á
þessu svæði.“
í Berlingske Tidende hinn 24.
ágúst sl. er skýrt frá því, að
Bretar hafi komið fyrir sjálf-
virkum stefnuvita á Rockall í
þeim tilgangi að undirstrika
kröfu sína til yfirráða yfir
þessum kletti. Hið danska blað
segir, að þarna geti miklar
olíulindir verið og hafi Bretar
sitt fram muni það takmarka
aðgang Færeyinga að þessum
auðlindum. Berlingske segir, að
Rockall sé kjarni þessarar
Samvinna
við Færey-
inga um
sameigin-
legan rétt
deilu. Bretar gera kröfu til þess,
að réttur þeirra til yfirráða á
hafi og hafsbotni miðist við, að
þeir ráði yfir Rockall. Danir
segja hins vegar, að á milli
Rokksins og landgrunns Skot-
lands sé mikið hafdýpi og að
Rretar eigi ekki rétt handan
þessa hafdýpis.
í upphafi þings sl. haust
flutti Eyjólfur Konráð Jónsson
þingsályktunartillögu ásamt
nokkrum öðrum þingmönnum
Sjálfstæðisflokksins, einum úr
hverju kjördæmi, og var tillag-
an svohljóðandi: „Alþingi lýsir
yfir, að ytri landgrunnsmörk
Islands til suðurs verði ákveðin
án tillits til Rokksins (Rockall)
og að samvinna verði höfð við
Færeyinga til að tryggja sam-
eiginleg réttindi á landgrunns-
svæðinu utan 200 sjómílna
marka landanna."
Þessi þingsályktunartillaga
var afgreidd með því að henni
var vísað til ríkisstjórnarinnar.