Morgunblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 42
„Vitleysa
aö stilla
upp þrem
framherjum
gegn jafn
sterku liði
og því
hollenska"
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979
s
PÉTUR Pétursson, Teitur Þóröarson og Jóhannes Eðvaldsson fagna marki sem var skoraö gegn Sviss á Laugardalsvellinum í vor, en dæmd
af á vafasömum forsendum. Vonandi fá þeir Pétur og Búbbi tækifæri tii aö fagna á þennan hátt gegn Hollandi, Teitur veröur hins vegar
fjarri góöu gamní, „fellur ekki inn í þaö kerfi sem landsliöið á aö leika“ og því ekki valinn.
SJÖUNDA VIÐUREIGN ÍSLANDS OG HOLLANDS:
Varla hægt að mæta
sterkari andstæðingi
ÍSLENDINGAR og Hollending-
ar leika landsleik íknattspyrnu
á miðvikudaginn næstkomandi.
Leikurinn, sem er liður í riðla-
keppni Evrópukeppni lands-
liða, er sjöunda viðureign þjóð-
anna á knattspyrnuvettvangin-
um. íslendingar hafa ekki riðið
feitum hesti frá leikjum sínum
við Ilollendinga, enda ólfku
saman að jafna. Hollendingar
hafa um margra ára skeið verið
f hópi bestu knattspyrnuþjóða
heims og hafa leikið til úrslita f
tveimur sfðustu HM-keppnum.
Reyndar töpuðust báðir úrslita-
leikirnir, en Hollendingar þóttu
þó vera sterkari aðilinn í báð-
um leikjunum, sem voru gegn
Vestur-Þjóðverjum og Argent-
fnumönnum.
íslendingar hafa að vísu einu
sinni iagt hollenskt landslið að
velli. Það var árið 1961 er land-
inn vann 4—3, en það var áhuga-
mannalandslið Hollands. ísland
hefur tapað öllum leikjum sínum
gegn atvinnumönnum Hollands
og skal engan undra það. Það
sætir meira að segja furðu hve
íslenskum landsliðum hefur tek-
ist að standa uppi í hárinu á
hollenskum landsliðum. í því
sambandi má minna á leik þjóð-
anna á Laugardalsvelli 1976.
Hollendingar unnu 1—0, en áttu
lengst af í vök að verjast. Ári
síðar tapaði Island 1—4 í Nij-
megen, en úrslit síðari hálfleiks í
þeim leik urðu 1—1.
íslendingar hafa líka fengið
ljóta skelli hjá Hollendingum,
eins og t.d. þegar liðið lék tvo
leiki á fáum dögum í Amsterdam
og Deventer árið 1973. Leikirnir
töpuðust 0—5 og 1—8. Hollend-
ingar voru þá firnasterkir sem
endranær og eini ljósi punktur-
inn við úrslitin var mark Elmars
Geirssonar, sem reyndist vera
eina markið sem hollenska liðið
fékk á sig af mótherja á leið
sinni í úrslitaleik HM ári síðar.
Tvö sjálfsmörk skoruðu þeir, en
það var ekki fyrr en að Vest-
ur-Þjóðverjar skoruðu tvívegis í
úrslitaleiknum og unnu 2—1, að
mótherja tókst að skora.
Þetta er síðari viðureign Is-
lendinga og Hollendinga í Evr-
ópukeppni landsliða að þessu
sinni, fyrri leikurinn fór fram í
Nijmegen í fyrra og leuk mað
öruggum sigri Hollands, 3—0.
Það verður því fróðlegt að sjá
hver útkoman úr leiknum á
miðvikudaginn verður. Kunna
leikmenn vantar í bæði liðin, en
trúlega veikir það frekar ís-
lenska liðið. Sigur gegn Hollandi
er varla raunhæf krafa, en víst
er að landsliðsmennirnir ís-
lensku munu gefa allt sem þeir
eiga til.
15 manna hópur fyrir lands-
leikinn við Holland valinn
ÞAÐ heföi Þurft glóandi tengur til
aö draga upp úr Joura landaliöa-
Þjálfara hvernig hann hefði huga-
að aér aö leika gegn hollenaka
liðinu. Blaðamenn reyndu að
apyrja hann á blaðamannafundi í
gær, en hugmyndir hana eru
greinilega enn í mótun. Hann
aagði Þó m.a.:
„Þaö væri fávitalegt aö leika meö
3 framlínumönnum gegn liöi jafn
sterku og því hollenska og þaö
væri hlægilegt aö lýsa því yfir aö ég
ætlaöi aö gera slíkt. Hitt er svo
annaö mál, aö ég hef ávallt veriö
andvfgur því aö pakka í vörn. Þaö
veröur sótt aö okkur og viö munum
neyöast til aö verjast, en síöan
munum viö bíöa eftir því aö Hol-
lendingarnir geri mistök og beita
þá skyndisóknum."
Blaöamenn vildu fá aö vita hvaöa
„taktík“ yröi notuð, og loks tókst
aö veiöa það upp úr Joura, aö ekki
væri ólíklegt aö hann myndi tefla
fram tveimur „svíperum" en svo
nefnast á erlendu máli leikmenn
sem leika fyrir aftan hina eiginlegu
varnarmenn. Veröi tveir sóparar, er
Ijóst aö ekki muni færri en 5
leikmenn skipa vörn íslands aö
staöaldri, kannski fleiri. Samkvæmt
þessu mun vera ætlunin aö leika
upp á jafntefli, eöa mjög naumt
tap. Hæpiö er að íslenska liðinu
takist að skora ef mjög fátt veröur
framar á vellinum. Þó vona allir þaö
besta, ótrúlegri hlutir gerast jafnan
á knattspyrnuvöllum.
25 prósentin
renna í sjóð
• FRAM kom í blaðinu eftir
úrslitaleikinn f bikarkeppn-
inni, að KSÍ fengi 25% af
hagnaðinum af ieiknum. bessi
prósenta rennur að vfsu til KSÍ,
en nánar tiltekið í sjóð sem KSI
geymir til styrktar félögum
sem verða fyrir fjárhagslegu
tapi vegna þátttöku sinnar f
bikarkeppninni. Það er því
ekki KSI sem græðir þarna
stórfé.
Forsala
• Forsala að landsleiknum
verður með líku sniði og áður.
flún hefst á fornum slóðum við
Qtvegsbankann á mánudaginn
frá klukkan 13.00 til 18.00. Á
iriðjudaginn og miðvikudaginn
verður selt í tjaldinu frá klukk-
an 10—17.00 og frá klukkan
10.00 á Laugardalsvelli keppn-
sdaginn, fimmtudaginn.
• Örn Óskarsson, Eyjamaöurinn
fílefldi, kemur inn i landsliöiö á
nýjan leik. Hollendingar eiga
eitraöan útherja aö nafni Simon
Athamata. Veröi sá meö gegn
íslandi, væri þaö sterkur leikur
aö tefla Erni fram gegn kappan-
um. Undirritaöur hefur séö Tah-
amata þennan ieika og er erfitt
að finna lýsingarorö til aö lýsa
hraöa hans og leikni.
Þrír
nýliðar
Landsliösnefndin í knattspyrnu
hefur valiö 15 manna hóp, sem
velja á úr til að mæta Hollending-
um á Laugardalsvellinum á mió-
vikudaginn 5. september næat-
komandi. Áður en fjallað verður
nánar um val nefndarinnar, akul-
um við líta á hópinn.
Markverðir:
Ársæll Sveinsson ÍBV (0)
Þorsteinn Bjarnason La
Louviere (3)
Aðrir leikmenn:
Atli Eövaldsson Val (14)
Guömundur Þorbjörnsson Val (15)
Árni Sveinsson ÍA (22)
Höröur Hilmarsson Val (13)
Dýri Guömundsson Val (2)
Karl Þóröarson La Louviere (8)
Jóhannes Eövaldsson Celtic (29)
Magnús Bergs Val (0)
Marteinn Geirsson Fram (42)
Pétur Péturss. Feyenoord (7)
Sigurlás Þorleifsson Víkingi (0)
Tómas Pálsson ÍBV (5)
Örn Óskarsson ÍBV (6)
Margt er athyglisvert við hóp
þennan. Annars á eftir að bæta viö
einum leikmannai, sem ekki er
vitaö hver verður á þessu stigi
málsins. Marga af fastamönnum
síöustu landsieikja vantar. Ásgeir
Sigurvinsson og Árnór Guðjohnsen
eru bundnir hjá félögum sínum
þennan dag og mæta því ekki.
Janus Guölaugsson, hinn sterki
varnarmaður og annar af tveimur
markhæstu leikmönnum landsliös-
ins í sumar, meiddist fyrir nokkru
meö liöi sínu Fortuna Köln og getur
ekki af þeim sökum leikiö.
Trausti Haraldsson, sem aö
flestra mati stóö fyrir sínu í lands-
leikjunum í vor, er nú úti í kuldan-
um, en hugsanlegt er þó aö hann
veröi sextándi leikmaðurinn í hóp-
inn.
Menn reka augun einnig í aö
Teitur Þórðarson hlýtur ekki náð
fyrir augum þjálfarans, hann hefur
þó aldrei leikiö betur heldur en
einmitt í þeim tveimur leikjum sem
hann hefur leikiö undir stjórn Jouri.
Aðspuröur um hvers vegna hann
veldi ekki Teit sagöi Jouri: „Teitur
mundi gera sitt besta yrði hann
meö, á því er enginn vafi, en okkur
vantar mann í sóknina sem getur
hlaupiö hratt, haldiö boltanum vel
og skoraö mörk, Teltur myndi ekki
falla inn í þaö kerfi sem ég ætla aö
tefla fram.“ Svo mörg voru þau orö.
Margir töldu Pétur Ormslev einnig
eiga heima í hópnum, en Jouri gaf
sömu skýringar á fjarveru hans þar.
Teitur
ekki inn
Helgi Daníelsson formaöur lands-
liðsnefndar bætti því viö aö ekki
væri hægt að velja nema 16 leik-
menn.
Jouri tjáði blaöamönnum aö
hann heföi rætt viö Guögeir Leifs-
son sem staddur er hérlendis
þessa dagana. Guögeir leikur meö
kandadíska félaginu Edmonton
Drillers og hefur getiö sér þar gott
orð. Þeir sem séð hafa tll Guögeirs
vestra segja hann betri en nokkru
sinni áöur. Jouri sagöi aö Guögeir
heföi áhuga á að leika með lands-
liöinu og hann æfði með hópnum.
Hvort hann yröi í hópnum gegn
Hollandi væri óvíst meö öllu, en
ekkert líklega en aö hann yröi í
hópnum sem mætir Austur-Þjóö-
verjum nokkrum dögum síöar.
Þrír nýliöar eru í hópnum aö
þessu sinnl. Ársæll Sveinsson,
markvöröur úr Vestmannaeyjum,
Magnús Bergs úr Val og Sigurlás
Þorleikfsson. Ársæll á þarna fylli-
lega heima, en einstaklingsbundiö
er hversu óvænt val hinna tveggja
er. Þá koma aftur Inn tvær kempur
sem léku nokkra leiki fyrir nokkrum
árum, þeir Tómas Pálsson og Örn
Óskarsson.