Morgunblaðið - 30.08.1979, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979
19
Ólafur K. Magnússon ljósmyndari Mbl. tók þessa mynd af Hönnu Reitsch í Madríd 1949 þar sem hún tók
þátt í heimsmeistarakeppni í svifflugi. Var þetta fyrsta alþjóðamótið sem bjóðverjar tóku þátt í eftir stríð.
— Maðurinn til hægri á myndinni. með myndavélina, er Wolfgang Hirth flugmaður og þýzkur
flugverkfæðingur. sem lenti á lítilli KLM-flugvél á Kaldaðarnesi 1930, á leið sinni til Bandaríkjanna.
HannaReitsch látin
Frankfurt, 29. ágúst. Reuter.
HANNA Reitsch einkaflug-
maður Hitlers, sem flaug
síðustu flugvélinni útúr
Berlín 1945 er látin að sögn
vestur-þýzka útvarpsins.
Reitsch var 67 ára gömul er
hún Iezt.
Að sögn útvarpsins lézt
hún s.l. föstudag og hefur
verið jörðuð í Salzborg í
Austurríki.
Sellóleikari flýði
Lucerne. 28. ágúst. AP.
AUSTUR-þýzki sellóleik-
arinn Horst Schönwálder,
er lék með hinni heims-
frægu hljómsveit „Staats-
kapelle“ frá Dresden,
hvarf sporlaust áður en
hljómsveitin hélt seinni
tónleika sína á alþjóðlegri
tónlistarhátíð í Lucerne á
sunnudag, að því er tals-
maður tónlistarhátíðar-
innar skýrði frá í dag.
Veður
víða um heim
Akureyri 7 skýjað
Amsterdam 20 láttskýjað
Apena 34 láttskýjað
Barcelona 25 heiðskírt
Berlín 14 rigning
BrUsael 22 láttskýjað
Chicago 25 skýjað
Feneyjar 21 heiðsklrt
Frankfurt 17 skýjað
Genf 18 láttskýjað
Helsinki 20 láttskýjað
Jerúsalem 32 heiðskírt
Jóh.borg 22 láttskýjað
Kaupm.höfn 18 skýjað
Laa Palmas vantar
Lissabon 23 heiðskírt
London 22 láttskýjað
Los Angeles 22 skýjað
Madrtd 31 láttskýjað
Málaga 28 skýjað
Mallorca 30 láttskýjað
Miami 30 rigning
Moskva 17 skýjað
New York 30 rigning
Osló 19 láttskýjað
París 20 láttskýjað
Reykjavík 10 láttskýjað
Rio de Janeiro vantar
Rómaborg 28 heiðskirt
Stokkhólmur 18 láttskýjað
Tel Aviv 30 helðskírt
Tókýó 27 skýjað
Vancouver 22 láttskýjað
Vínarborg 19 skýjað
Þar sem ekki hefur fund-
ist tangur né tetur af
Schönwálder né sellói hans
og farangri, er talið að
hann hafi komið sér frá
Sviss á sunnudag, en vega-
bréfsáritun hans og ann-
arra hljómsveitarlima gilti
til gærdagsins.
Talsmaður dómsmála-
ráðuneytisins í Sviss sagði
yfirvöld ekki hafa neina
vitneskju um málið og eng-
in beiðni um hæli sem
pólitískur flóttamaður
hefði borizt frá sellóleikar-
anum.
12 manns
fórust
Nýju Delhi, 29. ágúst. AP.
TÓLF manns fórust og þrjátíu
slösuðust alvarlega þegar lang-
ferðabíll fór út af veginum í
námunda við borgina Nalgonda,
sem er 1350 kílómetrum sunnan
við Nýju Delhi. Ekki bárust nán-
ari fréttir af slysinu, nema hvað
stýrisbilun er talin vera orsök
slyssins.
Jordan
spurði
eftir
kókaíni
Wawhintfton, 29. ágúst. Reuter.
ÓNEFNDUR maður hefur
svarið þess eið við yfirheyrsl-
ur hjá bandarísku alríkislög-
regiunni FBI, að hann hafi
heyrt Hamilton Jordan starfs-
mannastjóra Hvíta hússins
spyrja um hvar hann gæti
fengið kókaín, þegar þeir
voru báðir staddir á hinu
fræga diskóteki Studió 54 f
New York.
Jordan hefur staðfastlega
neitað þessum áburði og sagt
hann til kominn til þess eins
að auglýsa staðinn upp.
Walter Mondale varaforseti Bandaríkjanna kaupir
matvæli á útimarkaði í Peking á sunnudag.
Gefnar upp sakir
Mtið á Uðsmenn IRA
sem hryðjuverkamenn”
— en ekki þjóðernissinna eins og áður
„ÉG hef að vísu ekki fylgst mjög
náið með framvindu mála síð-
ustu sólarhringa, en það er
alveg ljóst að írski lýðveidisher-
inn er búinn að missa alla tiltrú
fólks og þá jafnvel hinna hörð-
ustu stuðningsmanna." sagði
Gunnar Pálsson í Dublin á
frlandi þegar Mbl. hafði sam-
band við hann vegna morðsins á
Mountbatten jarli.
„Fólk lítur ekki lengur á
liðsmenn lýðveldishersins sem
þjóðernissinna, heldur hreina
hryðjuverkamenn og það leikur
ekki neinn vafi á því að þeir hafa
skemmt gífurlega fyrir sér með
þessum óhæfuverkum, því að fólk
hefur fyllst miklum óhugnaði.
„Héðan í frá verður ekkert
mark tekið á þessum mönnum og
ég sé ekki annað en að aðilar að
þessari deilu verði að setjast á
rökstóla og finna einhverja lausn,
Mountbatten jarl.
því að þetta óhæfuverk sló alveg
botninn í þetta að mínu viti,“
sagði Gunnar að síðustu.
Rio de Janeiro.
Braailíu, 29. átrúst. AP.
JOAO Figueiredo forseti Brasilíu
tilkynnti í dag að ákveðið hefði
verið að gefa um fimm þúsund
andstæðingum stjórnarinnar,
sem búsettir eru erlendis, upp
sakir og væri þeim frjálst að
snúa aftur til Brasilfu.
Breytmgar
í Rúmeniu
Búkarest. 29. ágúat. AP.
TVEIR ónefndir ráðherrar og
nokkur fjöldi embættismanna
rúmensku ríkisstjórnarinnar hafa
verið settir af og aðrir skipaðir í
þeirra stað að því qr rúmenska
fréttastofan skýrði frá í dag. —
Nicolae Ceausescu forseti er sagð-
ur hafa undirritað brottvikningar-
bréfin.
Rændu 1,3
milljörðum
Valcncicnnes. Frakklandi.
29. igúat. Reuter.
FIMM vopnaðir ræningjar komust
undan með ránsfeng að upphæð
um 1,3 milljarða íslenzkra króna
frá eftirlaunaskrifstofu, sem þeir
ruddust inn í árla í morgun. Mjög
víðtæk leit stóð yfir þegar síðast
fréttist.
Flestir sem um ræðir flúðu land
þegar herforingjastjórnin komst
til valda 1964, eftir að hafa steypt
af stóli vinstrisinnanum Joao
Goulart, þáverandi forseta lands-
ins.
Með þessari uppgjöf saka er
talið að stjórnvöld hafi stigið sitt
stærsta skref í átt til lýðræðis,
sem iofað hefur verið, síðan rit-
skoðun var afnumin á síðasta ári.
Forsetinn sagði að þessi sakar-
uppgjöf næói til allra stjórnar-
andstæðinga nema hryðjuverka-
manna, sem ekki væri forsvaran-
legt að gefa upp sakir.
Getuleysi
bætt með
skurðaðgerð
DANSKA blaðið Politiken skýrði
frá því nýverið að hægt sé að
lækna getuleysi karlmanna með
einfaldri skurðaðgerð.
Læknar við Kaupmannahafnar-
háskóla hafi komist að því að
getuleysi stafi í mörgum tilfellum
af óeðlilegu brottrennsli blóðs úr
getnaðarlim, en ekki af sálrænum
ástæðum eins og haldið hefur
verið á loft.
Blaðið sagði að skurðaðgerðin
væri einföld og hefði hjálpað til
fullnustu þeim karlmönnum er
gengist hefðu undir hana.
Þetta gerðist
30. ágúst
1977 — David Berkowitz grun-
aður um að vera morðingi sá
sem kallar sig „Son Sáms“ í New
York úrskurðaður ósakhæfur.
1974 — Hundrað og fimmtíu
manns látast í járnbrautarslysi
skammt frá Zagreb í Júgóslavíu.
1972 — Nixon Bandaríkjafor-
seti kemur til Honolulu til að
eiga þar viðræður við Tanaka
forsætisráðherra Japans.
1970 — Tunku Abdul Rahman
segir af sér sem forsætisráð-
herra Malasíu.
1966 — Rauðu varðliðarnir með
mótmælafund við sovézka sendi-
ráðið í Peking og láta mikinn.
1963 — „Beina línan" milli
Moskvu og Washington tekur til
starfa.
1953 — Ungverjaland og Júgó-
slavía taka á ný upp stjórnmála-
samband.
1951 — Bandaríkin og Filipps-
eyjar undirrita gagnkvæman
varnarsamning.
1944 — Rússneskar sveitir
koma inn í Búkarest í Rúmeníu.
1932 — Herman Göring er
kjörinn þingforseti í nazista-
stýrðu Þýzkalandi.
1928 — Sjálfstæðisflokkur Ind-
^ands^tofnaðurþiaHlandL^^
1916 — Tyrkland lýsir yfir
stríði á hendur Rússlandi. Hind-
enburg er skipaður í herráð
Þýzkalands.
Afmæli: Mary W. Shelly, brezk-
ur rithöfundur, Ernest Ruter-
ford, brezkur vísindamaður,
Joan Blondell, bandarísk kvik-
myndaleikkona, Shirley Booth,
bandarísk kvikmyndastjarna,
Fred McMurray, bandarískur
kvikmyndaleikari, Raymond
Massey, kanadískur kvikmynda-
leikari.
Andlát: Loðvík XI Frakkakon-
ungur 1483 — Sir J.J. Thomson,
vísindamaður 1940.
Innlent: d. Jón Vfdalín biskup
1720 — f. Steinn Jónsson biskup
1660 — Hátíðarsamkoma í
Reykjavík 1874 — Fyrsta tölu-
blað „Þjóðviljans“ 1886 — Jón
Ólafsson afsalar sér þing-
mennsku 1905 — Steinkista Páls
biskups opnuð 1954 — Iðnsýning
1966 — Marsvín á Sundunum
1966.
Orð dagsins: Skemmdu eplin
skemma allt út frá sér. Benja-
min Franklin, bandarískur
stjórnmálamaður.