Morgunblaðið - 30.08.1979, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979
Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson.
Ritstjórar Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson
Ritstjórn og skrifstofur Aöalstræti 6, sími 10100.
Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22480.
Afgreiösla Sfmi 83033
Áskriftargjald 3500.00 kr. é ménuði innanlands.
í lausasölu 180 kr. eintakið.
Þjóðin hlær
Það er beinlínis hlægilegt, þegar Tómas Árnason,
fjármálaráðherra, lýsir því yfir digurbarkalega í
Morgunblaðinu í gær, að Framsóknarmenn séu „komnir
í þær stellingar að segja hingað og ekki lengra“ og ætli
nú að fara að stjórna efnahags- og fjármálum
þjóðarinnar. Sjálfur var Tómas Árnason stórorður á
miðju sumri, lagði fram tillögur um nýja fjáröflun fyrir
ríkissjóð og krafðist afgreiðslu á þeim. Því var ekki
sinnt. Þá var haft við orð, að samstarfsflokkar
Framsóknar hefðu frest fram í ágúst. Nú er sá mánuður
að líða og engin merki þess, að stjórnarflokkarnir hafi
komið sér saman um eitt eða neitt. Fjármál ríkissjóðs
stefna því í enn meira öngþveiti en þau eru þegar komin
í undir fjármálastjórn Tómasar Árnasonar. Bersýnilegt
er, að núverandi fjármálaráðherra er maður hinna
stóru orða — hreystiyrði liggja honum létt í munni en
hins vegar verður minna úr verki, þegar til á að taka.
Þess vegna brosa menn, þegar Tómas Árnason segir
„hingað og ekki lengra".
Hvílík tíðindi!
Nú er haft við orð, að Framsóknarmenn undirbúi
tillögur í efnahagsmálum, sem miði að því, að
verðbólgan verði komin niður í 30% í lok árs 1980. Hafa
menn heyrt þetta einhvern tíma áður? Töluðu sömu
menn ekki um það fyrir 12 mánuðum, að þeir yrðu
komnir með verðbólguna niður í 30% nú? Hvað er orðið
um það markmið? Dettur Framsóknarmönnum í hug, að
einhver taki mark á þeim?
Framsóknarflokkurinn ber meiri ábyrgð en nokkur
annar stjórnmálaflokkur á þeirri óðaverðbólgu, sem hér
hefur geisað allan þennan áratug. Framsóknarflokkur-
inn hefur veitt tveimur ríkisstjórnum forstöðu á þessu
tímabili. Sú sem nú situr hamast við að slá verðbólgu-
met þeirrar fyrri. Um leið og Ólafur Jóhannesson sezt í
stól forsætisráðherra fer verðbólgan á skrið. Honum er
bersýnilega um megn að veita nokkurt viðnám eða sýna
nokkra þá forystu í málefnum þjóðarinnar, sem dugar
til þess að halda verðbólgunni í skefjum. Ríkisstjórnin
er stjórnlaus og þjóðin forystulaus. Kjósendur hafa gert
sér grein fyrir þessu, og kveðið upp sinn dóm yfir
þessum verðbólguferli Framsóknarflokksins, meö því að
gera hann að minnsta flokki þjóðarinnar.
Framsóknarflokkurinn átti aðild að ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokknum í fjögur ár. Framsóknarmönnum
var annt um, að sú ríkisstjórn næði ekki árangri í
verðbólgubaráttunni. Þegar ljóst var orðið vorið 1977, að
Geir Hallgrímsson hafði minnkað verðbólguna um
helming frá því sem hún var þegar hann tók við
forsætisráðherraembætti af Ólafi Jóhannessyni, greip
formaður Framsóknarflokksins inn í kjarasamninga
með afdrifaríkum hætti. Verkalýðsforingjar spurðu,
hvernig menn gætu búizt við því, að þeir semdu um
minna en það, sem formaður annars stjórnarflokksins
taldi eðlilegt að launþegar fengju í kauphækkun. Þannig
tóku Framsóknarmenn þátt í því að koma verðbólgu-
skriðunni af stað á ný eftir að Geir Hallgrímsson og
Sjálfstæðisflokkurinn höfðu náð henni niður um
helming.
Nú situr ríkisstjórn undir forsæti Ólafs Jóhannesson-
ar. Á síðustu þremur mánuðum hefur verðbólguhraðinn
verið svo mikill að nemur 70% ef miðað er við heilt ár.
Frá byrjun árs til ársloka er gert ráð fyrir, að
verðbólgan verði 50—55%. Hún hefur aldrei verið meiri
á því tímabili. Ólafi Jóhannessyni er því að takast að slá
eigið verðbólgumet.
Láta þessir menn sér virkilega til hugar koma eftir
það sem á undan er gengið, að einhver taki mark á því,
þegar þeir lýsa því yfir digurbarkalega, að nú loksins
ætli þeir að segja „hingað og ekki lengra“. Er það nú
ekki fullseint sagt?
Ovissa um komu Faisals prins:
Utanríkisráðuneytið i
að gefa eftir vistarver
ríkisráðherra Tékkósl
ÓVÍST er hvort Saad al Faisal
prins af Saudi Arabíu kemur
hingað í sumarleyfi ( september,
eins og gert hafði verið ráð fyrir.
Ástæðan er sú að Hótel Saga
hefur afturkallað þá gistingu
sem búið var að staðfesta við
fulltrúa prinsins, vegna þess að
utanríkisráðherra Tékkósló-
vakíu mun dvelja í svftu hótelsins
þegar hann kemur til íslands í
opinbera heimsókn í september
og dvelur í tvo daga.
Að sögn Ingólfs Guðbrandsson-
ar sem staðið hefur að undirbún-
ingi heimsóknar prinsins, verður
þessi afstaða Hótels Sögu til þess
að íslendingar og raunar hótelið
sjálft munu missa af tugmilljóna
viðskiptum. Prinsinn fyrirhugaði
að koma til íslands með 16 manna
fylgdarlið og dvelja hér að
minnsta kosti í þrjár vikur og að
sögn Ingólfs Guðbrandssonar
hafði verið samið um það við
Hótel Sögu, að prinsinn fengi til
afnota fimm svítur í hótelinu auk
nokkurra gistiherbergja þann
tíma sem hann dveldist hér á
landi.
„Móttökustjóri Hótels Sögu
sýndi mér og fulltrúa prinsins
Saiim A. Yones hótelið hátt og
lágt og að því loknu óskaði Yones
eindregið eftir því að fá gistingu
fyrir prinsinn á Hótel Sögu þann
tíma sem hann dveldist hér á
landi," sagði Ingólfur Guð-
brandsson í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Daginn eftir stað-
festi ég þetta við móttökustjóra
hótelsins og lofað var að senda
skriflega staðfestingu á skrifstofu
mína innan klukkustundar, en
þessi gistisamningur við Hótel
Sögu var felldur inn í heildar-
samning við ferðaskrifstofuna Út-
sýn um móttöku prinsins. Eftir
þriggja tíma bið gáfumst við
Yones upp á því að bíða og ég
lofaði að færa Yones staðfesting-
una síðar þá um kvöldið. Þegar ég
fór svo að grennslast eftir henni lá
gistingin alls ekki á lausu og taldi
hótelstjórinn öll tormerki á gist-
ingu fyrir prinsinn þar sem búið
var að lofa utanríkisráðuneytinu
stórri íbúð undir utanríkisráð-
herra Tékkóslóvakíu þessa tvo
daga. Ég óskaði síðan eindregið
eftir því að afstaða Hótels Sögu og
utanríkisráðuneytisins yrði end-
urskoðuð þar sem mikilla hags-
muna væri að gæta og hvort ekki
væri hugsanlegt að útvega aðrar
vistarverur fyrir utanríkisráð-
herra Tékkóslóvakíu en það fékk
engar undirtektir og hefur verið
neitað þverlega," sagði Ingólfur
Guðbrandsson og bætti því við að
heimsókn prinsins hefði ekki að-
eins viðskiptalega þýðingu heldur
væri það og mikil landkynning að
einn auðugasti og áhrifamesti
maður heims veldi ísland til að
eyða í sumarleyfi sínu.
„Ég hef dvalið erlendis síðustu
viku og enn ekkert heyrt frá Salim
A. Yones um ákvörðun hans í
Smávegis óklárt og strákarnir streða í trollinu, skipstjórinn iætur sitt
ekki eftir liggja og er einnig kominn á dekk, sá með húfuna.
Haförninn á humar-
trolli fyrir austan
Eyjar, verið er að hífa
og er vængurinn að
koma inn. (Ljósm.
Sigurgeir Jónasson).
Aftur er kastað og nú
er afturhlerinn látinn
fara.
Lítinn humar að fá eftir þj
HUMARVERTÍÐINNI lýkur nú
um mánaðamótin, en vegna Htill-
ar veiði framan af var veiðitíma-
bilið framlengt tii loka þessa
mánaðar. Humarbátarnir, sem
róa frá Hornafirði, hafa fengið
ágætan afla og betri humar en
fyrr í sumar sfðustu vikurnar.
Hjá Vestmannaeyjabátum var
þessu hins vegar öfugt farið.
Humarvertfðin gekk allvei fram-
an af, en í byrjun ágúst breytti
um og sfðan hefur aflinn tregast
meir og meir.
Sigurgeir Jónasson ljósmyndari
Morgunblaðsins í Eyjum brá sér á
gúmmítuðru sinni austur fyrir
Eyjar fagurt ágústkvöld fyrir
skömmu, en á þeim slóðum halda
humar- og spærlingsbátar sig
aðallega. Það var lítið að hafa hjá
þeim á Haferninum, en þó eitt-
hvert kropp eins og þeir kalla það
kallarnir.
í Vestmannaeyjablaðinu Dag-
skrá er greint frá humarafla til
loka júlímánaðar og var hann þá