Morgunblaðið - 30.08.1979, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 30.08.1979, Qupperneq 25
24 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979 Zeppelin! Þegar New Barbarians hættu aö leíka itti aö undirbúa sviöiö fyrir stjörnur hljómleikanna, Led Zep- pelin, stilla Ijósabúnaöinn og tækjabúnaöinn, sem var knúinn meö raforkuvél sem dygöi fyrir alla Reykjavík og betur, enda voru hátalarasúlurnar og sviöiö svo stórt aö maöur purfti aö vera staösettur nærri pví aftast á sviöinu til aö ná mynd af pví meö venjulegri 50 mm linsu. En hvaö um þaö, Led Zeppelin læddust inn á sviöið þegar minnst varöi, rúmum klukkutíma á eftir áætlun og byrjuöu aö stilla hljóö- færin og runnu í fyrsta lagið sem var „The Song Remains the Same“ sem segir mikiö um framlag þeirra á þessum hljómleikum. Led Zep- pelin geröu eins og helgina áöur, léku samfleytt í þrjá og hálfan tíma viö gífurlegan fögnuö áhorfenda. Þegar þeir komu fram var komiö kolniðamyrkur og þar sem ég stóö þá, þ.e.a.s. eins nálægt sviöinu og hægt var en samt sem jafngilti lengdinni á salnum í Háskólabíói, sáust þeir nokkuö greinilega, en líklega heföi verið eins gott fyrir þá sem aftar voru aö sitja heima og bíöa eftir væntanlegum „bootlegg- um“, þar sem mikið var af fólki með stór og fullkomin upptökutæki, nú eöa aö bíöa eftir nýju plötunni, ef ekki heföi komiö til aö mynd af þeim var varpað á risastórt tjald á bak viö þá í videói. Framkoma þeirra hefur lítiö breyst, Robert Plant æöir enn hálf vandræðalega um sviöiö í ákefö en þó nokkuð tígulega, Jimmy Page sveigir sig og beygir og lokkar fram mjúka tóna, John Paul Jones hugsar bara um aö leika á bassann eöa hljómboröin, og Bonzo Bonhan baröi húöirnar af sama krafti og fyrr. Þeir léku lög eins og „Dazed & Confused", „Communication Breakdown" og „Misty Mountain Hop / White Summer“ af fyrstu plötunni, „Whole Lotta Love“ og „Heartbreaker" af annarri plötunni, „Achilles Last Stand", „Sick Ag- ain“, „Trampled Under Foot“, „Over the Hills and Far Away“, „10 Years Gone“, „Presence", „Nobo- dy’s Fault but Mine“, „Since l’ve Been Loving You“, „Rock’n Roll" „Black Dog“, „Rain Song“, „Stair- way To Heaven", „No Quarter" og af nýju plötunni „In the Evening” og Hot Dog“. í „No Quarter" átti John Paul Jones klassískt sóló, sem sýndi okkur fyrst og fremst hversu góöur rafmagnsflygill getur veriö, Jimmy Page sýndi sína hæfileika sérstak- lega í „Misty Mountain Hop / White Summer" og nýju lögin, sérstak- lega „Hot Dog" voru mjög góö, og gefa engin merki um undanhald. Ljósasýningin var vægast sagt rosaleg þar sem Ijósagálgarnir voru án efa 20—30 mannhæöa háir, og þess má geta, aö þegar Page tók fram fiölubogann til aö leika meö í „Dazed & Confused" þá skein hann grænn meö rauöu Ijósi á endanum sem geislaöi í allar áttir þegar hann var hreyföur, og þar fyrir utan var myndaöur pýramídi úr grænu Ijósi og stóö Page í honum miöjum. Þegar þetta geröist má segja aö allir hafi horft á gapandí af undrun og jafnvel hrifningu. Led Zeppelin komu kannski eng- um á óvart meö hljómleikunum, en þeir létu vita aö þeir væru þarna ennþá þrátt fyrir allt, jafngóöir og alltaf áöur ef ekki betri, og eru aö leika þá músík sem þeir uröu frægir fyrir og milljónir dýrka. Þess má geta að á mánudaginn var, 20.8. átti nýja breiöskífan þeirra aö koma út, sú níunda í rööinni, „In Through the Out Door”. Veröur hún í brúnum bréfpoka en aöalhulstrin veröa nokkuö mismunandi, líkt og hjá lan Dury á „Do It Yourself”, en enginn getur vitað hvernig hulstriö er fyrr en búiö er aö kaupa plötuna. Lögin á plötunni heita annars: „In The Evening", „South Bound Suarez”, „Hot Dog“, „Carouselambra”, „All My Love“, og „l’m Gonna Crawl". LOKAORÐ Um hálf tvö leytið þegar síöustu nóturnar dóu út fór mannfjöldinn aö koma sér af staö á leið heim. Sem betur fer haföi verið komiö fyrir flóöljósum til aö vísa veginn og svo var líka hægt aö fylgja straumnum. Allt gekk sinn vanagang, ég haföi af forsjá minni keypt miöa fram og til baka áöur en ég fór og komst þar af leiðandi fyrr af staö en margur annar, en því miöur var lestin til London troöfull og ég þurfti aö standa, sem var orðið nokkuö erfitt eftir aö hafa staöið og gengið mest allan daginn. En ekki nóg meö þaö, þegar komið var aö Kings Cross aftur höföu leigubílstjórarnir hafiö samn- ingaviöræöur viö ýmsa umsemj- endur sem vildu far í ýmsar áttir. Eftir aö hafa rætt viö nokkra leigubílstjóra sem settu upp hátt verö fyrir aksturinn, sá ég aö lögreglan var komin á staöinn og meö það hættu leigubílstjórarnir aö ræöa málin og settust inn í bílana og læstu, eöa hurfu af vettvangi. Ég spuröi einn lögregluþjóninn hvort þaö væri kannski betra aö ganga aö staö og ná í bíl á leiðinni, og sagöi hann þaö væri lang best fyrir mig aö labba. Gangan var kannski ekki nema 50—70 mínútur en klukkan var oröin rúmlega 4 aö morgni, ég hálf smeykur aö ganga einn á þessum tíma í stórborginni og þaö sem mestu máli skipti, fæturnir virtust vera aö brenna. En á hótelið komst ég og gat ekki sofnað fyrr en ég haföi fariö í hálfkalt baö til aö ná af mér svita dagsins og kæla bólgna fætur. EN, þetta var samt þess viröi! HIA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.