Morgunblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 30.08.1979, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. ÁGÚST 1979 35 starfsþrek og starfsvilji ætti að ráða því hvort fólki væri sagt upp störfum, en ekki óréttlát regla sem í þokkabót stæði jafnvel til að breyta. Albert sagði að einangrun- in væri það versta sem gamla fólkið gæti hent og hvatti hann því borgarfulltrúa til að sam- þykkja framkomna tillögu þeirra Magnúsar L. Sveinssonar. Guðrún Helgadóttir tók næst til máls. Hún taldi það fyrirhyggju- leysi að samþykkja tillögu sjálf- stæðismanna því að efni hennar gæti gengið þvert á niðurstöður nefndarinnar sem hefði málið í endurskoðun. Hins vegar sagðist hún sammála Albert Guðmunds- syni um það að leyfa ætti fólki að vinna þó að það væri eldra en sjötíu ára. Sagði hún það skoðun sína að fólk eldra en sjötíu ára ætti ekki að gegna embættum, heldur ætti að útvega því hluta- starf við hæfi. Að lokum spurði hún Davíð Oddsson um hvað hann hefði fyrir sér í því, að harðar væri gengið eftir því fólki sem náð hefði hámarksaldri, léti af störf- um. Fasta reglu verður að hafa Þessu næst talaði Egill Skúli Ingibergsson borgarstjóri. Sagði hann að reglunni væri ekki beitt af meiri hörku nú en verið hefði, hins vegar gat hann þess að alltaf væri nokkuð um frávik frá henni. Taldi hann að einhverja fasta reglu yrði að hafa að henni yrði fyigt. Ekki sagði hann heppilegt að nema umtalaða reglu úr gildi því að það væri óréttlátt gagnvart þeim aðilum sem þegar hefðu verið látnir hætta fyrir aldurs sakir. Að máli borgarstjóra loknu tók Þór Vigfússon til máls. Lýsti hann ánægju sinni með þau orð Alberts Guðmundssonar að ekki ætti að senda gamalt fólk inn í einangrun ellinnar. Hins vegar kvaðst hann ekki skilja forsendur þess að fresta ætti uppsögnum hinna öldr- uðu starfsmanna. Síðan vakti hann athygli á undantekningu þeirri sem verið hefði um margra ára skeið, að fólk sem hætta ætti störfum á árinu fengi að vinna til loka þess árs. Tillagan flutt af gefnu tilefni Birgir ísleifur Gunnarsson tók næstur til máls. Sagðist hann eiga sæti í nefnd þeirri sem ynni nú að endurskoðun á þessari umdeildu reglu. Gat hann þess að nefndin hefði, að ósk formanns hennar, tekið frí frá störfum í sumar og úrlausnar því ekki að vænta á næstunni. Sagði hann að fulltrúar meirihlutans í nefndinni væru lítt kunnugir þessum málum og þyrftu því fulltrúar Sjálfstæðisflokksins oft að upplýsa fulltrúa meirihlut- ans um, hvað þar væri á ferðinni. Síðan sagði Birgir að tillaga þeirra Alberts og Magnúsar væri flutt af gefnu tilefni, því að nú væri verið að láta ýmsa hæfa einstaklinga hætta störfum, ein- ungis fyrir aldurs sakir. Einungis væri verið að fara fram á að fresta þessum uppsögnum þar til að nefndin hefði lokið sínum störf- um. Sigurjón Pétursson tók næstur til máls. Sagði hann að fulltrúar meirihlutans í nefndinni væru ekki áhugalausir um störf hennar, þrátt fyrir orð Birgis ísleifs Gunnarssonar. Sigurjón taldi lítið réttlæti í því að leyfa sumum mönnum að halda áfram störfum, þegar ekkert væri hægt að gera fyrir hina sem þegar hefði verið sagt upp. Því væri skoðun hans að reglan yrði að gilda enn um sinn, því að einhverja reglu yrði að hafa. Deiluna sagði hann aðeins standa um það hvort þrír einstakl- ingar ættu að njóta meira réttlæt- is en aðrir. Hins vegar myndi skapast ósamræmi ef að tillaga sjálfstæðismanna yrði samþykkt og því væri frávísunartillaga flutt. Næstur kom upp Albert Guð- mundsson. Sagði hann að reynt væri með þessari tillögu að koma í veg fyrir að það óréttlæti sem dunið hefði yfir hingað til dyndi yfir áfram. Ekki eigi að láta það dynja endalaust yfir. Nú væri því tilefni til að breyta þessari reglu. Höggvið á hnútinn Þá kom upp Sjöfn Sigurbjörns- dóttir. Hún sagði sig sammála því að fresta ætti uppsögnum aldr- aðra starfsmanna Reykjavíkur- borgar. Flutti hún síðan breyt- ingartillögu við tillögu sjálfstæð- ismanna, en sú tillaga var efnis- lega samhljóða tillögu þeirra Al- berts Guðmundssonar og Magnús- ar L. Sveinssonar. Davíð Oddsson tók næstur til máls og sagði að sér virtist að tillaga Sjafnar hyggi á hnútinn og lagði til að þessi tillaga yrði samþykkt. Birgir ísleifur Gunnarsson kom einnig í pontu og hvatti til að tillaga Sjafnar yrði samþykkt. Síðan var tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með átta atkv. sjálfstæðismanna og Sjafn- ar, Atkvæði gegn tillögunni greiddu fulltrúar Abl. og Gerður Steinþórsdóttir fulltrúi, Fram- sóknarflokksins. legur frestur yrði veittur til að hægt væri að koma málinu í réttan farveg. Næst Davíð tók til máls Guðrún Helgadóttir. Taldi hún til lítils að ræða þetta mál. Sagði hún að hún vildi ekki gera borgarfulltrúum það til hæfis að ræða málið frekar, en taldi ljóst hvernig að málum ætti að standa. Sagði hún að lokum að ráða ætti Elínu því að auk annars, þá ætti hún stöðu inni hjá borginni. Þá tók Gerður Steinþórsdóttir til máls. Taldi hún að Dröfn hefði leyfi frá störfum sem fóstra, en ekki sem forstöðumaður og kæmi hún því úr fríi sem slík, en ekki sem forstöðukona. Taldi hún að öll gögn lægju frammi og því hægt að taka skýra afstöðu til málsins. Sagði hún að um tvo umsækjendur væri að ræða og bæri að velja annan þeirra og sagðist hún harma þá tilfinningasemi sem komin væri í málið. „Málið snýst um formhliðina“ Þessu næst tók Ólafur B. Thors til máls. I upphafi máls síns tók hann fram að ekki væri verið að tala um hvort umsækjandanna væri hæfari til starfans, heldur snerist málið um formhliðina. Taldi hann ljóst að í málinu væru mörg vafaatriði sem athuga bæri betur. Sjálfsagt væri að taka málið fyrir að nýju og að athuga öll gögn betur í millitíðinni. Síðan sagði Ólafur að ekki væri hægt að veita einhverjum rétt með því að brjóta rétt á öðrum. Þá kom Guðrún Helgadóttir í pontu. Minnti hún á að þegar málið hefði verið afgreitt í félags- málaráði hafði fulltrúi Sjafnar Sigurbjörnsdóttur greitt atkv. með ráðningu Elínar Torfadóttur, en nú færi Sjöfn fram á að afgreiðslu málsins yrði frestað. Sjöfn hefði verið í lófa lagið að setja fulltrúa sinn inn í málið og láta hann greiða atkv. gegn ráðn- ingu Elínar. Það hafði hún hins vegar ekki gert og því væri frestunarbeiðni hennar skrýtin. Að máli Guðrúnar loknu kom Sjöfn Sigurbjörnsdóttir upp. Sagði hún að sér hafði ekki verið fært að koma á þann fund felags- málaráðs sem um væri rætt. Hins vegar benti hún á það að fulltrúar Alþýðuflokksins greiddu atkvæði samkvæmt sinni sannfæringu, á lýðræðislegan hátt. Skömmu síðar var frestunartil- lagan borin undir atkvæði og samþykkt með fjórtán samhljóða atkvæðum. Miðstöð listaverka að Kjarvalsstöðum Nokkrar umræður urðu á borgarstjórnarfundinum um tillögu borgarfulltrúa Abl. um miðstöð listaverka í eigu borgarinnar og listaverkakaup. Guðrún Helgadóttir kvaddi sér hljóðs og sagði m.a. að um mikil verðmæti væri að ræða það sem þessi listaverk væru og kvað hún óþolandi að þau væru eftirlitslaus. eins og þau væru nú. Taldi hún eðlilegt að verkin væru í geymslu á Kjarvalsstöðum og undir eftirliti listráðunauts staðarins, meðan þau ekki hengju uppi. æskilegt taldi hún að verkin skreyttu stofnanir borgarinnar og væru þar öllum til yndis og ánægju. Þessu næst tók Sjöfn Sigur- Sagðist hann geta tekið undir björnsdóttir til máls. Taldi hún að tillagan væri allra góðra gjalda verð, en kvað þó greina- gerð þá sem með henni fylgdi all kynlega. Sagði hún það rangt sem í tillögunni segði að enginn ábyrgur aðili hefði umsjón með listaverkunum. T.d. væri safn Jóhannesar Kjarvals í öruggri geimslu á Kjarvalsstöðum. Bar Sjöfn síðan upp breytingartil- lögu, þess efnis að listaverk í eigu borgarinnar ættu að jafnaði að varðveitast að Kjarvals- stöðum og þar í umsjá listráðu- nauts og stjórnar Kjarvalsstaða, sem jafnframt ættu að hafa umsjón með öðrum listaverkum í eigu borgarinnar. Hluti tillögu Alþýðubandalagsins þegar samþykktar Þá tók til máls Davíð Oddsson. hugmyndir þær sem fram hefðu komið um miðstöð listaverka í eigu borgarinnar. Sagði Davíð að árið 1973 hefði verið samþykkt í borgarstjórn tillaga svipaðs efn- is, þ.e. um að miðstöð listaverka í eigu borgarinnar ætti að vera á Kjarvalsstöðum. Kvað hann að þessi hluti tillögu Abl. hefði þegar verið samþykktur. Kvað hann menn geta sameinast um breytingartillögu Sjafnar, og ekki ætti að gera mál þetta að pólitísku ágreiningsmáli. Þessu næst tók til máls Guð- rún Helgadóttir. Sagði hún sér „lífsins fyrirmunað" að skilja hver munurinn á tillögum Sjafn- ar og Abl. væri og sagðist því geta fallist á tillögu Sjafnar. Síðan var borin'undir atkvæði breytingartillaga Sjafnar Sigur- björnsdóttur og hún samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum. Opnunartími sundstaða Síðasta mál á dag- skrá borgarstjórnar- fundarins var tillaga Alþýðubandalagsins um opnunartíma sundstaða rædd nokk- uð. bór Vigfússon bar upp tillöguna, sem fól það í sér að kanna ætti möguleika á að hafa sundstaði borg- arinnar opna um helg- ar lengur en nú tíð- kaðist. Einnig bæri að athuga hvort ekki væri unnt að opna al- menningi sundlaugar- nar í Árbæ og Breiðholti. Taldi Þór það fyrirkomulag sem um helgar tíðkaðist viðunandi, en helgartímann væri nauðsynlegt að lengja. Fulla ástæðu sagði hann til að gefa þeim sem vildu kost á að synda um helgar, og hin dýru mannvirki sem sundlaugarnar væru, ættu að vera aðgengileg sem allra lengst. Einnig sagði Þór nauðsynlegt að kynna fólki breyttan opnunartíma rækilega með auglýsingum. Sagði hann að það vekti fyrir tillögumönnum að laða fólk til hollrar og skemmtilegrar útivistar í borginni og um leið að nýta mannvirki borgarinnar, sem sundlaugarnar væru. Hluti tillögunnar samþykktur í íþróttaráði. Að máli Þórs loknu tók til máls Markús Örn Antonsson (S). Markús sagðist geta tekið undir margt af því sem Þór hefði sagt. Sagði Markús að þessi mál hefðu verið lengi á döfinni hjá borgarstjórn og einnig hefðu farið fram um þessi mál umræður í íþróttaráði og borgarráði. Árangurinn hefði orðið sá að opnunar- tíminn hefði verið lengdur, t.d. sunnudagstíminn í Laugardalslaug- inni. Varðandi þann þátt tillögunnar sem að snýr að sundlaugunum í Árbæ og Breiðholti, gat Markús þess, að tillaga hefði verið samþykkt í íþróttaráði þá um morguninn þess efnis að opna bæri almenningi sundlaugarnar í Árbæ og Breiðholti þann tíma sem skólarnir störfuðu ekki. íróttaráð hefði lýst sig reiðubúið að annast laugarvörslu og þ.h. í samráði við forráðamenn skólanna. Þar með væri sá þáttur í tillögu Alþýðubandalagsins óþarfur, búið væri að samþykkja þann þátt tillögunnar í íþróttaráði. Að öðru leyti kvað Markús sig samþykkan tillögunni. Þessu næst var tillagan borin undir atkvæði og samþykkt með 15 samhljóða atkvæðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.