Morgunblaðið - 15.09.1979, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
Flugleiðir
sýknaðar af
kröfum FIA
GERÐARDÓMUR í svoneíndu jafnlaunamáli flugmanna, sem Félag
islenzkra atvinnuflugmanna sótti gegn Flugleiðum h.f. féll hinn 5.
september síðastliðinn. Niðurstaða dómsins er að Flugleiðir skuli
sýknaðir aí kröfum FÍA i málinu. Gerðardóminn skipuðu Auður
borbergsdóttir borgardómari, formaður, og hæstaréttarlögmennirnir
Jón Finnsson og Guðmundur Skaftason.
I samningum, sem undirritaðir röðun á starfsaldurslista er meg-
voru milli FÍA og Flugleiða hinn
4. apríl síðastliðinn urðu aðilar
sammála um að skjóta jafnlauna-
kröfu FÍA til gerðardóms, en
krafa FIA var um að flugstjórar
og flugmenn hjá Flugleiðum h.f.
„fái sömu laun án tillits til þess á
hvaða leiðum og hvaða flugvéla-
tegundum þeir fljúgi, miðað við að
starfsaldurinn sé sá sami.“ Félag-
ar innan Félags Loftleiðaflug-
manna munu hafa um 6% hærri
laun en félagar í Félagi íslenzkra
atvinnuflugmanna.
I forsendum dómsins segir m.a.:
„Félög flugmanna í þjónustu varn-
araðila fylgja ekki sömu stefnu í
launamálum að því er jafniauna-
stefnu varðar. Ágreiningur um
inkveikja að kröfu sóknaraðila, en
í málinu hafa ekki verið færðar
fram gildar ástæður vandkvæða á
því að sameina starfsaldurslista
félaganna. Dómurinn telur að
frumskilyrði þess, að unnt sé að
taka kröfu sóknaraðila til greina
sé, að félög flugmanna í þjónustu
varnaraðila fylgi sömu stefnu í
launamálum að því er launajöfnun
varðar. Þessi félagslega samstaða
er ekki fyrir hendi og því ber
þegar af þeirri ástæðu að sýkna
varnaraöila af kröfum sóknaraðila
í máli þessu.“
Málið sótti fyrir FÍA Guðmund-
ur Ingvi Sigurðsson hæstaréttar-
lögmaður, en lögmaður Flugleiða
var Baldur Guðlaugsson héraðs-
dómslögmaður.
„Óttumst að salan
kunni að minnka”
— segir formaður Stéttarsambands bænda
„BÆNDUR eru almennt ánægðir
með þá hækkun, sem varð á
verðlagsgrundvellinum og það
Bóndi fann
sprengiefni
Björk, Mývatnssveit, 14. sept.
BÓNDI í Mývatnssveit fann í dag
sprengiefni í gjótu skammt frá bæ
sfnum. Tilkynnti hann lögreglunni á
Húsavik um fundinn og fóru lög-
regiumenn á staðinn. Reyndust
þetta vera 60 til 70 kfló af sprengi-
efni og 149 hvellettur. Mun hér vera
um að ræða sprengiefni sem hvarf
fyrir um hálfum mánuði úr húsnæði
Léttsteypunnar f Mývatnssveit.
Forsaga þessa máls er að fyrir 5
vikum komu starfsmenn frá Raf-
magnsveitum ríkisins til starfsmanna
Léttsteypunnar í Mývatnssveit með
sprengiefni og hvellettur og báðu þá
um að geyma það fyrir sig. Starfs-
menn Léttsteypunnar tóku fram að
það væri algjörlega á ábyrgð starfs-
manna RARIK að geyma efnið í
húsinu, því að það væri ólæst. Tóku
starfsmenn RÁRIK fram að þeir
ætluðu að sækja sprengiefnið og
hvelletturnar fyrir kvöldið. Ekki
sóttu þeir það og fyrir hálfum mánuði
vitnaðist að það væri horfið. Var
upphaflega talið að þarna hefði verið
um að ræða um 100 kíló af sprengi-
efni en seinna var talað um að þetta
hefðu aðeins verið 25 til 30 kíló en
eins og fyrr sagði fundust í gær milli
60 og 70 kíló af sprengiefni.
Ekki hafði í gær verið upplýst hver
eða hverjir væru valdir að hvarfi
sprengiefnisins.
Kristján
kom fram á aðalfundi Stéttar-
sambandsins fyrr í mánuðinum
að menn töldu að það hefði ekki
verið hægt að búast við betri
niðurstöðu núna eins og ástandið
er.
Hitt er annað að menn eru
hálfsmeykir við þessa miklu verð-
hækkun. Þegar niðurgreiðslurnar
standa fastar vegur þetta mikið
gagnvart neytendunum og verðið
nær tvöfaldast eins og á smjörinu.
Menn óttast að salan kunni að
minnka eitthvað af þessari ástæðu
og það er okkar áhyggjuefni núna
að niðurgreiðslurnar skuli vera
orðnar þetta lítið hlutfall af verð-
inu og nokkru minni en sölukostn-
aðinum nemur,“ sagði Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttar-
sambands bænda, er hann var
spurður álits á afgreiðslu ríkiss-
tjórnarinnar á tillögum sex-
mannanefndar um nýtt búvöru-
Gunnar sagði að sá skaði, sem
bændur hefðu orðið fyrir vegna
þeirrar ákvörðunar ríkisstjórnar-
innar að fresta ákvörðun um nýtt
verð á nautgripaafurðum um hálf-
an mánuð næmi um 200 milljónum
króna en eftir væri að reikna það
tjón út nákvæmlega. Það væri
krafa bændasamtakanna að þessi
skaði yrði bættur bændum og
landbúnaðarráðherra hefði lýst
því yfir á aðalfundi Stéttarsam-
bandsins að það yrði gert. Gunnar
sagði að ekkert hefði verið rætt
um það af hálfu ríkisstjórnarinn-
ar með hvaða hætti þessi skaði
yrði bættur.
Nýjar íslenskar kartöflur hafa verið á boðstólunum í verzlunum í
Reykjavík siðustu daga. Ljósm. Kristján.
Nýtt kartöflu-
verd á mánudag
NÝTT verð á kartöflum tekur
gildi á mánudag og kostar hver
5 kílóa poki af kartöflum í
smásölu samkvæmt því 1216
krónur og er nýja verðið 19,1%
hærra en það verð, sem gilti á
íslenskum kartöflum frá 1. júlí
sl. Siðustu daga hafa nýjar
islenskar kartöflur verið seldar
i verzlunum á sérstöku
sumarverði og hefur 2,5 kiló
kartöflupokinn verið seldur á
950 krónur i smásölu en sam-
kvæmt nýja verðinu, sem tekur
gildi á mánudag kostar 2,5 kiló
pokinn af 1. flokki 623 krónur.
Framleiðendur fá nú 239 krón-
ur fyrir hvert kíló af 1. flokks
kartöflum og hefur verðið hækk-
að, sem svarar þeirri 19,72%
hækkun, sem nú hefur orðið á
verðlagsgrundvelli landbúnaðar-
vara. Niðurgreiðslur á kartöflum
verða óbreyttar og eru 90 krónur
á 1. verðflokki. Heildsöluverð á
1. flokki af kartöflum í 50 kíló-
poka er 8.950 krónur pokinn og
heildsöluverð 25 kílópoka er
4.519 krónur og er þá einnig
miðað við 1. verðflokk.
íslendingur
bjargaðist úr
sjávarháska
MANNBJÖRG varð er
danska flutningaskipið
Kristine Söby fórst í gær á
Atlantshafi, miðja vegu milli
írlands og Nýfundnalands.
Stýrimaður á skipinu var
íslendingur, Hrafn Margeir
Heimisson, 24 ára, frá Horna-
firði, en hann hefur verið
stýrimaður á dönskum skip-
um í þrjú ár, þar af í sex
mánuði hjá eigendum
Kristine Söby, skipafélaginu
Mortensen & Lange.
Ekki var í kvöld vitað um
orsök slyssins, en slæmt veð-
ur hefur verið á þeim slóðum
þar sem skipið fórst.
Áhöfninni á Kristine Söby,
alls 10 manns, var bjargað
um borð í sovézka veðurskip-
ið Musson. Haldið verður með
skipbrotsmennina til
Montreal í Kanada. Kristine
Lange var 499 brúttólesta
skip og var á leið til Ný-
fundnalands með vörur, sem
það hafði lestað í Antwerpen.
Þór aðstoð-
ar belgískan
togara
VARÐSKIPIÐ Þór aðstoðaði í
fyrradag belgískan togara, Lady,
við að ná upp vörpunni, en tog-
vinda togarans var biluð og náði
hann vörpunni ekki inn. Kallaði
togarinn á varðskipið og bað um
aðstoð. Var varpan tekin um borð
í Þór, sem kom í gær með vörpuna
til Reykjavíkur og þangað kom
togarinn einnig. Er gert ráð fyrir
að hann taki vörpuna um borð að
lokinni viðgerð á vindunni. Togar-
inn var staddur rúmar 30 mílur
vestur af Snæfellsjökli, þegar
hann bað um aðstoð varðskipsins.
Fjármál Tryggingastofnunarinnar:
Ráðherrar Alþýðuflokks-
ins neituðu að standa að
afgreiðslu stjórnarmála
-og Magnús H. Magnússon hótaði afsögn
„VIÐ RÁÐHERRAR Alþýðu-
flokksins höfðum tilkynnt á
ríkisstjórnarfundi, að við mynd-
ekki standa að afgreiðslu
um
neinna mála í ríkisstjórninni,
Spariskírteinin frá 1967:
1000 krónumar orðn-
ar að 41.148 krónum
Á MÁNUDAGINN hefst endur-
greiðsla á spariskírteinum rik-
issjóðs scm gefin voru út árið
1967. Með vöxtum, vaxtavöxt-
um og visitöluuppbót hafa þau
bréf nú rösklega fjörutíu og
eittfaldast að verðgildi, þannig
að bréf sem var árið 1967 að
upphæð 1000 krónur, er nú
orðið ígildi 41.148 króna.
Þetta er fyrsti flokkur 1967,
sem nú er verið að hefja endur-
greiðslu á, en þau voru á sínum
tíma gefin út til tólf ára, þannig
að nú hætta þau að bera vexti og
verðbætur eru ekki lengur reikn-
aðar á þau. Fyrstu spariskírteini
ríkissjóðs, sem gefin voru úf árið
1964, voru til tíu ára, síða var
það lengt í tólf ár, allt til ársins
1970 að gefin voru út fjórtán ára
bréf. Fjórtán ára bréf voru gefin
út um skeið, síðan var það lengt í
átján ár, og nú eru gefin út
tuttugu ára bréf, að því er
Sighvatur Jónasson hjá Seðla-
bankanum tjáði Morgunblaðinu
í gær.
nema fjárhagsvanda Trygginga-
stofnunarinnar yrði kippt í lið-
inn. Málinu var þó ekki kippt í
lag nema að hálfu leyti og þess
vegna tilkynnti ég á ríkisstjórn-
arfundi á mánudagsmorgun, að
ef heildariausn fengist ekki
strax, þá sæi ég mér ekki fært að
gegna ráðherraembættinu leng-
ur. Málið leystist svo síðar um
daginn og bráðabirgðalögin um
tekjuöflun íyrir ríkissjóð voru
samþykkt," sagði Magnús H.
Magnússon heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðherra í samtali við
Mbl. í gær. „í sjálfu sér virði ég
þá afstöðu Tómasar að vilja
standa við hallalausan rekstur
ríkissjóðs í árslok, eins og sagði í
samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórn-
arinnar, en mér fannst það frá-
leitt að láta það bitna á lífeyris-
þegum að erfiðlega gekk að ná
samkomulagi innan ríkisstjórn-
arinnar um leiðirnar til þess.“
Magnús sagði, að Trygginga-
stofnunin hefði átt að greiða 3
milljarða króna fyrir 10. septem-
ber sl. og 900 milljónir króna þann
11. „Tryggingastofnunin slapp
fyrir horn með þessar greiðslur,"
sagði Magnús. „En vandi sjúkra-
húsanna var áfram óleystur, þar
til daggjöldin voru hækkuð í gær.
Með því tel ég að fjármál Trygg-
ingastofnunarinnar standi í eins
góðu lagi og unnt er til áramóta,
þar sem tekjuaukinn af bráða-
birgðalögunum á meðal annars að
fara til þess að brúa bil stofnunar-
innar. Varðandi hækkun daggjald-
anna er þó þess að geta, að 9,17%
launahækkunin 1. september er
þar ekki tekin með, en ég vænti
þess að hún komi inn í síðar."
aí»svn$
Vegna verkfallsins reynd
ekki unnt að láta Lesb
koma út með blaðinu núna
kemur hún um næstu hel
laugardaginn 22. sept.