Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
5
Blaðamenn
fordæma verk-
bannsboðun
FÉLAGSFUNDUR var í gær
haldinn í Blaðamannafélagi ís-
lands, þar sem rædd voru kjara-
mál blaðamanna, en félagið er
með lausa samninga frá því 1.
júní síðastliðinn. Á fundinum var
samþykkt svohljóðandi ályktun:
„Félagsfundur í Blaðamannafé-
lagi Islands, haldinn 14. septem-
ber 1979, fordæmir harðlega þau
vinnubrögð Vinnuveitendasam-
bands íslands og viðsemjenda
félagsins innan þess, að boða
verkbann á félagsmenn Blaða-
mannafélags íslands.
Þetta verkbann var boðað án
þess að þessir aðilar hafi rætt við
félagið, þrátt fyrir bréf þess frá 7.
september, þar sem því var lýst
yfir, að Blaðamannafélagið sé
reiðubúið til viðræðna við útgef-
endur um framlengingu kjara-
samnings. Með verkbannsboðun-
inni var tilboði félagsins um
framlengdan kjarasamning til
áramóta hafnað.
Félagsfundurinn felur stjórn og
samninganefnd að ganga frá kröf-
um vegna væntanlegra viðræðna
við útgefendur."
Þess ber að geta að verkbann
það, sem nefnt er í ályktun félags-
ins, hefur verið afboðað í kjölfar
samnings prentiðnaðarins og
Grafíska sveinafélagsins.
Múrinn er
5-6 metrar
í BAKSÍÐUFRÉTT Mbl. í gær um
flótta Sigurðar Þórs Sigurðssonar
í Vestre-fangelsinu í Kaupmanna-
höfn slæddist inn sú villa, að
fangelsismúrinn, sem Sigurði
tókst að komast yfir, var sagður
tveir og hálfur metri á hæð. Hið
rétta er, að múrinn er 5—6 metrar
á hæð.
Leiðtogi Ananda
Marga kemur
á mánudag
í MBL. í gær var sagt frá því að
andlegur leiðtogi Ananda Marga,
P.R. Sarkar, kæmi til landsins í
gær. Töf varð hins vegar á hingað-
komu leiðtogans og mun hann
væntanlegur til landsins á mánu-
daginn 17. september.
Níu listamannanna sem verk eiga á afmælissýningu íélagsins íslensk grafík. Talið frá vinstri: Þórður Hall, formaður félagsins, Valgerður
Bergsdóttir, Edda Jónsdóttir, Sigrid Valtingojer, Ingunn C. Eydal, Jónína Lára Einarsdóttir, Ragnheiður Jónsdóttir, Richard Valtingojer
Jóhannsson og Sigrún Eldjárn. Á myndina vantar Björgu Þorsteinsdóttur, Ingiberg Magnússon, Jenný E. Guðmundsdóttur, Jóhönnu
Bogadóttur, Jón Reykdal, Kjartan Guðjónsson, Lisu K. Guðjónsdóttur og Vigni Jóhannsson.
Félagió íslensk grafík:
Tíu ára afmælissýning
FJÓRÐA samsýning félagsins
íslensk grafík verður opnuð í
dag, laugardaginn 15. septem-
ber. Sýning þessi er jafnframt
10 ára afmælissýning félagsins
og ber heitið „íslensk grafík
’79“.
S.l. föstudag var sams konar
sýning opnuð í Norræna mynd-
listarsetrinu á Sveaborg, sem er
skammt fyrir utan Helsingfors í
Finnlandi og hefur félagið notið
aðstoðar Norræna hússins við
dreifingu hennar á Norðurlönd-
unum.
Sýningin verður síðan
sett upp í 12 borgum á öllum
Norðurlöndunum, þremur borg-
um í hverju landi, og lýkur
hringferðinni í Danmörku í lok
ársins 1980. Á sýningunni eru
112 grafíkmyndir eftir 17 lista-
menn. Vegleg sýningarskrá á
þremur Norðurlandamálum hef-
ur verið gerð í tilefni sýningar-
innar og mun hún fylgja sýning-
unni á hringferðinni. í skránni
eru upplýsingar og myndir um
hvern einstakan listamann sem
verk á á sýningunni. Þórður Hall
formaður íslenskrar grafíkar og
Erik Sönderholm forstjóri Nor-
ræna hússins rita formálsorð og
Aðalsteinn Ingólfsson skrifar
ágrip af sögu íslenskrar grafík-
listar.
Vegna eðlis grafíklistar er
hægt að hafa sams konar sýn-
ingu á fleiri en einum stað á
sama tíma og verður því 10 ára
afmælissýning félagsins íslensk
grafík samtímis á íslandi og í
Finnlandi út septembermánuð.
Sýningin í Norræna húsinu
verður opin daglega kl. 14—22 og
lýkur sunnudaginn 30. septem-
ber.
Næring og heilsa
— ný bók eftir Jón Óttar Ragnarsson
tJT ER komin hjá Bókaútgáfunni
Helgafelli bókin „Næring og
heilsa“ eftir Jón óttar Ragnars-
son. Kápumynd bókarinnar er
eftir Ernu Ragnarsdóttur, en
teiknimyndir í bókinni eru eftir
Sigrúnu Eldjárn. Formáli er eftir
dr. Bjarna Þjóðleifsson lækni.
Bókin er tæplega 400 blaðsíður
að stærð, og skiptist hún í 17 kafla
og 6 viðauka, auk þess sem í
bókinni eru fjölmargar myndir er
tengjast og skýra það efni sem um
er fjallað. í formála bókarinnar
segir svo meðal annars: „Til að
matbúa fjölbreytt fæði þarf þekk-
ingu á fæðuflokkunum og sam-
setningu algengustu matvæla.
Fræðsla um þessi efni og um
næringarfræði almennt er nánast
engin í grunnskólakerfinu og er
brýnt að bæta úr því. Þessi bók
hefur að geyma öll undirstöðuatr-
iði næringarfræðinnar ásamt
helstu nýjungum í greininni og er
hver kafli hennar byggður upp
sem sjálfstæð heild með ágripi.
Hún hentar vel til riotkunar á
framhaldsskóla- og háskólastigi,
en ætti ekki síður að koma hinum
almenna lesanda að gagni í leit
hans að svörum við þeim ótal
spurningum, sem hljóta að vakna í
hinu daglega lífi í neysluþjóðfé-
lagi“.
Höfundur bókarinnar, Jón Ótt-
ar Ragnarsson fæddist árið 1945.
Hann lauk B.Sc. prófi í efnaverk-
fræði frá Edinborgarháskóla árið
1969, M.Sc. prófi í matvæla- og
næringarfræði frá Massachusetts
Institute of Technology 1971 og
PhD prófi í matvæla- og næring-
arefnafræði frá Minnesotaháskóla
árið 1976. Hann var skipaður
dósent í efnafræði við Háskóla
íslands sama ár og er nú aðal-
kennari í nýhafinni kennslugrein í
matvælafræði við þá stofnun.
Hann stjórnar einnig matvæla- og
manneldisrannsóknum við Rann-
sóknastofnun landbúnaðarins.
Haustið 1977 stjórnaði hann sjón-
varpsþáttum um megrun og hollar
lífsvenjur ásamt Sigrúnu Stefáns-
dóttur fréttamanni. Hann á sæti í
Manneldisráði íslands.
RHODOS
— eyja sólguðsins.
Rhodos státar af því að eiga sólskinsmetió í Grikklandi.
Þetta auk dásamlegra stranda og kristalltærs sjávar gerir
Rhodos að uppáhaldi allra Norðurlandabúa. Þjóðlíf og
skemmtanalíf er hér margþætt. Hér er líka margt, sem er
spennandi að uppgötva. í gamla borgarhlutanum í borginni
Rhodos eru mörg miðaldaöngstræti og fjöldi
litskrúðugra smáverzlana og veitingastaða.
Fiðrildisdalurinn hughrífur hvern og einn og hið
stórbrotna Akropolis stendur uppi á klettum fyrir
ofan borgina Lindos. Þarna er líka Kaimros, sem
kallað er Pompej Rhodos.
Verið velkomin til eyju sólguðsins.
Grekiska Statens Turistbyrá
(Kerðaskrifstofa j>ríska ríkisins)
Grev Turegatan 2 • Box 5298
S-10246 STOCKHOI '
Sími 08-21II 13