Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
27
Góð atvinna
Stykkishólmi, 13. sept.
Gatnagerðarframkvæmdir
hafa verið miklar í sumar og
hefir verið unnið við undirbygg-
ingu og lagnir í götur nýs hverfis
í Nesi og á Ási, en þar eru 40
lóðir og hefir þeim flestum verið
úthlutað. Unnið hefir verið við
lokafrágang á aðveituæð vatns-
veitunnar og einnig endurbætur
á dreifikerfinu.
Mikið hefir verið unnið við
íþróttavöllinn í sumar og var hann
stækkaður og byggð áhorfenda-
stúka.
Samfara gatnagerðarfram-
kvæmdum í gamla bænum hefir
orðið mikið rask við lóðir og hefir
verið unnið við frágang lóða með
gangstéttum.
í byggingarframkvæmdum er
það helst að mikilli viðbyggingu er
nú lokið við sláturhúsið og er það
nú kor>:ð í löglegt og ágætt horf.
Aðilar á Snæfellsnesi eru um
þetta hús enda eina sláturhúsið á
Nesinu.
Þá er Rækjunes með viðbygg-
ingu við skelfiskvinnslu sína og
hraðfrystihús Sig. Ágústssonar
h.f. er með miklar lagfæringar á
sínum húsum og byggingum.
Gamla verslunarhúsið þar sem
skrifstofur fyrirtækisins eru hafa
verið lagfærðar og málaðar og
innréttaðar í stíl við það sem áður
var og er það mikil bæjarprýði. Þá
verður ál sett á frystihúsið og við
það tekur það miklum stakka-
skiptum og prýðir bæinn.
Fréttaritari.
Minnisvarði um
Hermann Jónas-
son afhjúpaður
Á SUNNUDAG, 16. september,
kl. 14.00, verður afhjúpaður í
svonefndri Skeljavík við Hólma-
vik minnisvarði um Hermann
heitinn Jónasson, fyrrum ráð-
herra og þingmann Stranda-
manna.
Minnisvarðinn er reistur af
Strandamönnum, en forsaga hans
er sú, að á aðalfundi sýslunefndar
Strandasýslu á árinu 1976 var
Nafnabrengl
NAFNABRENGL urðu í texta
myndar sem fylgdi frétt um 50 ára
afmæli Kvæðamannafélagsins Ið-
unnar í blaðinu í gær. Myndin var
af stjórn félagsins og er röð
nafnanna rétt þannig: Efri röð frá
vinstri: Magnús Jóhannsson vara-
gjaldkeri, Ulrich Richter formað-
ur og Guðmundur Ágústsson rit-
ari. Neðri röð frá vinstri: Ragn-
heiður Magnúsdóttir gjaldkeri og
Magnea Halldórsdóttir vararitari.
Þess má einnig geta að það er í
dag, laugardaginn 15. september,
sem Kvæðamannafélagið Iðunn er
50 ára.
samþykkt að kanna á hvern hátt
Hermanns heitins yrði bezt
minnst af Strandamönnum, en
hann var þingmaður þeirra sam-
fellt frá 1934—1959 og síðan þing-
maður Vestfirðinga eftir kjör-
dæmabreytinguna allt til ársins
1967, er hann lét af þingmennsku.
Til þessa verkefnis kaus sýslu-
nefndin 3ja manna nefnd. Nefndin
varð fljótlega sammála um það, að
Hermanns heitins yrði bezt og
veglegast minnst með því móti að
reisa honum minnisvarða í sýsl-
unni. Leitaði hún til Sigurjóns
Ólafssonar, myndhöggvara, sem
tók að sér að gera uppdrátt að
varðanum, sem unninn er í grá-
stein í Steinsmiðju Sigurðar
Helgasonar í Reýkjavík, en vanga-
mynd Sigurjóns af Hermanni
heitnum, sem steypt er í brons, er
greypt á varðann. — Mjög margir
Strandamenn heima og heiman
hafa stutt málið með fjárframlög-
um og á ýmsan annan hátt og er
þess vænst, að sem flestir
Strandamenn sjái sér fært að taka
þátt í athöfninni á sunnudaginn
kemur, að því er segir í frétt frá
sýslunefndinni.
Ríkissjóður hefur keypt 2. hæð þessa húss, Borgartúns 22, og er ætlunin að þar verði embætti
rikissáttascmjara og kjararannsóknanefnd til húsa. Ljósm.: Emilía.
RÍKISSJÓÐUR hefur fest kaup á 2. hæð hússins
Borgartúns 22 í Reykjavík og er ætlunin að embætti
ríkissáttasemjara og kjararannsóknanefnd verði þar
til húsa auk þess, sem til greina kemur að fleiri
opinberir aðilar fái þarna inni.
Húsnæðið er keypt tilbúið undir tréverk og er
kaupverð þess alls 77 milljónir króna. Önnur hæðin er
496,44 fermetrar á stærð og auk þess hefur ríkissjóður
keypt 72 fermetra geymsluhúsnæði í kjallara hússins.
Seljandi er Efnissalan h.f.
Sáttasemjari og
kjararannsókna-
nefnd brátt í
nýtt húsnæði
Stykkishólmur:
Miklar gatnagerðarframkvæmdir
Stykkishólmi, 13. sept. 1979.
ATVINNA í Stykkishólmi hefir
verið góð og sérstaklega hefir
verið annríkt hjá iðnaðarmönn-
um. Skipavik h.f. hefir verið að
auglýsa eftir meira starfsliði.
Á vegum sveitarféle.gsins eru
framkvæmdir á þessu ári með
mesta móti. Helstu verkefni eru
að nú er unnið að byggingu nýs
skólahúss sem er 730 ferm. bygg-
ing á tveimur og hálfri hæð. Þessi
bygging er fyrsti áfangi áætlunar
um byggingu skóla og íþrótta-
mannvirkja.
Við gamla barnaskólahúsið hef-
ur verið reist kennsluhús eða
svokallaðar lausar kennslustofur
130 fermetrar og leysir það hús-
næðisvanda skólans sem hefir
verið mikill. Eftir sem áður er
kennt í húsnæði hótelsins en þar
eru 3 efstu bekkir grunnskólans,
iðnskólinn og framhaldsdeildin.
Með hækkun olíuverðs hefir
kostnaður við kyndingu skóla auk-
ist mikið. Því er nú unnið að
breytingum á kyndibúnaði skóla-
hússins og á að samkynda Dvalar-
heimilið og skólann með svartolíu.
— Fréttaritari
Fjárdauði vegna snjóa
í Miklaholtshreppi
Stykkishólmi, 13. september.
ÞAÐ sem af er september hefir
tiðarfarið verið óstillt, fáir dagar
góðir til kvölds, skipst á með
Þjódleikhúsid:
Ellefu ný leikrit á
verkefnaskrá vetrarins
FIMM islensk leikrit verða tek-
in til sýninga í Þjóðieikhúsinu á
þessu starfsári. Á biaðamanna-
fundi sem Sveinn Einarsson
leikhússtjóri hélt voru verkin
kynnt og kom þar einnig fram
að Þjóðieikhúsið verður 30 ára í
apríl og mun þess verða minnst
með frumsýningum á tveimur
islenskum leikritum, „í öruggri
borg“ eftir Jökul Jakobsson og
„Smáastúlkunni“ eftir Sigurð
málara Guðmundsson i leikgerð
Þorgeirs Þorgeirssonar.
Á stóra sviðinu verða sjö ný
verk tekin til sýninga. „Leigu-
hjallur", nýjasta verk banda-
ríska skáldsins Tennessee
Williams, verður frumsýnt 27.
september n.k. Þýðandi verksins
er Indriði G. Þorsteinsson en
leikstjóri er Benedikt Árnason.
Barnaleikritið „Óvitar" eftir
Guðrúnu Helgadóttur verður
frumsýnt í nóvember og er
Brynja Benediktsdóttir leik-
stjóri. í byrjun október verður
„Gamaldags kómedía" eftir rúss-
neska höfundinn Alexei Arbú-
zov, frumsýnt í Reykjavík en
Þjóðleikhúsið frumsýndi þetta
verk á Norðfirði í vor og var það
síðar sýnt á nokkrum stöðum um
landið.
Á annan í jólum verður frum-
sýnd óperan Orfeus og Evridís
eftir Gluck. Óperu þessa átti að
sýna á síðasta ári en hætt var
við það vegna fjárskorts. í þessu
verki koma m.a. fram 40 manna
kór, 10 dansarar og 40 manna
hljómsveit. Þýðandi textans er
Þorsteinn Valdimarsson, leik-
stjóri er Kenneth Tillson og
leikmynd eftir Alistair Powell.
Eftir áramótin verða frum-
sýndir tveir farsar eftir Dario
Fo og George Feydeau og um
mánaðamótin febrúar og mars
verður leikritið „Sumargestir"
eftir Maxim Gorki frumsýnt í
þýðingu Árna Bergmanns. Leik-
stjóri verður Stefán Baldursson.
Á þrjátíu ára afmæli leikhúss-
ins í apríl verður Smalastúlkan
eftir Sigurð málara Guðmunds-
son sýnd. Þorgeir Þorgeirsson
hefur annast leikgerðina og
nefnist leikritið í búningi Þor-
geirs „Smalastúlkan og útlag-
arnir". Leikstjóri er Þórhildur
Þorleifsdóttir.
Á litla sviðinu verður fyrsta
frumsýningin 10. október. Verð-
ur þá frumsýnt nýtt leikrit eftir
Nínu Björk Árnadóttur, „Hvað
sögðu englarnir", undir leik-
stjórn Stefáns Baldurssonar. Þá
verða sýndir tveir japanskir
einþáttungar í þýðingu Helga
Hálfdanarsonar undir leikstjórn
Hauks J. Gunnarssonar, og
Snjór eftir Kjartan Ragnarsson
undir leikstjórn Sveins Einars-
sonar. Síðasta frumsýningin á
litla sviðinu verður á 30 ára
afmæli Þjóðleikhússins er sýnt
verður síðasta leikrit Jökuls
Jakobssonar „í öruggri borg“.
Sýningar á Stundarfriði eftir
Guðmund Steinsson verða tekn-
ar upp aftur í vetur svo og
sýningar á Fröken Margréti en
það er þriðja leikárið sem hún er
sýnd. Sýningum á Flugleik, sem
sýndur var á Vörusýningunni í
Laugardalshöll mun verða hald-
ið áfram á Kjarvaisstöðum síðar
í haust.
Hinn 19. júní á næsta ári
verða liðin 100 ár frá fæðingu
Jóhanns Sigurjónssonar og mun
Þjóðleikhúsið minnast þess með
sérstakri dagskrá um Jóhann og
verk hans. Þá kom það einnig
fram á fundinum að ráðgert er
að ballettinn hafi sýningar í
Þjóðleikhúsinu í nóvember og
verður skólum trúlega boðið
rigningum og hvassviðri og hiti i
lægra lagi. Heyskapur hefur
gengið sæmilega en grasvöxtur
miklu minni en áður og hafa
vorkuldarnir haft sitt að segja í
þeim efnum. Sláttur hófst þvi
seinna en áður. Það sem af er
hafa hey náðst þurr inn og er það
mikil bót. Berjaspretta er nálega
engin og þeir vísar sem sjást ná
tæpast þroska nema tíð verði
mild i septembcr sem ekki litur
þó út fyrir.
Snemma snjóaði í fjöll hér og í
nálægum sveitum varð það mikill
snjór að fé fennti og hafa menn
verið að leita en snjórinn sums-
staðar það þykkur að erfitt er um
alla leit. I Miklaholtshreppi hafa
menn þegar fundið 4 kindur fennt-
ar og dauðar í snjónum en þykir
líklegt að fleiri hafi fennt en það
er samt ekki fullkannað enn.
Fréttaritari.
Handritasýn-
ingu að ljúka
HANDRITASÝNING hefur að
venju verið opin í Árnagarði í
sumar, og hefur aðsókn verið
með meira móti. Þar sem
aðsókn fer mjög minnkandi
með haustinu er ætlunin að
hafa sýninguna opna almenn-
ingi í síðasta sinn laugardag-
inn 15. september kl. 2—4
síðdegis. Þó verða sýningar
settar upp fyrir skólanemend-
ur og ferðamannahópa, eins og
undanfarin ár, ef þess er óskað
með nægilegum fyrirvara, að
því er segir í frétt frá Stofnun
Árna Magnússonar.