Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979 Magnús Gunnarsson framkvæmdastjóri Arnarflugs: Ætlum að halda íippi samkeppni” Arnarflug fór í fyrsta áætlunarflugið í gær á leiguflugvél ARNARFLUG hóí í gær áætlun- arflug til þeirra staða, sem Vængir flugu áður til. Fyrst í stað heldur fyrirtækið þessari áætlun uppi með 9 sæta flugvél frá Flugfélagi Austurlands, en hefur einnig möguleika á að fá vélar leigðar hjá Flugstöðinni og Sverri Þóroddssyni. Ætlun Arn- arflugs er að kaupa tvær 19 sæta flugvélar af Twin Otter-gerð til Ný bók frá Mm: Samfélagið: Fjölskyld- an, vinnan, ríkið MÁL og menning hefur gefið út nýja kennslubók, ætlaða byrjend- um i samfélagsfræðanámi við fjölbrauta- og menntaskóla. Bók þessi nefnist Samfélagið: Fjöl- skyidan, vinnan, ríkið og höfund- ur er prófessor Joachim Israel. Israel er vel þekktur fræðimaður á sínu sviði og hefur gefið út fjölmörg rit um stjórnmál og önnur þjóðfélagsleg viðfangsefni. Hann hefur undanfarin ár kennt félagsfræði við háskólana í Kaup- mannahöfn og Lundi. Eins og heiti bókarinnar ber með sér skiptist hún í þrjá aðal- kafla þar sem farið er ítarlega í þrjá meginþætti samfélagsins. Hver þessara aðalkafla greinist í þrjá smærri kafla, og eru heiti þeirra þessi. 1. Er samhengi milli fjölskyldugerðar og samfélags- gerðar? 2. Barneignir. 3. Uppeldi og menntun. 4. Hlutverk vinnunn- ar í samfélaginu. 5. Hagkerfi okkar. 6. Neyslan og tekjurnar. 7. Ríki og stjórnmál. 8. Verkefni ríkisins. 9. Ríkið og valdið. Við þýðingu bókarinnar hefur verið lögð mikil áhersla á að Um 70 þúsund á vörusýninguna ALÞJÓÐLEGU Vörusýninguna '79 sem haldin var i Laugardals- höll dagana 24. ágúst til 9. september sóttu nærri 70 þúsund manns. Á sýningunni sýndu 150 fyrirtæki vörur frá fjölmörgum þjóðlöndum á um það bil 6000 fermetra sýningarsvæði. Á sýningunni voru haldnar 40 tískusýningar og 16 skemmti- dagskrár og lætur nærri að 55 þúsund manns hafi sótt þessi sýningaratriði. Tveggja hæða strætisvagninn frá London, sem var tákn sýn- ingarinnar, fór í útsýnisferðir á klukkutima fresti meðan sýning var opin — og flutti alls um 9.000 farþega. staðfæra allar þær upplýsingar sem fram koma í bókinni, og því er í henni að finna ýmislegt efni um islenskt samfélag sem aldrei hefur áður komið fyrir almennings sjón- ir. Þýðingu og staðfæringu bókar- innar annaðist Auður Styrkárs- dóttir þjóðfélagsfræðingur, teikn- ingar og útlit Guðmundur Ólafs- son. Bókin er 200 blaðsíður, Prentstofa G. Benediktssonar prentaði. Þetta er pappírskilja, bókbandsvinnu annaðist Bókfell hf. að annast þennan þátt í starfsemi fyrirtækisins. Morgunblaðið ræddi í gær við Magnús Gunnarsson framkvæmd- arstjóra Arnarflugs og var hann spurður hvort innanlandsflugið væri nú allt komið á hendur Flugleiða eða hvort um samkeppni yrði áfram að ræða á innanlands- leiðum. — Það er augljóst mál að um samkeppni verður áfram að ræða, sagði Magnús. — Leyfisveitingin til okkar er skilyrt að því leyti að við höldum uppi samkeppni og við ætlum okkur svo sannarlega að gera það. í fyrsta lagi ætlum við að efla þetta flug og koma góðri reglu þar a' en því hefur verið ábótavant á köflum. Jafnframt ætlum við okkur almennt leigu- flug og nýtingu á vélunum eins og henta þykir á hverjum tíma. Ég held að það megi segjast, að það sé nokkuð vel af sér vikið hjá okkur að fá leyfið á þriðjudagskvöldi, en vera byrjaðir á fullri áætlun á föstudegi. Vonandi er það bara forsmekkurinn að því hvernig við vinnum að þessu flugi, sagði Magnús Gunnarsson. Ragnar Amalds samgönguráðherra: Frönsk-bandarísk mynd í Stjömubíói STJÖRNUBÍÓ hefur hafið sýn- ingar á frönsk-bandarísku myndinni „Madame Claude“. Leikstjóri er Just Jaeckin sá sem stjórnaði Emanuelle- myndunum og Sögunni af O. Jaeckin er einnig framleiðandi. Með helstu hlutverkin í mynd- inni fara Francoise Fabian, Murray Head, Dayle Haddon, Maurice Ronet og Vibeke Knud- sen. Myndin hefst á því að ung og fögur stúlka kemur frá París og er ekið á gljáfægðum bíldreka að Hvíta húsinu í Washington. Stúlkan heitir Anne-Marie og er sérfræðingur í að gefa blíðu sína gegn hárri greiðslu. Að loknum vinnudegi snýr hún aftur til Parísar þar sem David bíður hennar. Anne-Marie og fleiri stúlkur er stunda sömu iðju eru undir verndarvæng hinnar frægu Madame Claude og vinna aðeins fyrir háttsetta menn svo sem forseta, ráðherra og þeirra líka. Lockheedhneykslið er á allra vörum og eru nokkrir viðskipta- vina Madame Claude flæktir í það mál. David, vinur Anne- Marie, er ákveðinn í að koma Madame Claude á kaldan klaka og ætlar að notfæra sér þetta hneykslismál til að koma ár sinni fyrir borð. 99 Sannfærður um að hægt verður að tryggja að Arnarflug haldi uppi eðlilegum flugsamgöngum 99 í MBL. i gær var haft eftir Ólafi Ragnari Grímssyni, formanni framkvæmdastjórnar Alþýðubandalagsins, að hann hygðist taka upp á Alþingi er það kemur saman að nýju, leyfisveitingu til Arnarflugs á flugleiðum Vængja innanlands. ólafur sagði að hann teldi það ranga stefnu hjá samgönguráðherra að láta atburðarásina fara í þennan farveg og sagðist óttast að Arnarflug yrði háð Flugleiðum í þessum rekstri. Morgunblaðið hafði í gær sam- band við Ragnar Arnalds sam- gönguráðherra og spurði hann álits á þessari skoðun flokksbróð- ur síns. — Það gera sér allir grein fyrir því að sá galli er á þessari leyfis- veitingu, að leyfishafi er að meiri- hluta til í eigu annars flugfélags, sagði Ragnar. — Þó að þetta sé ágalli, og ég býst við að orð Ólafs Ragnars miði fyrst og fremst að þessum ágalla, þá þýðir ekki að einblína bara á þetta atriði og ekkert annað. Menn verða auðvit- að að skoða málið í heild sinni. Ég er sannfærður um að hægt verði að tryggja að þetta félag haldi uppi eðlilegum flugsamgöngum, jafnvel þótt annað flugfélag sé aðaleigandi þess. Um einokunar- aðstöðu þarf ekki að verða að ræða og ef við sjáum einhver merki þess að Flugleiðir hafi óeðlileg áhrif á þetta félag og starfsemi þess þá munum við grípa í taumana, við höfum alla möguleika til þess, sagði sam- gönguráðherra. Ragnar sagði að ákvarðanir sínar í þessu máli hefðu fyrst og fremst verið teknar með það í huga að það félag sem fengi leyfið héldi uppi góðum samgöngum og þjónustu við viðkomandi byggðar- lög. Hann sagði að Vængir hefðu glatað trausti meðal fólks á þess- um stöðum vegna margvíslegra mistaka og óreglu í rekstrinum, m.a. hefðu öryggismál félagsins verið í miklu ólagi. Hann sagðist hafa fengið skeyti frá sveitarstjórnum á átta stöðum og í sex þeirra hefði beinum orðum verið mælt með því að Arnarflug fengi leyfið. Hin tvö hefðu fyllilega samræmst þeirri ákvörðun að veita Arnarflugi leyf- in. I engri umsagnanna hefði verið mælt með því að Iscargó fengi umrædd leyfi. Varðandi fréttir um að þrír starfsmenn Flugleiða hefðu setið fund Flugráðs þar sem ákvörðun um þetta mál var tekin, sagði Ragnar að engin ákvörðun hefði verið tekin í Flugráði. Ákvörðunin hefði verið tekin í samgönguráðu- neytinu. Hann sagði að Leifur Magnússon, varaformaður Flug- ráðs, hefði ekki tekið afstöðu þar sem hann var aðili að málinu, en aðrir Flugráðsmenn, að einum undanskildum verið því meðmælt- ir að veita Arnarflugi þessi leyfi. — Það er óhætt að segja að víðtæk samstaða er að baki þessari ákvörðun, sagði Ragnar Arnalds. Sinfóníuhlj ómsveitin lék fyrir fullu húsi Sauóárkróki, 14. september. SINF ÓNÍUHLJ ÓMSVEIT íslands. sem nú er í hljómleika- íerð um landið kom hingað til Sauðárkróks í gær og hélt Tómas Árnason fjármálaráðherra: Mun svara Ólafi á Alþingi „MÉR þykir rétt að benda á það, að allir stjórnarflokkarnir samþykktu stjórnarsamþykkt- ina um vaxtastefnuna, en ég játa hins vegar að hún var miðuð við að verðbólgan hjaðn- aði en ykist ekki, þannig að þess vegna má segja að við séum komnir i nokkra sjálf- heldu með vaxtamálin,“ sagði Tómas Árnason fjármálaráð- herra, er Mbl. leitaði álits hans á þeirri gagnrýni, sem formað- ur framkvæmdastjórnar Al- þýðubandalagsins, Ólafur Ragnar Grimsson, setti fram á Tómas sem fjármálaráðherra í Mbl. i gær. „Varðandi ummæli Ólafs um það, að ég hafi algjörlega brugð- izt varðandi framkvæmd á til- lögum skattanefndar ríkis- stjórnarinnar, þá verð ég að segja það, að ég veit hreint ekki, hvort Ólafur hefur nokkuð fylgzt með því, sem unnið hefur verið á þessu sviði," sagði Tómas. „Það hefur ýmislegt verið gert, eins og koma mun í ljós, þegar ég svara ólafi á Alþingi." En í Mbl. segist Ólafur munu strax í þingbyrjun krefja Tómas sagna um það, hvers vegna hann hafi ekki framkvæmt stefnumál ríkis- stjórnarinnar. „Varðandi afgreiðslu hækkun- arinnar á landbúnaðarvörum, þá er það að segja, að ef verja hefði átt meira fé í niðurgreiðslur, þá mun ég hafa sagt á ríkisstjórn- arfundinum, að eitthvað slíkt gæti komið til greina, en þá þyrftu menn líka að útvega ríkissjóði aukið fé til að mæta þeim útgjöldum. Tillögur þess efnis lágu hins vegar ekki á lausu. Og ég vil taka það fram varð- andi söluskattshækkunina, að ég lagði til að hún gengi ekki inn í vísitöluna, en því var hafnað. Annars hef ég engan áhuga á því að vera að karpa við Ölaf Ragnar Grímsson í dagblöðum. Ég mun, þegar þing kemur sam- an, gera grein fyrir gangi mála og þá svara spurningum Ólafs sem annarra þingmanna," sagði Tómas Árnason fjármálaráð- herra. tónleika í Félagsheimilinu Bif- röst í gærkvöldi fyrir fullu húsi þakklátra áheyrenda. Stjórn- andi hljómsveitarinnar er Páll P. Pálsson, einsöngvari Ing- veldur Hjaltested og einleikari á trompet Lárus Sveinsson. Efnisskrá tónleikanna var mjög fjölbreytt. Þar var að finna eitthvað fyrir alla enda féll hún í góðan jarðveg. Ein- söngvara og einleikara var sérstaklega vel fagnað enda hlutur þeirra mikill og góður. Hljómsveitin varð að leika nokkur aukalög og í lokin voru stjórnandi og hljómsveit hyllt með miklu lófataki. Sigurður Björnsson, framkvæmdastjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar, ávarpaði áheyrendur með nokkrum orðum. Þetta voru þriðju tónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar hér á Sauðárkróki á þessu ári og ætíð hefur hún leikið fyrir fullu húsi og geta ekki aðrir státað af betri aðsókn hér. Kári.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.