Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 33
Kjömir vara-
menn í húsa-
leigunefnd
BORGARRÁÐ kaus á fundi sínum
4. september sl. þrjá varamenn í
húsaleigunefnd. Kjörnir voru Vil-
hjálmur H. Vilhjálmsson og Hilm-
ar Þórarinsson af G-lista og Sig-
ríður Ásgeirsdóttir af D-lista.
Fyrirlestur
um jarðhita í
Yellowstone
UNDANFARNA viku hefur dr.
Donald E. White jarðfræðingur
við Jarðfræðistofnun Bandaríkj-
anna haldið fyrirlestraröð um
jarðhitamálefni, í boði Jarðhita-
skóla Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna. Mánudaginn 17. september
mun dr. White flytja fyrirlestur
um Jarðhita í Yellowstone þjóft-
garðinum og verndun jarðhitans
þar. Fyrirlesturinn verður í stofu
101 í Lögbergi og hefst kl. 16.
Áhugamenn um jarðhita og nátt-
úruvernd eru velkomnir.
Morten Lange
Fyrirlestrar
um sveppi og
háskólapólitík
MORTEN Lange fyrrver-
andi rektor Hafnarháskóla
flytur tvo fyrirlestra í Nor-
ræna húsinu dagana 16. og
19. september næstkom-
andi. I fyrri fyrirlestrinum
fjallar Lange um sveppi og
hefst fyrirlesturinn kl.
16.00 á sunnudag. Miðviku-
daginn 19. september kl.
20.30 fjallar Lange svo um
háskólapólitík vorra tíma.
Morten Lange fæddist í Óðvins-
véum 1919. Hann tók stúdentspróf
í heimabæ sínum, en árið 1945
varð hann cand. mag. og 1952 dr.
phil. frá Hafnarháskóla. Hann
varð prófessor í grasafræði við
sama skóla 1958 og síðar rektor
fram til 1979. Lange er virtur og
þekktur sveppafræðingur og hefur
gefið út fjölda rita á því sviði,
bæði vísindaleg og fyrir almenn-
ing. Auk starfa síns við háskólann
hefur Lange tekið virkan þátt í
dönsku stjórnmálalífi og stóð m.a.
að stofnun Socialistisk Folkeparti.
Hann varð þingmaður 1960, en lét
af stjórnmálaafskiptum er hann
varð rektor háskólans.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
33
Hluti sýningarnefndar Haustsýningar Félags islenskra myndlistarmanna við eitt verkanna á sýningunni.
Ljósm. 01. K. M.
Haustsýning Félags is-
lenskra myndlistarmanna
HAUSTSÝNING Félags íslenskra myndlistarmanna
hefst á Kjarvalsstöðum á morgun, laugardaginn 15.
september, kl. 15 og stendur fram á sunnudagskvöld
23. september. Á sýningunni eru 133 myndverk eftir
45 höfunda, þar af er 81 myndverk eftir félaga í FÍM
en 18 menn utan félagsins sýna 54 myndverk.
Á Haustsýningunni, sem hef-
ur verið árlegur listviðburður í
Reykjavík í 20—30 ár, gefur að
líta málverk, höggmyndir, skúlp-
túr, leirmyndir, steingler og
vefnað. Verkin eru öll ný og hafa
flest þeirra ekki áður verið á
sýningu. Örn Þorsteinsson for-
maður sýningarnefndarinnar
sagði, að því miður væri þessi
sýning ekki gott úrtak verka
félaga í FÍM og gæfi heldur ekki
glögga mynd af því sem væri að
gerast utan félagsins. Kvað hann
helst um að kenna, að nýlega
hefðu myndhöggvarar haldið
sýningu á Kjarvaldsstöðum og
grafíklistamenn héldu nú sýn-
ingu í Norræna húsinu auk þess
sem mikið hefði verið um einka-
sýningar að undanförnu. Kvað
hann þetta hafa gert það að
verkum að myndir sem sýning-
arnefnd bárust hefðu verið færri
en undanfarin ár. Alls bárust
sýningarnefnd 258 verk eftir 54
höfunda en 133 verk eru á sýn-
ingunni eins og áður er um getið.
Um 90 félagar eru í FÍM.
Á blaðamannafundi sem hald-
inn var fyrir sýninguna kynnti
Félag íslenskra myndlistar-
manna þá ákvörðun sína að
bjóða áhugamönnum um mynd-
list að gerast styrktarfélagar í
FÍM. Nöfn stryktarfélaga munu
framvegis birtast í sýningarskrá
Haustsýningar og fá þeir ókeyp-
is aðgang að samsýningum fé-
lagsins og kaupi þeir .myndverk
gegn staðgreiðslu fá þeir 10%
afslátt frá félaginu. Ennfremur
er ætlunin að efna til árlegs
happdrættis fyrir styrktarfélaga
en árgjald þeirra er 30.000 krón-
ur. Örn sagði, að tilgangurinn
með þessari ákvörðun væri að
reyna að styrkja fjárhagslega
stöðu félagsins.
Sýningarnefnd haustsýning-
arinnar skipa tíu menn: Örn
Þorsteinsson, Björgvin S. Har-
aldsson, Guðbergur Auðunsson,
Gunnar Örn Gunnarsson, Gunn-
laugur Stefán Gíslason, Hringur
Jóhannesson, Jónína Guðnadótt-
ir, Magnús Kjartansson, Snorri
Sveinn Friðriksson og Valgerður
Bergsdóttir.
Keppt í Ökuleikni '79 i Keflavík
Úrslitakeppni í Ökuleikni ’79
Heimspekifyrirlestrar
Geach og Anscombe í
Lögbergi um helgina
ÚRSLITAKEPPNI í Öku-
leikni 79, sem Bindindis-
félag ökumanna og Dag-
blaðið hafa gengist fyrir
víða um land í sumar,
verður við Laugarnesskól-
ann i Reykjavík i dag,
laugardag.
Undankeppnir í Ökuleikni ’79
eru alls 14 í ár víða um landið og
er þeim nú lokið. En tveimur
hlutskörpustu keppendum á
aldrinum 18—25 ára frá hverj-
um stað gefst kostur á að taka
þátt í úrslitakepnninni. Úrslita-
keppnin er byggð upp á svipaðan
hátt og undankeppnirnar nema
þrautaplanið verður stærra og
mun erfiðara og munu keppend-
ur fara tvær umferðir í gegnum
það.
Þeir tveir keppendur sem
hlutskarpastir verða í úrslita-
keppninni fá í verðlaun vikuferð
til Englands í nóvember n.k. þar
sem þeir keppa fyrir íslands
hönd í norrænni ökuleikni
ásamt Finnlandi, Noregi og Sví-
þjóð. Sú keppni er hvorutveggja
einstaklingskeppni og keppni
milli landa. í fyrra varð ísland í
öðru sæti í Englandi. í Englandi
fæst einnig úr því skorið hver
mun hljóta titilinn ÖKULEIKN-
IR ÍSLANDS ’79.
Keppnin á laugardaginn kem-
ur verður eins og fyrr er getið
haldin við Laugarnesskólann í
Reykjavík og hefst seinni um-
ferð keppninnar kl. 15.00. Að
henni lokinni verður verðlauna-
afhending að Hótel Esju.
HJÓNIN Peter Geach og Eliza-
beth Anscombe, sem bæði eru í
hópi kunnustu heimspekinga
veraldar um þessar mundir,
flytja opinbera fyrirlestra um
helgina i boði heimspekideildar
Háskóla íslands og Félags
áhugamanna um heimspeki.
Bæði Anscombe og Geach voru
nemendur Ludwigs Wittgensteins,
sem margir telja fremsta heim-
speking tuttugusta aldarinnar, en
Anscombe er eftirmaður Wittgen-
steins í prófessorsembætti í Cam-
bridge og aðalritstjóri eftirlátinna
verka hans. Hún er þó í mestum
metum fyrir rit sitt Intention
(Ætlun), sem er eitt móðurrit
þeirrar viðamiklu sérgreinar sam-
tímaheimspekinnar, sem heitir
„athafnafræði" („philosophy of
action") og haft hefur mikil áhrif
á siðfræði, réttarheimspeki og
kenningar samtímaheimspekinn-
ar um samband sálar og líkama.
Peter Geach, sem er prófessor í
Leeds, hefur mesta stund lagt á
rökfræði, og er ritgerðum hans um
þau efni safnað saman í ritsafnið
Logic Matters. Hann hefur líka
samið víðkunnar bækur og rit-
gerðir um trúarheimspeki, en þau
hjón eru kaþólskrar trúar. Má þar
nefna ritið God and the Soul (Guð
og sálin) og þriggja binda ritverk
um helztu ráðgátur kristinnar
guðfræði. Tvö bindi verksins eru
komin út, The Virtues (Dyggðirn-
ar) og Providence and Evil
(Forsjón og böl), og von er á hinu
þriðja um lögmál og frelsi innan
skamms. Saman hafa hjónin
skrifað bókina Three
Philosophers (Þrír heimspeking-
ar) um Aristóteles, heilagan Tóm-
as Akvínas og Gottlob Frege.
Vísindasjóður stendur að miklu
leyti straum af íslandsför þeirra
Anscombes og Geach, en auk þess
að halda fyrirlestrana nú um
helgina munu þau eiga rökræður
um trúmál við kennara og nem-
endur í guðfræðideild.
Heimspekifyrirlestrarnir verða
fluttir í stofu 101 í Lögbergi.
Fyrirlestur Peters Geach, sem
hefst kl. 14.30 á laugardag, nefnist
„Names and Reference", en fyrir-
lestur Elizabeth Anscombe,
„Searching for a Definition of
Murder", hefst kl. 14.30 á sunnu-
dag.
Báðir fyrirlestrarnir verða
fluttir á ensku og er öllum heimill
aðgangur.
líloriumúlútiiíi
NÝTT SÍMANÚMER Á AFGREIÐSLU