Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979 21 Heimir Steinsson rektor Skálholtsskóla fyrir framan skólahúsin. Geysifjölbreytt starf í Skálholtsskóla Rektor Skálholtsskóla, séra Heimir Steinsson, vakir yfir aö allt sé eins haganlegt og unnt er meö slíkan gestafjölda í ranni og viö röbbuöum stundarkorn viö hann um starfiö í Skálhoiti á sumrin. Tugþúsundir gesta heimsækja Skálholt á hverju sumri og nær 1000 manns gista þar í sumar í Skálholtsskóla á margs konar mótum og námskeiöum. Má þar nefna fermingabarnamót á vegum presta í Árnesprófastsdæmi, nám- skeiö kristilegs félags heilbrigö- isstétta, tónmenntanámskeiö und- ir stjórn Jónasar Ingimundarsonar, íslenzkunámskeiö fyrir gesti úr norðurhéruðum Skandinavíu, heimsókn norskra kennara, Skál- holtshátíöin, heimsókn norrænna presta, sumardvöl tónlistarmanna undir stjórn Helgu Ingólfsdóttur, námskeið um fjölmiðlun undir stjórn séra Bernharös Guö- mundssonar ætluö íslenzkum prestum og ööru kirkjufólki, org- anleikaranámskeiöiö, æskulýðs- leiötoganámskeiö á vegum Æsku- lýðsnefndar Árnesprófastsdæmis, helgileikir, námskeiö á vegum æskulýösfulltrúa Þjóökirkjunnar, fermingabarnamót aö tilhlutan presta úr Rangárvallasýslu og æskulýösleiötoganámskeiö á veg- um Þjóökirkjunnar. Má af þessu sjá aö sitthvaö er um aö vera, en hvaö segir Skálholtsskólarektor um þróun mála? Söng- og tónlistarlota í Skálholti á námskeiði organista Brýn nauðsyn á frekari upp- byggingu Skálholts „Aö gefnu tilefni þegar svona stendur á þegar þig ber aö garöi og yfirfullt er af fólki á staðnum, vil ég benda á aö hér er annars vegar þessi glæsilega kirkja og hins vegar hýbýli sem eru ekki nógu rúmgóö fyrir þaö fjölbreytta starf sem hér fer fram. Staðurinn hefur mjög mikiö aödráttarafl og hér eru af og til yfir sumarið mjög stórir hópar útlendinga á námskeiöum, jafnvel á annaö hundraö manns. Önnur húsakynni en kirkjan eru hins vegar ekki vel í stakk búin til þess aö taka á móti öllu þessu fólki og þaö vantar tilfinnanlega meiriháttar fjárframlög til frekari uppbyggingar staöarins. Heimavistin tekur, strangt til tekiö, 20 manns, en við getum troðið inn 30 manns þar á vetrum meö því aö hafa þröngt í herbergj- úm. Á sumarnámskeiöunum eru aö jafnaöi 50—100 manns og hér voru t.d. daglangt hátt á þriöja hundrað manns þegar Norræna prestastefnan stóö yfir í sumar. Kjarni málsins er sá aö fjárveit- ingavaldiö geri sér grein fyrir því aö Skálholt hefur geysilegt aö- dráttarafl og þaö er ekki nærri því búiö aö koma upp aöstööu á staönum til þess aö taka viö þeim liösafla sem hingaö streymir. Það vantar hreinlega húsakost undir þaö fjölbreytta starf sem hér er unniö. Kerfi staöarins dugir ekki fyrir fleiri en 30 og svo þegar aukið álag kemur m eö fleira fólki fer oft eitthvaö í kerfinu sem ekki þolir álagiö. Þá mun fylgja í kjölfarið þróttmikið starf Þegar krikjan sem nú stendur hér haföi verið reist þá var ekki lengur vanviröa aö koma meö útlendinga í Skálholt og vissulega var breytingin mikil til góös meö kirkjubyggingunni, en þaö þarf aö fylgja málinu eftir og gefa eðlilega möguleika á blómlegu starfi í tengslum viö Skálholtskirkju. Satt aö segja finnst mér stund- um aö aöstaöan hér sé eins og leiktjöld, forhliöin er góö, en hitt er ekki til aö stæra sig af þegar á reynir. Teikningar aö skólahúsi hljóöa upp á 50 manna heimavist og víst myndi þaö stórbæta stöö- una. Til þess þarf 150—200 millj. kr., en þegar unnt er aö hýsa meö góöu móti minnst 100 manns hér þá mun fylgja í kjölfarið mikilvægt og þróttmikiö starf í skjóli staöar- ins.“ Haukur Guðlaugsson söngmélastjóri Þjóökirkjunnar stendur tyrir organistanámskeiöunum. > & h «' Wgg Glúmur organisti. Þær sáu um eldhússtörfin. Sungið í Skálholtskirkju af mikilli innlifun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.