Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.09.1979, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979 15 á esperanto við mikinn fögnuð áheyrenda. Á þinginu var Árni Böðvarsson, sem er mikill áhugamaður um esperanto og talar það mál og sagði hann á esperanto frá íslenskri tónlist og íslandi við það tækifæri. Auk þess sem Hamrahlíðar- kórinn var önnum kafinn við sitt eigið tónleikahald fór mikil vinna í kóræfingar með öðrum kórum, því eitt aðalmarkmið Europa Cantat er sámvinna hinna ýmsu kóra á meðan á hátíðinni stendur um leið og sönglist frá ýmsum löndum er kynnt. Að sögn Þorgerðar fólst sam- vinnan í því að hinir 3000 þátttakendur skiptust niður í 22 vinnuhópa (Ateliers). Vinnuhóparnir fengust við það að æfa í sameiningu ólík tónverk eftir ýmsa höfunda og valdi Hamrahlíðarkórinn að vera með vinnuhópum, sem tóku fyrir þrjú stór tónverk, tvö eftir Giovanni Gabrielli, sem stjórnað var af svissneskum stjórnanda, sem jafnframt var tónlistarstjóri hátíðarinnar, og eitt eftir Heinrich Schutz undir stjórn fransks stjórnanda. Æfingarnar fóru fram daglega frá klukkan hálfellefu til eitt og aftur seinna um daginn frá klukkan hálffimm til hálfsjö. „Annars byrjaði dagurinn alltaf á sameiginlegum morgun- verði með hinum þátttak- endunum, en strax á eftir var komið saman og sungin lög upp úr söngbók hátíðarinnar og tók sá samsöngur yfirleitt um eina klukkustund. Samsöng kóranna stjórnaði Gottfried Wonters, einn af virtustu kórstjórum Evrópu í dag. Eftir sameigin- legan hádegisverð héldu þeir kórar, sem til þess voru valdir, einkatónleika sína og að loknum eftirmiðdagsæfingunum og kvöldverði héldu vinnuhóparnir tónleika, þar sem flutt voru þau tónverk, sem æfð höfðu verið í hópunum," sagði Þorgerður. Mjög lærdómsrík ferð fyrir kórinn Að sögn Þorgerðar var þessi söngferð kórsins mjög lærdóms- rík, og var það mikil reynsla fyrir kórinn að vinna með hæfum stjórnendum og fylgjast með kórum frá öðrum löndum, sem náð hafa langt á þessari braut. „Ég held að það hafi verið mjög mikilvægt fyrir kórinn að komast að raun um það hvar hann stendur gagnvart öðrum kórum. Krakkarnir hafa verið að keppa við að ná ýmsum markmiðum, sem þeir hafa sett sér og sáu fyrst tilganginn með hinni miklu vinnu þegar þeir komu út.“ Eftir hátíðina fór Hamra- hlíðarkórinn í söngferð um Sviss, en þá ferð skipulagði Willi Gohl, einn þekktasti tón- listarmaðurinn í Sviss. Kórinn ferðaðist um í þrjá daga, en lokatónleikarnir voru haldnir í Winterthur. Ákveðið hafði verið að halda tónleikana í litlu úti- leikhúsi, sem þar er, og var búið að undirbúa þá með blysum og því tilheyrandi, til þess að gefa tónleikunum ævintýralegri blæ. Fimm mínútum áður en tón- leikarnir áttu að hefjast skall á þrumuveður og rigning, svo flytja þurfti þá inn í tónlistar- salinn á staðnum. Þrátt fyrir það voru tónleikarnir mjög vel heppnaðir og fóru blaðagagn- rýnendur á staðnum lofsam- legum orðum um frammistöðu kórsins. Það má því með sanni segja að þessi sjöunda utan- landsferð Hamrahlíðarkórsins hafi verið íslandi góð landkynn- ing. A. K. Ilraunsvegur 6 í Njarðvík. Ljósm. Heimir Stigsson. Njarðvíkingar og Kefl- víkingar veittu nýlega viðurkenningar fyrir fag- urt umhverfi. Hraunsveg- ur 6 fékk verðlaun sem fegursti garðurinn í Njarðvík 1979. Eigendur eru Guðfinna Arngríms- dóttir og Sigurjón Þórðar- son. Garðabær í Innri-Njarðvík fékk við- urkenningu fyrir góða varðveislu á gömlu húsi. Húsið er í eigu afkomenda Magnúsar Pálssonar og Steinunnar Ólafsdóttur er fluttu að Garðabæ 1905. Klapparstígur 4 í Fegurstu hús og garðar í Njarðvík og Keflavík Njarðvík fékk viðurkenn- ingu fyrir vel hirtan og snyrtilegan garð. Eigend- ur eru Guðfinna Jónsdótt- ir og Marteinn Sigurðs- son. í umhverfisnefnd Njarðvíkur eru Ólafur Eggertsson, formaður, Sigmar Ingason, Eiríkur Bóasson, Sólbjörg Vigfús- dóttir og Eyþór Þórðar- son. Er þetta í fyrsta sinn sem Njarðvíkingar veita verðlaun fyrir fagurt og snyrtilegt umhverfi. Klapparstigur 4 i Njarðvik Dómnefnd um verð- launagarð i Keflavík var einróma samþykk því að veita 1. verðlaun garðin- um við Háholt 1 í Kefla- vík. Eigendur eru Elinrós Eyjólfsdóttir og Sigurður Jónsson. Verðlaunin voru sæbarinn steinn með áletraðri plötu. Að þessu sinni voru verðlaunin veitt í 20. skiptið. Dóm- nefndina skipa Ásta Árnadóttir, Jóhann Pét- ursson, Huxley Ólafsson og Kútur Höjeriis. Garðabær i Innri-Njarðvík Háholt 1 í Keflavik MNN * símanúmer RITSTJÓRN 0G ^KRIF^TnFIIR* AUGLYSINGAR: 22480 APfiREinQI A MrwM ÍJIIhmihS fyll2l Sm Jh»i m 10100 83033 | |§§§§§f^. ^ ^ : r

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.