Morgunblaðið - 15.09.1979, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
3
Fundu hass í
Lagarfossi
VIÐ leit í m.s. Lagarfossi í Hafn-
arfjarðarhöfn á fimmtudaginn
fundu tollverðir hálft kíió af hassi.
Fíkniefnadeild lögreglunnar í
Reykjavík hefur mál þetta til
rannsóknar. Deildin hefur fleiri
fíkniefnamál til rannsóknar. Fjór-
ir menn sitja nú í gæzluvarðhaldi
vegna þessara mála og var sá
síðasti þeirra úrskurðaður í
gæzluvarðhald í gær.
Snæfugl
seldi í
Þýzkalandi
SNÆFUGL frá Reyðarfirði land-
aði 67,8 tonnum í Þýzkalandi í gær
og fékk um 20 milljónir fyrir
aflann. Meðalverðið var því heldur
slakt eða um 285 krónur. Mestur
hluti aflans var ufsi, en einnig
langa og þorskur.
SEX ára börn eru þessa dagana að hefja skóla-
göngu en þau koma í skólana nokkru síðar en eldri
árgangarnir. Víða er hafður sá háttur á að sex ára
börnin koma í skólana í litlum hópum ásamt
Léleg kartöfluuppskera:
Beita kúnum á
kartöflugarða
Dæmdir fyrir
hasssmygl í
Gautaborg
KVEÐINN var upp á mánudag-
inn í Gautaborg í Svíþjóð dómur í
máli íslendinganna sjö, sem upp-
vísir urðu um fikniefnasmygl og
sölu þar í borg í júlimánuði sl.
Þyngsta dóminn hlaut Bjarni
Bender, 2'/2 árs fangelsi, Holberg
Másson og Karl Gránz voru
dæmdir í tveggja ára fangelsi,
Snorri Guðmundsson var dæmdur
í 12 mánaða fangelsi og Einar
Hannesson, Elías Snorrason og
Kristján Svavarsson voru dæmdir
í 10 mánaða fangelsi. Öllum
mönnunum var vísað frá Svíþjóð
um tiltekinn tíma eftir að þeim
verður sleppt lausum, lengst til
ársins 1990.
HÉR á landi er nú stödd sendi-
nefnd frá Æðsta ráði Sovétríkj-
anna í boði Alþingis. Kom sendi-
nefndin hingað 11. september sl.
og heldur utan þann 18. þessa
mánaðar. Þegar hefur sendi-
Kaupmannahöfn:
Mál Franklins
tekid fyrir á ný
EYSTRI-landsréttur tók í gær
fyrir mál Franklins Steiners og
Sigurðar Þórs Sigurðssonar, sem
i sumar voru dæmdir í þriggja
ára fangelsi í Kaupmannahöfn
vegna aðildar að ííkniefnamálinu
mikla, sem uppvíst varð um þar i
borg í marz s.l. Báðir höfðu þeir
áfrýjað dómnum.
Mál Sigurðar var fyrst tekið
fyrir en það var ekki afgreitt af
skiljanlegum ástæðum, þar sem
Sigurður strauk úr Vestre-fang-
elsinu í Kaupmannahöfn, eins og
fram kom í blaðinu í gær. Mál
Franklins var hins vegar tekið
fyrir og ákveðið að fela bæjarrétti
Kaupmannahafnar að taka málið
til meðferðar lið fyrir lið með það
í huga hvort mögulegt verður að
stytta fangavistina.
LJÓST er nú að kartöfluupp-
skera í haust verður léleg um allt
land, ef frá eru taldir stöku bæir
og þá helst í uppsveitum Árnes-
sýlu. Upptaka er hafin í Þykkva-
bænum en í Eyjafirði verður
byrjað um og upp úr helginni.
Magnús Sigurlásson i Þykkva-
bænum sagði að ekki væri hægt
að segja nákvæmlega til um
uppskeruna fyrr en um miðja
nefndin skoðað ýmsar stofnanir í
Reykjavík og rætt við íslenzka
ráðamenn. Þá skoðaði sendi-
nefndin Búrfellsvirkjun. heim-
sótti Hafrannsóknastofnun,
frystihús ísbjarnarins, fór til
Þingvalla og skoðaði bækistöðv-
ar Hitaveitu Reykjavíkur í Mos-
fellssveit. í dag heldur sendi-
nefndin til Akureyrar og þar
mun hún m.a. skoða Sambands-
verksmiðjurnar. Síðasta dag
heimsóknarinnar, mánudag,
skoðar nefndin söfn í Reykjavík.
I sendinefndinni eru fjórir full-
trúar auk ritara og ráðgjafa.
Formaður sendinefndarinnar er
Yazkuliev Bally, varaformaður
Æðstaráðs Sovétríkjanna og for-
maður Æðstaráðs Turkman-lýð-
veldisins. I nefndinni eru einnig
Bartoshevitch Gennadiy Georgie-
vich, fyrsti ritari borgarráðs
Minsk, Kuul Oskar Petterovich,
framkvæmdastjóri tilraunafisk-
eldistöðvarinnar í Kirov í Eist-
landi, og Makarova Lidiya Alex-
evna, sem sæti á í heilbrigðisnefnd
Sovétríkjanna og er umdæmis-
læknir við heilsugæzlustöð
Moskvu. Ritari nefndarinnar er
Marushenko Dimitry Mikailovich
og ráðgjafi hennar Lomakin
Valentin Vasiljevich.
næstu viku en af því sem þegar
væri komið upp úr görðunum
mætti ráða að uppskeran yrði
léleg, kannski þre- til fjórföld.
„Hér í Eyjafirðinum er uppsker-
an misjöfn en viðst hvar er þetta
mjög lélegt og þess eru dæmi að
bændur á Svalbarðsströndinni
sjái ekki ástæðu til að taka upp
úr görðunum og hafi bcitt kúnum
á garðana. Á einstöku bæ er
uppskera sæmileg en þó engan
veginn góð,“ sagði Jóhann Bene-
diktsson á Eyrarlandi. Egill
Jónsson á Seljavöllum í Horna-
firði sagði að þar um slóðir væri
uppskerubrestur í kartöflurækt-
inni.
Islenskar kartöflur komu í
verzlanir í Reykjavík um miðja
síðustu viku og er það uppskera úr
Þykkvabænum og úr Árnessýsl-
unni.
Grænmetisverzlun landbúnað-
arins hefur undanfarið verið með
á boðstólunum erlendar kartöflur
en þær eru nú á þrotum, þar sem
ekki hafa fengist afgreidd 50 tonn
af kartöflum, sem Grænmetis-
verzlunin á í Rotterdam, vegna
verkfalla þar. Hefur þessi farmur
beðið þar í um 3 vikur. Jóhann
Jónasson, forstjóri Grænmetis-
verzlunarinnar sagði að þeir hefðu
heldur ýtt á eftir kartöflufram-
leiðendum með að taka upp vegna
þessa. Þetta hefði þó ekki komið
að sök, því að kartöflugrös hefðu
fallið í Þykkvabænum í byrjun
vikunnar og eftir það spretta
kartöflurnar ekki.
Jóhann Benediktsson á Eyrar-
landi í Öngulsstaðahreppi í Eyja-
firði sagði að uppskera þar um
slóðir væri mjög misjöfn en skást
væri uppskeran þar sem sett hefði
verið niður fyrst, fyrstu dagana í
júní. Kartöflugrös voru ekki fallin
í Eyjafirði í gær, en Jóhann
sagðist gera ráð fyrir að frost yrði
þá um nóttina og grösin féllu.
„Afkoman verður ekki glæsileg í
ár hjá þeim, sem stunda kartöflu-
rækt, en sjálfur vonast ég þó til að
fá fyrir kostnaði og heldur rneira,"
sagði Jóhann.
Egill Jónsson á Seljavöllum í
Hornafirði sagði að ekki hefði litið
Sendinefnd frá Æðsta
ráði Sovétríkjanna
hér í boði Alþingis
foreldrum sínum til viðræðu við kennara. Þessi
mynd var tekin er sex ára börn komu ásamt
foreldrum sínum í Lækjarskóla í Hafnarfirði í gær.
Ljósm. Kristján.
Geirfinnsmálið
til Hæstaréttar
í næsta mánuði
Rikissaksóknaraembættið mun
i næsta mánuði senda Hæstarétti
Guðmundar- og Geirfinnsmálið
til dómsmeðferðar, að þvi er
Þórður Björnsson rikissaksókn-
ari tjáði Mbl. í gær.
Dómur féll í málinu í undirrétti,
þ.e. sakadómi Reykjavíkur 19.
desember 1977. Tveir ákærðu í
málinu, Sævar Marinó Ciesielski
og Kristján Viðar Viðarsson, voru
dæmdir í ævilangt fangelsi,
ákærði Tryggvi Rúnar Leifsson
var dæmdur í 16 ára fangelsi,
ákærði Guðjón Skarphéðinsson í
12 ára fangelsi og ákærða Erla
Bolladóttir í þriggja ára fangelsi.
Dómunum var áfrýjað til Hæsta-
réttar.
Að sögn ríkissaksóknara hefur
undirbúningi málssóknar fyrir
Hæstarétti verið hraðað eins og
kostur hefur verið og hefur málið
haft forgang hjá embættinu.
Geysileg vinna er við undirbúning
þess og má sem dæmi nefna að
ágrip málsins er mörg þúsund
blaðsíður að stærð.
Þéttbýlisbúar eru margir hverjir
þessa dagana að taka upp kart-
öflur úr görðum sínum.
illa út með kartöflusprettu þar
fram eftir sumri, en í roki, sem
gerði um 20. ágúst, hefðu garðarn-
ir skemmst verulega. Þessar
skemmdir hefðu þó ekki haft
veruleg áhrif, ef tíðarfarið hefði
ekki verið óhagstætt. „Það má því
segja að hér sé uppskerubrestur.
og þetta ár sé með allra lélegustu
uppskeruárum í kartöfluræktinni
hér,“ sagði Egill.
Mestur hluti kartöflufram-
leiðslunnar undanfarin ár hefur
komið frá þessum þremur svæð-
um, Þykkvabænum, Eyjafirði og
Hornafirði.
5 skip með
2370 lestir
LOÐNUVEIÐARNA R virðast lít-
ið vera að glæðast og þar til
síðdegis í gær höfðu 5 skip til-
kynnt Loðnunefnd um afla á
síðasta sólarhring. Það voru: Al-
bert 400, Jón Finnsson 590, Pétur
Jónsson 690, Skírnir 420, Hilmir
270. Samtals 2370 lestir. Þrjú
skipanna héldu til Raufarhafnar,
en 2 til Faxaflóahafna. Gott veður
hefur verið undanfarna daga á
miðunum norður í hafinu.
Milljónainnbrot
á Seyðisfirði
enn óupplýst
ENN er óupplýst innbrot í útibú
Kaupfélags Héraðsbúa á Seyðis-
firði aðfararnótt fimmtudagsins 6.
september sl. en þá var brotizt inn
í skrifstofu kaupfélagsins og stolið
einni milljón króna í beinhörðum
peningum og hálfri milljón króna í
ávísunum. Sérfræðingar frá
Rannsóknarlögreglu ríkisins fóru
til Seyðisfjarðar vegna rannsókn-
ar málsins.