Morgunblaðið - 15.09.1979, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
■
19
m
[ VHHÉ h
5,4
Li
■ i
VWGoHDtesel
VW GOLF Diesel. Hann eydir aðains 5,4
Iftrum olíu i 100/km.
Renault QTL. Hann ayðir 5,7 Ktrum af
auparbanaini á 100/km.
Citroen 2CV Spacial. Hann ayðir 5,8
lítrum af suparbanaíni af 100/km.
Renault 5GTL. Hann ayðir 6,0 litrum af
superbensíni á 100 km.
Mini 1000. Hann ayðir 6,2 Iftrum af
normalbansfni á 100/km.
Fiat 126. Hann ayðir 6,5 litrum af
normaibansíni á 100/km.
Daihatsu Charada. Hann eyðir 6,8
lítrum af normalbansíni á 100/km.
VW Polo. Hann ayðir 6,9 Iftrum af
normalbansini á 100/km.
Hversu
miklu eyðir
bíllinn?
HVERSU miklu eyðir bíllinn? — Þetta er spurning sem brennur á vörum flestra sem um
þessar mundir eru f bílakaupahugleiðingum og sjálfsagt allra sem reka þurfa bíl á
þessum síðustu og verstu tímum hækkandi bensín- og olíuverös. Vestur-þýzka
bílablaðið „Auto Motor Sport“ gerði fyrir nokkru könnun á eyðslu nokkurra smábíla, sem
vinsælastir eru f Vestur-Þýzkalandi, en það má yfirfæra þetta yfir á ísland, þar sem allir
þessir bílar eru seldir hér. — Niöurstöður blaðsins eru þær, að Volkswagen Golf
dieselknúinn sá sá eyðslugrennsti, eyði 5,4 lítrum af dieseloliu á hverja hundrað
Citroen Visa. Hann eyðir 7,0 lítrum af
superbensíni á 100/km.
Peugeot 104 GL. Hann eyðir 7,7 lítrum
af normalbensíni á 100/km.
kflómetra. Annar f röðinni er Renault 4 GTL, en hann eyöir samkvæmt niðurstööum
blaðsins 5,7 lítrum bensfns á hverja hundraö km.
Síðar koma þeir hver af öðrum, Citroen 2CV Special, bragginn, með 5,8 lítra á hundrað
kílómetra, Renault 5 GTL meö 6,0 lítra á hundraö kílómetra, Mini 1000 meö 6,2 Iftra á
hundraö kílómetra, Fiat 126 með 6,5 lítra á hundraö kílómetra, Daihatsu Charade með 6,8
lítra á hundrað kílómetra, Volkswagen POLO með 6,9 lítra á hundrað kílómetra, Citroen
Visa Club með 7,0 lítra á hundrað kílómqtra og loks Peugeot 104 GL með 7,7 lítra á hundrað
kílómetra. í könnuninnl var bílunum ekið á 90 kflómetra meðalhraðA á steyptum vegi.
: Jóhannes
Rall
hinnastóru
„RALL allra tíma“ eins og
aðstandendur þess nefndu
það var haldið í Bandaríkj-
unum fyrir nokkru. Var
þar um að ræða keppni
milli 40 tíu hjóla trukka,
sem voru sérstaklega bún-
ir fyrir rallið.
. :T'
BB m Sigurvegarinn
í
„ralli allra tíma“.
Vegalengdin sem trukk-
arnir óku var 200 mílur og
var ekið eftir einni aðal-
hraðbrautinni í Atlanta í
Georgíuríki. Sigurvegarinn
sem ók trukknum á með-
fylgjandi mynd fékk í sinn
hlut upphæð sem nemur
rúmlega 5,5 milljónum
íslenzkra króna.
Skyldu flutningabílstjór-
arnir okkar taka sig til og
keppa innbyrðis?.
Pálmi Gíslason kjör-
inn f ormaður U.M.F.Í.
PÁLMI Gíslason var kjörinn
formaður Ungmennafélags
íslands á þingi félagsins sem
haldið var dagana 1. og 2. sept-
ember siðastliðinn að Stórutjörn-
um í Suður-Þingeyjarsýslu. Þetta
var 31. þing U.M.F.Í.
Þingið hófst kl. 14.00 á laugar-
dag með setningarávarpi for-
manns Hafsteins Þorvaldssonar.
í skýrsiu stjórnar kom fram að
síðustu tvö árin hafa verið
óvenjumikil framkvæmda og um-
svifa ár, má þar nefna öflugt starf
að útbreiðslu og fræðslumálum,
aukin erlend samskipti, lands-
mótshald á Selfossi sl. sumar og
kaup á húsnæði fyrir skrifstofu og
þjónustumiðstöð samtakanna í
Rvk.
Allmörg mál lágu fyrir þinginu
til afgreiðslu samkvæmt venju og
má þar nefna tillögur um fjármál,
um uppbyggingu í Þrastaskógi,
um fræðslu og útgáfumál, Íþrótta-
kennaraskóla íslands, bindindis-
mál, auk samþykktar á reglugerð
fyrir næsta landsmót UMFÍ sem
verður haldið á Akureyri í júlí
1981.
Hafsteinn Þorvaldsson gaf ekki
kost á sér til áframhaldandi for-
mannsstarfa og var Pálmi Gísla-
son kosinn formaður UMFÍ til
næstu tveggja ára. Aðrir í stjórn
voru kosnir þeir: Diðrik Haralds-
son, Guðjón Ingimundarson, Berg-
ur Torfason, Jón Guðbjörnsson,
Þóroddur Jóhannsson og Björn
Agústsson. í varastjórn voru
kosnir: Dóra Gunnarsdóttir, Ha-
ukur Hafsteinsson, Finnur Ing-
ólfsson og Hafsteinn Jóhannesson.
Þingið sátu um 70 fulltrúar og
gestir, og var aðstaða öll í Stóru-
tjarnaskóla svo og fyrirgreiðsla
heimamanna með miklum ágæt-
um. Ungmennafélögin hafa átt
vaxandi gengi að fagna á undan-
förnum árum og eru nú tæplega 22
þúsund félagar innan Ungmenna-
félags íslands, í 196 félögum.
Samþykktir þingsins bera líka
greinilega vott um bjartsýni og
trú á hlutverk Ungmennafélag-
anna í þjóðfélaginu.
Samþykktir þingsins verða
sendar fjölmiðlum á næstu dög-
um.
Fréttatilkynning frá UMFÍ.
EFÞAÐERFRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU