Morgunblaðið - 15.09.1979, Qupperneq 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
Fiskvinnslan:
Milljarða sparnaður
Hagræðingin í fiskvinnslunni er sífellt að komast á hærra stig, og nú
síðast hefur tölvuvæðing átt sér stað. IBM kynnti nýlega sérstakt
tölvukerfi þar sem hugbúnaðurinn er algjörlega hannaður af íslenskum
aðilum. Byggist kerfið á því að taka upp skráningu upplýsinga við hvert
vinnslustig og má þannig fá upplýsingar með skjótum hætti um það hver
nýtingin er á hverjum stað og er þá hægt að grípa inn í ef eitthvað fer
úrskeiðis. Af skráningarþáttum má sem dæmi nefna vigtarskráningu,
framleiðslueftirlit og lagerskráningu.
Til að auðvelda stjórnendum
eftirlitið með vinnslu hverrar
afurðar og pakkningar getur
hann séð á skermi hver nýt-
ingin er samanborið við t.d.
meðalnýtingu fyrir lengra
tímabil og eins hver nýtingin
ætti að vera samkvæmt upp-
lýsingum framleiðenda fisk-
vinnsluvéla. Þetta bætta upp-
lýsingastreymi leiðir einnig til
þess að mun minna fer nú í
yfirvigt en áður. Hægt er að
tengja stimpilklukkur við tölv-
una og hefur það að sjálfsögðu
mikla þýðingu í sambandi við
framlegð, launauppgjör og
skiptingu launakostnaðar á
deildir. Er hér um mjög stórt
stökk að ræða fram á við og
má í því sambandi nefna að ef
bæta má nýtinguna fyrir
heildina um 2% þá sparast
álíka upphæð og einn skuttog-
ari kostar í dag. ísbjörninn og
Utgerðarfélag Akureyringa
eru brautryðjendur á þessu
sviði hérlendis og er þetta enn
eitt dæmið um þá hagræðing-
arstarfsemi sem sífellt er unn-
ið að í fiskvinnslunni. Það er
athyglisvert að hér er algjör-
lega um íslenskt hugvit að
ræða og væri því vel athug-
andi hvort ekki mætti nýta
þetta kerfi í öðrum atvinnu-
greinum s.s. almennum verk-
smiðjuiðnaði eða þá að hefja
útflutning á því til nágranna-
landanna.
Skráning í vinnslusal,
Nýjar útflutn-
ingsafurðir
ÁRIÐ 1975 var fyrirtækið Bjallaplast h.f. stofnað á
Hvolsvelli af nokkrum einstaklingum og sveitarfélag-
inu. Framkvæmdarstjóri fyrirtækisins er Jóhannes
Pálsson en starfsmenn eru átta. Þar sem fyrirtækið
hefur farið ótroðnar slóðir við framleiðslu og markaðs-
öflun lék viðskiptasíðunni forvitni á að afla frétta og
vita hvernig til hefði tekist.
Jóhannes sagði að framleiðslan
hefði frá upphafi beinst að þremur
afurðum þ.e. rafbúnaði fyrir íbúð-
arhús, lyfjaglösum og rafgeyma-
klóm. Lyfjaglösin eru hugmynd
hans og eru með sérstöku öryggis-
loki. Einkaleyfis hefur nú verið
aflað í 13 löndum og hér á landi
hefur viðkomandi ráðuneyti gefið
út regluráðuneyti þar sem segir að
nota eigi þessi glös undir hættuleg
lyf.
Ætti ekki að vera vanþörf á
slíku þar sem m.a. 70% slysa
barna undir 3ja ára aldri orskaast
af því að þau hafa náð í lyf. Junior
Chamber hreifingin hefur prófað
þessi glös á barnaheimilum í
Kópavogi og var niðurstaðan mjög
jákvæð. Það sýnir hins vegar vel
aðstöðuleysi íslenskra fyrirtækja
að þessi hugmynd er um fjögra
ára gömul en framleiðslan hófst
fyrst í lok síðasta árs sagði Jó-
hannes. Fyrirtækið hefur í raun
aldrei náð sér reglulega á strik
þrátt fyrir góðan vilja hrepps-
nefndarinnar. Miklir möguleikar
eru að fá lán hjá lánastofnunum
til húsbygginga en almennt fer
minna fyrir þeim þegar kaupa á
vélar svo ekki sé minnst á fjár-
mögnun þátta eins og vöruþróun-
ar og markaðsleitar.
Helstu framtíðarverkefni okkar
eru uppbygging og endurnýjun
framleiðslutækja svo og markaðs-
leit erlendis fyrir rafgeymaklærn-
ar og lyfjaglösin. Það er erfitt að
byggja upp iðnfyrirtæki með ein-
hverja afkastagetu hér á landi því
allir virðast trúa á bílskúrsiðnað-
inn enda gera þeir það gott sem
hann stunda, sagði Jóhannes Páls-
son að lokum.
Tólf hjóla dráttarvél
Sumir halda því fram að allt sé svo stórt í henni Ameríku. Til að sanna að
eitthvað sé til í þeirri staðhæfingu birtist hér mynd af 12 hjóla John
Deere dráttarvél sem er framleidd fyrir vestan.