Morgunblaðið - 15.09.1979, Side 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
• Mynd þessi er af íslandsmeisturum KR i 2. flokki, eftir að Þróttur hafði verið lagður að velli í úrslitaleik fyrir skömmu. Það fór ekki milli
mála, að KR var sterkara og þó að Þróttur hafi verið óheppinn að komast ekki á blað í leiknum. hefði KR átt að skora fleiir mörk en þau þrjú sem
litu dagsins ljós. Ljósm: Kristján.
íslandsmótið ræðst ekki
fyrr en í lok síðasta leiks
SÍÐASTA umferðin í 1. deildar keppninni í knattspyrnu
fer fram þessa helgi. Oft hefur mótið verið spennandi,
en nú keyrir um þverbak. Svo gæti farið að fimm lið
verði efst með sama stigafjölda, KR, Valur, ÍBV,
Akranes og Keflavík (KR lék að vísu í gærkvöldi og
voru úrslit leiks KR-inga gegn Fram ekki kunn þegar
þetta er ritað). Frekar er þó ólíklegt að svona fari, til
þess þurfa bæði Valur og IBV að tapa leikjum sínum,
Skagamenn að gera jafntefli í síðasta leik sínum og
Keflavík og KR að vinna leiki sína. Þó að allt geti gerst,
er ólíklegt að þessi verði úrslit allra umræddra leikja.
Flótti
frá
Ármanni?
TÖLUVERÐAR sviptingar eru i
félagaskiptum körfuknattleiks-
manna og er cinkum nokkuð um
að Ármenningar séu á faralds-
fæti. Fyrst og fremst ber að geta
landsliðsmannsins Atla Arason-
ar, sem genginn er í ÍS.
Til stúdenta fór einnig félagi
Atla úr Ármanni, Jón Björgvins-
son. Jón Steingrímsson hefur
einnig flutt sig um set, gekk úr
Ármanni yfir í raðir Valsmanna.
Tveir Bandaríkjamenn hafa hins
vegar bæst í flokk Ármenninga,
leikmaður að nafni Camel og
þjálfari, mun kunnari, að nafni
Bob Starr. Camel þessi var kom-
inn hálfa leið til Valsmanna, sem
þó tóku á síðustu stundu við Tim
Dwyer. Áemenningar höfðu hug á
að fá Stewart Johnson aftur til
liðs við sig, en kappinn var samn-
ingsbundinn argentínsku félagi og
var málið þar með útrætt.
Öll úrvalsdeildarfélögin hafa
tryggt sér Bandaríkjamenn fyrir
veturinn. John Johnson verður
áfram með Fram, Mark Christen-
sen verður með ÍR, en hann lék
með Þór á síðasta keppnistímabili.
Ted Bee verður áfram með Njarð-
vík og Dwyer með Val. Trent
Smock mætti til leiks hjá IS fyrir
skömmu.
I annarri deild er að vonum
minna um erlenda leikmenn og
þjálfara. Þó er áður greint frá
þeim Camel og Starr hjá Ár-
manni. Allt bendir til þess að
Mark Holmes verði með Grindvík-
ingum í vetur, sem og í fyrra. ÍBV
mun vera að kanna málið og er
ekki útilokað að þeir fái til liðs við
sig erlendan leikmann.
Löggan
kældi
Coe
BRESKI hlaupagikkurinn og
heimsmetabrjóturinn Sebastian
Coe varð fyrir því óhappi fyrir
skömmu að togna illa á legg. Það
atvikaðist á einkennilegan hátt.
Coe var að æfa við þjóðbraut
nokkra og skokkaði í vegarkantin-
um. Lögreglubifreið stöðvaði hann
og skrifaði niður fyrir að tefja
umferð og skapa hættu. Var mikið
pexað og þráttað þarna við þjóð-
brautina og loks þegar lögreglan
hafði sig á brott, hafði Coe kólnað
svo niður, að um leið og hann
hljóp af stað á ný, tognaði hann og
varð að hætta við svo búið. Er ekki
Ijóst hve lengi kappinn verður frá
vegna þessa.
Fram og KR léku í gærkvöldi
eftir að þetta var ritað og því
ekkert um leik þann að segja hér,
annað en að fyrirfram var leikur-
inn mjög tvísýnn á pappírnum.
Efstu liðin, Valur og ÍBV, eiga
erfiðari leiki eftir en margan
grunar. Valsmenn leika nyrðra
gegn KA á sunnudaginn. Þess er
skemmst að minnast, að Vals-
menn töpuðu sínu eina stigi á
síðasta keppnistímabili gegn KA
norður á Akureyri og var leikur-
inn þá einnig síðasti leikur lið-
anna í deildinni. Þrátt fyrir að KA
sé fallið í 2. deild, er liðið áberandi
sterkara nú en á síðasta keppnis-
tímabili, á sama tíma og Vals-
menn eru fjarri því að vera með
eins sannfærandi lið og í fyrra.
Vestmannaeyingar sækja Vík-
ing heim í dag og þó að á ýmsu
hafi gegnið hjá Víkingum í sumar,
er það lið, sem getur unnið flest lið
íslensk ef sá er gállinn á því.
Eyjamenn ættu því að vara sig og
það gera þeir væntanlega, minn-
ugir tapsins gegn Fram í síðustu
umferð mótsins.
Skagamenn fá stigin heldur
ekki gefins, en þeir þurfa að sækja
þau í hendur Þróttara. Þróttur er
úr allri fallhættu og því allt álag á
leikmönnum á bak og burt. Þrótt-
ur hefur verið drjúgur að hala inn
stigin að undanförnu, þannig að
Skagamenn verða að hafa sig alla
við ætli þeir sér bæði stigin.
Það segir margt um hversu
jafnt Islandsmótið hefur í raun og
veru verið í sumar, að leikir þessir
Leikir helgarinnar eru þessir:
LAUGARDAGUR:
eru svo tvísýnir á pappírnum, þó
að þar eigist við jafnvel topplið og
botnlið. Enginn leikur er unninn
fyrirfram, en líkurnar á því að
IBK sigri Hauka í Keflavík í dag
verða að teljast miklar. Haukarnir
hafa verið með áberandi slakasta
liðið í deildinni. Keflavík á því
möguleika á Evrópusæti þrátt
fyrir allt, en um tíma nærri
mótslokum virtist slagurinn ein-
göngu ætla að standa á milli IBV
og Vals, ÍA, KR og ÍBK virtust
ætla að heltast úr lestinni. Úrslit
mótsins verða ekki ráðin fyrr en
að síðasta leik mótsins lýkur, slík
hefur spennan verið.
Laugardalsvöllur
Keflavíkurvöllur
SUNNUDAGUR:
Laugardalsvöllur
Akureyrarvöllur
1. deild Víkingur - ÍBV
1. deild ÍBK - Haukar
1. deild Þróttur - í A
1. deild KA - Valur
kl. 14.00
kl. 16.00
kl. 16.00
kl. 16.00
Norðurlandameistara
mót í kraftlyftingum
MÓTIÐ verður haldið í Laugardalshöllinni laugardag og sunnudag
15. og 16. september n.k. og hefst báða dagana kl. 13.00.
Fyrri daginn verður keppt í þyngdarflokkunum 52, 56, 60, 67.5 og
75 og seinni daginn í þyngdarflokkunum 82.5, 90,100,110 og +110.
Landslið íslands:
52 kg fl. Gísli Valur Einarsson, KR.
56 kg fl. Daníel Olsen, KR.
60 kg fl. Kristján Kristjánss., ÍBV.
67.5 kg fl. Hörður Markan, Á.
75 kg fl. Skúli Óskarsson, UÍA.
82.5 kg fl. Sverrir Hjaltason, KR.
90 kg fl. Gunnar Steingrímss., ÍBV.
100 kg fl. Hörður Magnúss., KR.
110 kg fl. Óskar Sigurpálss., ÍBV.
+110 kg fl. Jón Páll Sigmarsson, KR.
Keppendur frá Noregi, Svíþjóð og Finnlandi koma til mótsins. í
þeim hópi eru 5 núverandi Evrópumeistarar og tveir heimsmethaf-
ar. Evrópumeistararnir eru Yrjö Haatanen, Fi., Unto Honkonen,
Fi., Ray Yvander, Sv., Hannu Saarelainen, Fi. og Lars Backlund,
Svíþjóð, en hann mun keppa í sama flokki og Skúli Óskarsson.
Heimsmethafarnir eru Raimo Valineva, sem á heimsmet í
réttstöðulyftu í 67,5 kg. fl. 287,5 kg og Lars Hedlund, Svíþjóð, sem
keppir í þyngsta flokki og hefur pressað mest manna í heiminum í
bekkpressu 278 kg.
Sérstakur gestur L.S.Í. á mótinu er forseti Alþjóðasambands
kraftlyftingamanna, Englendingurinn Vic Mercer.
Tekst Skúla óskarssyni að setja nýtt heimsmet á
kraftlyftingamótinu um helgina?