Morgunblaðið - 15.09.1979, Page 48
LAUGARDAGUR 15. SEPTEMBER 1979
á ritstjórn og skrifstofu.
10100
P«rgnnbl«kjt
Sími á afgreiöslu:
83033
|H*r0untiIn&ib
Bandaríkjastjórn heimilar breytingar á Atlantshafsflugi Flugleiða:
Helmingurferðanna
framhjá íslandi
BANDARÍSK ílugmálayfirvöld hafa gefið leyfi sitt
fyrir því að Flugleiðir megi fljúga beint frá Bandaríkj-
unum til Luxemborgar í 50% ferða sinna. Ákveðin
skilyrði fylgja þó ákvörðun Bandaríkjamanna og meðal
annars hafa Flugleiðir fengið boð um nýja lendinga-
staði og yrði ákveðinn fjöldi ferðanna beint til
Luxemborgar að fara í gegnum þessa staði, sem eru
Cleveland og Detroit.
Flugleiðir fóru síðastliðið
vor fram á að mega fljúga
hluta ferða sinna frá
Bandaríkjunum án við-
komu á íslandi. Með því
sparast umtalsverðar upp-
hæðir, m.a. í eldsneyti og
lendingagjöldum. Fyrir
nokkru barst jákvætt svar
frá þar til bærum yfirvöld-
um í Bandaríkjunum og eru
þessi mál nú í nánari at-
hugun hér á landi.
Flugleiðir fljúga nú frá
Keflavík til New York, Chi-
cago og Baltimore, en sam-
kvæmt leyfum Bandaríkja-
manna mega þeir nú fljúga
yfir ísland í annarri hverri
ferð sinni að meðaltali. Er í
því sambandi miðað við
ferðafjölda á ári, þannig að
samkvæmt leyfum frá
Bandaríkjunum gætu þeir
lent á íslandi í öllum ferð-
um sínum í hálfan mánuð,
en síðan flogið yfir næsta
hálfa mánuðinn. Slíkt fyr-
irkomulag yrði þó varla
samþykkt af hálfu ís-
Flugleiðir
með áætlun
til Kairó?
FRAMUNDAN eru viðræður
egypsk flugmálayfirvöld um
loftferðasamning milli ís-
lands og Egyptalands. Að
sögn Ragnars Arnalds sam-
gönguraáðherra er unnið að
undirbúningi viðræðna í
ráðuneytinu þessa dagana.
Flugleiðir munu hafa
áhuga á að taka jpp áætlun-
arfiug milli Luxemborgar og
Kairó og síðan jafnvel eitt-
hvað áfram.
lenzkra yfirvalda, sem
munu í máli þessu gæta
þess að eðlilegar samgöng-
ur haldist vestur yfir haf.
Eins og áður sagði eru
Flugleiðum sett ákveðin
skilyrði eða valkostir og
m.a. þarf félagið að taka
upp áætlun til Cleveland
eða Detroit. Þarf ákveðinn
fjöldi ferðanna beint til
Luxemborgar að fara frá
þessum stöðum. Ekki er
ólíklegt, ef af þessu verður,
að flug á þessa staði verði
tengt þeim stöðum sem
Flugleiðir fljúga nú til
vestan hafs.
í GÆR var unnið að síldar-
söltun í báðum söltunar-
stöðvunum á Höfn i Horna-
firði fram á kvöld og síld
var fryst fram undir mið-
nætti. Hópur fólks vinnur
þessa dagana að síldarsölt-
un á Höfn en nær 30 bátar
eu nú á reknetaveiðum.
Ljósm. Jens.
Höfn Hornafirði, 14. september.
MJÖG GÓÐ sildveiði var í gær á miðum reknetabátanna úti fyrir Austur- og Suðurlandi og er þetta besti
veiðidagurinn á vertiðinni fram til þessa. Alls var landað á Höfn i gær 2630 tunnum og er sildveiðin á
vertíðinni þá orðin alls liðlega 9000 tunnur.
Bátarnir sem stunda þessar veiðar eru nú orðnar fast að 30 og fengu nokkrir þeirra yfir 300 tunnur i
gær. Má gera ráð fyrir að bátarnir verði við þessar veiðar fram í nóvember en alls mega þeir veiða 15000
tunnur af sild. —Jens.
F jár lagaf r u m varpid:
N iðurstöðutölur
um 330milljarðar
NIÐURSTÖÐUTÖLUR fjárlaga-
frumvarps rikisstjórnarinnar,
sem fjallað var um á aukafundi
rikisstjórnarinnar i gær, eru um
330 milljarðar króna og er þá
talin með lántaka sú, scm nýlega
fékkst heimild fyrir með bráða-
birgðalögum, en hún nemur 4,5
milljörðum króna.
Fjárlög, sem afgreidd voru á
Alþingi 22. desember í fyrra eftir'
að Tómas Árnason fjármálaráð-
herra hafði hótað að segja af sér
ef Alþýðuflokkurinn stæði ekki að
afgreiðslu fjárlaga fyrir jólin,
námu 209 milljörðum króna.
Hækkun fjárlagafrumvarpsins frá
fjárlögum í fyrra er því 57,9%.
Frá fjárlögum 1978 og til fjárlaga-
frumvarpsins nú, en fjárlög 1978
voru síðustu fjárlög ríkisstjórnar
Geirs Hallgrímssonar, er hækkun-
in 136,6%. Niðurstöðutala fjárlaga
fyrir árið 1978 var 139,5 milljarðar
króna.
Forsendur fjárlagafrumvarps-
ins nú eru m.a. þær, að verðbólgan
verði 30% í árslok 1980, eins og
stefnt skyldi að með núgildandi
fjárlögum að yrði við lok þessa
árs.
Fiskverðsákvörðun fyrir 1. október:
Sjómenn munu gera kröfu
um sömu hækkun og bændur
„ÞESSI ákvörðun stjórnvalda um hækkun búvöru, leiðir til þess
óhjákvæmilega, að t.d. sjómenn munu gera miklu ákveðnari kröfur
um fullar bætur og jöfnuð við iaunahækkanir annarra og þá m.a. þær
hækkanir, sem bændur hafa fengið bæði á þessu ári og hinu síðasta,“
sagði Ingólfur Ingólfsson, forseti Farmanna- og fiskimannasambands
íslands, i samtaii við Morgunblaðið i gær, er hann var spurður álits á
búvöruhækkuninni, er ríkisstjórnin hefur ákveðið að komi tii
framkvæmda á mánudag.
Ingólfur Ingólfsson kvað því
ekki verða á móti mælt að sjó-
menn hefðu farið verulega hallir
frá samanburði við tekjuhækkun
annarrs starfsstétta. Kvað hann
b;. • . raun undirstrika afstöðu
stjórnvalda í málinu. „Nú á þessu
hausti," sagði Ingólfur, „þegar
verðákvarðanir verða teknar, þá
hlýtur þetta að verða þess vald-
andi að kröfum verður stillt á
þar.n veg, að sjómenn fái fulla
leiðréttingu sinna kjaramála.“
Ingólfur kvað óhjákvæmilegt að
sá hluti fiskverðs, sem tekinn
hefði verið út úr skiptum kæmi nú
inn í skipti. Mundu sjómenn reyna
að endurheimta það og einnig
annað sem eftir hefði setið. „Það
er ekki bara því sem munar,
heldur verulega meiru," sagði Ing-
ólfur, en kvað aðspurður enn ekki
ljóst nákvæmlega hve miklu mun-
aði. Væri það m.a. vegna þess, að
útreikningar annarra væru „meira
og minna villandi og í sumum
tilfellum vísvitandi rangir í opin-
berum plöggum. Því stendur yfir
athugun á því, hver raunveruleg
hækkun þessara hópa hefur verið
og munum við miða okkar kröfur
við það og að fullum jöfnuði verði
náð.“
Að undanförnu hafa fundir ver-
ið haldnir í yfirnefndinni um
almenn fiskverð og einnig síldar-
verð, en það hefur ekki verið
ákveðið, þó svo að síldveiðar í
reknet hafi byrjað 20. ágúst sl. Við
ákvörðun fiskverðs 1. október þarf
m.a. að taka tillit til olíuverðs þá
og olíugjaldsbreytingar. Olíu-
gjaldsbreytingin, sem ákveðin var
með bráðabirgðalögunum 20. júlí
sl. fellur niður um næstu mánaða-
mót, en 7% olíugjaldið stendur
áfram.
18 þúsund
krónur á
mánuði hjá
5 manna
fjölskyldu
HIN mikla búvöruhækkun, sem
taka á gildi á mánudag, mun
kosta hverja 5 manna f jölskyldu
um 18 þúsund krónur i aukin
útgjöld á hverjum mánuði eða
216 þúsund krónur á ári. Er þá
miðað við mjög eðlilega neyziu
mjólkur og annarra landbúnað-
Þegar öll búvöruhækkunin er
komin til framkvæmda, varan
sjálf svo og unnar kjötvörur,
sem hækka munu i kjölfar bú-
vöruhækkunarinnar, lætur
nærri að framfærsluvisitala
hækki af þessum sökum um það
bil um 4%.