Morgunblaðið - 11.11.1979, Qupperneq 3
I
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1979
51
Auk veikinda sinna hafði hann
orðið að þola þá raun að sjá að
baki tveggja barna sinna ungra,
sem dóu í Nesi og vinar síns og
samstarfsmanns Eggerts Ólafs-
sonar sem drukknaði á Breiðafirði
ásamt konu sinni og fylgdarliði
vorið 1768, og sem hann tregaði
mjög.
Er Bjarni andaðist 8. september
1779 voru starfandi læknar í
landinu 4 nemendur hans: Magnús
Guðmundsson, læknir í Norðlend-
ingafjórðungi, þá orðinn veikur að
holdsveiki, Hallgrímur Bach-
mann, svili Bjarna læknis í Vest-
firðingafjórðungi, Brynjólfur Pét-
ursson læknir í Austfirðingafjórð-
ungi og Jón Einarsson aðstoðar-
læknir Bjarna í Nesi og gegndi
hann landlæknisembættinu eftir
að Bjarni dó þar til Jón Sveinsson
tók við embættinu í september
1780.
Hér var brotið blað. í æfisögu
hans segir „Er hann leiddur með 2
börnum sínum rétt fyrir innan
kirkjudyr, sem seinast stóð í Nesi
við Seltjörn".
Eftir stóð ekkjan Rannveig
Skúladóttir 37 ára gömul með 5
börn. Elst þeirra var Steinunn 16
ára gömul, en hún dvaldi lang-
tímum hjá afa sínum Skúla fógeta
í Viðey, Skúli 14 ára, hann sigldi
með fálkaskipi til Hafnar nokkru
áður en faðir hans dó, hann ætlaði
að læra lyfjafræði, en hann hvarf
frá námi, fór í siglinu til Kína og
talinn látinn þar. Hallur 13 ára,
hann sigldi ári eftir lát föður síns,
en það skip fórst í hafi og Eggert 8
ára og Þórunn 3 ára.
Landlæknisheimilið var fátækt
er Bjarni landlæknir dó, enda
alltaf mikil gestnauð í Nesi og
allir ölmusumenn fengu þar
ókeypis aðhlynningu, en þeir voru
þá mjög margir í landinu, jafnvel
talið að þeir væru sjötti hver
landmanna. En Rannveig átti
hauk í horni þar sem var faðir
hennar Skúli fógeti.
Börnin hennar þrjú, sem náðu
fullorðinsaldri, báru gæfu til þess
að sá út þeim frækornum, sem
foreldrar þeirra höfðu gefið þeim
og uppskeran varð mikil.
Steinunn giftist Vigfúsi Þórar-
inssyni, sýslumanni í Hlíðarenda,
og meðal margra barna þeirra
voru Bjarni Thorarensen amt-
maður og skáld og Skúli Thorar-
ensen, læknir á Móeiðarhvoli og
var hann 15 barna faðir. Eggert
varð prestur, sat í Stafholti og
víðar og var barnmargur, og
Þórunn giftist Sveini Pálssyni,
lækni og áttu þau 15 börn. Því er
ættarmeiðurinn stór og ná limir
hans um allt landið og víðar.
Þjóðin færir Bjarna Pálssyni,
landlækni og Rannveigu konu
hans þakkir fyrir fórnfúst braut-
ryðjendastarf, sem bar ríkulegan
ávöxt. Nemendur hans voru fáir,
er hann féll frá og læknum
fjölgaði mjög hægt fyrstu áratug-
ina eftir fráfall hans, en það
slokknaði aldrei á kyndlinum.
Arið 1800 voru læknarnir aðeins
5 og ljósmæður um 20.
Nú á 200 ára dánardægri Bjarna
landlæknis hefur Seltjarnarnes-
kaupstaður reist honum minnis-
varða í Nesi. Ríkissjóður hefur
keypt Nesstofu og afhent Þjóð-
minjaverði hana til varðveizlu —
prófessor Jón Steffensen hefur
gefið veglega gjöf til þess að í Nesi
verði komið upp safni og rann-
sóknarstofnun á sviði sögu heil-
brigðismála og Rotaryhreyfingin
á íslandi hefur ákveðið nú á 75 ára
afmæli hreyfingarinnar að hefja
söfnun til stuðnings endurreisnar
Nesstofu. Allt þetta þökkum við
læknar og þeir aðrir, sem vita
hvers virði störf Bjarna landlækn-
is voru fyrir þjóðina.
Einnig ber að þakka öllum þeim
sem átt hafa og varðveitt Nesstofu
þau 145 ár, sem liðin eru frá því
landlæknir flutti þaðan.
Lokaorð mín skulu vera hin
sömu og Guðmundar Hannesson-
ar, prófessors er hann ritaði á 200
ára afmæli Bjarna landlæknis
fyrir 60 árum: „Og líklega getum
vér ekki hrósað oss af því að vera
samvizkusamari og ósérplægnari í
starfi voru en Bjarni var“.
Fimmtugur í dag:
Pálmi Jónsson
alþingismaður
í dag er fimmtugur Pálmi Jóns-
son, alþingismaður, á Akri í Húna-
þingi. En það býli varð landskunn-
ugt er faðir hans, Jón Pálmason
alþingismaður, bjó þar um áratugi
við mikla hagsæld, rausn og gengi.
Pálmi sonur hans mun snemma í
föðurgarði hafa haft veður af
stjórnmálum er faðir hans tók
mikinn þátt í og dvaldi því lang-
dvölum að heiman vegna þingsetu.
Pálmi Jónsson var fæddur 11.
nóvember 1929 á Akri á Torfalækj-
arhreppi. Voru foreldrar hans Jón
Pálmason, alþingismaður og ráð-
herra, og segja menn að eigi færri
en 15 alþingismenn norður hér séu í
hans ættboga.
Kona Jóns, móðir Pálma, er
Jónína Valgerður Ólafsdóttir bónda
í Minnihlíð í Bolungarvík Ólafsson-
ar og konu hans, Margrétar Ólafs-
dóttur, systur Marsebilar, konu
Matthíasar Ólafssonar alþing-
ismanns í Haukadal í Dýrafirði.
Pálmi sonur þeirra hjóna að Akri
er yngstur sinna systkina og ólst
upp við bústörfin enda var honum
ætlað að verða bóndi og taka við
föðurleifð sinni.
Hann fór því á bændaskólann að
Hólum og lauk þaðan prófi 1948.
Eggert bróðir hans stundaði lang-
skólanám og varð lögfræðingur, gaf
sig nokkuð að þjóðmálum um skeið,
gerðist þá ritstjóri Islendings á
Akureyri. Annars starfaði hann
ávallt syðra. Hafði Jón faðir hans
haft hug á um skeið að efla hann til
mannaforráða, en Eggert varð eigi
gamall maður og andaðist árið
1962.
Pálmi Jónsson var jafnan heima
og starfaði á búi föður síns er oft
var mikið að heiman við þingstörfin
og ýmis nefndarstörf í þágu föður-
landsins. Pálmi sýndi sig að vera
slyngur bóndi sem faðir hans. Hann
þótti nefndarmaður í heimahéraði
og var allur með hugann á sinni
heimajörð. Mátti segja að hann
héldi sér eigi mikið fram, né sækti
til mannaforráða umfram aðra
menn.
En þó svo væri um hagi hans, þá
duldist mönnum eigi, að hér fór
góður og gegn maður er stóð fyrir
sínu og vildu menn efla hann til
forystu. Margir höfðu haft að orði
við föður hans á árum áður að
Pálmi færi á þing.
Pálmi Jónsson tók við búi á Akri
1953 og kvæntist Helgu Aðalbjörgu
Sigfúsdóttur frá Breiðavaði í
Langadal 26. des. 1956.
Hefur hjónaband þeirra verið hið
farsælasta og Helga verið góð stoð
manni sínum við búskapinn heima í
héraði og haldið heimili með honum
í Reykjavík um þingtímanrf.
Hefur hér líkt farið og með þeim
hjónum Jóni á Akri og konu hans,
Jónínu. Þau hjón Pálmi og Helga
eiga þessi börn: Jón, Jóhönnu Erlu
og Nínu Margréti.
Reyndist Pálmi ágætur bóndi og
framfarasinnaður er bætti föður-
leifð sína og stóð framarlega í
félagsmálum sveitar sinnar. Helga
kona hans myndarhúsmóðir og
heimakær. Er heimili þeirra hið
besta að gestrisni og myndarbrag.
Það var því eigi undarlegt þó þeir
tímar færu í hönd að Pálmi Jónsson
yrði kallaður til starfa á sviði
þjóðmálanna. Er menn settust á
ráðstefnu um væntanlega þing-
menn Húnvetninga fyrir Sjálfstæð-
isflokkinn og höfðu skyggnst um
bekki eftir völdum manni í þing-
mánnssess. Vildu margir fá Pálma
á Akri. Var það eigi eingöngu að
hann væri sonur Jóns á Akri heldur
og að hann hafði getið sér góðan
orðstír meðal héraðsbúa og þótt
farsæll í starfi, glöggur um fram-
vindu mála og góður ræðumaður.
Var haft prófkjör heimafyrir og
kom upp hlutur Pálma er mest fylgi
átti, en á þessum árum voru þau
eigi mikið höfð um hönd í vorum
blessaða Sjálfstæðisflokki.
Var Pálmi kosinn á þing 1967
fyrir Norðurlandskjördæmi vestra
og hefur síðan setið á alþingi við
góðan orðstír. Hafa honum verið
falin ýmsar ábyrgðarmiklar stöður,
svo sem formennska í stjórn Raf-
veitna ríkisins, átt sæti í nýbýla-
stjórn, í landnýtingar- og land-
græðslunefnd og yfirfasteigna-
matsnefnd. Þá hefur hann á alþingi
jafnan setið í fjárhagsnefnd.
Pálmi ber gott skyn á þau mál
sem faðir hans, er verða megi til
hagsælda kjördæminu.
Pálmi er vel máli farinn og létt
um ræðuhöld.
Hann er maður vinsæll að hér-
aðsbúum og alúðlegur í framgöngu.
Mun því mörgum hugsað vel til
hans á þessum tímamótum í ævi
hans. Hann hefur með sæmd haldið
uppi merki föður síns, hins mikla
þjóðmálaskörungs.
Pétur Þ. Ingjaldsson.
■I
kalmar
innréttingar hf.
45 Á
SKEIFUNNI8, SIMI82645
Kalmar einingareldhús eru samsett úr stööluö-
um einingum, sem eru fáanlegar í 30 mismunandi
geröum og í 15 verðflokkum.
Famenn mæla, skipuleggja og teikna ykkur aö
kostnaðarlausu og án allra skuldbindinga af ykkar
hálfu.
Barstólarnir nú aftur fyrirliggjandi á lager í
ýmsum litum.
Kalmar!
Kalmar innréttingar hf. bjóöa eitt fjölbreyttasta
úrval innréttinga, sem völ er á.