Morgunblaðið - 11.11.1979, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 11.11.1979, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1979 79 * I * Umsjón:Séra Jón Dalbú Hróbjarttsson Séra Kurl Siyurbjörnsson Siffurbur Pdlsson Á. DRÖTTINSDEGI Kristniboðssambandið 50 ára Á þessu ári eru 50 ár liðin frá stofnun Sambands íslenskra kristniboðsfélaga. Ekki hef- ur farið mikið fyrir þessum timamótum í fjölmiðlum, enda hefur hreyfingin einkennst af kyrrlátu en þróttmiklu starfi fremur en lúðra- blœstri. Um aldamótin siðustu bárust hingað til lands trúarlegir straumar frá kristnilífi á Norðurlönd- um, einkum frá starfi heimatrúboðsins danska. Var það einkum fyrir störf þeirra sr. Lárusar Halldórssonar frikirkjuprests og sr. Sigurbjörns Á. Gislasonar. Meðal þeirra sem beint eða óbeint urðu fyrir áhrifum frá þessum vakningastraum- um tók nú að vakna áhugi á kristniboðsstarfi meðal heiðinna þjóða. Má óefað rekja til þeirra áhrifa stofnun Kristniboðsfélags kvenna i Reykjavik 1904. Þegar ólafur ólafsson kristni- boði fær köllun til kristniboðsstarfa, hófu konurnar stuðning við hann. Kristniboðsfélag karla í Reykjavík er svo stofnað 1920. Sameigin- lega studdu þessi tvö félög Ólaf, þegar hann hóf störf í Kína 1921, á vegum Kinatrúboðsins norska. Heimsókn ólafs og fjölskyldu hans i hvíldarleyfi árið 1928, verður að telja lokaþátt- inn í aðdraganda þess að Kristniboðssambandið var stofnað. Ólafur ferðaðist þá mikið um landið, predikaði og kynnti kristniboðið og varð sú kynning til þess að stofnuð voru kristniboðsfélög á Akureyri, Hafnarfirði og Vatnsleysuströnd. Sigurbjörn Á. Gislason, sem var fyrsti formað- ur Kristniboðsfélags karla í Reykjavík taldi nú timabært að hefjast handa um stofnun Sambands islenskra kristniboðsfélaga og var það formlega stofnað í Reykjavík þann 27. sept. 1929. Séra Sigurbjörn var formaður þess fyrstu 10 árin, en þá tók við Bjarni Eyjólfsson er var formaður i 33 ár, eða þar til hann lést 1972. Núverandi formaður er Gísli Arnkelsson kristniboði. Fyrstu 25 árin studdi sambandið starf þeirra Ólafs Ólafssonar og sr. Jóhanns Hannessonar er báðir störfuðu i Kína. Fyrir 25 árum hófst síðan starf í Konsóhéraði í Eþiópíu, eftir að Kina hafði lokast, og nú er verið að hef ja starf í Kenýu. Auk starfs erlendis hefur sambandið um árabil haft á sinum vegum predikara sem hafa ferðast hér innanlands og kynnt kristniboðið auk predikun- arstarfs sins. Konsó: Þróttmikið starf — Þrátt fyrir erfiðar aðstæður Tuttugu og fimm ár eru nú liðin siðan fyrstu íslensku kristniboðarnir fóru til Konsó i Eþiópiu, en það voru þau hjónin Kristín og Felix ólafsson. Margt hefur breyst í Eþiópíu á þessum árum. Herstjórnin sem nú situr að völdum í landinu rekur mikinn áróður gegn öllum trúarbrögðum. Hún hefur þó ekki bannað trúmála- starfsemi. Hins vegar leggur hún margvislegar kvaðir á menn í þágu „fólksins og bylt- ingarinnar". Verður það í reynd til þess að trufla mjög samkomuhöld og kirkjusókn. Sums staðar hefur kirkjum verið lokað og kristnir menn fangelsaðir og pyndaðir. Fram- kvæmdastjóra Lúthersku kirkj- unnar í Eþíópíu, Gúdína Túmsa, var rænt á götu í Addis Abeba i sumar, og veit enginn hvar hann er niður kominn. Þrátt fyrir þetta benda kristniboðar á, að víða séu mikl- ir möguleikar til starfa og fólk þyrsti eftir Guðs orði. Forystu- menn kirkjunnar í Eþíópíu leggja fast að kristniboðsfélög- unum að þau dragi ekki saman seglin, meðan vært er í landinu. Starfsfriður í Kongó Góður starfsfriður er nú í Konsó, og þar hefur engum kirkjum verið lokað. Kristnum Konsómönnum fjölgar stöðugt. Tæplega 500 manns bættust söfnuðinum á síðasta ári. Á miðju þessu ári voru safnaðar- menn hartnær 7400. Yfirstjórn kristniboðsstarfs- ins er nú í höndum Eþíópíu- manna sjálfra. Stöðvarstjóri í Konsó er presturinn Barrisja Hunde, sem heimsótti ísland fyrir nokkrum árum. Hann hef- ur nokkra presta og predikara sér við hlið í starfinu í söfnuðin- um. Reynt er að efla sjálfboða- starf sem mest. Árlega eru haldin fræðslunámskeið, bæði fyrir almenning og leiðtoga í söfnuðunum. Á þriðja hundrað nemendur stunduðu nám í barnaskólanum Kristniboðsdagurinn 22. sunnud. eftir trinitatis Pistillinn Fil. 1,3-11: Þar eð ég íulltreysti einmitt því, að hann, sem byrjaði í yður góða verkið, muni fuli- komna það allt til dags Jesú Krists. Guðspjallið. Matt. 18, 21-35: (Pétur spurði): Hversu oft á ég að fyrirgefa bróður mínum ef hann hefur syndgað á móti mér? Allt að sjö sinnum? Jesús segir við hann: Ekki segi ég þér allt að sjö sinnum, heldur allt að sjötiu sinnum sjö. (-enda- laust). Fyrsti sunnudagur í nóv. er Kristniboðsdagurinn. Kross í hring táknar köll- un kirkjunnar að gera „allar þjóðirnar að læri- sveinum.“ Hið sama er einnig oft táknað með krossi, sem stendur á hring (hnettinum). á stöðinni á liðnum vetri og voru heimavistarrými fullskipuð. Til sjúkraskýlisins leituðu um 40 þúsund sjúklingar á árinu sem leið. Þar er flutt kristin hugvekja daglega. Tvær norskar hjúkrunarkonur starfa þar ásamt innlendu starfsliði. Á sjúkraskýlinu eru um 20 sjúkra- rúm. Læknir kemur öðru hverju frá Gidóle, nálægri kristni- boðsstöð. Norskir búfræðingar hafa dvalist í Konsó í nokkur ár og unnið að því að bæta atvinnu- hætti. Þeir höfðu um áramót gróðursett um 200.000 trjáplönt- ur umhverfis Konsó og Gídole, enda eyðast skógar víða í land- inu, og vantar þá bæði bygg- ingarefni og eldivið. Gróðrar- stöðvar hafa verið reistar, vegir lagðir og unnið að áveitufram- kvæmdum. Mikil baðmullarrækt er í Konsó og hefur þeim verið kennt að smíða rokka og garn- vindur. Ein gleðilegasta fréttin frá Konsó á þessu ári er sú, að sjö ungir Konsómenn eru farnir að vinna að boðun trúarinnar í miklum dal fyrir suð-austan Konsó, Voito. Þar býr fólk af öðrum ættbálki. Konsómenn eru því sjálfir orðnir kristniboðar. Hjónin Ingibjörg Ingvarsdótt- ir og Jónas Þórisson starfa nú í Konsó á vegum Sambands islenskra kristniboðsfélaga. íslendingar í Arba Minch Um 90 km frá Konsó er Arba Minch, höfuðstaður fylkisins Gamu Gofa. Þar er norsk kristniboðsstöð, og starfa þar m.a. íslensku læknishjónin Ás- laug Johnsen og Jóhannes Ól- afsson. Þarna er annað af tveim- ur sjúkrahúsum í víðáttumiklu og fjölmennu fylki og er Jóhann- es jafnan önnum kafinn. í Arba Minch er unnið að kristniboði, en það hefur þó mjög verið hindrað í seinni tíð vegna afskipta og harðneskju yfirvalda á staðnum. Biblíufélagið í Addis Abeba hafur lagt sig fram um að efla sölu á Biblíum. Sumir kaupa sér tvær og grafa aðra í jörðu ef hin skyldi verða tekin af þeim. Á árinu 1978 seldi Biblíufélagið í Addis Abeba tæpar tvær millj- ónir af Biblíum, Nýjatestament- um og biblíuhlutum. Starf hafið í Kenýu Þegar óvissan var sem mest eftir byltinguna í Eþíópíu var tekin sú ákvörðun að senda hjónin Kjellrúnu og Skúla Svav- arsson til Kenýu, til að hefjast handa um kristniboðsstarf þar. Þau höfðu áður starfað í Eþí- ópíu. Skúli er nú að reisa kristni- boðsstöð í Vestur-Kenýu, meðal svonefndra Pókotmanna. Heitir staðurinn Cheparería. Stöðvar- lóðin er um 21 þús. fermetrar og um þrjá km frá samnefndum bæ. Fólk á þessum slóðum hefur tekið Skúla mjög vel. Hefur hann byrjað nokkurt starf meðal barna og fullorðinna, en tíminn hefur þó enn að mestu farið í málanám og byggingarfram- kvæmdir. 40 milljónir Kirkjan í Konsó Eins og að líkum lætur kostar kristniboðsstarfið mikið fé. Kristniboðssambandið áætlar að það þurfi á þessu ári um 40 milljónir króna til að geta staðið við allar skuldbindingar sínar gagnvart hinum fátæku söfnuð- um í Konsó og til uppbyggingar í Kenýu. Nú þegar hafa kristni- boðsvinir lagt drjúgt af mörkum, en þó vantar mikið á að markinu sé náð. Gjafir má senda til Biskupsstofu í Reykjavík eða Sambandi íslenskra kristniboðs- félaga, Amtmannsstíg 2B, póst- hólf 651, 121 Reykjavík, gíró 65100-1. Biblíulestur vikuna 11.—17, nóv. Sunnudagur 11. nóv. Mánudagur 12. nóv. Lúk. 14:15-24 Þriðjudagur 13. nóv. Lúk 14: 25-33 Miðvikudagur 14. nóv. Lúk. 15: 1-10 Fimmtudagur 15. nóv. Lúk. 15:11-24 Föstudagur 16. nóv. Lúk. 15: 25-32 laugardagur 17. nóv. Lúk. 17:11-19

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.