Morgunblaðið - 11.11.1979, Page 4
52
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1979
VER
SPRENGJUR & GAFNAFAR
Kennir kjamorkravni
lakari á
nams-
árangur
• Tilraunir með kjarnorkuvopn
ollu því, að heil kynslóð banda-
rískra ungmenna er ógreindari en
ella hefði verið, segir bandarískur
eðlisfræðingur, dr. Ernest Stern-
glass að nafni, og bætir því við, að
geislavirkt úrfelli hafi haft þessi
áhrif á fóstrin í móðurkviði.
Þessi kenning dr. Sternglass
styðst einnig við það, að um tíu ára
skeið var námsárangur banda-
rískra nemenda miklu lakari en
áður hafði verið uns hann tók
aftur að batna árið 1976. Slakastir
voru líka þeir nemendur, sem
komu frá þeim héruðum, þar sem
mest var um geislavirkt úrfelli
eftir kjarnorkuvopnatilraunirnar
á sjötta áratugnum.
„Þetta er raunar ekki neinn nýr
sannleikur," segir dr. Sternglass.
„í skýrslu um Hiroshima frá árinu
1969 er bent á, að fjöldi andlega
vanþroska barna, sem voru í móð-
urkviði þegar sprengjan féll, var í
réttu hlutfalli við fjarlægðina frá
Slökustu
nemsndurnir
voru í þeim hér-
uðum þar sem
mest var um
geislavirkt úr-
felli.
sprengistaðnum. Því nær sem
mæðurnar voru sprengingunni og
því meiri sem geislunin var því
meiri urðu áhrifin á andlegan
greindarþroska barnanna."
Dr. Ernest Sternglass segir, að
geislavirkt úrfelli sé aðeins eitt
með öðru, sem hafi áhrif á þroska-
ferii fóstursins og nefnir þar til
skordýraeitur, áfengisneyslu og
reykingar þungaðra kvenna og
óhóflegt lyfjaát.
Sternglass heldur því fram, að
þessi uppgötvun sín þýði það, að
stjórnvöld verði nú að gera
gangskör að því að kanna til hlítar
áhrif geislunar á fóstur. Hann
segir og, að það hafi verið fyrir
hans orð að allar þungaðar konur
voru fluttar úr nágrenni Þriggja
mílna eyjar í Pensylvaníu í kjölfar
kjarnorkuslyssins, sem þar varð í
vor.
- ROSS WABY.
&fl***a&
~ itamses II hefur nú aftur
verið hafinn til vegs og vir5-
ingar og skipað til öndvegis ;
þjóðminjasafninu í Kairó eftir
andlitssnyrtinguna sem
franskip fegrunarlæknar
Kóng-
urinn
er kominn
úr
viðgerð
gerðu á honum á dögunum, og
auk þess fékk faraó dálitla
meðferð, sem á að koma í veg
fyrir, að hans htign verði
sveppagróðri og sníkjudýrum
að bráð.
Læknismeðferðin hófst með
því, að Ramses lagði land
undir fót og hélt til Parísar, í
sína fyrstu ferð þangað, og
henni lauk með þriggja ára
sóttkví í Kairó á meðan ménn
voru að fullvissa sig um, að
óværan væri nú með öllu úr
sögunni.
Nú er svo komið, þökk sé
frönskum kjarneðlisfræðing-
um og fegrunarlæknum, að
Ramses II er við bestu
„heilsu", þ.e.a.s. við svo góða
heilsu, sem sá getur verið, sem
hefur verið dauður í meir en
3000 ár. Enn má sjá henna-
litaðar hárleifar í hnakkanum,
húðin er óskemmd og stök
tönn gægist út úr öðru munn-
vikinu.
Egyptar nú á dögum bera
mikla virðingu fyrir Ramses
II, sem ríkti yfir Egyptalandi,
RAMSES II: Sadat (fyrir miðju)
var í móttökunefndinni
Sýrlandi, Palestínu og Jórd-
aníu um 1300 fyrir Krists
burð. Auk þess vann hann sér
það til frægðar, að því er haft
er eftir dr. Ahmed Abdel
Hamid, frægum Egyptalands-
fræðingi, að hann átti 111
börn með 90 eiginkonum.
Fyrstu 12 börnin dóu í æsku
en það þrettánda, drengur að
nafni Mnepthah, tók við ríki-
dómi af föður sínum.
Dr. Hamid segir, að þegar
Ramses hafi dáið, hafi líkami
hans verið meðhöndlaður á
sama hátt og líkamar annarra
faraóa fyrir hans daga og
eftir. Fyrst voru iðrin, lifur,
hjarta, lungu og heili, tekin og
þau geymd í sérstökum krukk-
um. Síðan var líkaminn látinn
liggja í blöndu salts og krydd-
jurta í 70 daga, sem gerði að
verkum, að allur raki hvarf úr
vefjunum, og að því loknu var
hann vafinn líni og settur í
líkkistu, sem síðan var komið
fyrir í grafhvelfingunni eða
píramítanum.
— Shyam Bhatia
SJONVARP——
Falk fer
aftur í
frakkann
• Gamall kunningi er væntan-
legur á sjónvarpsskjáinn eftir
tveggja ára hlé. Það er Colombo
lögregluforingi í krumpaða, hvíta
rykfrakkanum sínum og með vind-
il í munnvikinu, en hann er í þann
veginn að fara aftur á stúfana og
elta uppi glæpamenn með sínum
sérstæðu aðferðum.
Peter Falk, sem lék Colombo, er
51 árs að aldri og hefur nú um
tveggja ára skeið einbeitt sér að
kvikmyndaleik. Er óhætt að segja,
að Colombo hafi rutt honum
veginn til vinsælda á þeim vett-
vangi, en nú er hann farinn að
sakna síns gamla vinar og hyggst
taka upp þráðinn að nýju. Um
þessar mundir vi'nnur hann að
gerð samnings við Universal
Studio um nýjar Colombo-syrpur.
— Ég hef alltaf verið veikur
fyrir Colombo, og er það enn, —
segir Peter Falk. — Eg vil halda
áfram að leika hann, ef handritin
eru góð og upptökurnar stangast
ekki á við upptökur á kvikmynd-
unum mínum.
— Colombo-syrpurnar heppnuð-
ust vel, og Colombo féll fólki í geð,
af því að hann var manneskju-
legur. Hann verkaði þægilega á
mann. Colombo er laus við allt
oflæti og hann lítur ekki niður á
fólk. Ein ástæðan fyrir vinsældum
hans er vafalaust sú, að hann
skeytir engu um fánýt stöðutákn,
fín hús, ríkidæmi og þess háttar,
eins og mörgum hættir til á
þessum síðustu og verstu tímum.
Það sem knýr hann áfram er
forvitni og einlægur áhugi á við-
fangsefnunum frá degi til dags.
Og Peter Falk bætir við: —
Annað sem mér líkaði vel við
Colombo-syrpurnar var það, að
þær voru gersneyddar öllu ofbeldi.
FALK: „manneskjulegur“
Þar voru engin slagsmál, barsmíð-
ar, augnstungur, nauðganir, elt-
ingaleikir á bílum og þess háttar
della. Mér þótti vænt um Colombo
og maður saknar þess, sem honum
þykir vænt um.
Þegar Falk hætti í Colombo-
þáttunum fékk hann 150.000 sterl-
ingspund — eða sem svarar 122
milljónum króna — fyrir hvern
þeirra og hafði frjálsar hendur
með handrit og fleira. Þegar hann
byrjar aftur, á hann von á enn
hærri greiðslum!
Falk er kvæntur Sheru Denese,
sem er 29 ára gömul dansmær.
Hún kveðst vera ánægð með það,
að maður hennar skuli ætla að
bregða sér í hvíta rykfrakkann
aftur. — Það var hálfgerð sorg-
arstund, þegar Peter lagði þennan
útþvælda rykfrakka til hliðar. Við
geymum hann inni í svefnherberg-
isskáp, og Peter hefur meira að
segja harðbannað mér að senda
hann í hreinsun, því að hann er
hræddur um, að hann týnist þar,
eða verði stolið. Þessi rykfrakki er
áreiðanlega mesti dýrgripurinn í
húsinu okkar.
- JOHN HISCOCK
CHAPPAQUIDDICK
Feimnis-
mál fært
í kvik-
mynda-
búning
• Hollywood er nú um það bil að
taka Edward Kennedy á hval-
beinið með þvi að sviðsetja at-
burði þeirrar örlagaríku nætur
er Mary Joe Kopechne beið bana
í Chappaquiddick. Taka myndar-
innar sem áætlað er að kosti um
eina milljón dollara, hófst í
siðasta mánuði á þeim slóðum
þar sem slysið átti sér stað.
Kvikmyndaframleiðandinn
Glenn Stensel, sem á sínum tima
ætlaði sér að gera mynd i sam-
vinnu við forsetabróðurinn Billy,
sem átti að heita „Jarðhnetur“,
sagði i viðtali, að hann hefði
kynnt sér málið mjög vel og
kannað það frá öllum hliðum.
„Ég hef svarið við Chappa-
quiddick-gátunni,“ segir hann.
„Það sem fram kemur i kvik-
myndinni mun gera annað
tveggja — að gera Kennedy að
hetju eða verða honunt til áfellis.
Hvort sem verður þá munum við
leysa gátuna, enda búum við yfir
ýmsum upplýsingum, sem ekki
hafa komið fram áður.“
Glenn Stensel hefur enn ekki
fengið leyfi yfirvalda i Massa-
chusetts tii að taka myndina á
slysstaðnum en Glenn segist ætla
KENNEDY:
„opinber persóna“
að halda ótrauður áfram. „Látið
þá bara reyna að stöðva mig,“ er
eftir honum haft.
í kvikmyndinni verður ekki
notast við nein dulnefni heldur
við raunveruleg nöfn þeirra sem
við sögu koma og lögfræðingar
Stensels fullvissa hann um, að
vegna þess, að Kennedy er „opin-
ber persóna“, geti hann engum
vörnum við komið svo lengi sem
framleiðendur myndarinnar
halda sig við staðreyndir máls-
ins. Stensel, sem jafnframt er
leikari og handritshöfundur, seg-
ist ætla að fara með hlutverk í
myndinni en er hins vegar enn á
höttunum eftir einhverjum sem
líkist Kennedy nógu mikið til að
geta leikið hann. — PETER
BRENNAN