Morgunblaðið - 11.11.1979, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1979
Tilraun
Við vitum öll, að blóm
drekka vatn. Við skulum
gera örlitla tilraun og sjá>
hvernig tekst. Þið þurfið
að útvega ykkur ljósleitt
eða hvítt blóm og síðan
örlítið vatn með lit í, t.d.
vatnsliti. Setjið nú blómið
niður í vatnið og eftir um
það bil 2 klukkustundir
hefur blómið sogið svo
mikið vatn í sig, að það er
eins á litinn og vatnið! Ef
vatnið er rautt, verður
blómið rautt, sé vatnið
blátt verður blómið blátt
o.s.frv. Þið skuluð ekki
spara litinn ef þið viljið
ná góðum árangri! Aðeins
eitt að lokum: Klippið
ekki pottablómin heima
hjá ykkur! Fáið leyfi til að
gera tilraunina!
Fáeinar gátur
1. Eg fer geysi hratt yfir og sá, sem reynir að handsama
mig, nær mér aldrei. Hver er ég?
2. Á torginu í miðbæ Reykjavíkur er stór steinn, og þegar
haninn galar, hreyfist hann alltaf. Getur þú fundið
einhverja almennilega skýringu við þessu?
3. Eg er eins og gult blóm, sem springur út tólf sinnum á
ári! Geturðu giskað á hver ég er, áður en tólf ár eru
liðin?
4. Hvítt er ég og fallegt, búið til í þeim tilgangi að þjóna
mönnunum. En meðan ég þjóna þeim og er þeim þæði
til gagns og augnayndis líður ævi mín hratt og innan
skamms er lífi mínu lokið. Vitið þið hver ég er?
•rpia}I þ QijSun; g jjeju3 uumj
anSacj ‘jntjjn jsijAojij uuiunjj 'Z 'uujjnpuiy\ \ uiusnBq
Finnið
gallana
Getið þið hjálpast
að við að finna
skekkjurnar í
myndinni? Þær
eru nokkrar —
Hvað finnurðu
margar? Biddu
einhvern annan
um að reyna líka!
Skrýtlur
Soltnir fiskar
Pabbi, eru fiskarnir ekki alltaf
svangir?
Jú, drengur minn, svaraði faðir
hans strax.
En ekki, þegar ég fer í veiðiferð.
Þá hafa þeir alltaf nýlokið við að
borða.
F uglahræða
„Haldið þér ekki, að þér ættuð
að setja upp fuglahræðu í garðin-
um yðar, frú J6na?“
„Finnst yður það vera svo
nauðsynlegt? Ég er í garðinum á
hverjum einasta degi!“
NN
Kennarinn útskýrði fyrir nem-
endum sínum, hvað NN þýddi.
Hann sagði, að það væri sá, sem
ekki vildi láta nafns síns getið,
vildi vera ónafngreindur af ýms-
um þekktum eða óþekktum ástæð-
um.
Allt í einu fór einhver nemand-
inn að hlæja hástöfum aftarlega í
skólastofunni. Kennarinn varð
reiður yfir þessari óvæntu truflun
og sagði byrstur:
„Hver var að hlæja?“
„NN“ var svarað.
Armúla 1 A. Sími 86113.
Við stórt
eða smátt
má treysta
Toyota vörulyftara
Toyota vörulyftarar hafa náð almennum
vinsældum fyrir styrkleika — góðan
frágang og lítinn viðhaldskostnað.
Toyota býður fjölbreytt úrval
vörulyftara allt frá
700 kg,- 30 tonna lyftigetu.
Toyota vörulyftara er hægt að fá
drifna fyrir rafmagni, - gasi, -
bensíni, - eða diesel.
Hvar sem auka á afköst og nýtingu á
vinnu- og lagerplássi, er þörf á
Toyota lyftara.
Toyota er stærsti framleiðandi
vörulyftara í Japan — notið yður
reynslu þeirra og hugkvæmni.
•TOYOTA
NYBÝLAVEGI 10 - KÓPAVOGI - SfMI 44144
Betri gæði
og fljótari þjónusta
- það er einkenni
TOYOTA
I
/ j
__
TOYOTA
LYFTARAR