Morgunblaðið - 11.11.1979, Side 28
76
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. NÓVEMBER 1979
vlfP
M0R&JK/-
ICAFf/NU
V ,- íl
09
GRANI GÖSLARI
HOVLE-
___
Kominn yfir 40. — Við seljum
þegar hann er kominn niður í
38!
Þetta er einn erfiðasti golfvöllurinn sunnan jökla!
Því hlakkar í þér? — Á næsta
flóði ert það þú, — vinurinn!
„ Viljum helst eiga
einhverja framtíð’
BRIDGE
Umsjón: Páll Bergsson
Tilraun er nú gerð með skipu-
lagða starfsemi bridgeskóia í
Reykjavík. Námskeið fyrir byrj-
endur er vel á veg komið og
þolinmóðir nemendur á ýmsum
aidri virðast hafa gaman af.
Framan af er kennslan í mjög
skipuiögðu formi en smám saman
reynt að ná fram cðlilegu frum-
kvæði.
Sérstaklega undirbúin spil eru
óhjákvæmilegur hiuti kennsiunn-
ar. Hér eitt þeirra, suður gefur.
COSPER
(C)PIB
Norður
S. 4
H. D1084
T. K542
L. K854
COSPER 8176
Vestur
S. K10853
H. 73
T. DG109
L. D10
Austur
S. G9
H. 52
T. Á8763
L. ÁG92
Ósköp er það ömurlegt að foreldrarnir skuli ekki
koma til að sækja hann.
Kæri Velvakandi!
Fyrir stuttu sögðu pabbi og
mamma okkur systrunum að lesa
bók sem heitir „Heimur á helvegi"
(A Bluprint for Survival"). Við
erum of ungar til þess að skilja
allt sem í bókinni stendur en ekki
það ungar að við skiljum ekki
kjarnann í efni bókarinnar. Pabbi
segir t.d., að hagvöxtur sé það
sama og að safna að sér rusli
þangað til maður verður sjálfur að
rusli enda kolvitlaust lífsgæða-
mat. Mamma segir, að það sé að
kaupa sér tíu rauð epli, bíta í þau
öll og fleygja þeim og kaupa tíu
græn epli.
Eitt er víst, að það hefur haft
mikil áhrif á okkur að lesa bókina
og það, sem pabbi og mamma hafa
sagt okkur. Við horfum á flesta
þætti í sjónvarpinu um dýralíf og
umhverfismál og okkur finnst
hræðilegt hvað maðurinn hefur
gert. Við sjáum sjálfar daglega
margt af því sem fram kemur í
bókinni og verðum alltaf meira og
meira undrandi og stundum næst-
um því hræddar. Ruddaskap, til-
litsleysi, hugsunarleysi, rusl,
skemmdarverk, drasl, t.d. í búð-
um, sóun á öllum sköpuðum hlut-
um, t.d. matvælum, eyðingu á
umhverfi o.s.frv. ber daglega fyrir
augu okkar þegar við höfum aug-
un opin fyrir slíku.
Það að maðurinn hefur slitið
lífskeðjuna hvað eftir annað
finnst okkur ef til vill alvarlegast
af þessu öllu. Við sjáum sjálfar og
vitum svo mörg dæmi um þetta.
Er ekki til nægilega stór hópur
manna hér á landi sem vill gera
eitthvað í þessum málum? Því að
eftir allt puðið í skólanum viljum
við helst eiga einhverja framtíð.
Stefánsdætur.
Bréf þetta sem birtist hér að ofan
er frá þremur systrum og væri
gott að fá að heyra frá fleiri
krökkum um þetta efni. Hvernig
finnst ykkur fullorðna fólkið búa
fyrir ykkur framtiðina?
• Búkovski
bullar
Vladimir Búkovski segir svo
í Morgunblaðinu sunnud. 28.10.:
„Loks var um að ræða með-
ferð, sem einkum var beitt þegar
Suður
S. ÁD762
H. ÁKG86
T. -
L. 763
Fyrst spreyta nemarnir sig á
sögnunum en að því loknu er sagt
fyrir um lokasögn og útspil. í
þessu tilfelli á vestur að spila út
tíguldrottningu gegn fjórum
hjörtum. Að spilinu loknu er síðan
farið yfir spilið í heild á sýn-
ingartjaldi.
Suður Vestur Norður Austur
1 spaói pass 1 grand pass
2 hjörtu pass 3 hjörtu pass
4 hjörtu pass pass pass
Spil norðurs batna við hjarta-
sögn suðurs og furðu mörgum
tekst að ná hjartagameinu eftir
þessari eðlilegu leið. En eðlilega er
úrspilið erfiðara enda auðvelt að
falia í þá gildru að taka trompin
og vinningsvonin þar með úti.
Sumum kann að þykja einkenni-
legt að láta vestur ekki spila út
trompi. En einnig er á það bent, að
með því fækki trompslögum
sagnhafa. Vestur sé þá í rauninni
að koma í veg fyrir víxltrompanir
og að slíkt er oft besta vörnin
þegar blindur velur skýrt á milli
tveggja lita.
■
Lausnargjald í Persíu
111
allt hafði byrjað og þar til nú.
Hana hafði ekki órað fyrir að
þetta myndi þróast svona hratt
og ákaft. Hún var ein með
honum. Ekkert var til i heimin-
um nema þau tvö. Og hún fann
að hugur hans til hennar var
jafn einlægur. Það hallaðist
hvergi á. Hún hafði talað um
sjálfa sig, líf sitt og hjónaband
og það hafði verið eins og hún
væri að lýsa ævi einhverrar
óviðkomandi manneskju. Að
fljúga frá London til Parísar til
að standa við hlið Logans í
einhverju giæsisamkvæminu,
kiædd fötum sem kostuðu árs-
laun verkamanns, snæddi dýr-
indis mat og drakk göfug vin,
myndaði yfirborðstengsl við
fóik sem skipti hana engu og
stóð nákvæmlega á sama um
hana. Alit var þetta svo fjar-
lægt henni og þegar hún var
búin að segja honum frá því
vildi hún helzt geta gleymt
þessu öliu. Hann hafði hins
vegar aldrei trúað henni fyrir
neinu um sig.
Hann var hann og hún tók því
sem eðlilegum hlut. Og nú
hugsaði hún aldrei um fram-
tiðina. Hún lifði fyrir hvern dag
og tók gieðinni fagnandi og fuii
þakklætis. Þetta var allt eins og
fagur draumur, þrunginn hlýju
og unaði.
Þennan morgun færði hann
henni morgunverðinn á bakka.
Hún bað hann að borða með sér.
Síðan fór hún út að glugganum.
Peters hélt utan um hana.
— Ég verð að fara til Nizza,
sagði hann. — Mér finnst
óbærilegt að þurfa að fara frá
þér en Resnais verður ekki hér.
Ég kem eins fljótt og ég get og
seinna i dag var mér að detta í
hug að fara með þig niður á
ströndina. Hvernig litist þér á
að fara i sjóinn stundarkorn?
Hún hailaði sér að honum.
Hún horfði niður á sléttan,
biáan sjóinn.
— Ertu ekkert hræddur um
að ég sleppi?
Ég er býsna góður sund-
maður, sagði Peters og kyssti
hana á hárið.
Hann hafði aldrei kynnzt
konu eins og henni. Hún treysti
honum fuilkomiega, krafðist
einskis, spurði einskis. Hún
spurði einskis vegna þess hún
treysti honum og skiiningurinn
sem rikti millum þeirra var svo
djúpur að öii orð voru óþörf.
Hún spurði hann ekki hvern-
ig hennar mál stæðu. En hann
vissi að hann varð að gera eins
og samvizkan, eins og hjarta
hans bauð honum. Damsakus
var á þvi að eiginmaður hennar
myndi ganga að kröfum þeirra.
Said Homsi var þeirrar skoðun-
ar. En hvorugt þeirra vissi
fyrir vist. Og hún vissi að
Logatí Field var ekki sá maður
að hann myndi gefa Imshan
upp á bátinn fyrir konu sem
hann kærði sig ekki um iengur.
— Ég sakna þín á meðan þú
ert í burtu, sagði Eiieen. — Ég
reyni að ljúka bókinni sem þú
lánaðir mér.
Hann sneri henni að sér og
kyssti hana. Það leið góð stund.
Eftir Evelyn Anthony
Jóhanna Kristjónsdóttir
sneri á islenzku
Þegar hann kom niður hafði
Madeleine ekið Renaultbilnum
út úr skúrnum.
Þú verður líka hrifinn af
útsýninu. Það er svo heiðskírt í
dag.
Logan var að snæða morgun-
verð í svitu sinni í Okurahótel-
inu þegar hann fékk skeytið frá
Janet.
„Khorvan myrtur. Engin
breyting í samningum. Vin-
samlegast sendu telex eins
fljótt og hægt er. Áfjáð í fréttir.
Janet.“
Hann hafði sofið ljómandi vei
eftir langan vinnukvöidverð
með hópi japanskra oliu-
sérfræðinga. Hann var afslapp
aður á likama og sáJ. Japönsku
innflytjendurnir og stjórnin
höfðu faliizt á aðild, með skil-
máium sem myndu tryggja
þann ágóðahlut sem dygði tii að
fjármagna byggingu nýrrar
olíuhreinsunarstöðvar. Nú var
verið að ganga frá samnings-
drögum og hann bjóst við að
skrifa undir þau áður en hann