Morgunblaðið - 29.11.1979, Side 8

Morgunblaðið - 29.11.1979, Side 8
8 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979 Erna Ragnars- dóttir: Eitt megineinkenni þjóðfélags sem býr við frumstæða atvinnu- hætti og erfið lífskjör er að umræða um listir og menningu og flest það sem varðar inntak lífsins og tilgang á erfitt upp- dráttar. Öll athygli beinist að grund- vallarþáttum eins og þeim hvernig koma megi hjólum at- hafnalífsins til þess að snúast, hvernig grynnka megi á skuldum og tilvera alls þorra fólks er þrotlaus barátta fyrir lífsnauð- synjum. Þær kosningar sem nú fara í hönd munu snúast um það fyrst stefnir að fullkomnun óháður því hvað aðrir hafast að. Hann er þó undir áhrifum frá öllu umhverfi sínu, einnig öðrum listamönnum en sjálf listsköp- unin og þróun hennar er honum fyrir öllu, sala vörunnar og dreifing er flestum listamönnum minna atriði. Fyrirtækin lúta beint iögmál- um þjóðfélagsins. Listamaður- inn fer sínar eigin leiðir að sannleikanum. Fyrirtækin standa undir sér fjárhagslega eða verða gjaldþrota en fáir listamenn lifa af list sinni né eiga þess kost. Flestir íslenskir listamenn vinna aðra vinnu samhliða listsköpun sinni og tefja eða hefta þannig einatt þróun listar sinnar. Samviska stjórn- málamannanna Listamenn og vísindamenn eru ötulustu baráttumenn hverr- ar þjóðar fyrir frelsi hennar og framförum, fyrir rækt hennar við þjóðlegan arf og mannlegri reisn og þeir eru endanlega traustustu útverðir hennar gegn spillingu og hvers konar villutrú. Hvaða form sem listamaður- inn velur sér verður hann að tjá okkur brot af sannleika á nýjan hátt og er þá iðulega óvæginn í dómum sínum um menn og málefni. Þannig fá listamenn oft á sig orð fyrir að vera niðurrifs- afl og þess þá ekki gætt að þeir eru hluti af sinni samtíð og endurspegla alltaf það lífsvið- horf sem er ríkjandi, trú, tækni- kunnáttu, verðmætamat. Stjórn- málamenn ímynda sér oft að listamenn séu þeim andsnúnir, og oft er það svo, en þeir verða einfaldlega að sætta sig við það að geta ekki eignað sér frjálsa listamenn, þá listamenn sem SÓKN Í MENNINGARMÁLUM og fremst hverjum sé best treystandi til þess að stuðla að því að hér þrífist athafnalíf og menning sem samrímist þörfum okkar og sjálfsvirðingu. Listamenn og athafnamenn íslensk menning tengist öllum þáttum þjóðlífsins en rís hæst í verkum íslenskra listamanna. Sjálfstæðisflokkurinn hefur skilning á því að listamönnum er höfuðnauðsyn að hafa frelsi til athafna, að vera sem allra mest óháðir. Að því leyti eru þeir náskyldir athafnamönnum þjóð- félagsins sem byggja upp fyrir- tæki og skapa verðmæti, en þeir eru einnig að mörgu leyti ólíkir þeim. Fyrirtækin einbeita sér að framleiðslu vöru sinnar og lúta ef vel á að vera markaðslögmál- um um framboð og eftirspurn, sem krefst samkeppni í vöru- gæðum um hylli neytenda. Lista- maðurinn vinnur að list sinni og mestu máli skipta í hverju þjóð- félagi. Skynsamir stjórnmála- menn líta á listamenn sem samvisku sína. Sagan lýsir mörgum stjórnmálamönnum sem hafa borið gæfu til að hafa listamenn með sér og hafa fyrir það náð meiri áhrifum en aðrir. Menningarleg stéttaskipting Afþreyingariðnaður í margs konar mynd ryður sér æ meira til rúms, að stórum hluta fram- leiddur beinlínis til þess að seljast, sem er andstætt mark- miði alvarlegra listamanna. Þó ber þess að gæta að t.d. popp- tónlist og auglýsingaiðnaður hefur víða náð miklum listræn- um gæðum. Umhverfið sem við höfum verið að móta á síðustu áratugum ber þess vott að hafa orðið til á stuttum tíma við mikla þenslu. Það gafst ekki ráðrúm til þess að vanda hlutina nægilega vel né að miða forsend- ur við okkar sérstöku aðstæður. Dýrtíð, langur vinnutími fólks, sú mikla eftirsókn eftir efnislegum gæðum sem tak- marki í sjálfu sér, sem því miður er of mikið hamrað á af vinstri flokkum og forystumönnum verkalýðshreyfinga, skynsemis- og raunsæistrúin sem hefur ein- kennt umhverfið og alla umræðu undanfarna áratugi, að miklu leyti án tilfinninga, trúar, feg- urðar og hugmyndaauðgi, — allt hefur þetta án efa stuðlað að því að einangra listina frá daglegu lífi. Verði ekki brugðist við þessari þróun er hættan m.a. sú að hér skapist menningarleg stéttaskipting milli þeirra sem hafa kynnst þeim ævintýraheimi sem listirnar hafa að geyma og hinna sem ekki hafa átt þess kost. Hér er um að ræða fyrir- bæri sem er algengt hjá öðrum þjóðum en hefur ekki tíðkast á Islandi fram til þessa. Listin ekki féþúfa rikisins Ábyrgð þess fólks sem er í forsvari þjóðarinnar hverju sinni er mikil, — að þeir meti þýðingu íslenskrar listar fyrir okkur öll og skilji nauðsyn þess að allar Iistgreinar verða að fá að lifa og þróast. Þeir verða einnig að hafa þekkingu og skoðun á því hvaða listgreinar þarf að styðja vel við, hvenær og hvernig. Stefna Sjálfstæðisflokksins í menningarmálum kveður á um að gerð verði heildarathugun á stöðu listanna í landinu, því fjármagni sem varið er til lista og hins vegar þeim beinu tekjum sem ríkissjóður hefur af þeirri starfsemi, með það fyrir augum að nýta betur það fjármagn sem þegar er veitt til menningarmála og koma jafnframt í veg fyrir að ríkið hafi listastarfsemi að fé- þúfu. Rétturinn að lifa menningarlifi í stefnu flokksins er, meðal annarra mikilvægra atriða, lögð mikil áhersla á nauðsyn þess að listfræðsla og skapandi listiðkun sé aukin í almennum skólum landsins. Börn og unglingar þurfa jafnframt að fá að kynn- ast skáldum, tónlistar- og myndlistarmönnum, arkitektum og kvikmyndagerðarmönnum og verkum þeirra á óþvingaðan máta. Sjálfstæðisflokkurinn telur brýnt að almenningi sé auðveld- uð þátttaka í listrænu starfi, m.a. með lækkun eða niðurfell- ingu tolla af vörum til listsköp- unar. Hér er um undirstöðu- atriði að ræða í þeirri stefnu að listin verði eðlilegur þáttur dag- legs lífs og að allir hafi mögu- leika á að lifa menningarlífi hér á landi. 29277 EIGNAVAL r Furugrund 2ja herb. Ný íbúð á 3. hæö, ekki fullgerö en íbúöarhæf næstu daga. Búiö aö ganga frá hreinlætistækjum en eldhúsinnrétting er í smíöum og fylgir með óuppsett. Verö 20 millj. Beöið eftir húsnæöismála- láni 5.4 millj. Laus strax. Teikn- ingar og nánari uppl. á skrif- stofunni. EIGNAVAL •/( Miðbæjarmarkaðurinn Aðalatræti 9 sími: 29277 (3 línur) Grétar Haraldaaon hrl. Slgurjón Arl Slgur)ónaaon a. 71551 Bjarnl Jónaaon a. 20134. 43466 Dvergabakki — 2 herb. Verulega vönduð og falleg íbúð á 3. hæö. Suður og noröur svalir. Verð tilboð. Langabrekka — einbýli 130 fm. á einni hæö. 3 svegnherb, 2 stofur. Húsið er ekki alveg fullfrá gengið. 30 fm. bílskúr. Fasteignasalan EIGNABORG sf Hamraborg 1 200 Kópavogur Sánar 43466 & 43805 Sðlusfj. Hjðrfur Gunnarss. Sölum. Vilhj. Einarsson, lögfr. Pétur Einarsson. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU Fasteignasala — Bankastræti SÍMAR 29680 — 29455 — 3LÍNUR Sérhæö austurbær — bítskúr Ca. 150 ferm íbúð á 1. hæö í fjórbýlishúsi sem er stofa, boröstofa, 4 herb., nýtt eldhús meö eikarinnréttingum. Flísalagt baö. Tvennar svalir. Góö eign. Bein sala. Lindarbraut — 4ra herb. Seltj. Ca. 100 ferm íbúð á 1. hæð í tvíbýlishúsi sem er stofa, borðstofa, tvö herb., eldhús og flísalagt baö. Bílskúr. Nýlegt tvöfalt gler. Góö eign. Bein sala. Jónas Þorvaldsson sölustjóri. Heimasími 38072. Friðrik Stefánsson viöskiptafræöingur. Heimasími 38932. \

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.