Morgunblaðið - 29.11.1979, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979
17
Hreggviður Jónsson:
Fjórða manneskjan
í laugardagsblaði Þjóðviljans
er rætt við fjórðu manneskjuna
á lista Alþýðubandalagsins í
Reykjavík, Guðrúnu Helgadótt-
ur, en eins og allir vita hefur
jafnrétti kynjanna náð fram að
ganga á þeim lista með þeim
hætti, að þar eru hvorki karlar
né konur, heldur bara manneskj-
ur.
Ekki er nema eðlilegt, að
manneskja þessi sé skáldleg í
svörum, enda hóflega farið með
það sem rétt heitir hjá venjulegu
fólki. Blaðamanneskjan sem
spyr (e.k.h.) er væntanlega sú
sama, sem í Morgunpóstinum nú
í dag taldi vænlegast að dulbúast
fyrir þá hjá Alþýðubandalaginu
í gervi jólasveina til að afla þeim
atkvæða. Ekki væri von á að fólk
kysi þá í réttu gervi og svo gætu
þeir tekið skeggið ofan, þegar
búið væri að kjósa og væntan-
lega sýnt sín réttu andlit, eins og
eftir síðustu kosningar.
Blaðamanneskjan spyr fjórðu
manneskjuna, sennilega, þegar
hún er að hella upp á könnuna á
„Eg berst
á fáki
fráum...
— bók eftir Sigur-
geir Magnússon
„ÉG berst á íáki fráum“ neínist
ný bók eftir Sigurgeir Magnús-
son.
„Sigurgeir Magnússon er kunn-
ur hestamaður og hefur margan
galinn folann gert að gersemi",
segir m.a. í fréttatilkynningu frá
útgefanda. „Hann skrifaði í nokk-
ur ár fasta þætti um hesta í blöð,
og hefur látið sig hrossarækt og
meðferð hrossa miklu skipta. Sig-
urgeir var fyrsti eigandi Fannars
og segir hann ýmislegt frá þeirri
afburðaskepnu og örlögum henn-
ar, en þess utan fjallar bók
Sigurgeirs um fjöldann allan af
fjörmiklum hestum og mönnum
frá fyrri og seinni tíð. Hann segir
frá fjörhestum, eins og þeir voru,
en þeir virðast ekki leyfilegir um
þessar mundir."
Bókin er 174 bls. að stærð.
Útgefandi er Bókaútgáfan Örn og
Örlygur.
kosningaskrifstofu Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavík, auð-
sjáanlega er verið að sanna fyrir
háftvirtum kjósendum að í eld-
húsinu geti hún líka tekið til
hendinni: „Nú hefur þú setið í
borgarstjórn í eitt og hálft ár.
Hvernig hefur þér líkað sú
vinna?" Svar: „Bæði vel og illa.
Sumt af því sem ég lofaði í fyrra
hefur mér og mínum félögum
tekist. Fyrst af öllu settum við
samningana í gildi eins og við
lofuðum. Starfsmenn Reykja-
víkurborgar fengu sína samn-
inga í gildi, og þar sem einn
þeirra vildi ekki fallast á það og
höfðaði mál á hendur Reykja-
víkurborg, höfum við nú dóms-
úrskurð fyrir því, að við höfum
efnt það meginkosningaloforð?
Og það eiga stjórnmálamenn að
gera.“
Voðalegur óviti er nú fjórða
manneskjan að halda, að nokkur
einasti maður taki mark á svona
bulli, enda segir hún síðar í
viðtalinu: „Það er nefnilega
betra að halda einhverri vitleysu
fram en alls engu.“ Héraðsdóm-
urinn staðfesti aðeins það, að
vinstri meirihlutinn þurfti ekki
að standa við kosningaloforðið
um samningana í gildi. Hann
tók einfaldlega ekkert mark á
samþykkt borgarstjórnar um að
greiða fullar verðbætur á öll
laun, frekar en þar væru eintóm-
ir „Óvitar". Það væri ekki úr vegi
að stofnaður væri kosninga-
svikadómstóll, eins og kom fram
í „Hundadagar í hnotskurn" í
Morgunblaðinu sunnudaginn 18.
nóvember s.l.
Blaðamanneskjan spyr um
ýmislegt fleira í þessu viðtali við
fjórðu manneskjuna, sem hefur
lagt sitt af mörkum til barna-
bókmennta samtíðarinnar, að
því er upplýst er. Er þar imprað
á því, að hún hafi hægar um sig í
þessari kosningabaráttu en í
borgarstjórnarkosningunum. Og
hún svarar: „Já, það hef ég gert
af ýmsum ástæðum. í fyrsta lagi
held ég að Reykvíkingar þekki
betur til mín nú en i fyrra,..."
„í öðru lagi eru þessar kosningar
fullkomið ábyrgðarleysi gagn-
vart fólki. Þjóðin svaraði því í
fyrra hvernig ríkisstjórn hún
vildi,...“ „í þriðja lagi er kosn-
ingabaráttan orðin slíkur
skrípaleikur, að varla er sæm-
andi fólki með sjálfsvirðingu að
taka þátt í henni,“ „Fjórða
ástæðan er þá sú, að um þessar
KOSNINGAGETRAUN
RAUÐA KROSSINS
mm
Bjarnl Bragi Jóns-
son hagfroðingur
ÉG SPÁI:
Fjöldi þingmanna '78-79 Spá
Alþýðubandalag 14 //
Alþýöuflokkur 14 1'0
Framsóknarflokkur 12
Siálf'-’ sflokkur 20 4S
Mórir flokkar og utanflokka 0 2/
Samtals 60 60
Svona einfalt er aö vera með. Klippið þessa
spá út og berið saman við aðrar sem birtast.
ALLIR MEÐ!
+
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
HJÁLPARSJÓDUR
Hreggviður Jónsson
mundir erum við að setja saman
fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1980, og því
fylgir mikið starf." „í fimmta
lagi treysti ég mætavel þeim
þingmönnum tveimur, sem nú
eru í fríi... Ég vona bara að þeir
fari ekki að klifra upp í skurð-
gröfu eða dansa diskódansa."
Já, Reykvíkingar þekkja hana
betur en í fyrra og vara sig á
kosningaloforðum hennar. Ann-
ars undrar mig hvort hér er um
alvöruframboð að ræða eða er
þetta ekki skrípaleikurinn, sem
hún á við? Fjórða manneskjan
segir: „Greiðslustaða borgarinn-
ar er betri nú um áramót en
áður,...“ Þetta er vegna þess að
ekki eru greidd laun samkvæmt
samþykkt meiri hluta borgar-
stjórnar um að greiða „fullar
verðbætur á öll laun“. Og ef
marka má útreikninga BSRB
•vantar töluvert á að samning-
arnir séu í gildi.
Það er skemmtilegt að sjá hve
fjórða manneskjan er „himinlif-
andi“, þegar hún segir í viðtal-
inu: „En ég mun vissulega sakna
þess starfs," eftir að hafa verið
spurð um, hvað verði nú um
starf hennar í Tryggingastofn-
uninni, en sumir munu hrfa
áhyggjur af því. „Það hefur verið
stórkostlegt að vinna þar þrátt
fyrir mikla erfiðleika í fyrstu.
Og ég mun sakna nokkurra
kollega minna þar. Og ég ætla
ekki að vera á alþingi allt lífið.“
Þá vitum við það, sennilega
hópast þeir kjósendur í kringum
hana, sem hafa fengið fullar
verðbætur á laun sín eða ætli
þeir blóti á laun eitthvert annað
stjórnmálaafl?
Og verst er þó, að þótt hún sé
hálaunamanneskja, að eigin
sögn og taki laun samkvæmt 23.
lfl. BSRB, er hún þó ekki full-
södd af þeim, en til allrar
hamingju hefur hún alveg
gleymt að telja nokkrar auka-
sporslur, svo sem örfáar nefndir
á launum, borgarfulltrúalaun, að
ógleymdum ritlaunum sínum.
Enda segir hún í þessu afspyrnu-
góða viðtali: „En við stjórnmála-
mennirnir eigum að gera þegn-
um þessa þjóðfélags lífið eins
gott og fallegt og unnt er með
því að stjórna landinu vel. (Þar
hitti hún naglann á höfuðið.)
Þegar við skiptum arðinum af
vinnu okkar jafnt, getum við
farið að lifa og njóta þess að
vera til. Hugsið ykkur hvað þeir,
sem nú hirða allan þennan arð af
fávisku sinni, verða hamingju-
samir í sambýlinu við okkur.“
(Vantar einhvern prest?) Ég bíð
þess, að fjórða manneskjan
sendi mér arð til jöfnunar á
launum, sem fyrst. Annars er
verst með tímahrakið hjá henni,
en hún segir: „Ég öfunda hana
Svövu svolítið fyrir að nú hefur
hún tíma til að skrifa, sem mér
þykir líka gaman, en með um-
hyggju fyrir bókmenntunum í
huga er betra að Svava hafi tíma
til bess en ég.“
>
An þess að ég beri umhyggju
fyrir bókmenntagildi einstakra
verka hennar, þá vona ég bara að
„Óvitinn" hafi verið saminn af
umhyggju fyrir þakklátum börn-
um, en ekki sem framlag í
leikaraskap stjórnmálabarn-
anna í Alþýðubandalaginu. For-
sjónin forði mér frá því, að
fjórða manneskjan verði smá-
skotin í mér, eins og Vilmundi.
Reykjavík 26.11.79.
í þessari bók er hann á ferö með Agnari Kofoed-Hansen um grónar ævislóöir hans, þar sem
skuggi gestsins meö Ijáinn er aldrei langt undan. Gerö eru skil ættmennum Agnars báðum megin
Atlantsála og birtu brugöið á bernsku hans undir súö á Hverfisgötunni, þar sem hann í
langvinnum veikindum dreymlr um aö íljúga. Rakiö er stórfuröulegt framtak hans og þrautseigja
í danska flughernum og flugferill hans í þjónustu erlendra flugfélaga, þegar stundum kvaö svo
rammt aö í náttmyrkri og þoku, aö lóða varö á jörö með blýlóði.
Heimkominn hefur hann forgöngu um stofnun flugfélags — og
hefst þá brautryðjandaflug hans, upphaf samfellds
flugs á íslandi, oft á tíöum svo tvísýnt flug
aö nánast var flogið á faðirvorinu.
En Jóhannesi Helga nægir ekki aö
rekja þessa sögu. Hann lýsir af
Á brattann; minningar og til inn í hugarheim Agnars,
Agnars Kofoed-Hansen utan v’® t,ma sögunnar, og
er saga um undraverða 9efur henni Þann,9 óvænta
þrautseigju og þrek- v,cld’
raunir meö léttu og
bráöfyndnu ívafi.
Höfundurinn er Jó-
hannes Helgi, einn af
sniilingum okkar í ævi-
sagnaritun meö meiru.
Svo er hugkvæmni
hans fyrir aö þakka aö
tækni hans er alltaf ný
meö hverri bók.
Almenna
bókafélagið
Austurstræti 18
sími 19707
Skemmuvegi 36
sími 73055