Morgunblaðið - 29.11.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979
21
'Vegleysur ogr viiistri stjórn
UM svipað leyti og far-
menn gengu af skipum
sínum í harðvítugri
kjarabaráttu, er þeir
háðu fyrir bættum kjör-
um, lýsti Guðmundur J.
Guðmundsson, formaður
V er kaman nasam bands
íslands því yfir, að ríkis-
stjórnin hafi brugðizt
gjörsamlega. Þetta gerð-
ist er 10 dagar voru
liðnir af maímanuði.
Guðmundur J. Guð-
mundsson sagði:
„Verkamannasamband-
inu er helgast af öllu rétt-
indi sinna félagsmanna,
sem eru á lágum launatöxt-
um, og ef hópar manna
með hærri laun fá hvers
konar réttindi og fríðindi,
þá glatar ríkisstjórnin því
trausti, sem verkafólk hef-
ur haft á henni og mér
sýnist það mikil ógæfuleið,
sem þeir eru komnir út á.“
„Við teljum," sagði Guð-
mundur, „að í stað þess að
vernda lægri laun og
minnka launamisrétti í
Guðmundur og ríkis-
stjórnin, sem brást
landinu, þá hafi bilið auk-
izt að undanförnu. Flug-
menn sprengdu þetta gjör-
samlega, en einnig er um
taumlausar verðhækkanir
að ræða. Ríkisstjórnin hef-
ur brugðizt gjörsamlega í
tveimur mikilvægustu at-
riðunum, að berjast gegn
verðbólgu og að auka
launajafnrétti.
Haldi svo áfram sem
horfir á þessari braut hjá
ríkisstjórninni, þá glatar
hún trausti verkamanna,
en það er einmitt Verka-
mannasambandið, sem
mest hefur stutt ríkis-
stjórnina í ýmsum málum
og bundið við hana mestar
vonir. Nú teljum við að hún
fari villur vegar og er mál
að linni."
Menn skyldu halda, að
fokið væri í flest skjól fyrir
vinstri stjórninni, er annar
guðfaðir hennar dæmdi
hans svo hart. Svo var þó
ekki, ríkisstjórnin sat
áfram og kannski er Guð-
mundur nú að uppskera
þakklætið fyrir stuðning
við ríkisstjórn, sem „brugð-
izt hafði gjörsamlega."
Rafmagn til
húsahitunar:
Hlutfallslega
meiri hækk-
un á síðasta
ári en áður
„ÞAÐ ERU ákvæði í gjaldskrá
Rafmagnsveitna ríkisins sem
kveða svo á, að rafmagn til
húsahitunar skuli hækka sam-
fara hækkuðu gasolíuverði,“
sagði Páll Flygenring ráðuneyt-
isstjóri í iðnaðarráðuneytinu i
samtali við Mbl. í gær.
„Reyndin hefur þó ekki verið sú
að rafmagnið hafi hækkað til
jafns við gasólíuna nema að hluta
til. Ríkisstjórnin hefur þó farið æ
meira inn á það síðastliðið eitt ár
að hækka rafmagn til húsahitunar
til að ekki verði jafn mikil röskun
á því jafnvægi sem verið hefur í
þessum málum undanfarin ár.
í dag er rafmagn til húsahitun-
ar snöggtum ódýrara heldur en
gasolían, enda hefur olían hækkað
mikið að undanförnu.
Reyndin er sú í gegnum árin að
Rafmagnsveitunum hefur ekki
verið heimilað að hækka raf-
magnsverð á miðju tímabili þótt
gasólían hafi hækkað," sagði Páll
Flygenring ennfremur.
Grimur Sæmundsen:
Hann ma
ekki verma
varamanna-
bekkinn
íslenzk íþróttahreyfing telur
um 70.000 manns. Þrátt fyrir að
vera stærsta félagshreyfing á
íslandi hefur hún haft lítil áhrif á
framgang hagsmunamála sinna á
Alþingi og hvað eftir annað þurft
að beygja sig fyrir skilningsleysi
stjórnvalda á gildi íþrótta fyrir
andlega og líkamlega heilsu al-
mennings.
Ætlun mín með þessum pistli
er að benda íþróttafólki á, að
íþróttahreyfingunni er lífsnauð-
syn að eiga fulltrúa á Alþingi,
sem skilur og þekkir málefni
hennar af eigin raun og hefur
áhuga á að vinna að framgangi
þeirra. Þessi fulltrúi er Ellert B.
Schram. Hann hefur þegar sýnt
það og sannað að ötulli talsmann
á Alþingi getur íþróttahreyfingin
vart kosið og mættu fleiri fylla
hóp með honum.
Ellert er formaður stærsta sér-
sambands innan Í.S.Í og er þannig
í nánum tengslum við hið al-
menna starf íþróttafélaganna.
Hann hefur m.a. fengið samþykkt
lög um slysatryggingu íþrótta-
manna, þ.e. verði íþróttamaður
fyrir meiðslum á æfingu eða í leik
veita þau rétt til slysabóta frá
Tryggingastofnun ríkisins eins og
um atvinnuslys sé að ræða.
Meðal þeirra mála sem Ellert
hefur barist fyrir að undanförnu
á Alþingi er að tekjur ríkisins af
aðflutningsgjaldi á íþróttavörum
verði felldar niður en tekjur
ríkissjóðs af þessum gjöldum eru
án sölusk. á þessu ári yfir 200
Grimur Sæmundsen
milljónir króna. Sem fulltrúi í
fjárveitinganefnd hefur Ellert
fengið framlög til íþróttastarf-
semi hækkuð verulega og síðast
en ekki síst barðist hann fyrir
breytingu á lögum íþróttasjóðs
sem olli grundvallarbreytingu á
framkvæmdum íþróttafélaga.
íþróttafólk — Ellert sýndi
djörfung íþróttamannsins með
því að taka baráttusæti á lista
Sjálfstæðisflokksins. Ellert mun
berjast fyrir íþróttahreyfinguna
af sama krafti í sölum Alþingis,
og má því ekki verma varamanna-
bekkinn á næsta kjörtímabili.
Jolatæki
ársins
PcsOj/CiOi
Verö aöeins:
kr. 155.765.
Stereo
29800
Sendum um
allt land.
Skipholti19
BUÐIN
—----