Morgunblaðið - 29.11.1979, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979
41
fclk í
fréttum
Methafinn
með magasár
+ TEXASBÚAR þykja æði
drjúgir með sig. Um daginn
gerði 29 ára gamall Texasbúi,
Ronnie Farmer að nafni, til-
raun til þess að setja nýtt met
í piparáti — jalapeno-pipar ku
hann heita þessi pipar. Hann
hafði áður gert tilraun til þess
að hnekkja piparáts-metinu,
en mistókst það i það skipti.
Nú tókst Farmer að setja nýtt
met. Á 14 mín. og 19 sek. tókst
honum að borða 100 jalapeno-
pipara. Viðstaddir voru 75
áhorfendur. Hann sagði blaða-
mönnum, að á eftir átið hefði
hálsinn á sér verið sár sem
hann væri að kyngja sand-
pappír. Þegar ég var búinn að
borða piparinn var ég orðinn
alveg lystarlaus, sagði Farm-
er, sem gengur með magasár.
Allir börðu
hana!
+ Kvikmyndaleikkonan Zsa
Zsa Gabor var um daginn i
sjónvarpsupptöku í þætti sem
sjónvarpsstirnið Mike Doug-
las annast. Þar á hún að hafa
sagt honum í spjalli um lifið
og tilveruna, að ailir eigin-
menn sínir — en hún hefur
verið gift sjö sinnum — hafi
lagt á sig hendur. — Mér líkar
það í sjálfu sér vel. Og mér
þykir það plús fyrir mig, að ég
skuli geta gert mann svo
reiðan að hann berji mig. —
Að vísu, hafði hún bætt við,
voru þeir mjög misjafnlega
harðhentir við mig, sumir
dálítið mikið, en aðrir minna!
Hann fann loks föður sinn
+ Á ÞESSARI mynd eru am-
erískir feðgar, sem hér hittast
eftir áralangan aðskilnað. Bak
við þessa mynd er allnokkur
saga. Ungi maðurinn á mynd-
inni (sonurinn með gleraugun)
heitir Walter Kulla. Hann var
sendur i Víetnamstríðið fyrir 14
árum en dag nokkurn höfðu þau
fengið tilkynningu um að sonur-
inn hefði fallið á vígstöðvunum.
Foreldrar Walters skildu. Sá
skilnaður íór ekki fram með
friðsamlegum hætti, þvert á
móti. Svo er sem fullur fjand-
skapur hafi verið með þeim
hjónunum. Móður Walters barst
nefnilega tilkynning um það
siðar, að Walter hefði ekki fallið
á vígstöðvunum og væri sprell-
lifandi. Sú gamla lét karl föður
hans ekkert um þetta vita. Þeg-
ar svo Walter kom heim úr
stríðinu hóf hann að leita föður
síns. Sú leit bar svo loks árangur
nú fyrir skömmu. Þá fann hann
föður sinn í bænum Robbinsville
í New Jersey-fylki. Urðu þar
miklir fagnaðarfundir sem skilj-
anlegt er. Faðir Walters, sem
heitir Robert, var einnig her-
maður og tók þátt í heimsstyrj-
öldinni síðustu. Á vígstöðvunum
særðist hann svo á báðum aug-
um að hann missti sjónina og
hefur verið blindur maður síðan.
Smokey
150 ára
+ KÖTTURINN Smokey, sem á
heima einhvers staðar í Banda-
ríkjunum (heimilisfangið fylgir
ekki textanum) varð 24 ára
fyrir skömmu.
Konan, sem heldur á kisa
sínum, bjó til eina hnallþóru-
tertu i tilefni dagsins. En 24 ár
í mannsævinni jafngilda um
150 árum í kattarárum!
Er eigandi Smokey, Vi Coe,
var spurð að því hver væri
skýringin á hinum mjög háa
aldri hans, sagði hún það
hvorki vera músa- eða fuglaáti
að þakka. Uppistaðan í matar-
æði gamlingjans væri kaninu-
kjöt, fiskur, nautalundir og
ostur.
OPIÐ HÚS
hjá Rauöa kross íslands aö Nóatúni
21 næsta laugardag frá 13—17.
Starfsemi félagsins veröur kynnt,
t.a.m.
1. Stutt tilsögn í skyndihjálp, þ.á m.
lífgun úr dauöadái, meö blástursaö-
ferö.
2. Kynning á þætti félagsins innan
almannavarna.
3. Stuttar kvikmyndir sýndar um
starf Rauöa krossins, o.fl.
Jafnframt verður móttaka á
greiöslum og seðlum í kosninga-
getraun félagsins.
Lftiö viö hjá okkur á laugardaginn
og kynnist starfinu.
+
RAUÐI KROSS ÍSLANDS
NÓATÚNI 21 REYKJAVÍK SiMI: 26722
1
iMfil
Er loftnetid i lagi?
Ef ekki, þá
höfum við allt
loftnetsefni.
Látið fagmenn
aðstoða við val
á réttu loftneti.
' I3ÚÐIN Skipboft
ísland—svo heimurinn
Á morgun, 30. nóvember er alþjóölegur útgáfíi-
dagur
„The WalP hins nýja meistaraverks Pink Fioyd.
r HLJOMDEILD ”
(KARNABÆR
Laugavegi 66 — Glæsibæ — Austurstræti 22 ^
Heildsöludreifing
I dag, 29. nóvember getur þú
labbaö inn rhábstu hljómplötuverzlun Karnabæjar
og keypt þér eintak.
„The Wall“ er tvöföld plata, en engu aö síöur verö þelrra
aöeins kr. 11.750.-
Við >
kynnum
simar 85742
y