Morgunblaðið - 29.11.1979, Side 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1979
Lið Víkings var heilsteyptara
og sigraði Val örugglega
ÍSLANDSMEISTARAR Vals urðu að bíta í það súra epli að vera
lagðir að velli í annað sinn í fjórum leikjum. er liðið tapaði 15 — 12
fyrir Víkingum í LauKardalshöllinni í Ka*rkvöldi. Lið Víkings sinraði
öruggieKa í leiknum, það var allan tímann betra liðið á vellinum ug
hafði svo til allan leikinn tveKKja marka forystu. Leikur Vals oií
Víkings var mjöK Kóður ok sá bcsti í íslandsmótinu til þessa. Bæði
liðið léku Kóðan varnarleik og markvarslan hjá þeim Brynjari Kvaran
ok Jens Kvaran ok Jcns Einarssyni var frábær. En lið Víkings var
betra, sóknarleikur liðsins var allur annar en hjá Val og liðið er
tvímælalaust skipað betri einstaklinKum þegar á heildina er litið.
Bogdan. pólski þjálfarinn hjá Víkingum, hefur tekist að skapa sterkt
lið þar sem varla er vcikan hlekk að finna í keðjunni. Sterk vörn, góð
markvarsla og heittur sóknarlcikur. l»að verður gaman að fylgjast
með frammistöðu liðsins í Evrópukeppninni sem nú er framundan.
Ljóom. Mbl. Kristján.
• Það var oft tekið hressilega á móti andstæðingnum i leiknum í
gærkvöldi. Hér stöðvar Stefán Gunnarsson Árna Indriðason.
Sterkar varnir
Það var greinilegt í byrjun
leiksins að stórleikur var í aðsigi.
Fjölmargir áhorfendur voru vel
með á nótunum og leikmenn
virtust taugaspenntir en þó ekki
úr hófi fram. Það var því í fyllsta
máta eðlilegt að nokkrar mis-
heppnaðar sendingar væru í upp-
hafi leiksins hjá leikmönnum
beggja liða. Fyrsta markið skoraði
Erlendur Hermannsson af línu
eftir sendingu frá Steinari Birg-
issyni. Það var ekki auðvelt að
finna smugu í vörn liðanna sem
var afar vel leikin allan tímann.
Bæði liðin léku flata vörn, svokali-
aða 6—0 vörn. En fóru þó mjög vel
á móti. Valsmenn freistuðu þess
að klippa hornamenn Víkinga út
úr spilinu og gekk það nokkuð vel.
Víkingar pressuðu hins vegar
skyttur Valsmanna langt út á
gólfið og var það árangursríkt og
gaf góða raun.
Það var ekki fyrr en á 7. mínútu
að Bjarna tókst að jafna 1—1.
Valsmenn áttu möguleika á að ná
forystunni í leiknum mínútu síðar,
en þá gerði Jens Einarsson sér
lítið fyrir og varði vel vítakast frá
Stefáni Halldórssyni. Víkingar
skoruðu næstu tvö mörk og for-
ysta var orðin þeirra og hélst út
leikinn.
Til marks um það hversu góður
varnarleikurinn var hjá liðunum
var markatalan 3—2 fyrir Víking
þegar 18 mínútur voru liðnar af
leiknum. Og það þætti sjálfsagt
saga til næsta bæjar að Islands-
meisturum Vals tækist aðeins að
skora tvö mörk í 20 mínútur á
móti íslensku liði, en á þeim tíma
hafði liðið ekki fengið færri en 11
sóknir.
Staðan í hálfleik var 8—6
Víkingsliðinu í hag. 1 fyrri hálf-
leiknum misnotaði Valur eitt
vítakast en Víkingur þrjú.
Sókn Valsmanna ekki
nógu beitt
Valsmenn minnka muninn
niður í eitt mark, 8—7, í byrjun
síðari hálfleiks er Þorbjörn Guð-
mundsson skorar úr víti. Og nú
hafa sjálfsagt flestir átt von á
miklum hasar, en mikil yfirvegun
í leik Víkings færði liðinu tveggja
marka forystu aftur með marki
Páls B. Þá kom góður kafli hjá Val
og þeir eiga möguleika á að jafna
metin. En markmenn Víkings lok-
uðu markinu. Fyrst varði Kristján
Sigmundsson víti frá Þorbirni G.
og síðan Jens tvívegis í röð
þrumuskot af línunni.
Nú kom frábær kafli hjá
Víkingi og þeim tekst að breyta
stöðunni í 13—9 og svo gott sem
gera út um leikinn því að þá voru
aðeins átta mínútur eftir. Leik-
menn Vals virtust-vera ragir við
að reyna langskot og hvorki gekk
né rak hjá þeim í sóknarleiknum.
Sigur Víkinga var aldrei í hættu
og lokatölur urðu eins og áður
sagði 15—12.
Ileilsteypt lið Víkinjís
Víkingur lék þennan leik mjög
vel. Leikmenn léku af skynsemi og
festu og gáfu hvergi eftir þuml-
ung. Mjög erfitt er að gera upp á
milli einstakra leikmanna í liðinu.
Jens varði markið af stakri snilld,
enda með góða vörn fyrir framan
sig. Það er athyglisvert að Vals-
menn skora aðeins fjögur mörk úr
langskotum allan leikinn. Þá áttu
Steinar Birgisson og Erlendur
Hermannsson góðan leik. Páll og
Árni Indriðason stóðu að venju vel
fyrir sínu.
Vantar Val skyttur?
Lið Vals lék þennan leik vel.
Ekki er hægt að segja annað en
það dugði bara einfaldlega ekki til,
þeir mættu ofjörlum sínum. Vörn
Vals og markvarsla var góð. En
það sem gerði útslagið var sóknar-
leikurinn. Stórskyttur Valsmanna,
Þorbjörn Guðmundsson og nafni
Víkingur — Valur
15—12
hans Jensson, sáust ekki í leikn-
um. Stefán Halldórsson hefur átt
við meiðsli að stríða og ekki von að
hann kæmi sterkur frá leiknum.
Steindór og Bjarni gerðu margt
laglegt og fiskuðu fjölda vítakasta
en það var ekki nóg. Besti maður
Vals var Brynjar Kvaran mark-
vörður.
Dómgæslan
Dómarar í þessum leik voru þeir
Karl Jóhannsson og Gunnar
Kjartansson. Dæmdu þeir leikinn
mjög vel fram í miðjan síðari
hálfleik, en þá varð Gunnari það á
að flauta fullfljótt á brot. En í
heildina komust dómararnir vel
frá leiknum. Það er slæmur ávani
hjá þjálfara Víkings, Bogdan, að
vera í sífellu að kvarta yfir
dómnum sem honum mislíkar. Og
í sumum tilfellum fór hann langt
inn á völlinn. Hann hefur sagt við
undirritaðan í viðtali, að það eigi
aldrei að mótmæla dómum þó svo
að þeir geti verið vitlausir. Dóm-
arar geta að sjálfsögðu gert sín
mistök eins og aðrir.
I stuttu máli: Islandsmótið 1.
deild. Laugardalshöll.
Víkingur—Valur: 15—12(8—6)
Mörk Víkings: Steinar Birgisson 4,
Sigurður Gunnarsson 4 (3v), Er-
lendur Hermannsson 3, Páll
Björgvinsson 2, Ólafur Jónsson 1
og Árni Indriðason 1.
Mörk Vals: Brynjar Harðarson 3
v, Þorbjörn Guðmundsson 2 v,
Bjarni Guðmundsson 2, Steindór
Gunnarsson 2, Stefán Halldórsson
2, Jón H. Karlsson 1.
Markvörður Víkings, Jens Ein-
arsson, varði 16 skot í leiknum og
markvörður Vals, Brynjar Kvaran
II skot.
Brottvísun af leikvelli: Þorbergur,
Árni og Páll, Víkingi, allir í 2 mín.
hver. Bjarni, Val, í 2 mín.
Varin víti: Jens varði hjá Stefáni
Halldórssyni á 8. mínútu og
Kristján Sigmundsson varði hjá
Þorbirni Guðmundssyni á 36. mín.
Misheppnuð vítaköst: Páll Björg-
vinsson skaut í þverslá á 14. mín.
Sigurður Gunnarsson skaut í
stöng á 27. mínútu og Árni
Indriðason gerði ógilt víti á 29.
mín.
Áhorfendur voru 1400.
Sagt eftir
Þjálfari Vals, Hilmar
Björnsson:
Vikingar voru betri i þessum
leik. Þeir voru allan timann
grimmari. Þá varði Jens vel og
varnarleikur þeirra var sterkur.
Mínir menn voru of staðir, þeir
hreyfðu sig alls ekki nóg. Ég hef
ekki trú á öðru en að Víkingur
eigi eftir að tapa stigum i mótinu
og tel þvi okkur eiga enn góða
möguleika.
FYRRI leikir þriðju umferðar
UEFA-bikarkeppninnar í
knattspyrnu fóru fram i gær-
kvöldi og er ljóst af úrslitum
þeirra, að keppnin hefur að þessu
sinn breyst í aðra „Búdeslígu“.
Fimm vestur-þýsk félög voru enn
með i keppninni, engin þeirra
drógust saman og öll unnu auð-
velda sigra á feiknasterkum and-
stæðingum. T.d. vann Eintrakt
Frankfurt öruggan stórsigur á
Feyenoord, 4—1. Kóreumaðurinn
Bum Kun Cha og Bernd Nickel
skoruðu fyrir Frankfurt í fyrri
hálfleik og i þeim siðari bættu
þeir Múller og Lottermann hvor
sinu markinu við og Pétur Pét-
ursson og félagar áttu ekkert
svar. Van Dugen skoraði eina
mark Feyenoord sem mun eiga
erfitt uppdráttar i heimaleiknum
eftir þennan skell. Lítum annars
á önnur úrslit i gærkvöldi:
Eintr. Frankfurt-Feyenoord 4—1
Diosgyori-Kaiserslautern 0—2
Bor.Mönchlb.—Uni Craiova 2—0
Loko Sofia—Dynamó Kiev 1—0
Standard—Zbrojovka Brno 1—2
Bayern Múnch.n—Rauða Stj. 2—0
Grasshoppers—Stuttgart 0—2
St. Etianne—Aris Saleniki 4—1
Ekki gekk þeim Ásgeiri Sigur-
vinssyni og félögum hans hjá
Standard betur en Pétri og félög-
um. Standard lék heima gegn
Keflavíkurbönunum frá Brno í
leikinn
Páll Björgvinsson, fyrir-
liði Víkings:
— Sigur okkar í þessum leik
var síst of stór eftir gangi hans.
Ég átti von á Valsliðinu mun
betra en raun varð á. Við höfum
undirbúið okkur mjög vel fyrir
íslandsmótið og við stefnum á að
vinna það með fullu húsi stiga.
í UEFA
Tékkoslóvakíu og máttu þola jafn
stórt tap, 1—2. Voordeckers skor-
aði mark Standard, en Svoboda og
Dozek skoruðu fyrir Brno.
Veldi þýsku liðanna er greini-
lega gífurlegt og ýtir undir það
álit margra, að knattspyrnan sé í
dag hvergi á hærra plani en í
Vestur-Þýskalandi. Bayern sigraði
Rauðu stjörnuna frá Belgrað ör-
ugglega 2—0 með mörkum Karls
Heinz Rumenigge í fyrri hálfleik
og Helmuts Janzon í þeim síðari,
og Borussia Mönchengladbach
vann sigur með sömu tölum á
heimavelli gegn háskólaliðinu frá
Craiova í Rúmeníu. Harald Nickel,
sem áður lék með Standard, skor-
aði bæði mörk BMG, sitt í hvorum
hálfleik.
Stuttgart og Kaiserslautern
léku hins vegar á útivöllum og
unnu engu að síður góða sigra.
Kaiserslautern vann ungverska
liðið Diosgyori Miscolk örugglega
2—0 með mörkum Benny Wendts
og Klaus Bongartz. Stuttgart sótti
hins vegar svissneska liðið
Grasshopper heim og vann einnig
tvö núll. Klotz og Hadwicz skor-
uðu mörk Stuttgarts.
Loks má geta heimasigurs Loko
Sofia frá Búlgaríu gegn Kænu-
garði. Mihailov skoraði eina mark
þess leiks beint úr aukaspyrnu í
fyrri hálfleik. Matisi, Larios, Lop-
az og Rovssey skoruðu mörk St.
Etiarne gegn Aris frá Grikklandi.
- þr.
LJAtm. Mhl. Krtatján.
• Bjarm Guðmundsson, Val, svífur inn úr horninu. Jens markvörður Víkings er við öllu búinn.
- Þr.
Standard og Feyenoord
fengu skell