Morgunblaðið - 18.01.1980, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980
3
Kaupmannasamtökin
heiðra Sveinbjörn
KAUPMANNASAMTÖK
íslands heiðruðu í gær Svein-
björn Árnason með gullmerki
samtakanna, en það er mesti
hciður, sem Kaupmannasam-
tökin veita fyrir vei unnin störf.
Sveinbjörn átti í gær 60 ára
starfsafmæli við verzlunarstörf.
Hann er fæddur í Ólafsvík 2. júlí
1904, en hóf störf hjá Haraldi
Árnasyni í Haraldarbúð 17. jan-
úar 1920. Þar starfaði hann í
nær 40 ár eða þar til hann keypti
Fatabúðina. Arin 1926 til 1927
var Sveinbjörn við nám í glugga-
útstillingum í London og var því
fyrsti íslendingurinn, sem lærði
það sérstaklega.
Sveinbjörn starfaði mikið að
félagsmálum verzlunarfólks,
bæði í Verzlunarmannafélagi
Reykjavíkur og einnig í Merkúr
meðan það félag var til. Á sínum
tíma var Sveinbirni veitt gull-
merki VR. Hann starfaði einnig
mikið að félagsmálum kaup-
manna og með afhendingu gull-
merkisins í gær vildu Kaup-
mannasamtökin þakka honum
mikið gott félagsmálastarf.
Gunnar Snorrason formaður Kaupmannasamtaka Islands nælir
gullmerkinu í barm Sveinbjörns Árnasonar á 60 ára afmæli hans
að verzlunarstörfum. (Ljósm.: Emiiu)
Alþjóða orkumála-
stofnunin:
Nefnd kannar
hugsanlega að-
ild Islendinga
FYRIR nokkru var skipuð nefnd til
að athuga ýmsa þætti varðandi
hugsanlega aðild Islendinga að Al-
þjóða orkumálastofnuninni. Að sögn
Þórhalls Ásgeirssonar ráðuneytis-
stjóra kannar nefndin m.a. hvaða
skilyrði fylgja aðild að stofnuninni.
Formaður nefndarinnar er Jón Ög-
mundur Þormóðsson, deildarstjóri í
viðskiptaráðuneytinu, og aðrir í
nefndinni eru Páll Flygenring ráðu-
neytisstjóri, Guðmundur Eiríksson í
utanríkisráðuneytinu og Geir H.
Haarde ritari Ölíuviðskiptpanefnd-
ar.
Bang og Olufsen
er á aBt annarri línu!
BEO
SYSTEM
1900
Þetta er samstæÖan
sem setti keppi-
nautanaútá klakann í
eitt skipti fyrir öll.
Stílhreinn braut-
ryðjandi.
Magnari 2x30 sínus-
wött, útvarp, plötu-
spilari og 2 hátalarar.
Ve ró:759.580kr
Greiðsluskilmálar.
BEO
SY5TEM
2400
Samsvarar 1900
samstœðunni, en
hefur þráðlausa fjar-
stýringu fram yfir.
Þú stjómar úr
fjarlægð. Snjallt og
þœgilegt.
Magnari 2x30 slnus-
wött, útvarp, plötu-
spilari og 2 hátalarar.
Veró=896.140 kr
Greiðsluskilmálar.
Það er ehki á fœri nema Bang og Olufsen að homa
hlutunum fyrir á jafn snilldarlegan hátt og raun ber vitni.
B&O hljómtœkin eru laus við allt óþarfa pírumpár
og yfirbyggingu, en vinna á hinum sanna tóni hljómgœða og
hönnunar. Þess vegna hefur Bang og Olufsen markað sér
sérstöðu, línu sem engu líkist.
Höfóar hún til þín?
Ef svo er, er þér velkomið að rceða málin til hlítar við söhunenn
okkar og sannrey \
Verslið í sérverslun með
LITASJÓNVÖRP
og HLJÓMTÆKI.
Skipholti 19 Sími 29800
AUGLYSINGASTOFA KRISflNAfl 84-4