Morgunblaðið - 18.01.1980, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. JANÚAR 1980
23
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Ég hef ekki mikið upp úr því að lesa Biblíuna. Ég hef
reynt við nokkrar útgáfur, en mér finnst erfitt að skilja.
Hver er leyndardómur þess að skilja Bibliuna?
Síðan ég sneri mér til Jesú Krists hefur engin bók í
bókasafni mínu reynzt mér eins uppörvandi og
spennandi og Biblían.
Eg skal játa, að mér fannst hún torskilin áður en ég
tók sinnaskiptum. Þess vegna held ég, að það sé
leyndardómur þess að skilja Biblína, að kynnast
höfundi hennar. Páll postuli segir:
„Ég læt yður vita, bræður, að það fagnaðarerindi,
sem boðað var af mér, er ekki mannaverk. Ekki hefi
ég heldur tekið við því af manni né látið kenna mér
það, heldur fengið það fyrir opinberun Jesú Krists".
(Gal. 1,11-12).
Ég les ýmsar útgáfur Biblíunnar. Allt um það álít
ég, að lykilinn að henni sé þessi — að veita Jesú Kristi
viðtöku og að þekkja hann.
ánægjuleg og ógleymanleg kynni,
sem eins og svo oft áður hefðu
mátt vera margfalt lengri.
wMargs er að minnast,
marKt er hér að þakka.
Guði sé loí íyrir Iiðna tíð.
Margrs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.“
V. Briem.
Tengdabörn og barnabörn.
Árni Jóhannsson
Kveðja:
Einar Óli
Guðfinnsson
Fæddur 16. júlí 1961.
Dáinn 7. janúar 1980.
Kalliö er komiö
komin er nú stundin.
vinarskilnaður viðkvæm stund.
Vinirnir kveðja
vininn sinn látna
er sefur hér hinn siðasta blund.
Já, kallið er komið. Hví kom það
svona fljótt? Þannig spyrjum við
agndofa.
Það er eftitt að lýsa tilfinning-
um sínum þegar ungu fólki er
svipt burt í blóma lífsins. Þannig
varð mér við er mér var tilkynnt
lát systursonar míns, Einars Óla
Guðfinnssonar.
Einar Óli var mér afar kær, og
leit ég frekar á hann sem bróður,
þar sem ég fluttist inn á heimili
hans er hann var aðeins 4 ára
gamall og fylgdist ég því með
uppvexti hans upp frá því.
Hann var yndislegur drengur,
rólyndur, samviskusamur og góð-
hjartaður. Alltaf var hann til-
búinn að rétta fram hjálparhönd
ef eitthvað bjátaði á hjá mér.
Söknuður minn er blandinn
mörgum ljúfum og kærum minn-
ingum, svo ætla ég að sé um aðra
og þá mest hjá þeim sem þekktu
hann best og næstir honum stóðu.
Það er hægt að segja það með
sanni að Einar Óli skildi ekki eftir
sig neinn skugga á lífsleiðinni,
aðeins ljúfar minningar.
Ég bið algóðan Guð að styrkja
systur mína, mág, systkini og alla
aðstandendur í þeirra miklu sorg.
Far þú i friði,
friður Kuðs þi>í blessi,
hafðu þökk fyrir allt allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Sálm. V. Briem)
Krissi frændi.
klœðskeri — Minning
í dag verður til moldar borinn
frá Fossvogskirkju Árni Jó-
hannsson, klæðskeri, en hann lést
að heimili sínu fimmtudaginn 10.
janúar sl.
Árni var fæddur á Eyrarbakka
12. ágúst 1906. Foreldrar hans
voru Sigríður Árnadóttir og Jó-
hann Guðmundsson.
Árni nam klæðskeraiðn í
Reykjavík hjá Andrési Andrés-
syni, en fór síðan í framhaldsnám
ti) Kaupmannahafnar.
18. janúar 1936 giftist hann
eftirlifandi konu sinni, Huld
Kristmannsdóttur, og eignuðust
þau 3 börn. Fyrsta barn sitt, Hörð,
misstu þau á fyrsta ári. Önnur
börn þeirra eru Kristmann Hörð-
ur og Edda.
Hjúskaparárum sínum hafa þau
eytt í Kaupmannahöfn og á Akur-
eyri, en lengst hafa þau búið að
Seljavegi 25 í Reykjavík.
Við sem þessa kveðju sendum
höfum af eðlilegum ástæðum not-
ið samvista við Árna mislengi, en
fyrsta kynning af okkar hálfu var
fyrir tæpum átján arum.
Allra samverustunda er einung-
is hægt að minnast með hlýhug og
þakklæti. Árni var framan af ævi
heilsuhraustur, en fyrir um 15
árum kenndl hann sér sjúkdóms
er ágerðist mjög og vorn síðust ár
honum oft mjög erfið, svo ekki sé
meira sagt.
Á þessum árum varð að gera
margar aðgerðir á honum og 1976
varð ekki umflúið að taka varð af
honum annan fótinn ofan við hné.
I öllum þessum miklu og erfiðu
veikindum sýndi Árni, svo vart
mun gleymast þeim er með fylgd-
ust, hversu mikinn styrk og jafn-
aðargeð hann hafði.
Oft var það svo, að þeir sem
álengdar stóðu fengu hugarró og
kraft frá honum sjálfum er hann
var sem veikastur.
Ekki er hægt að nefna veikindi
Árna án þess að geta þess, af hve
mikilli alúð og dugnaði Huld
studdi hann í gegnum þessi erfiðu,
en þeim að mörgu leyti dýrmætu
ár.
Með þessum línum viljum við
tengdabörn og barnabörn þakka
vji'wau t m i' ,. _
Verö: Ca. 3.495. þús.
Verö: Ca. 3.130. þus.
re
Éjk,
1200
Siðastliðið ár og það sem
af er þessu ári, er LADA
mest seldi bíllinn.
Það er vegna þess að hann
er á mjög hagstæðu verði, og
ekki síst, að hann er
hannaður fyrir vegi sem okkar.
Nu eru allir LADA bílar með
höfuðpúðum, viðvörun-
arljósum ofl. ofl.
Verö: Ca. 5.320. þus.
Verö: Ca. 3.750. þus
Verö:Ca. 3.570. þus
LADA station er hægt aö fa meö 1200 sm
eöa 1500 sm3 vél.
T*7
BIFREIDAR & LANDBUNAÐARVELAR
Suðurlandsbraut 14, sími 38600
Söludeild sími 312 36
„er mest sefdi bíllinrí’
Góöir greiösluskilmálar