Morgunblaðið - 24.01.1980, Síða 11

Morgunblaðið - 24.01.1980, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUÖAGUR 24. JANÚAR 1980 11 Bandaríkin til skjalanna með umfangsmikla þróunaraðstoð. En upp úr 1950 varð sambúðin við Sovétríkin smátt og smátt nánari og samkeppni risaveld- anna um áhrif í landinu upp- hófst. Hlutur Bandaríkjamanna í hinum stórtæku og erfiðu áveituframkvæmdum í Hel- manddalnum varð stolt þeirra, en bæði Bandaríkin og Sovétrík- in áttu hlutdeild í fjölmörgum þróunarframkvæmdum til hags- bóta fyrir Afganistan. Hernaðarsérfræðingar Banda- ríkjanna töldu ekki, að Afganist- an, er stóð utan hernaðarbanda- laga, væri bandarískum hags- munum mikilvægt á þessum slóðum, en kusu heldur að beina kröftum sínum að nágrannaríkj- um, sem hlynnt voru vesturveld- unum og urðu aðilar að Baghdad-samningum 1954 og síðar Cento:bandalaginu, þ.e.a.s. Pakistan, íran og Tyrklandi. Brátt kom að því að aðstoð og lán frá Sovétríkjunum færu fram úr Bandaríkjunum og Rússar komu í stað Breta sem aðalvopnasalar. Utanríkisverslun varð líka mun háðari Sovétmönnum eftir að annarri flutningaleið var komið á laggirnar til norðurs vegna langvinnnra deilna við Pakistan. Að lokinni lagningu vegakerfis frá norðri til suðurs á sjöunda áratugnum breyttust utanríkisviðskipti Afgana gagn- gert. Hinar hefðbundnu útflutn- ingsvörur til Vesturlanda, hnet- ur, rúsínur og karakulloðskinn, voru leystar af hólmi af baðmull, ávöxtum, jarðgasi og olíu er Sovétmenn hagnýttu, og selt var til Austur-Evrópu. Þegar ferðaútvörp fóru að berast til landsins, byrjuðu margir Afghanir að hlusta á Rashkent-útvarpið og aðrar sov- éskar stöðvar og hafa þá vafa- lítið gert sér ljósa breytta lifnað- arhætti samfara velmegun í Mið-Asíu undir stjórn Sov- étríkjanna. Enda þótt hlutleysi væri yfir- lýst stefna stjórnarinnar í Kab- úl, var hún þegar á sjötta áratugnum í tengslum við þá fylkingu ríkja, er undir forystu bandamanna Sovétríkjanna kváðust vilja hamla gegn heims- valdastefnu. En jafnframt tókst henni að halda fyrirtaksgóðu sambandi við bæði Kína og Indland. „Leikurinn mikli“ hefur þann- ig á síðustu árum tekið á sig nýja og hversdagslegri mynd, þar sem hinn ofurvoldugi ná- granni hefur lævíslega þrengt sér inn á fátækt og vanþróað ríki án teljandi samkeppni frá öðrum stórveldum. Staða skrif- stofustjóra Trygginga- stofnunarinn- ar laus til umsóknar AUGLÝST hefur verið laus til umsóknar staða skrifstofustjóra Tryggingastofnunar ríkisins, sem jafnframt gegni starfi að- stoðarforstjóra stofnunarinnar. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu í gær, lætur Eyjólfur Jónsson nú af þessu starfi, sem hann hefur gegnt í um það bil 25 ár. Mun Eyjólfur nú taka við starfi framkvæmda- stjóra Atvinnuleysistrygginga- sjóðs, sem ekki hefur haft sérstak- an starfsmann fyrr. Páil V. Daníelsson: Ölið og löggæzlan Ég vil þakka Davíð Scheving fyrir þá röggsemi að láta reyna á það, hvort hann kæmist með áfengan bjór í gegnum tollinn eða ekki. Ég hefi verið þátttakandi í því að benda ráðamönnum á, að lög landsins væru brotin með því að leyfa undir nokkrum kringum- stæðum að farið sé með áfengan bjór inn í landið en ávallt talað fyrir daufum eyrum og fullkomnu aðgerðaleysi þeirra, sem eiga að framfylgja því, að eftir lögum sé farið og þar með standa að mismunun og margs konar spill- ingu í landinu. Hins vegar tel ég það nokkuð á hreinu að Davíð fái sekt fyrir að kaupa bjórinn og það er ekki rétt sem fram hefur komið að hann hafi ekkert ólöglegt aðhafst. Sá sem bjórinn seldi, Fríhöfnin, brýt- ur lög með því að selja áfengan bjór, skiptir þar engu máli hvort selt er farþega eða áhafnarmanni. Hins vegar eru þessi mál þannig vaxin að þeir sem að þeim standa og bera höfuðábyrgðina eru stjórnvöld og er því hætt við að dómar verði ekki harðir, jafnvel að þeir opinberu starfsmenn, sem komið hafa að málum þessum, fái ekki áminningu fyrir brot í starfi. í því efni velta stundum smærri þúfur hlassi. En þegar spillingin hefur haldið innreið sína vill jafnan fara svo að þá verði ekki allir jafnir fyrir lögunum. Hins vegar er það ljóst hverjum þeim sem hugsar og leitar orsaka fyrir hlutunum að höfuðspillingavald- urinn í þessu þjóðfélagi er áfengið og meðferð þess. Öll verstu málin í þjóðfélaginu eru nærð af þeirri uppsprettu. Ég vona að nú verði ekki komist hjá því að fara að lögum og stöðva bæði innflutning á áfengum bjór og tollfríu áfengi áhafna og far- þega. Það er ljóst lögum sam- kvæmt, að bjórinn má ekki flytja inn, hvorki ríkið né einstaklingar og það er ekkert í áfengislögum, sem leyfir það, að fólk megi flvtja með sér annað áfengi inn í landið. Ég vona einnig að löggæslan taki rögg á sig og komi í veg fyrir að önnur fyrirmæli áfengislag- anna séu brotin eins og brugg- ákvæðin og bann við auglýsingum, sem m.a. koma fram beint og óbeint í útvarpi og sjónvarpi. Fjármagnið lætur ekki að sér hæða og fáir auðhringar eru iðnari við það að hafa bein og óbein áhrif á þá, sem ráðamenn teljast, að þeir haldi sem flestum smugum opnum svo að áfengið fái sem stærstan markað hver svo sem afleiðingin verður fyrir hinn almenna mann. Öll linkind í sam- bandi við áfengismál á rætur í fjármunum áfengisauðvaldsins sé vel að gáð. EF ÞAÐ ER FRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐENTJ HORENS ER TRAUSTSINS VERÐUR Leiöandi fyrirtæki á sviói sjónvarps útvarps og hljómtækja NESCO VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10.SÍMI: 27788 (4 LÍNUR).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.