Morgunblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980 19 Tyrkland: í Izmir logaði allt í átökum stúdenta og lögreglu í gær Leiðtogar afganskra ættbálka á fundi þar sem rædd var baráttan gegn valdhöfum. Þetta gerðist 24. jan. Ankara, 23. jan. AP. LÖGREGLA og námsmenn lentu í hörðum átökum í tyrkn- Kviknaði í vasa ráðherrans London, 23. jan. AP. UMRÆÐUR eru oft heitar í Neðri málstofu brezka þingsins en sjaldan hefur þó gengið svo langt að ur hafi orðið eldur. Það gerðist í dag þegar félagsmála- ráðherrann Reg Prentice var að tala fyrir nýju frumvarpi um félagslegar ráðstafanir, að reyk tók að leggja upp úr jakkavasa hans, og innan fárra sekúndna stóð upp úr vasanum strókur mikill. Þingmaðurinn brá við skjótt og vatt sér úr jakkanum og starfsbræður hans þustu að til að slökkva eldinn. Prentice brennd- ist nokkuð á fingri en ekki var það alvarlegt. Hann sagði að væntanlega hefði honum orðið á að slökkva ekki nægilega vel á eldspýtu áður en hann stakk henni aftur í stokkinn. esku borginni Izmir við Eyja- haf í dag og slösuðust að minnsta kosti sautján manns, sumir alvarlega. í fregnum um þessi átök segir að þau hafi byrjað er námsmenn ákváðu að efna til mótmælafundar í óleyfi til að láta í ljós gremju yfir óeirðum sem urðu milli verka- manna og lögreglu í Izmir daginn áður. Þegar lögreglan ætlaði að dreifa hópnum hófu stúdentarn- ir skothríð á lögreglumennina og einnig sagði að stúdentar hefðu hellt bensíni á þjóðveginn sem tengir Izmir við Ankara og kveikt í og var drjúgur spotti þjóðvegarins lokaður allri um- ferð í dag. Síðar hurfu stúdentar til garða sinna og héldu sumir áfram skothríð á lögreglu og öryggisverði. Sagt er að um hundrað stúdentar hafi verið teknir höndum, en daginn áður höfðu 83 verkamenn verið hand- teknir eftir áðurnefnd átök við lögreglu. 1979 — 26 gamalmenni fórust í eldsvoða í Virrat í Finnlandi. 1966 — Flugvél indverska flug- félagsins ferst á Mont Blanc og með henni 117 manns. 1943 — Ráðstefnunni í Casa- blanca lýkur. 1915 — Sjóorrustan á Dogger- banka, brezki flotinn sökkvir þýzka beitiskipinu Blucher. 1908 — Baden Powell stofnar fyrsta skátafélagið í Bretlandi. 1848 — Gull finnst í Kaliforníu. 1798 — Uppreisn á írlandi undir forystu Emmet og Wolf Tone. 1634 — Fairfax lávarður sigrar íra í orrustunni um Natnvich. 1634 — Ferdinand keisari II rek- ur Wallenstein. 1616 — William Schouten siglir fyrir Hornhöfða fyrstur manna 24. jan.—31. jan. 1568 — Hertoginn af Alba lýsir Vilhjálm þögla af Oraniu landráðamann. 1547 — Jarlinn af Surrey tekinn af lífi á Englandi fyrir landráð. Afmæli: Friðrik mikli Prússakon- ungur 1712—1786, Pierre de Beaumarchais, franskur leikrita- höfundur 1732—1799, Gústaf III Svíakóngur 1746—1792, Charles James Fox enskur stjórnmálaleið- togi 1749-1806. Andlát: Sir Winstön Churchill, 1965; Edward Munch 1944. Innlent: Brennur Skálholtskirkja 1309; Gestaréttur stofnaður 1738; d. Brynjólfur kaupmaður í Flatey Benedictsen 1870; Eiríkur Magn- ússon, bókavörður í Cambridge; fjórar konur kjörnar í bæjarstjórn Reykjavíkur 1908; Sigurjón á Ála- fossi kynnir meðal gegn sauðfjár- pest 1945; f. Kirsten Thorberg Sa Machado, fyrrv. utanríkisráð- herrafrú Portúgals 1931. Orð dagsins: Siðmenning okkar er enn á miðju þroskastigi, hún stjórnast ekki lengur að öllu leyti af eðlishvöt, en hún stjórnast enn ekki að öllu leyti af skynsemi. Theodore Dreiser, bandarískur höfundur 1871—1945. Viðbrögð við handtöku Sakharovs: .. handtaka Sakharovs sýnir hve árangursrík barátta hans hefur verið“ VIÐBROGÐ við handtöku Nóbelsverðlaunahafans Andrei Sakharovs hafa verið mjög hörð um allan heim. Hvarvetna hefur handtakan verið fordæmd — kommúnistaflokkar Evrópu hafa einn af öðrum lýst hneykslan sinni á handtöku Sakharovs. Georges Marchais, formaður franska kommúnistaflokksins, sem lýsti velþóknun sinni á innrás Sovétmanna í Afganistan, lýsti vanþóknun sinni á handtöku Sakh- arovs. Chaban-Delmas, forseti franska þjóðþingsins, flaug í dag heim frá Moskvu. Hann kom á mánudag í 10 daga opinbera heimsókn til Sov- étríkjanna og á þriðjudag átti hann fund með Leonid Brezhnev, forseta Sovétríkjanna. Síðar um daginn fréttist af handtöku Sakh- arovs. í morgun, miðvikudag, gaf Chaban-Delmas út yfirlýsingu þar sem hann sagðist halda til Frakk- lands. „Samvisku minnar vegna held ég heim. Sem gestur sovéskra stjórnvalda get ég ekki skipt mér af Sakharov-málinu án þess að skipta mér um leið af innanríkis- málum Sovétríkjanna. Ég get þó ekki orða bundist. Því tel ég það skyldu mína að halda til Frakk- lands." Hann flaug frá Moskvu síðdegis í dag og var honum fylgt út á flugvöll af sömu mönnum og tóku á móti honum. Þegar hann steig upp í þotuna voru honum afhent blóm. Hans hafði mjög verið getið í sovéskum fjölmiðlum. Viðbrögð alls staðar — utan fylgiríkja Sovétríkjanna — voru mjög á sama veg. Hér á eftir fara helstu viðbrögð í dag, miðvikudag: Frakkland París, 23. janúar. AP. Franski kommúnistaleiðtoginn Georges Marchais gagnrýndi handtöku Sakharovs í yfirlýsingu í L’Humanité, málgagni franska kommúnistaflokksins. Marchais studdi innrás Sovétríkjanna í Afg- anistan. I yfirlýsingu hans sagði: „Við reynum ekki að kenna einum eða neinum. En við leggjum áherzlu á, að frelsi og lýðræði eru markmið sósíalisma. í ljósi þessa gagnrýnum við aðgerðirnar gegn Sakharov." I tilkynningu frönsku stjórnar- innar sagði, að handtaka Sakh- arovs bryti í bága við Helsinkisátt- málann, og lýsti stjórnin áhyggjum af handtöku Sakharovs jafnframt því sem hún var gagn- rýnd. Hins vegar sagði í tilkynn- ingu stjórnarinnar, að frönsk stjórnvöld myndu ekki skipta sér af ákvörðun frönsku Ólympíu- nefndarinnar um þátttöku í Ól- ympíuleikunum í Moskvu. í gær tók Ólympíunefndin vel í boð Sovétmanna um þátttöku í leikun- um. Ítalía Róm, 23. janúar. AP. Málgagn ítalska kommúnista- flokksins gagnrýndi í dag harðlega handtöku Andrei Sakharovs á for- síðu blaðsins. Þar var farið hörð- um orðum um óbilgirni sovéskra stjórnvalda, sem virtu í engu helgustu mannréttindi. Öll and- staða væri barin niður. „Handtaka Sakharovs er enn á ný staðfesting á þessari óbilgirni." Sandro Pertini, forseti Ítalíu, sendi Leonid Brezhnev skeyti þar sem hann mótmælti harðlega handtöku Sakharovs. Hann kallaði handtöku hans augljóst brot á mannréttindum og brot á Hels- inkisáttmálanum, sem Sovétríkin hefðu skrifað undir. Holland Haag, 23. janúar. AP. „Ástandið var slæmt en með handtöku Sakharovs hefur það versnað enn,“ sagði talsmaður þingnefndar hollenska þingsins við fréttamenn eftir að nefndarmenn, sem eru úr öllum helstu flokkum landsins, lýstu því yfir að Holland ætti ekki að taka þátt í Ólympíu- leikunum vegna aðgerða sovéskra stjórnvalda gegn baráttumönnum mannréttinda í landinu. Hollenska stjórnin hafði lýst því yfir að hún hygðist ekki skipta sér af ákvörðun Ólympíunefndar landsins. Stjórnin heldur hins vegar fund í dag um málið, hvort hún mæli með þátt- töku í Ólympíuleikunum eða ekki. Vatikanið 23. janúar. AP. Málgagn Vatikansins lýsti í dag áhyggjúm vegna handtöku Andrei Sakharovs. „Handtaka hans er hnefahögg gegn öllum þeim, sem hafa barist friðsamlega fyrir mannréttindum," sagði í blaðinu. Bonn 23. janúar. AP. V-Þýska stjórnin krafðist þess í dag, að sovésk yfirvöld leyfðu Andrei Sakharov að snúa á ný heim til sín í Moskvu. Talsmaður stjórnarinnar sagði, að handtaka Sakharovs væri brot á Helsinki- samkomulaginu. Willy Brandt, fyrrum kanslari, sagði að handtaka Sakharovs hefði orðið sér mikið áfall. „Ég vona aðeins að þetta sé ekki upphaf að versnandi ástandi í heiminum," sagði Brandt en hann hlaut friðar- verðlaun Nóbels árið 1971 fyrir „Östpolitik" sína. „Við erum hlynntir ólympískum leikum. En við erum gegn því að leikarnir fari fram í landi, sem hefur beygt afgönsku þjóðina und- ir sig og á sama tíma ræðst gegn þeim, sem andmæla stefnu stjórn- valda," sagði Heinar Geissler, framkvæmdastjóri Kristilega demókrataflokksins. Japan Tokyo, 23. janúar. AP. Japanska blaðið Ashai gagn: rýndi í dag handtöku Sakharovs. í leiðara blaðsins sagði: „Vjð erum í senn hrygg og reið vegna þeirrar staðreyndar að frelsi einstaklings- ins Sakharovs er fórnað í nafni ríkisins." Þá sagði í leiðara blaðs- ins, að handtaka Sakharovs gerði ástand heimsmála enn viðkvæm- ara. „Stórveldin verða að finna til þeirrar ábyrgðar, sem hvílir á herðum þeirra." Ástralía Canberra, 23. janúar. AP. Ástralska stjórnin fordæmdi í dag handtöku Andrei Sakharovs. „Þessi nýjasta ofsókn sovéskra yfirvalda segir meira en orð fá lýst,“ sagði Ian Viner, starfandi utanríkisráðherra landsins. Hann sagði að handtaka Sakharovs væri augljóst brot á Helsinkisamkomu- laginu. ísrael Jerúsalem, 23. janúar. AP. Menachem Begin, forsætisráð- herra Israels, hvatti sovésk stjórn- völd til að veita Sakharov frelsi á ný, svo hann „geti haldið áfram baráttu sinni fyrir mannréttind- um“. í ísraelskum blöðum gætti kvíða vegna versnandi sambúðar risaveldanna og eins að herferð sovéskra stjórnvalda gegn andófs- mönnum bitnaði á Gyðingum, sem vildu snúa til ísraels. Sviss Genf. 23. janúar. AP. Alþjóða lögfræðinefndin for- dæmdi í dag handtöku Andrei Sakharovs og löfaði baráttu hans fyrir mannréttindum í Sovétríkj- unum. í stuttri yfirlýsingu sam- .takanna sagði: „Það að sovésk stjórnvöld kjósa nú að þagga niður í Sakharov sýnir hve árangursrik barátta hans hefur verið.“ Belgía Brússel, 23. janúar. AP. Talsmaður belgísku stjórnarinn- ar sagði í dag, að handtaka Sakh- arovs væri brot á Helsinkisam- komulaginu. Hann sagði að belgíska stjórnin hefði ekki ákveðið hvort íþróttamenn færu á ÓL í Moskvu í sumar. Hann sagði að stjórnvöld myndu hafa samráð með löndum Efnahagsbandalagsins og Atlantshafsbandalagsins. Spánn Madrid, 23. janúar. AP. Spánski kommúnistaflokkurinn fordæmdi í dag handtöku Andrei Sakharovs. í stuttri tilkynningu flokksins var lýst „hörðum mót- mælum" og ennfremur að „þessar aðgerðir eru brot á mannréttind- um“. Þá var þess krafist, að sovésk yfirvöld létu Sakharov iausan og hann fengi fyrri orður og viður- kenningar aftur. Harðlínumenn að ná undirtökunum Milwaukee, 23. janúar. AP. „Harðlínumenn í Moskvu virðast vera að ná undirtökunum — og það er harmleikur út af fyrir sig,“ sagði Henry Kissinger, fyrrum utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi með fréttamönnum. „Ég held að Sakharov sé eitt af stór- mennum okkar tíma, maður sem berst fyrir mannréttindum og mannlegri reisn," sagði Kissinger. Hann sagði að Sovétmenn hefðu komist upp með árásargirni — nefndi kúbanska hermenn í Afr- íku, a-þýska hermenn í Afríku og nú síðast Afganistan.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.