Morgunblaðið - 24.01.1980, Side 29

Morgunblaðið - 24.01.1980, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980 2 9 frá borgarstjórn frá borgarstjórn frá borgarstjórn Umræður um lóðir undir atvinnuhúsnæði: Ekki von á nýjum lóðum næstu 3 árm Markús Örn Guömundur Þ, Sigurjón Björgvín segir Birgir Isl. Gunnarsson Á borgarstjórnaríundi, sem haldinn var í fyrri viku, bar Birgir ísl. Gunn- arsson borgarfulltrúi (S) fram þrjár fyrirspurnir. Þær eru svohljóðandi: 1) Hvað er óúthlutað af lóðum undir atvinnu- húsnæði á skipulögðum svæðum? 2) Hvar er fyrirhugað að skipuleggja og gera byggingarhæf næstu svæði fyrir iðnaðar- og atvinnustarfsemi? 3) Hvenær er ráðgert að þær lóðir verði tilbúnar til úthlutunar? Borgarstjóri, Egill Skúli Ingi- bergsson, tók fyrstur til máls og svaraöi fyrirspurnum borgarfull- trúans. I upphafi máls síns gat borgarstjóri þess, að á árinu 1976 auglýsti Reykjavíkurborg eftir byggingarlóðum, sem ætlaðar væru undir atvinnuhúsnæði. Síðan nefndi borgarstjóri nokkur svæði þar sem lóðum hefði þegar verið úthlutað, en byggingaraðilar væru misjafnlega langt komnir með byggingarnar. I Borgarmýrinni, sagði borgarstjóri að væru lóðir af ýmsum stærðum en hins vegar hefðu allmargir aðilar fallið frá byggingarrétti sínum. Svæðið hefði ekki verið fullskipað fyrr en síðla árs 1979, en nokkrir hefðu nú hafið framkvæmdir. Þá hefðu framkvæmdir borgarinnar á svæð- inu ekki verið með þeim hætti sem ætlað var og hefðu sumir lóðahaf- ar beðið með að hefja framkvæmd- ir allt frá árinu 1976, vegna þess að lóðir þeirra hefðu ekki verið bygg- ingarhæfar. Síðan nefndi borgar- stjóri Skútuvog. Þar væri ekki um margar lóðir að ræða, en ióðirnar væru hins vegar stórar. Grunn- framkvæmdir á þessum stað stæðu nú fyrir dyrum og myndi svæðið líklega verða byggingarhæft á sumri komanda. Þá gat borgar- stjóri þess, að enn væru nokkrir þeirra, sem hefðu fengið úthlutað lóðum, tvístígandi. Síðan sagði borgarstjóri að Vatnagarðarnir hefðu orðið byggingarhæfir á ár- unum 1977—1978, og væru sumir byggingaraðilar u.þ.b. að ljúka byggingu. Á Ártúnshöfða hefði lóðum verið úthlutað til ýmissa aðila og væri höfðinn nú fullsetinn. Hins vegar væri það svæði ekki enn fullbyggt, vegna þess að ekki hefðu allir hafið byggingarfram- kvæmdir enn. Nú væri verið að vinna að gerð skipulags fyrir nyrsta hluta svæðisins. Þá ætti borgin eftir að úthluta lóðum fyrir léttan og þrifalegan iðnað í Selja- og Hólahverfi. Hvað óúthlutaðar lóðir og bygg- ingarmöguleika varðaði þá væru tvö svæði í athugun, Selássvæðið og Úlfarsfells- og Reynisvatns- svæðið. Þessi svæði gætu orðið tilbúin á árunum 1981—1982. Þá bæri að nefna austasta hluta Borgarmýrarinnar, en það væri 7 hektara svæði sem ætti að verða byggingarhæft innan lítils tíma. Þá bæri að geta svæðisins við Gufunes en um úthlutanir á því svæði yröi ekki að ræða fyrr en á árinu 1981. Komdu bara eitir þrjú ár góði Er borgarstjóri hafði lokið máli sínu, tók til máls Birgir ísl. Gunnarsson (S). í upphafi máls síns þakkaði hann borgarstjóra svörin. Þá lét Birgir í ljós áhyggjur yfir því hvert stefndi og benti á, að þegar þessum lóðum sleppti væri ekkert framundan varðandi lóðir undir iðnaðar- og atvinnuhúsnæði. I fyrsta lagi mætti búast við úthlutunum á árunum 1981—1982 og að öllum líkindum engum á þessu kjörtímabili. Það væri vissu- lega áhyggjuefni að ekki hafði verið betur staðið að undirbúningi lóða fyrir atvinnuhúsnæði. Við þá sem þyrftu á lóðum að halda væri aðeins hægt að segja: „komdu bara eftir þrjú ár góði“. Það væri ekki við því að búast að aukning yrði á iðnaði í borginni fyrst svona væri á málum haldið. Þó væri það að þrátt fyrir þessi lóðavandræði hefði skipulagsnefnd tekið kipp. Reynt hefði verið að keyra í gegn úthlutanir á þremur svæðum á síðustu fundum. Umsækjendurnir væru KRON og Byggingardeild SÍS sem hefði sótt um að fá að byggja átta til tíu hæða stórhýsi neðan við gatnamót Holtavegar og Elliðavogs. Birgir sagði að þessi kippur skipulagsnefndar vekti vissulega athygli. Ástæðuna fyrir þessari lóðaeklu taldi Birgir þá að engin gangskör hefði verið gerð til að koma aðalskipulaginu frá árinu 1977 til framkvæmda, hin dauða hönd vinstrimeirihlutans hefði lagst á þetta eins og margt annað. Þá ítrekaði Birgir áhyggjur sínar vegna þessa og sagði það gagnrýn- isvert að ekki skyldi vera von á nýjum lóðum til úthlutunar á næstu þremur árum. Þörfin tyrir lóðir ekki alltaf mikil Að máli Birgis loknu sté Kiist- ján Benediktsson (F) í pontu. Kristján tók undir þau orð Birgis, að það væri alvarlegt þegar bið yrði eftir nýjum lóðum. Þá sagði Kristján, að allir vissu, að þegar núverandi meirihluti tók við völd- um fyrir einu og hálfu ári hefði þáverandi meirihluti Sjálfstæðis- flokksins verið búinn að úthluta þeim lóðum sem hægt hefði verið. Síðan nefndi borgarfuiltrúinn nokkur dæmi í því sambandi. Þá nefndi Kristján svæðið vestur á Granda, sem hugsað hefði verið sem byggingarsvæði fyrir atvinnu- húsnæði, en hefði verði breytt í íbúðarbyggð. Síðan benti Kristján á, að Iðngörðum hefði verið úthlut- að stóru svæði í tíð fyrri meiri- hiuta. Þó hefði engin hreyfing sést hjá þessum aðilum til að nýta þetta svæði. Þá beindi borgar- fulltrúinn þeirri spurningu til Birgis, hvaða svæði hefðu verið skilin eftir til að úthluta fyrir iðnað, þegar hann fór frá völdum. Það mætti segja að fyrrverandi meirihluti hefði verið duglegur að úthluta þeim lóðum sem til voru, þó að þörfin hefði ekki alltaf virst mikil. Hagsmunir Reyk- víkinga í veði Er Kristján hafði lokið sinni ræðu tók til máls Magnús L. Sveinsson (S). Hann tók undir þau orð Birgis, að full ástæða væri til að hafa áhyggjur af lóðaskorti í borginni. Þá rifjaði Magnús upp öll stóru loforð núverandi meirihluta fyrir síðustu kosningar og sagði að lítið hefði farið fyrir efndum og loforðum. Magnús sagði, að það yrði lifað á úthlutun sjálfstæð- ismanna um nokkurn tíma enn. Hvað varðaði fyrirspurn Kristjáns sagði Magnús, að þau svæði sem skilin hefðu verið eftir mætti sjá á aðalskipulaginu frá árinu 1977, sem núverandi meirihluti hefði lagst á með þessum afleiðingum. Að máli Magnúsar loknu kom upp Markús Örn Antonsson (S). Markús gat þess að borgarstjóri og Kristján Benediktsson hefðu minnst á að mörg þeirra fyrir- tækja sem hefðu fengið úthlutað lóðum hefðu enn ekki hafið bygg- ingarframkvæmdir. Þetta væri tal- andi tákn um aðstöðu sem fyrir- tækin í þjóðfélaginu byggu við í dag. Sífellt væri verið að leggja á gjöld og væri nýbyggingargjald eitt þeirra. Það væri því ekki skrýtið að ekki hefði mikið miðað. Það væri full ástæða til að bæta úr þessu, en fyrirtækin hefðu hrein- lega ekki haft efni á framkvæmd- um af þessu tagi. Þá gat Markús þess, að aðalskipulagið hefði gert ráð fyrir ýmsum lóðum undir atvinnuhúsnæði. Það virtist hips vegar eitthvert trúaratriði hjá meirihlutanum að opna ekki þá bók. Þráðurinn hefði verið látinn falla niður í þessum efnum, og engin úrræði væru sjáanleg á næstu þremur árum. Þetta er því aðeins sjálfsskaparvíti vinstri- meirihlutans, sagði Markús. Þetta taldi Markús bjóða upp á stór- hættuleg vandamál og hvatti hann meirihlutann til að endurskoða afstöðu 'sína til aðalskipulagsins, því hagsmunir Reykvíkinga væru í veði. Að máli Markúsar loknu tók til máls Guðmundur Þ. Jónsson (Abl). Hann sagðist vonast til þess að það, sem meirihlutanum tækist ekki að gera á þessu kjörtímabili, gerði hann bara á því næsta. Þá benti hann á, að verslun væri að ryðja iðnaði út úr sínum hverfum og nefndi Skeifuna og Ártúnshöfða sem dæmi. Þar fjölgaði verslunum á kostnað iðnaðarins. Svæðið á Eiðsgranda, sem Kristján minntist á, taldi Guðmundur hafa verið heppilegt sem iðnaðarsvæði, því að allar samgöngur. við það svæði væru góðar. Þá undirstrikaði Guð- mundur þá skoðun sína að nauð- synlegt væri fyrir fyrirtæki að geta stækkað við sig og að þeim væri ekki of þröngur stakkur skorinn hvað lóðastærð varðaði. Áhyggjuefni Er Guðmundur hafði lokið máli sínu kom í pontu Sigurjón Péturs- son (Abl). Hann sagði að á ótrú- lega mörgum lóðum sem úthlutað hefði verið hefði ekki enn verið byggt, en það væri athyglisvert. Þá sagði Sigurjón að ef skýringar Markúsar á því að ekki hefði verið byggt á sumum þeim lóðum, sem úthlutað hefði verið, væru réttar, þá hefðu fyrirtæki, sem ekki hefðu efni á að byggja, ekkert að gera við lóðir. Sigurjón sagði, að það væri ástæða til að hafa áhyggjur af því að ekki skyldi vera hægt að úthluta þeim fyrirtækjum lóðum, sem áhuga hefðu á því að festa sig í sessi í Reykjavík. Einnig væri það áhyggjuefni ef svo væri sem sýnd- ist að fyrri úthlutanir hefðu verið ótímabærar. Þá sagði Sigurjón að rétt hefði verið að ræða þetta mál í borgarstjórn og vissulega væri rétt að hafa af þessu áhyggjur. Að ræðu Sigurjóns lokinni tók til máls Björgvin Guðmundsson (A). Hann tók undir það, að lítið hefði orðið úr framkvæmdum á ýmsum þeim lóðum sem úthlutað hefði verið á síðustu árum. Þá vék hann að svæði því sem Iðngarðar hefðu fengið úthlutað í Skeifunni á sínum tíma, og lýsti áhyggjum sínum yfir því að ekki hefði enn verið hafist handa við byggingu. Hann sagði borginá ekki hafa efni á því að láta aðila liggja með lóðir og aðhafast ekkert á þeim. Hann taldi nauðsynlegt að undirbúningi nýrra iðnaðarsvæða yrði hraðað, en sagði jafnframt að skipuiags- vinna væri seinvirk. Meirihlutinn taki skipulagsmálin fastari tökum Að máli Björgvins loknu tók Birgir Isl. Gunnarsson til máls. Hann sagði að hér væri um brýnt mál að ræða. Harmaði hann jafn- framt að sumir þeir, sem fengið hefðu úthlutað lóðum, hefðu ekki hafið byggingu á þeim. Hann sagðist reiðubúinn til þess að fara yfir þessar úthlutanir með meiri- hlutanum og setja byggingaraðil- um tímamörk. Hann sagðist ekki hafa trú á því að svæðið við Úlfarsfell yrði tilbúið fyrir 1981, en þó vonaðist hann til að svo færi. Hann sagðist telja að meirihlutinn ætti að taka skipulagsmálin fast- ari tökum, þó svo að Alþýðubanda- lagið væri á móti skipulagningu. Hann sagðist telja að borgin sigldi inn í algeran lóðaskort, ekki bara á lóðum undir atvinnuhúsnæði, held- ur einnig á lóðum undir íbúðar- húsnæði. Nýkomið dömu og herra tréklossar Póstsendum. VERZLUNtN GEÍSÍIB plisrrgmti^ í Kaupmannahöf n FÆST í BLAÐASÖLUNNI ÁJÁRNBRAUTAR- STÖÐINNI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.