Morgunblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980
Jóhanna Sigurðar-
dóttir Minningarorð
HAPPDRÆTTISLÁN RlKISSJÓÐS
SKULDABRÉF 6
5. DRATTUR 18. JANÚAR 1980 SKRÁ UM VINNINGA
í vinningaskránni, sem birtist í blaðinu í gær, féll því miður
nidur síðasti hluti 10 þús. kr. vinninganna. Fer hann hér á eftir:
12669C
12669A
1268 1C
127416
127719
127988
128139
128219
128374
128515
128677
129054
12915C
129196
129279
12955C
129873
130044
130226
130232
130310
130831
131081
131526
131774
131795
132141
1326C6
132778
133GC4
133293
133376
134138
134381
134486
134772
134908
134912
134928
134949
135247
135323
135340
135555
135675
135684
135908
136070
136079
136244
136411
136442
136456
136468
136536
136542
136624
136642
136988
137028
137157
137198
137326
137609
137718
137830
137938
138111
138203
138338
138574
138583
138717
138819
138827
138916
138980
139352
139418
139640
139883
139904
140116
140178
140194
140643
141071
141087
141379
141687
141848
142585
142990
143046
143111
143137
143238
143292
143363
143553
143694
143733
143917
144328
144473
144689
144815
145069
145308
145550
145737
145739
145886
145908
146227
146602
146671
146961
146988
147315
147326
147394
147420
147732
147955
147966
148254
148267
148404
148516
148823
149082
149383
149711
149831
149966
Tónleikar Reger-
tríósins í tilefni
afmælis Germaniu
Fædd 27. apríl 1910.
Dáin 11. janúar 1980.
Þegar við nú kveðjum Jóhönnu
Sigurðardóttur er margs að minn-
ast frá því að við fyrst kynntumst
henni, þegar hún fluttist í Kópa-
vog fyrir rúmum 30 árum. Sumar
okkar kynntust henni þá strax en
aðrar, þegar þær fluttust hingað
seinna, en allar urðum við aðnjót-
andi hjálpsemi hennar og gest-
risni þeirra hjóna, en hún var gift
Asgeiri Jónssyni járnsmið og áttu
þau 3 syni: Björn, Jón Snorra og
Sigurð og auk þess ólu þau upp
Jón Ingólf, son Björns. Asgeir lést
árið 1975 og þar sem allir synirnir
voru farnir að heiman, fékk Jó-
hanna sér minni og þægilegri íbúð
í Reykjavík, en aldrei kunni hún
reglulega vel við sig þar og kom í
heimsókn á fornar slóðir í Kópa-
vog til að dást að útsýninu þaðan
yfir sjóinn og fjallahringinn á
meðan heilsan leyfði og jafnvel
undir það síðasta, þá hálf lasin,
var hún að koma hingað, svo mjög
þráði hún þennan stað. Oft var
gaman að heyra Jóhönnu rifja upp
ýmsa hlægilega atburði, sem gerst
höfðu hjá börnum okkar, þegar
þau voru lítil að leika sér saman
og hún kunni að segja skemmti-
lega frá. Eins hafði hún gaman af
ljóðum, enda orti Ásgeir maður
hennar nokkur skemmtileg ljóð og
Björn sonur þeirra gat líka sett
fram vísur og smá kvæði við ýmis
tækifæri. Sjálf átti hún líka til
með að koma okkur á óvart með
smá kveðskap, en lét mjög lítið
yfir sér í þeim efnum. Símaskrá
þurfti Jóhanna ekki, því hún
mundi öll þau símanúmer, sem
hún notaði, utanað. Þeegar þetta
minni hennar fór að gefa sig
skömmu fyrir andlát hennar,
grunaði okkur að hverju stefndi.
Við sendum fjölskyldu Jóhönnu
okkar innilegustu samúðarkveðjur
og hefðum óskað að fá að njóta
hennar lengur.
Nágrannakonur
í Kópavogi.
Jóhanna Ingibjörg Sigurðar-
dóttir fæddist að Sóleyjarvöllum í
Skeggjastaðahreppi þ. 27. apríl
árið 1910. Foreldrar hennar, Sig-
ríður Árnadóttir og Sigurður
Tómasson, bjuggu þá á Sóleyjar-
völlum en tæpu ári síðar lést
Sigurður og gekk þá Sigríður með
annað barn þeirra hjóna, Sigurð.
Sigríður fluttist með börnin til
foreldra sinna að Saurbæ í sömu
sveit og þar ólust þau systkin upp.
Um tvítugsaldur flutti Jóhanna
til Reykjavíkur þar sem hún
kynntist og gekk að eiga Ásgeir
Jónsson, járnsmið. Fyrstu búskap-
arárin bjuggu þau í Reykjavík en
síðan í Hveragerði, eða til ársins
1941 að þau fluttu aftur til
Reykjavíkur. Þá höfðu þau eignast
tvo drengi, Björn og Jón, og þriðji
sonurinn, Sigurður, fæddist
nokkrum árum síðar.
Þau Ásgeir og Jóhanna urðu
síðan meðal frumbýlinga í Kópa-
vogi, byrjuðu að byggja við Kópa-
vogsbrautina árið 1949 og áttu þar
heimili sitt allan sinn búskap þar
til Ásgeir lést árið 1975.
Jóhönnu kynntist ég þegar hún
var um fimmtugt og þau Ásgeir
bjuggu á Kópavogsbrautinni með
yngsta syni sínum og sonarsyni,
Jóni Ingólfi Björnssyni, sem ólst
upp hjá afa sínum og ömmu, og
móður Jóhönnu.
Þessi tuttugu ár sem við áttum
nokkra samleið var hún aldrei svo
heilsuhraust að ekki hefði mátt
segja að hún ætti nóg með sig og
sitt heimili. Samt hafði hún alltaf
þrek og tíma til að veita hjálp og
greiða öllum sem vildu þiggja og
var venjulega búin að bjóða lið-
sinni sitt áður en hun var beðin.
Umhyggja hennar fyrir barna-
börnunum var slík að engu var
líkara en hún teldi sig eiga meiri
skyldur við þau en jafnvel foreldr-
ar þeirra, enda hafði hún mestar
áhyggjur af því, þegar heilsan fór
verulega að bila, að kraftarnir
dygðu ekki til að sinna börnunum
eins og hún hefði viljað, prjóna
handa þeim, leyfa þeim að vera
hjá sér og gera þeim gott.
Ýmsir vilja trúa því að þeir
menn sem ástunda góðmennsku og
forðast að níðast á því sem þeim
er til trúað í þessu lífi eignist því
stærri sjóði hinum megin sem þeir
eru venjulega smáir hérna megin
hjá slíku fólki.
Ef svo er þá á Jóhanna tengda-
móðir mín innstæður í ósviknum
gjaldmiðli.
Þuríður Magnúsdóttir.
REGER tríóið leikur í Norræna
húsinu á vegum Germaníu og
Þýzka bókasafnsins, föstudaginn
1. febrúar kl. 20.30.
Félagið Germanía er sextíu ára
á þessu ári og eru hljómleikar
þessir þáttur í afmælishátíð fé-
lagsins.
Reger-tríóið ætlar að leika verk
eftir Schubert, Reger og Beethov-
en.
Tríóið hefur leikið kammer-
músík í Þýzkalandi, Bandaríkjun-
HINN 29. þ.m. eru liðin 120
ár frá fæðingu rússneska
rithöfundarins og leikskálds-
ins Antons Tsékhov. í tilefni
afmælisins verða sýndar
kvikmyndir, ljósmyndir og
bækur í MlR-salnum, Lauga-
vegi 178, um og eftir næstu
helgi.
Kvikmyndir verða sýndar
sem hér segir: Laugardaginn
um og einnig í Mið- og Suður:
Ameríku í meira en 9 ár. í
Þýzkalandi hefur tríóið tekið þátt
í hljómleikum ungra. listamanna,
til þess kjörinna sérstaklega af
hálfu samþandslýðveldisins.
Listamennirnir koma hingað
frá Osló og dvelja hér aðeins í tvo
daga.
I tilefni af afmæli Germaníu er
aðgangur að hljómleikum REG-
ER-tríósins öllum heimill (ókeyp-
is) á meðan húsrúm leyfir.
26. janúar kl. 3 síðdegis verða
sýndar tvær kvikmyndir gerð-
ar eftir samnefndum smásög-
um Tsékhovs: Óskilabarn og
Sænska eldspýtan. Fyrri sag-
an er ein af örstuttum, hnit-
miðuðum kímnisögum skálds-
ins, en hin sakamálasaga í
gamansömum tón. Enskir
skýringartextar eru með ann-
arri myndinni.
Sunnudaginn 27. janúar kl.
4 síðdegis verður sýnd kvik-
myndin Harmleikur á veið-
um, byggð á einni af lengri
sögum Tsékhovs. Myndin er
sýnd án þýddra skýringar-
texta.
Þriðjudaginn 29. jan. kl.
20.20 verður Vanja frændi, hið
kunna leikrit Tsékhovs, sýnt á
rússnesku, án þýddra texta. Á
undan myndinni verður sýnd
heimildarkvikmynd um skáld-
ið, en skýringar með þeirri
mynd eru fluttar á norsku.
í MÍR-salnum verða settar
upp sýningar á ljósmyndum og
bókum í tilefni 120 ára afmæl-
is Antons Tsékhov.
Aðgangur að MÍR-salnum,
Laugavegi 178, er ókeypis og
öllum heimill.
(Frá MÍR).
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Hvað er til ráða, þegar menn hafa syndgað gegn fólki,
sem lifir ekki lengur? Ég er fullur iðrunar vegna hins
liðna og sakir alls þess, sem ég hefi illt gert, en ég get
ekki beðið fyrirgefningar, af því að þeir, sem ég braut á
móti, eru látnir.
Úr því að þetta fólk er farið veg allrar veraldar,
eigið þér nú að leggja allt kapp á, að þér aukið ekki við
sekt yðar með því að gera þeim miska, sem nú lifa.
Það er góð byrjun að biðja Guð að fyrirgefa misgerðir
fortíðarinnar og biðja þess, að þér mættuð nú
umgangast fólk með hugarfari Krists.
Við erum allir að eðli til þrasgjarnir, hörundssárir,
reiðigjarnir og uppstökkir. Þetta eru einkenni hins
fallna eðlis okkar og eðlileg viðbrögð í ætt Adams.
En Biblían segir, að allir menn hafi dáið í Adam og
að allir muni lifna í Jesú Kristi. Lesið í 5. kap.
Galatabréfsins um verk holdsins. Þar sjáið þér helztu
einkenni venjulegs, eðlilegs manns. En í 22. versinu
má lesa um ávöxt andans, þegar menn lifa í samfélagi
við Krist. Þar kemur friður í stað reiði, góðvild í stað
flokkadrátta og elska í stað haturs.
Þetta er það, sem yður varðar mestu, að hjarta yðar
verði musteri anda Guðs, svo að ill hegðun víki fyrir
dyggðum Krists.
Þó að þér neytið allrar orku, fáið þér ekki breytt
eðli yðar. Kristur einn getur gert það. Biblían segir:
„Ef einhver er í Kristi, er hann ný skepna; hið gamla
varð að engu. Sjá, það er orðið nýtt.“
+
FRÚ LÁRA ÞORSTEINSDÓTTIR,
Karlagötu 16, Reykjavík
andaöist í Landsspítalanum 10. þessa mánaöar. Útförin fór fram í
kyrrþey samkv. ósk hinnar látnu.
Fyrir hönd vina og vandamanna,
Þorkell G. Sigurbjörnsson.
+
Fööurbróöir okkar
JÚLÍUS E. SIGVALDASON
Þórsgötu 7a
veröur jarðsunginn frá Fossvogskirkju, föstudaginn 25. janúar kl.
13.30.
Gunnar Jónsson,
Guðmundur Jónsson.
t
Útför
DOKTORS JÓNS GÍSLASONAR
fyrrum skólastjóra Verzlunarskólans
veröur gerö frá Dómkirkjunni á morgun, föstudaginn 25. janúar, kl.
13,30.
Blóm og kransar afþökkuö. Þeir, sem vildu minnast hans eru
beönir um aö láta Verzlunarskóla íslands njóta þess.
Fyrir hönd vandamanna
Lea Eggertsdóttir
+
Innilegar þakkir til allra er auösýndu okkur samúö sína viö andlát
og útför sonar okkar, dóttursonar og sonarsonar
ANDRA GARDARS GUÐMUNDSSONAR
Karen Garöarsdóttir, Guðmundur Ó. Hafsteinsson,
Unnur Kjartansdóttir, Garöar Ingvarsson,
Marý Guömundsdóttir, Hafsteinn Sigurösson.
+
Innilegar þakkir fyrlr auösýnda samúö og vinarhug viö andlát og
útför móöur minnar
GUÐRÚNAR EYJÓLFSDÓTTUR
Sundlaugarvegi 24
Eyjólfur Eyjólfsson.
120 ár frá fæðingu
Antons Tsékhovs