Morgunblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980
37
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100KL. 10—11
FRÁ MÁNUDEGI
wujrWnPK'aa'u ir
þessari mikilhæfu og ógleyman-
legu konu er mótaði með lífi sínu
og starfi svo margar ungar stúlk-
ur, er síðar urðu húsfreyjur og
mæður víðs vegar um landið.
Uppeldisáhrifa hennar gætir enn.
Um Kristjönu Pétursdóttur
mætti skrifa langa bók, til þess
væri enginn færari en Páll H.
Jónsson. Hafi hann heila þökk
fyrir útvarpserindi um göfuga
konu.
Hljóðvarpið á lof skilið fyrir
slíkt efni sem erindi Páls. Mætt-
um við fá meira að heyra.
Þá vil ég þakka fyrir leikritið
„Bjössi á Tréstöðum". Þótti mér
gaman að, er sögunni kunn frá
fyrri tíð , hún var frumsmíð
höfundar, sem síðan hefur látið
margar bækur frá sér fara. Guð-
mundur L. Friðfinnsson bóndi á
Egilsá segir skemmtilega frá og
minnisstæð er sagan „Hinum
megin við heiminn". Guðmundur
gaf út ljóð, „Málað á gler,„ 1977.
Það er bók sem lætur lítið yfir sér,
en í henni er ekkert gróm.
Laufey Sigurðardóttir
frá Torfufeili.
Þessir hringdu . . .
Af hverju
brosa þeir
við ósigur
Kjósandi hringdi:
Af hverju brosa alltaf stanz-
laust blessaðir mennirnir sem
puða við að koma saman ríkis-
stjórn. Dæmi eru um að menn
brosi að unnum sigri, en ekki eftir
holskeflur ósigra.
Það birtist hver myndin af
annarri í blöðunum af stjórnar-
myndunarsamkundum mannanna,
og þeir skælbrosa á þeim öllum,
þótt ekkert gangi hjá þeim. Ég sé
fyrir mér öðru vísi mynd af
kjósendum þeirra. Ætli mennirnir
haldi að við. séum allir fæddir
hálfvitar. Og hvað ætla þeir að
halda lengi áfram á þessum kaffi-
fundum sínum, meðan þjóðin er í
hönk, eins og okkur er sagt?
Tískusýning
f kvöld
kl. 21.30
Modelsamtökin sýna.
• Barnabækur
útilokaðar?
Bókmenntamaður hringdi:
Það er ánægjulegt til þess að
vita að bókmenntaverðlaun Norð-
urlandaráðs skuli hafa verið veitt
konu, það er eins og þær hafi lengi
verið útilokaðar við veitingu verð-
launanna. En að þessum jafnrétt-
issigri áunnum er þó enn eitt sem
stingur innilega í augu varðandi
úthlutun verðlaunanna, en það er
að ein grein bókmenntana skuli
vera útilokuð frá þeim. Það eru
barnabækurnar, allar aðrar bók-
menntagreinar koma til álita við
úthlutun verðlaunanna.
Mér finnst að eindregið þurfi að
breyta þessu, og eðlilegt að það
verði tekið til athugunar þar sem
barnaár er fyrir skömmu liðið. Þó
við tölum ekki um ísland, þá eru
margir frábærir barnabókahöf-
undar á Norðurlöndunum. Það er
ekki verið að biðja um gott veður
fyrir barnabókahöfunda, heldur er
hér um jafnréttismál að ræða.
Við teljumst vera mikil bók-
menntaþjóð, ekki sízt út á við, og
skora ég á fulltrúa okkar hjá
Norðurlandaráði og í dómnefnd-
inni að taka málið til athugunar.
Það vekti mikla athygli ekki
aðeins á Norðurlöndum, ef barna-
bækur yrðu jafnréttháar fyrir
verðlaununum og aðrar greinar
bókmennta. Og með því að berjast
fyrir þessu jafnrétti kæmi fram að
íslendingar væru ekki haldnir
fordómum á sviði bókmennta.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á alþjóðlegu skákmóti í Decin í
Tékkóslóvakíu á síðasta sumri
kom þessi staða upp í skák þeirra
Meduna, Tékkóslóvakíu, og Os-
manovics, Júgóslavíu, sem hafði-
svart og átti leik.
25. ... Rxh3!, 26. Kxh3 - Hf6,
27. Dh4 - Hh6, 28. Hgl - Hf8,
29. Hbel og hvítur gafst upp án
þess að bíða eftir svari svarts, sem
hefði án efa verið hinn skemmti-
legi leikur, 29... ,Hf4!
HÖGNI HREKKVÍSI
Morgunblaðið
óskar eftir
blaðburöarfólki
Uppl. í síma 35408
Úthverfi:
Heiðargerði
Álfheimar II
MANNI OG KONNA
HAGTRYGGING HF
Notið endurskinsmerki.