Morgunblaðið - 24.01.1980, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JANÚAR 1980
39
VniHHffHHmHIHffffMi
Allt í óvissu með
ólympíuleikana
Ólympíuleikarnir sem íram
eiga að fara í Moskvu í júlí á
sumri komanda, eru í stórhættu,
meiri hættu en nokkru sinni fyrr.
Þó að fólk segi, að pólitík eigi
ekki að koma iþróttum við, væri
fásinna að halda því fram, að
þetta tvennt héldist ekki í hend-
ur. Nú stefnir allt í það, að
Ólympíuleikarnir fari út um þúf-
ur, ekki svo að skilja að þeir fari
ekki fram, heldur að nokkrar
stærstu þjóðirnar verði þar ekki
meðal þátttakenda.
Það þarf varla að taka fram,
að styrinn stendur allur um
innrás Sovétmenna í Afganistan
og handtöku Sakharovs.
Jimmy Carter Bandaríkjafor-
seti hvatti fyrir skömmu banda-
ríska íþróttamenn til þess að láta
leikana í Moskvu lönd og leið og
eins og staðan er í dag, bendir
ýmislegt til þess að Bandaríkin
verði ekki meðal þátttökuþjóða að
þessu sinni og er þar stórt skarð
fyrir skildi.
Þá þykir ýmislegt benda til
þess, að Bretar hugsi sér að hætta
við. Nýlega sagði Richard Palmer,
formaður Ólympíunefndar Breta,
að þeir væru nýbúnir að fá
formlegt boð um að taka þatt í
leikunum. „Við munum ekki einu
sinni hugleiða heimboð Sovét-
manna að sinni. Við ætlum okkur
að halda áfram undirbúningi fyrir
leikana, en eins og staðan er í dag
þori ég ekki að lofa því að við
verðum með,“ sagði Palmer.
Alþjóðlega Ólympíunefndin hef-
ur eðlilega miklar áhyggjur af
gangi mála, en getur varla annað
gert en að óska eftir því við
viðkomandi lönd, að stjórnmálin
fái ekki að ráða ferðinni. Killianin
lávarður, forseti alþjóða Ólympíu-
nefndarinnar, sagðist harma það
moldrok, sem Carter hefði rótað
upp. „Þetta er ekkert annað en
vanhugsuð fljótfærni hjá forset-
anum, en ég er mjög ánægður með
þau viðbrögð margra íþrótta-
manna í Bandaríkjunum, sem
vilja ekki blanda saman stjórn-
málum og íþróttum og hafa fullan
hug á að keppa á leikunum eftir
sem áður,“ sagði Killianin nýlega
► ★
við opinbert tækifæri. Killianin
bætti því við, að það væri bæði
tæknilega og lagalega útilokað að
flytja leikana og það myndi skaða
Ólympíunefndina meira en sov-
ésku stjórnina ef lönd í vestri
hættu við þátttöku, auk þess sem
það myndi líklega ganga af leikun-
um dauðum fyrir fullt og allt.
Hvað gerist er ekki gott að
ímynda sér, en ljóst er þó, að það
er ekki víst að ríkisstjórnir við-
komandi ríkja og íþróttahreyf-
ingar verði sammála um aðgerðir.
Kannski verður því ekkert úr því
að lönd eins og Bandaríkin og
Bretland hætti við þátttöku, enda
eru það enn sem komið er fyrst og
fremst stjórnvöld en ekki íþrótta-
hreyfingarnar sjálfar sem hafa
látið mest í sér heyra. Hvað sem
verður ofan á, er ljóst, að Ólymp-
íuleikarnir fara fram í skugga
ískyggilegs ástands í heimsmálum
og líklega verður ekki ýkja mikill
vinarhugur eða íþróttaandi
keppnisþjóða á milli.
Til að bæta síðan gráu ofan á
svart, horfir einnig ískyggilega
með vetrarólympíuleikana sem
fram eiga að fara New York í
næsta mánuði, nánar tiltekið við
Lake Placid. En ástæðurnar eru
allt aðrar en að framan greinir.
Það rignir nefnilega hvern daginn
af öðrum við Lake Placid, rignir í
stað þess að snjóa.
Víkingar leita þjálfara
VÍKINGAR leita nú fyrir sér um
þjálfara fyrir 1. deildar lið fé-
lagsins. Eins og fram hefur
komið í fréttum, fékk Youri
Ilitschev, hinn sovéski þjálfari
Víkinga, ekki heimild til að
þjálfa hjá félaginu í sumar. í Vísi
í gær var viðtal við Jón Aðalstein
Jónasson, formann félagsins.
Hann gagnrýndi harðlega hina
sovésku sendiráðsmenn og kall-
aði þá dóna.
Morgunblaðið sneri sér til Þórs
Síinonar Ragnarssonar, stjórn-
armanns hjá Víkingi. Hann hefur
staðið í eldlínunni í samningum
við sovéska sendiráðið. „Við urð-
um fyrir miklum vonbrigðum með
að fá ekki Youri Ilitschev til
starfa hjá félaginu. Við höfðum
bundið vonir við að hann fengi að
ljúka því starfi, sem hann hafði
hafið hjá félaginu. Sovéskir þjálf-
arar verða hins vegar að hlíta
reglum, sem stjórnvöld þeirra
setja þeim og þeim getum við ekki
breytt. Urslit samninganna eru
enda löngu kunn. Hvort öllum
siðareglum í bréfaskiptum okkar
við sendiráðið háfi verið fylgt út í
yztu æsar finnst mér aukaatriði.
Við bíðum nú svars frá sendiráð-
inu með upplýsingum um þjálfara,
sem þeir hafa boðið. Við höfum
mætt kurteisi og vilja hjá starfs-
mönnum sendiráðsins. Orð Jóns
Aðalsteins finnast mér bæði
óþörf og óviðeigandi,“ sagði Þór
Símon Ragnarsson.
Þess má geta, að Víkingar hafa
nú aflað ,sér upplýsinga um þjálf-
ara frá V-Þýzkalandi, Hollandi og
Belgíu og er verið að athuga þá
þjálfara sem í boði eru, auk þess
sem kunnur knattspyrnufrömuður
í V-Þýzkalandi leitar nú fyrir
félagið að hæfum mönnum. Bogd-
an Kosalczyk, hinn pólski þjálfari
handknattleiksdeildarinnar, hefur
hafið þrekæfingar með meistara-
flokki Víkings.
HHalls.
Driemaal scheepsrecht voor
ingekomen Amor Gndjohnsen
I I Sp. Lokeren - S.V. Waregem: 2-1
■Gudjohnsen kopt onzekerheid
I weg tien minuten voor slot j
• Yngsti atvinnumaður ísiendinga í knattspyrnu, Arnór Guðjohnsen, sem leikur með belgíska félaginu
Lokeren, sem er nú í efsta sætinu í 1. deildinni í Belgíu, hefur ekki verið fastur leikmaður með liðinu í
vetur. Arnór hefur hins vegar ávallt komið inn á í síðari hálfleik og þá átt góðan leik. Þrívegis i vetur
hefur hann skorað sigurmark liðs síns. Síðast á móti Waregem en þá sigraði Lokeren 2—1. Þótti Arnór
sýna svo góðan leik að mikið var fjallað um hann i belgiskum blöðum með flennistórum fyrirsögnum eins
og sjá má hér að ofan. Myndin er af Arnóri þar sem hann skorar sigurmarkið með skalla. Nú hefur Arnór
unnið sér fast sæti í byrjunarliðinu og lék með allan síðasta leik. í þeim leik meiddist pólski leikmaðurinn
Lubanski mjög illa, brákaðist á fæti og verður frá í fjórar vikur. — þr.
„Tveir hafa skrifað undir
— mál annara þriggja óljós“
MIKIL blaðaskrif (ekki þó í
Mbl.) hafa að undanförnu orðið
um svokallaðan „flótta“ knatt-
spyrnumanna frá Keflavík. Hafa
svo mörg nöfn verið í nefnd í
þessu sambandi að undanförnu
að menn eru orðnir ruglaðir á
öllu saman. Hefði helst mátt ætla,
að ÍBK væri að missa allt meist-
araflokksliðið til Svíþjóðar. Til
að fá einhvern botn í þetta mál,
hafði Mbl. samband við Hafstein
Guðmundsson i Keflavík.
„Það eru nú ekki nema tveir
sem hafa skrifað undir samninga
við sænsk félög, Þorsteinn Ólafs-
son við Gautaborg og Sigurður
Björgvinsson við Örgryte. Hins
vegar eru þrír með samning í
höndunum. Ragnar Margeirsson
hefur nú verið í Gautaborg á aðra
viku og kæmi svo sem ekki á óvart
þó að hann' gengi til liðs við liðið.
Hins vegar komu þeir Rúnar
Georgsson og Einar Ásbjörn Ól-
afsson heim fyrir skömmu með
samning í höndunum frá sænsku
2. deildarliði. Þeir voru hins vegar
ekkert of ánægðir með tilboðið og
það mál er því í biðstöðu eins og
er“, sagði Hafsteinn.
„Fleiri hafa verið nefndir, t.d.
Sigurbjörn Gústafsson og Þórir
Sigfússon, auk nokkurra sem voru
alls ekki í liðinu hjá okkur í fyrra,
heldur niðri í Njarðvíkum, Gísli
Grétarsson og Hilmar Hjálmars-
son. Hvað verður ofan á hjá
þessum strákum er mjög á reiki en
mér sýnist að við missum kannski
3—4 menn. En við vonumst til
þess að fá nýja menn í staðinn, t.d.
fáum við Gísla Torfason í fullu
fjöri á hýjan leik og við gerum
okkur vonir um að endurheimta
Þorstein Bjarnason frá Belgíu.
Ástandið er því kannski ekki eins
ískyggilegt og blaðaskrifin hafa
gefið í skyn,“ sagði Hafsteinn að
lokum.
Þetta þýðir þó engan veginn, að
ástandið sé ekki slæmt. Má t.d.
benda á íslandsmeistara ÍBV, sem
misstu fyrir skömmu tvo lykil-
menn sína til sænskra liða, Örn
Óskarsson til Örgryte og Ársæl
Sveinsson til Jönköping. Og hafi
Eyjamenn gert sér vonir um að
endurheimta Karl Sveinsson, þá
urðu þær vonir að engu er hann
gerði samning við Jönköping
ásamt bróður sínum. Annars hef-
ur ekki átt af IBV áð ganga á
síðustu misserum. Fyrir síðasta
keppnistímabil mættu þeir til
leiks án reyndra manna eins og
Ólafs Sigurvinssonar, Einars
Friðþjófssonar, Karls Sveinssonar
og Sigurláss Þorleifssonar. Engu
að síður varð liðið íslandsmeist-
ari. Nú hefur liðið ekki aðeins
misst þá Ársæl og Örn, heldur
hefur framherjinn sterki, Tómas
Pálsson, lýst því yfir, að hann sé
hættur þessu öllu saman. Ætli
ÍBV vinni þá ekki tvöfalt á næsta
keppnistímabili?
Það er óvenjulega mikil umferð
íslenskra leikmanna til Svíþjóðar
um þessar mundir. Frá því hefur
verið skýrt í Mbl., að Sveinbjörn
Hákonarson af Akranesi hafi fyrir
skömmu farið til viðræðna við
Sundsvall og Hörður Hilmarsson,
landsliðsmaður úr Val, mun á
næstunni eiga viðræður við 2.
deildarliðið AIK. Fleira mætti
nefna. Hér er greinilega um
slæma þróun að ræða, þar sem
hérlendis er ekki um svo ýkja
auðugan garð að gresja. Það
kemur því vægast sagt mjög á
óvart, að mál þetta skuli ekki hafa
borið á góma á nýafstöðnu árs-
þingi KSÍ, hefði mátt ætla að
einhverjir vildu leggja orð í belg
um eitthvað, sem hægt væri að
gera til að stöðva þessa þróun. En
svo var ekki. — Sg-
Ungmennasamband
Austur-Húnavatnssýslu
óskar eftir aö ráöa knattspyrnuþjálfara n.k. keppnis-
tímabil.
Upplýsingar gefur Guömundur Guömundsson í síma
95-4123 milli kl. 8 og 23 og 13—18.