Morgunblaðið - 20.02.1980, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. FEBRÚAR 1980
25
Enn flýr ballettfólk
+ Fyrir nokkru komu til
Bandarikjanna írá Tokyo
rússneskir ballettdansarar, sem
höfðu þar eystra ákveðið að
flýja „sæluríki" kommúnismans
í hcimalandi þeirra. — Þetta
flóttafólk eru Soulamief Mess-
erer ballettkennari (til vinstri)
og sonur hennar, Bolshoi-
dansarinn Mikhail Messerer. —
Þegar þau leituðu á náðir
stjórnvalda í Tokyo á flótta
sínum, hafði það vakið athygli
að starfsmenn sendiráðs Sov-
étríkjanna höfðu ekki komið og
beðið um að fá að eiga viðtal við
mæðginin eða á neinn hátt
reynt að stöðva flótta þeirra.
Myndin er tekin af mæðginun-
um í gegnum bílrúðu er þeim
var ekið á brott frá Kennedy-
flugvelli, við komu þeirra þang-
að, en þau ætla að setjast að í
Bandarikjunum.
Glaumskvísan
kemur víða við
+ Ilin fráskiida glaumskvisa
Soraya Khashoggi (var gift
arabíska auðjöfrinum Khash-
oggi) hefur verið mjög í fréttum
blaðanna undanfariö — beggja
vegna Atlantsála. Hún hefur
selt brezka æsifréttablaðinu
Daily Star frásögn sína af mjög
nánu ástarsambandi sinu við
brezka þingmanninn Winston
Churchill (sonarson brezku
stríðshetjunnar og forsætisráð-
herrans Winston Churchills).
Hefur hún brugðið upp æsi-
legum vettvangsiýsingum i
frásögn sinni af ástarleikjum
þeirra, sem þau hafi brugðið á
hvenær sem var og hvar sem
var og sjúkrastofur þá ekki
undanskildar. — Segist Soraya
hafa haft það í hendi sinni að
láta Churchill yfirgefa fjöl-
skyldu sína. konu og fjögur
börn, ef hún hefði bara skipað
honum að gera það. — Vestan-
hafs hefur hún sagt frá nokkr-
um kynnum sinum af Kennedy
heitnum forseta og áhuga hans
á nánara sambandi við hana.
Soraya er 37 ára að aldri, en
þingmaðurinn 39 ára. Mál þetta
kom í vetur til kasta Margrétar
forsætisráðherra Breta, sem
taldi ástarsamhand þessa fólks
ekki haía teflt öryggi iandsins í
hættu.
Aðsóps-
mikill
+ ítalska vikublaðið L’Euro-
peo hefur kannað hug lesenda
sinna til Jóhannesar Páls II.
páfa í Róm. Þar kom það fram,
að le^endurnir telja hann al-
mennt hafa staðið sig vel í
stöðunni og sýnt mikinn dugn-
að, enda sé hann aðsópsmikill.
Ein spurninganna var á þá
leið hvern páfanna telja mætti
kristilegastan til orðs og æðis.
Langsamlega flestir eða yfir
70 prósent þeirra, sem þátt
tóku í könnuninni töldu þar
skipa efsta sætið Jóhannes
páfa XXIII.
+ Þetta er nánast loftmynd af
Ronald Reagan einu forseta-
efna republikana í forseta-
kosningunum i Bandaríkjun-
um á næsta hausti. Hann varð
69 ára gamall nú í byrjun
þessa mánaðar. — Framan
við hann á borðinu stendur
heljarmikil „Hnallþóru-
afmælisterta“, skreytt með
áletruninni USA.
Starfsmaðurinn stal
listaverkunum
+ Fyrir nokkru var tekið til
dóms vestur í Chicagoborg mál
er tekur til listaverkaþjófnaðar
sem þar var framinn á fyrra ári
og upp komst um um jólaleytið.
— Þá urðu menn þess áskynja í
listaverkasafni borgarinnar
„Chicago Art Institute“ að mál-
verk eftir einn af frönsku
meisturunum. Paul Cézanne
voru horfin úr listaverka-
geymslu safnsins. Hér var um
að ræða verk, sem voru metin á
4,5 milljónir dollara (1,8 millj-
arða ísl. kr.).
í maímánuði siðastliðnum
var einn starfsmanna safnsins,
29 ára gamall maður, handtek-
inn i sambandi við mál þetta. —
Hann hafði stolið þessum lista-
verkum og fundust þau
óskemmd með öllu í hans
vörzlu. — Við rannsókn þessa
máls kom í ljós að maðurinn
hafði reynt að selja þau — fyrir
250.000 dollara, ekki Pétri og
Páli, heldur safnstjórninni í
Chicago!! Einsýnt þykir, segir í
fréttum, að starfsmaðurinn eigi
samkvæmt landslögum yfir
höfði sér allt að 25 ára fangels-
isdóm. Hann verður þvi kominn
nokkuð á sextugsaldur þegar
hann fær næst að fara frjáls
ferða sinna — nema hann hljóti
einhvern tíma náðun á afplán-
unartimabilinu.
Skemmti-
markaourmn
Sýningahöllinni
Bíldshöföa
í dag býöur útsölumarkaöur Karnabæjar
20% afsláttur
af útsöluverðinu
sem er u.þ.b. 70% afsláttur af búðarverði.
J
Kl. 1
opnum viö og viö minnum á öll fataefnin sem enn eru
fáanleg í fjölbreyttu úrvali.
Kl. 3
hefst fyrsta uppboöið og þar geta
allir gert ofboðslega góö kaup eins og dæmin sanna.
Kl. 3.30
Síldarævintýriö — íslenzk matvæli kynna og leyfa
gestum aö smakka
frábæra síldarrétti.
KI.4
veröur tízkusýning þar
sem sýnd veröa
fermingarfötin í ár frá
Karnabæ —
s 1 Karon sýnir.
Kl. 4.30
veröur annaö uppboö.
KI.5
mætír snillingurinn Baldur
Brjánsson galdramaöur og
sýnir listir sínar.
Kl. 5.30
heldur Þorgeír
enn eitt uppboöiö
KI.6
lokum viö svæöinu og þá
eru aöeins 2 dagar eftir.
LUKKUMIÐAHAPPDRÆTTIÐ
enn eru ósóttir nokkrir vinningar frá Karnabæ, ísl.
Matvælum, Steinum h.f., Tropicana og Glit —
Númerin eru 78 — 1985 — 3976 — 1100 — 2773
og 5211.
Aðalvinningurinn
— Útsýnarferð veröur svo dregin út á föstudag.
Á staönum er barnagæzla og veitingar á annarri
hæö.
Listkynning og grænmetismarkaöur á torginu
o.fl. o.fl.
Nú fer hver aö verða síðastur
að gera góð kaup. Verið ve|komin
Karnahær Glit h.f.
(allar verzlanir og Saumastofa) |. Pálmason,
Steinar h.f. Skóverzlun Þórðar Péturssonar
Blómaval Tómstundahúsið
Sól/Tropicana Gullkistan
íslenzk matvæli Melissa