Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980 Bjarni Benediktsson aflahæstur togaranna Þrír Vestfjarðatogarar hæstir minni skipanna VESTFIRZKU skuttogarana er flesta að finna í hópi þeirra skuttogara, sem með mestan afla komu á síðasta ári. Þaðan eru þeir þrír togarar af minni gerð, sem með mestan afla komu á land og aflaverðmæti skipa þaðan er mikið. í meðfylgjandi töflu er að finna afla, skiptaverðmæti og brúttó- verðmæti afla þeirra togara, sem komu með meira en 4 þúsund tonn á land á síðasta ári, 15 togara af minni gerðinni, en 10 stærri tog- aranna. Alls komu 80 skuttogarar með afla á síðasta ári 65 af minni gerð og 15 stórir. í töflunni er ekki að finna neinn austfirzku togaranna, en á því svæði varð Kambaröstin SU 200 aflahæst með 3.551 tonn, en Hof- fell SU 80 með 3.056 tonn. 15 aflahæstu minni skuttogararnir Guöbjörg ÍS 46 AflamaKn í tonnum 5.628 Skiptaverð- ma'ti i þús. 830.765 Brúttóvcrð- mæti i þúa. 962.527 Páll Pálsson ÍS 102 5.282 774.028 896.615 Dagrún ÍS 9 4.689 671.225 779.239 Har. Böðvarss. AK 12 4.638 566.735 654.181 Maí HF 346 4.525 570.292 693.931 Ásbjörn RE 50 4.350 550.277 638.775 Guðbjartur ÍS 16 4.342 641.972 745.674 Ásgeir RE 60 4.327 564:630 662.921 Júlíus Geirm.s. ÍS 270 4.240 650.290 725.815 Gyllir ÍS 261 4.224 603.699 698.732 Bessi ÍS 410 4.140 735.598 862.497 Dagstjarnan KE 9 4.117 510.039 638.775 Arnar HU 1 4.058 614.651 723.478 Framnes ÍS 708 4.040 607.092 712.809 Óskar Magnúss. AK 177 4.003 535.374 617.114 10 aflahæstu stærri skuttogaranna Bjarni Bened.s. RE 210 5.722 669.086 771.484 Kaldbakur EA 301 5.619 802.008 926.594 Vigri RE 71 5.327 707.604 877.717 Harðbakur EA 303 5.055 711.097 820.820 Ing. Arnars. RE 201 4.954 620.464 730.451 Svalbakur EA 302 4.784 686.050 793.579 Snorri Sturlus. RE 219 4.772 660.115 842.647 Ögri RE 72 4.294 749.363 1.014.249 Karlsefni RE 24 4.082 652.994 891.815 Jón Dan GK 141 4.042 511.792 630.138 Ljósm. Mbl Ól. K. M. Björgvin Guðmundsson leikur fyrsta leik fyrir Browne i skák hans við Sosonko við upphaf mótsins í gær. Reykjavíkurskákmótið: Guðmundur mæt- ir Vasjukov í dag REYKJAVÍKURSKÁKMÓTIÐ hófst á Hótel Loftleiðum klukkan 14 i gær. Að loknum ávörpum lék Björgvin Guðmundsson, varaforseti borgarstjórnar Reykjavikur, fyrsta leikinn í skák þeirra Browne, sigurvegara síðasta Reykjavikurskákmóts, og Sosonko. Vegna þess hve Morgunblaðið fer snemma i prentun á laugardögum er ekki hægt að birta úrslit 1. umferðarinnar nú. Önnur umferð mótsins verður tefld á Hótel Loftleiðum í dag og hefst hún klukkan 14. í dag tefla saman Guðmundur Sigurjónsson og Vasjukov, Browne og Byrne, Kupreicik og Schussler, Torre og Jón L. Árnason, Haukur Angan- týsson og Miles, Helmers og Margeir Pétursson, Sosonko og Helgi Ólafsson. Aðstaða fyrir áhorfendur er hin ákjósanlegasta á Hótel Loft- leiðum. Skákir verða sýndar á sjónvarpsskermum og skákmenn munu skýra skákirnar fyrir áhorfendum. Vandaöar innréifingar Norema innréttingar hafa nokkra kosti umfram aðrar tegundir eldhúsinnréttinga. Sný mér alveg að stjórnar- formennsk- 1. Mjög sterkt efni, vandaður frágangur. 2. Allar hurðir opnast 170°, ekki bara 90°. 3. Stærri og rúmmeiri skápar, allt að 40% meira pláss. unm ÁSTÆÐA þess að ég hætti sem ritstjóri Visis er sú, að ég ætla að snúa mér alveg að þeim störfum, sem fylgja stjórnarformennsku i Reykjaprenti hf. Það hefur farið talsverður tími í þau störf frá ritstjórninni, en samt ekki nægi- legur,“ sagði Hörður Einarsson ritstjóri Vísis og stjórnarformaður Reykjaprents hf. í samtali við Mbl. í gær. Hörður varð formaður Reykjaprents í júní 1977 og rit- stjóri hefur hann verið frá 1. janúar 1979. „Mér hefur fundizt gaman í blaða- mennskunni núna, eins og áður, þegar ég hef stundað hana,“ sagði Hörður, er Mbl. spurði hann, hvort það væri án eftirsjár, að hann hyrfi aftur úr ritstjórastólnum. „En ég sé ekki eftir stólnum," bætti hann við. Leikbrúöuland: Meistari Nú getið þér vaiið um 11 gerðir eldhúsinnréttinga og skoðað flestar þeirra í rúmgóðum sýningarsal okkar að Háteigsvegi 3. Við veitum yður allar ráðleggingar varðandi innréttingar, og gerum yður tilboð að kostnaðarlausu og án nokkurra skuldbindinga. Hringið eða skrifið og fáið heimsendan bækling. STUTTUR AFGREIÐSLUTÍMI, 1 Vz-2 mánuðir. innréttingahúsiö Háteigsvegi 3 Verslun sími 27344 Jakob í dag MEISTARI Jakob hefur horfið í skuggann fyrir öðrum persónum í Leikbrúðulandi undanfarin 3 ár. En nú er hann kominn á kreik á nýjan leik og verða sýndir 3 þættir næstu þrjá sunnudaga. Tveir þeirra hafa verið sýndir áður. Þættirnir eru sýndir allir í einu. Leikbrúðuland er til húsa að Fríkirkjuvegi 11. Miðasala er opn- uð kl. 13.00 og miðar teknir frá í síma 15937. Ellert B. Schram ritstjóri Vísis „BLAÐAMENNSKAN cr skcmmti lcgt starf. Ilún hcfur tcngsl við allar hliðar mannlifsins og mcnn gcta látið í ljós sínar skoðanir. Það cr cf til vill viljinn til að láta i mér hcyra. scm mcstu ræður um þcssa ákviirðun mína.“ sagði Ellcrt B. Schram. fyrr- vcrandi alþingismaður. í samtali við Mhl. í gær. cn 1. marz n.k. tckur Ellcrt við starfi ritstjúra Visis af Hcrði Einarssyni. Ellert sagði, að hann væri nú hvorki ókunnugur blaðamennskunni né Vísi, því á skólaárum sínum hefði hann starfað sem blaðamaður á Vísi með námi. „Vísir hefur verið og er sjálf- stætt blað. Á því verður engin breyt- ing með minni tilkomu," sagði Ellert. Mbl. spurði Ellert, hvort hann hygðist hætta þátttöku í stjórnmál- um. „Menn eru í pólitík alla ævi,“ svaraði Ellert. „Það er hluti af lífinu að hafa skoðanir.“ Mbl. spurði Hörð, hvort einhverj- ar breytingar yrðu á Vísi í kjölfar þessara mannaskipta: Hann sagði: „Það hafa engar ákvarðanir verið teknar um nein áform í þá átt. Auðvitað erum við alltaf með hugann við einhverjar breytingar, en það er ekkert þannig ákveðið nú, að hægt sé að skýra frá því.“ „Nei. Ritstjórn Vísis mun hafa alveg sömu stefnu áfram og verið hefur," sagði Hörður, er Mbl. spurði hann, hvort í undirbúningi væru einhverjar breytingar varðandi heildarstefnu Vísis. (Frá Leikbrúðulandi)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.