Morgunblaðið - 24.02.1980, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
29
brekkubrúh vestanvert við inn-
taksvirki. Þaðan verður lögð 220
kV háspennulína.
Verksamningur var gerður 23.
maí 1978 við verktakafyrirtækin
ístak hf., Loftorku, Miðfell,
Skánska Sementsgjuteriet í
Svíþjóð og Phil og Sön AB í
Danmörku, sem síðar tóku upp
nafnið Fossvirki sf, um gröft á
stöðvarhúsgrunni og tilheyrandi
vantsvarnir. Verkið hófst 9. júní
og lauk 15. desember 1979 og voru
fjarlægðir um 650 þúsund rúm-
metrar af jarðvegi. Þá voru borað-
ar 13 holur allt í kringum svæðið
og settar dælur í holurnar. Þær
dæla um 300 sekúdnulítrum af
vatni (grunnvatni) og gera því
kleift að stunda framkvæmdir í
grunninum. Heildarsamnings-
upphæð er 1,1 milljarður króna.
Steypuframkvæmdir
Fossvirkis
í maí 1979 voru undirritaðir
samningar við Fossvirki um að
taka að sér steypuvinnu í stöðv-
arhúsi ásamt tilheyrandi steypu-
framleiðslu. Verkið hófst 14. maí
og því lauk 12. desember 1979 eða
tveimur mánuðum á undan áætl-
un. Höfðu þá verið steyptir um 15
þúsund rúmmetrar eða helmingur
af allri steypu í stöðvarhúsið.
Landsvirkjun lagði til 2 bygg-
ingakrana og allt steypustyrkt-
arstál og sement, sem í verkið
þurfti. Heildarsamningsupphæð
er 1,8 milljarðar króna.
Þá hefur verið samið við Foss-
virki um áframhaldandi verkefni.
Fossvirki hefur tekið að sér að
ljúka steypuvinnu við stöðvarhús
og að steypa inntaksmannvirki og
fyrirtækjasamsteypan sér einnig
um alla steypuefnis- og steypu-
framleiðslu í virkjunina en hún er
hvorki meira né minna en 45
þúsund rúmmetrar. Þess má geta
til samanburðar að 50—60 rúm-
metra af steypu þarf í venjulegt
einbýlishús svo að í virkjunina fer
steypa, sem duga myndi í 750—900
venjuleg einbýlishús. Enda er
stöðvarhúsið sjálft engin smá-
smíði, 70 metra langt, 40 metra
hátt og 40 metra breitt. Veggir
þess eru 1—2 metrar á þykkt en
veggir í venjulegu einbýlishúsi eru
10—20 sentimetra þykkir. Vegna
hinnar miklu steypuframleiðslu
hefur Landsvirkjun keypt nýja
steypustöð til afnota fyrir verk-
takann og verður hún sett upp í
vor.
Samningar voru undirritaðir við
Fossvirki 11. desember s.l. og er
samningsupphæðin um 6,5 millj-
arðar króna. Framkvæmdir sam-
kvæmt þessum samningi hófust
12. desember s.l. og hefur verið
unnið sleitulaust síðan nema hvað
hlé var gert yfir hátíðarnar.
Verkinu á að ljúka 15. ágúst 1982
en fyrsta vélasamstæðan á að
komast í gagnið nokkru fyrr eða
haustið 1981 eins og áður sagði.
Verkinu
miðar vel
Nú vinna um 85 manns við
þessar framkvæmdir að sögn Sig-
fúsar Thorarensens verkfræðings,
byggingastjóra fyrirtækisins.
Hefur verkinu miðað vel en kulda-
tíð í byrjun ár3ins olli erfiðleikum.
Vegna kuldanna í vetur hefur
þurft að hita upp mótin svo að
steypa frysi ekki og er það hið
tækjakost hefur Landsvirkjun
keypt stórvirkar vinnuvélar af
Caterpillargerð fyrir rúmar 1000
milljónir króna og verða þær
leigðar Hraunvirki á grundvelli
kaupleigusamnings. Geysilegir
efnisflutningar munu eiga sér stað
í sambandi við þetta verk, landinu
nánast umbreytt. Fluttir verða
1700—1800 rúmmetrar efnis það-
an sem aðrennslisskurðurinn
kemur og í stífluna. Skurðdýpt
verður mest 30 metrar og breidd
skurðarins verður mest 19 metrar
en lengd einn kílómetri. Stíflan
verður 3 kílómetrar að lengd, 15
metra há, 45 metra breið neðst og
16 metra breið efst og í gerð
hennar nægir ekki sá jarðvegur,
sem fluttur verður úr skurðinum
heldur þarf að flytja að viðbótar-
efni úr nágrenninu.
Verkefni fyrir
11,2 milljarða
Hér hetur verið stiklað á því
stærsta sem íslenzkir verktakar
hafa unnið að og vinna nú að við
þessa miklu virkjun. Eins og sjá
má er um gífurlegar fjárhæðir að
ræða og nú vinna þau tvö fyrir-
tæki, sem áður eru upp talin,
Fossvirki og Hraunvirki, að verk-
efnum fyrir um 11,2 milljarða
króna. Ekki verður hér fjölyrt um
aðra verktaka erlenda, en þeir
helstu eru ASEA í Svíþjóð, sem
framleiðir vélasamstæðurnar, og
Magrini Galeleo á Ítalíu, sem
hefur tekið að sér framleiðslu og
uppsetningu á stálþrýstivatnspíp-
um en ítalska fyrirtækið hefur
falið Stálsmiðjunni hf. fram-
Tímamót í
virkjanasög-
unni — Virkj-
unin aðallega
byggö af
íslendingum
— 600 manns
vinna við
Hrauneyja-
fossvirkjun í
sumar
leiðslu á einingum fyrir þrýsti-
vatnspípurnar, en annast sjálft
frágang á staðnum. Aðalspennar
eru framleiddir og settir upp af
portúgalska fyrirtækinu EFAC-
EC.
Vinnubúðir hafa verið settar
upp á tveimur stöðum við Hraun-
eyjafossvirkjun, við stöðvarhúsið,
þar sem starfsemi Fossvirkis fer
fram, og nálægt þeim stað þar sem
stíflan mun standa en þar verður
athafnasvæði Hraunvirkis. Þarna
munu á 700. manns vinna í sumar
við þessar miklu framkvæmdir,
sem eru svo stórbrotnar að erfitt
er að lýsa þeim með orðum. Þar er
sjón sögu ríkari. -SS.
Vel skal vanda til þess sem lengi
á að standa. Steypustyrktarjám-
ið er ekki sparað eins og sjá má.
mesta . vandaverk að vinna í
steypuvinnu við þessar aðstæður
uppi í óbyggðum. En Sigfús sagði
að vanur og góður mannskapur
tryggði það að verkið gengi vel.
Þegar blaðamenn stöldruðu við s.l.
fimmtudag var unnið að steypu-
framkvæmdum og þann dag átti
að steypa 200 rúmmetra eða eins
og fjögur einbýlishús tæplega.
í ársbyrjun 1979 var samið við
Hraunvirki hf. um gröft fyrir
steypumannvirkjum í inntaki og
flóðgáttum. Verksamningur að
upphæð 117 milljónir var gerður
og síðan viðbótarsamningur við
Hraunvirki um hreinsun fyrir
stíflu o.fl. að upphæð tæp 81
milljón kr. Verkið hófst 28. maí og
var lokið 14. desember 1979.
Verkefni
Hraunvirkis
Gröftur aðrennslisskurðarins og
stíflugerðin er feikna mikið verk
og var það boðið út í ársbyrjun
1979. Samið var við lægstbjóðanda
Hraunvirki, en það fyrirtæki er
stofnað af Ellert Skúlasyni hf.,
Svavari Skúlasyni hf. og Verk-
fræðiþjónustu Jóhanns G. Berg-
þórssonar. Verksamningur hljóð-
aði upp á nær 4,8 milljarða króna
og var undirritaður 11. desember
s.l. Á fimmtudag var verktakinn
að koma með fyrstu vélarnar á
virkjunarstaðinn og sögðu þeir
Ellert Skúlason og Jóhann G.
Bergþórsson, að verkið yrði komið
í fullan gang eftir páska. Verkinu
á að ljúka í september 1981.
Til þess að tryggja nægan
' Ilæftarjofmm frárennslls1
mslisskurður
StöÖvarhús.
; •; -
: Þrýstivatnspípur
f
Inntak Í!
Temtivirki
Sy, Aðrennslisskurður
•TUMaN*!'
Veitumannvirki
■9. M '
't.
\ Stiflan
TuaaNai
Yfirlltsmynd af virkjunarsvæðinu
my.s.