Morgunblaðið - 24.02.1980, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
5
I Hertogastræti í kvöld:
Prinsinn af Wales snýr sér að
stjórnarstörfum í stað Lovísu
í sjónvarpi i kvöld klukkan drottningar sem hvað lencst var ur hann þá konungur. Slítur hanr
í sjónvarpi i kvöld klukkan
21.50 er á dagskrá þriðji þáttur
framhaldsmyndaflokksins i Iler-
tocastræti, sem eins og kunnugt
er, er hyccður á sannsögulegum
atburðum i Englandi laust eftir
síðustu aldamót. Þættir þessir
lýsa vel lífi þjónustufólks þar i
landi á velmektardögum Breska
heimsveldisins sáluga, og jafn-
framt koma vel i ljós viðhorf
húsbændanna til þjónustufólks
sins, sem það oft á tiðum litur á
sem búpening, einkum þegar
ástamál eru annars vegar.
í síðasta þætti gerðist það, að
sjálfur prinsinn af Wales, erfingi
krúnunnar, verður ástfanginn af
Lovísu eldabusku, og vill gjarna
taka upp við hana nánara sam-
neyti. En þar sem hans hágöfgi er
siðavandur svo af ber, þá krefst
hann þess að stúlkan gifti sig, svo
hann þurfi ekki að leggjast í þá
svívirðu að halda við ógifta konu.
Er Lovísu nánast þröngvað til að
lofast butlernum Trotter, þó hún
beri ekki ástarhug til hans. Er
þeim síðan fengið stórhýsi mikið
til eignar og ábúðar, en þættinum
lauk þar sem prinsinn er kominn
til að heimta brúðartollinn.
Þess má geta til fróðleiks, að
prins sá af Wales sem hér kemur
við sögu, var sonur Viktoríu
drottningar sem hvað lengst var
við völd, og var hann því faðir
Játvarðar þess er varð að segja af
sér konungdómi vegna ástar
sinnar á frú Simpson, en þá sögu
alla þekkja íslenskir sjónvarps-
áhorfendur mæta vel. Kunnara er
en frá þurfi að segja, að foreldrar
Játvarðar, kunnu ekki að meta
samband þeirra Wallis Simpson,
sérstaklega er ljóst varð að svo
gæti farið að úr því yrði hjóna-
band. I góðu lagi var hins vegar
talið að prinsinn héldi við konuna,
og þegjandi samkomulag var um
það við bresk blöð, að þau skýrðu
ekki frá slíkum hliðarsporum
karlmanna við hirðina. Framhjá-
hald var ekki talið af hinu illa ef
ekki varð úr því gifting við fólk úr
lægri stéttum, svo æskilegt var
talið að frillur þessara eðalbornu
manna væru giftar, og helst að
eiginmaður þeirra bæði vissi um
og samþykkti samband þeirra við
meðlimi konungsfjölskyldunnar.
Þess munu jafnvel vera dæmi frá
hirðlífi við ýmsar hirðir Evrópu
fyrr á tímum, að eiginmenn væru
stoltir af því að konur þeirra
héldu við einhverja háttsetta
menn!
í þættinum í kvöld, gerist það
helst markvert, að móðir prinsins,
Viktoría drottning, deyr, og verð-
ur hann þá konungur. Slítur hann
þá öllu sambandi sínu við Lovísu,
en hún snýr sér að annars konar
viðskiptum í staðinn. Kaupir hún
hótel í samvinnu við mann sinn
Trotter og systur hans, Nóru, en
reksturinn gengur brösótt. Ræður
það miklu um, að Trotter gerist
drykkfelldur, og Nóra er ekki
starfi sínu vaxin, þannig að Lovísu
er nauðugur sá einn kostur að losa
sig við þau systkini.
Myndaflokkurinn er sem fyrr
segir á dagskrá klukkan 21.15 í
kvöld, en þýðandi er Dóra
Hafsteinsdóttir.
Lovísa lærði það af monsjör Alex. að nauðsynlegt væri að velja allt i
matinn af mikilli kostgæíni. jafnvel „allt til hinnar smæstu kartöflu“.
eins og hann orðaði það. Ilér sést Lovísa á markaðstorginu að velja sér
ávexti i máltíð handa hans hágöfgi. prinsinum af Wales.
Framhaldsleikritið í útvarpi á morgun:
Leiðangursmenn
búa sig undir
gönguna til lands
ein af þeim allra bestu!
Það er engin tilviljun að Rímtni er talin
ein af allra bestu baðströndum í Evrópu.
Spegiltær sjór og sandur, íbúðir oghótelí
sérflokki, íþrótta- og útivistaraðstaða
hin fullkomnasta og tækifæri fyrir börnin
óvenju fjölbreytt.
Rímini iðar af lífi og fjöri allan sólarhring-
inn. Maturinn ódýr og afbragðsgóður,
skemmtistaðir og diskótek á hverju strái
og al/s staðar krökkt afkátu fó/ki, jafnt að
degi sem nóttu.
Skoðunarferðir til Rómar, Feneyja,
Flórens, Júgóslavíu, San Marínó, Frassini
dropasteinshellanna og víðar. Gisting í
íbúðum á Giardino Riccione og I Porto
Verde. Hótelherbergi á Milton hóteli.
Spyrjið um Rímíni bæklinginn - þar eru
allar upplýsingar og i verðtöflunni má
finna tilboð sem eiga sér fáar hliðstæður.
Kynnið ykkur hinn verulega
barnaafslátt ifa
í ÚTVARPI á morgun, mánudag,
klukkan 17.20 verður fluttur
fjórði þátturinn af framhalds-
leikriti Lars Brolings, „Andréc-
leiðangrinum". Steinunn Bjar-
man gerði þýðinguna, en leik-
stjóri er Þórhallur Sigurðsson.
Með hlutverkin fara Þorsteinn
Gunnarsson, Jón Gunnarsson,
Hákon Waagc og Jón Júliusson,
sem er sögumaður.
í síðasta þætti var sagt frá
ferðinni með loftbelgnum, en hún
gekk mjög skrykkjótt og endaði
með því að þeir urðu að lenda á
ísnum eftir aðeins 65 klukkutíma
loftsiglingu.
Leiðangursmenn búa sig nú
undir gönguna til lands, en þangað
eru yfir 300 kílómetrar, hvort sem
þeir fara í suðvestur eða suðaust-
ur. Þeir skjóta ísbirni sér til
matar, en síðar kemur í ljós að
farið hefði betur, hefðu þeir ekki
þurft þess. Þeir veikjast hver af
öðrum...
Tvö dufl úr leiðangri Andrées. Það minna fannst rekið í Kollafirði i
maímánuði það herrans ár 1899.
Útvarp í kvöld klukkan 19.35:
Bein lína um skatta-
framtal einstaklinga
Þátturinn Bein lína er á
dagskrá útvarps í kvöld,
sunnudagskvöld, klukkan
19.35. í þættinum svarar Sig-
urbjörn Þorbjörnsson ríkis-
skattstjóri spurningum hlust-
enda um gerð skattframtals
einstaklinga.
Þeir hlustendur, sem óska
að leggja fram spurningar í
þættinum, geta hringt í síma
útvarpsins, (91) 22260, á með-
an á útsendingu stendur.
Umsjónarmenn Þáttarins
eru þeir Vilhelm G. Kristins-
son og Jón Ásgeirsson, en
þátturinn hefst sem fyrr segir
þegar að loknum fréttum.
BEINT DAGFLUG
auðvelt og áhyggjulaust
Alltaf eitthvað nýtt
Samvinnuferóir-Landsýn ,
AUSTURSTRÆT112 - SÍMAR 27077 & 28899
PORTO VERDE
- einn af frábærum
gististöðum okkar
á Rímíni ströndinni
* mfmá » | 3« ■
* iIJefl BLi