Morgunblaðið - 24.02.1980, Síða 16

Morgunblaðið - 24.02.1980, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980 17 fBotfgíll Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aóalstræti 6, sími 22480. Afgreiósla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 4.500,00 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 230 kr. eintakiö. Breytingarnar í örygg- ismálum á norðurhveli jarðar endurspeglast í þeim umræðum, sem nú fara fram um eflingu varna Noregs og Danmerkur. Aukinn viðbún- aður þessara landa kemur fram í áætlunum um endur- bætur á flugvöllum í löndun- um og þar verði fyrir komið hergögnum til afnota fyrir aðfluttan liðsauka á hættu- tímum. Við aðildina að Atl- antshafsbandalaginu 1949 mótuðu norsk og dönsk stjórnvöld þá stefnu að leyfa ekki erlendar herstöðvar í löndum sínum. Þessari stefnu hefur verið fylgt síðan og engin áform eru uppi um að hvika frá henni. Friður hefur haldist í Evr- ópu síðan Atlantshafsbanda- lagið var stofnað, en mikil breyting hefur orðið á hern- aðarstöðunni. Ekki síst verð- ur þessarar breytingar vart, þegar litið er til svonefndra jaðarsvæða Atlantshafs- bandalagsins í suðri og norðri. Við landamæri Nor- egs á Kola-Skaga hafa Sov- étmenn byggt upp eitt mesta víghreiður veraldar og þaðan sækja kafbátar, herskip og flugvélar út á Atlantshaf og suður fyrir ísland eins og dæmin sanna. Norðmönnum er ljóst, að sú hætta er fyrir hendi, að á úrslitastundu geti Sovét- menn lokað aðflutningsleið- um á sjó fyrir nauðsynleg þungavopn til Noregs. Til þess að vera við öllu búnir hafa Norðmenn því mælst til þess við samaðila sína að Atlantshafsbandalaginu, og þó einkum Bandaríkjamenn, að þeir flytji á friðartímum þau hergögn til Noregs, sem liðsauki á hættustundu þyrfti að nota. Það er misskilningur að halda, að þessi afstaða norskra stjórnvalda sé til orðin vegna þrýstings frá Bandaríkjamönnum eða í kjölfar atburðanna í Afg- anistan. Umræður um þetta hafa lengi farið fram, en málið er blásið út núna ekki síst vegna þess, að sovéska áróðursvélin hefur farið rösklega af stað. Þeir, sem kynna sér afstöðu Norð- manna, sjá, að hjá þeim koma fremur fram áhyggjur yfir því, að Bandaríkjamenn og aðrir skilji ekki, hve alvarlegar afleiðingar út- þenslustefna Sovétríkjanna hefur haft fyrir Noreg, held- ur en Norðmenn telji sig beitta óeðlilegum bandarísk- um þrýstingi. Ef til vill má segja, að innrásin í Afganist- an hafi aukið skilning Bandaríkjamanna á þessu norska sjónarmiði. Aukin umsvif sovéska flot- ans á Eystrasalti valda Dön- um og fleiri þjóðum á því svæði áhyggjum. Sovésk herskip sigla jafnt um Eyr- arsund, Litlabelti sem Stóra- belti og fyrir fáeinum árum sendu Sovétmenn sex kaf- báta búna kjarnorkueld- flaugum inn á Eystrasalt og hafa þeir verið þar síðan. Hefur þessi þróun hvatt Dani sérstaklega til aukins viðbúnaðar. Minna má á, að nýlega var þess getið í bresku blaði, að á Eystra- salti hefðu Sovétmenn efnt til landgönguæfinga, sem vestrænir sérfræðingar mátu á þann veg, að þar hefðu þeir æft landgöngu á ísland eða Hjaltlandseyjar. Danir og Normenn telja sér ekki nauðsynlegt að hafa erlendar herstöðvar í lönd- um sínum, enda telur danski herinn tæplega 35 þúsund menn og sá norski 39 þús- und. Er það mat dönsku og norsku ríkisstjórnanna, að þessi liðsafli dugi til að halda í horfinu, þar til liðs- auki berst og nauðsynlegar undirbúningsráðstafanir séu gerðar. Þá er ljóst, að breyttu ríkin um stefnu gagnvart erlendum her- stöðvum kynni það að gefa Sovétmönnum átyllu til enn meiri hernaðarumsvifa og gæti til dæmis leitt til þess, að þeir heimtuðu herstöðvar í Finnlandi. Viðbrögð Sovétmanna við auknum varúðarráðstöfun- um Dana og Norðmanna einkennast af slagorðum og rangfærslum. Ekki síst bitn- ar þetta harkalega á Norð- mönnum. Og einkennilegt er, hve víða menn virðast ginn- keyptir fyrir þessum áróðri, til dæmis sjást þess merki hér á landi í umfjöllun um þessi mál. íslendingar ættu að huga að því, hvernig okkar eigin staða yrði og breyttist, ef Norðmenn og Danir hyrfu frá einarðlegri varnarstefnu sinni og létu undir höfuð leggjast að bregðast við breyttum aðstæðum með viðeigandi hætti. Slík upp- gjöf gæti auðveldlega fært járntjaldið nær okkur og undanlátssemi gagnvart áróðri Sovétmanna verður aðeins til þess, að þeir færast í aukana. í umræðum um öryggis- mál er sú tilhneiging manna hættulegust að neita að horfast í augu við staðreynd- ir og láta óskhyggjuna ráða. Norðmenn og Danir eru með mildasta hætti að bregðast við auknum hernaðarumsvif- um Sovétmanna á norður- hveli jarðar. í því efni leita þeir að sjálfsögðu styrks innan þess varnarbandalags, sem þeir eru aðilar að, og þar eru Bandaríkin öflugust. Áróðursvél Kremlverja þyrl- ar síðan upp sínu venjulega blekkingarmoldviðri. Þeir sem telja unnt að brúa bilið milli þeirra sovésku ósann- inda og hins sem raunveru- lega er að gerast lenda í miklum ógöngum. Danir og Norðmenn ef la varnir sínar Birgir ísl. Gunnarsson: Maður og list Um síðustu helgi var haldið hér í Reykjavík listaþing undir nafninu „Maður og list“. Þing þetta var haldið á vegum sam- takanna „Líf og land“, en þau samtök eru ung að árum. Þó hafa þau þegar látið margt gott af sér leiða í borgarlífinu. Þetta er þriðja ráðstefna sam- takanna, en í febrúar 1979 var efnt til ráðstefnu, sem hét „Maður og umhverfi", og var þar fjallað um hina ýmsu þætti umhverfismála. I júní sl. var haldin ráðstefnan „Maður og borg“, en þar voru teknir fyrir ýmsir þættir borgarskipulags. íslenzk list viðfangsefnið í þetta sinn var fjallað um íslenzka list og teknir fyrir ýmsir þættir, sem snerta lista- starfsemi, stöðu íslenzkra lista, fjármögnun og aðstöðu listafólks og loks listfræðsla. Inn á milli erinda og umræðna var skotið ýmsum listflutningi ágætra listamanna. Ráðstefnur Líf og lands hafa verið með nokkuð sérstöku sniði. Ráðstefnan um helgina stóð í tvo daga. Flutt voru 32 erindi, sem standa skyldu í 10 mínútur hvert og voru öll erindin fyrirfram gefin út í bók sem ráðstefnugest- ir gátu haft í höndum. Allt gerði þetta ráðstefnuna mjög skipu- lega og fasta í sniðum og tryggði, að þátttakendur fengju eins mikið út úr fundunum og mögu- legt var. Ráðstefnan endaði síðan með pallborðsumræðum formanna listgreinafélaga. Avarpsorð formanns I ávarpsorðum sínum sagði formaður samtakanna, Jón Ótt- ar Ragnarsson m.a.: „Oft vill það gleymast að UMHVERFIÐ er fleira en áþreifanlegir hlutir. Hið huglæga umhverfi — trúin, venjurnar og menningin — er ekki síður mikilvægt. Mótun þess og „fegrun“ hefur ekki síður verið viðfangefni listamanna, líklega höfuðvettvangur þeirra." Síðar sagði Jón: „Þar sem listin er óumdeilanlega kjarni menningar — sumir myndu segja menningin sjálf — hljóta málefni listarinnar ávallt að þurfa að sitja í fyrirrúmi. Fjár- framiög til lista og menningar- mála ættu að vera með því allra fyrsta sem tekin væri ákvörðun „Listaþingið að Kjarvalsstöðum itarlega fjaliað um þátt rikisins á þeirra þátt í þessari grein.“ um við stefnumótun í fjármálum ríkisins". Framlög ríkisins til menningarmála Þessi orð leiða hugann að umræðum, um framlög ríkisins til menningarmála. Á ráðstefn- unni um helgina var m.a. bent á það, að 0,46% af útgjöldum ríkisins í heild væri ætlað til lista og listtúlkunar miðað við fjárlagafrumvarp fyrir 1980. Hafa ýmsir bent á, að framlög þessi séu mjög skorin við nögl og að þau þyrftu að aukast og að ríkið þyrfti að hafa ákveðnari stefnu í menningarmálum. Þáttur sveitar- félaga Á ráðstefnunni var ekki fjallað um þátt sveitarfélaga í lista- og menningarmálum, en hann hef- ur verið æði mikill. Reykjavíkur- var merkilegt innlegg í umræðu um lista- og menningarmál. Þar var í þessum efnum, en lítið um þátt sveitarfélaganna. Nokkuð er drepið borg leggur t.d. á ári hverju verulegt fjármagn til lista- og menningarmála, a.m.k. ef borið’ er saman við fjárlög ríkisins. Stærstu liðirnir eru rekstrar- styrkur til Leikfélags Reykja- víkur, Sinfóníuhljómsveitar og rekstur Kjarvalsstaða. Rekstur Borgarbókasafns og annarra safna verður að flokkast undir menningarmál. Byggingarkostn- aður Borgarleikhúss, styrkir til ýmissa hópa, sem stunda listir og listaverkakaup eru og greinar á þessum sama meiði, svo og styrkir til myndlista- og tón- listaskóla. Árið 1978 var á fjárhagsáætl- un Reykjavíkurborgar ætlaðar 635.8 millj. kr. til lista- og menningarstarfsemi, en það var 4,3% af heildarútgjöldum borg- arsjóðs. Árið 1979 var sambæri- leg tala 908,8 millj kr. eða 3,8% af heildarútgjöldum borgar- sjóðs. Það segir nokkfa sögu í þessum efnum, að hlutfallið minnkaði verulega, þegar vinstri flokkarnir tóku völdin. Stefna Reykja- víkurborgar Þegar Sjálfstæðisflokkurinn hafði meirhluta í Reykjavík var það stefna flokksins, að hafa jafnan í gangi eitt stórt verkefni á menningarsviðinu. Þannig voru Kjarvalsstaðir byggðir og strax í kjölfar þeirra hafin bygging Borgarleikhúss, en sú framkvæmd hefur nú verið stöðvuð. Hér hafa verið rifjaðir upp nokkrir þættir í lista- og menn- ingarstarfsemi Reykjavíkur- borgar sem einskonar framhald þeirrar umræðu, sem var á Kjarvalsstöðum um síðustu helgi. Önnur sveitarfélög leggja og mikið af mörkum til menn- ingarmála og væri reyndar fróð- legt að gera einskonar úttekt á því, en það framlag er oft ekki síður mikilvægt en starfsemi ríkisins á þessum sviðum. Ráðstefna Líf og Lands var gott framtak og er vonandi að samtökin haldi áfram á þessari braut. j Reykj avíkurbréf Laugardagur 23. febrúar Morgunblaðið og launamálin Þorsteinn Pálsson, fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bands Islands skrifaði grein hér í blaðið sl. miðvikudag, þar sem hann gerði athugasemdir við efni síðasta Reykjavíkurbréfs. Kjarn- inn í grein Þorsteins Pálssonar eru eftirfarandi ásakanir á hend- ur Morgunblaðinu: I fyrsta lagi stundi Morgunblað- ið „kersknipólitík" í launamálum með því að erta pólitíska andstæð- inga með ummælum þeirra um launamál eftir því, hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandstöðu. í öðru lagi sé Morgunblaðið við sama heygarðshorn og ASÍ á þann veg, að það vilji ekki taka mið af efnahagslegum forsendum við gerð nýrra kjarasamninga. í þriðja lagi sé ekkert bitastætt að finna í skrifum Morgunblaðsins um afstöðu þess sjálfs til kjara- mála. Þessum þungu ásökunum á hendur Morgunblaðinu fylgir framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands íslands svo eftir með þessari spurningu: „Telur Morgunblaðið, að nú séu þær aðstæður fyrir hendi að auka megi kaupmátt? Er það ósammála af- stöðu fjármálaráðherrans, hvað sem líður fyrri skoðunum hans og þeirri afstöðu sem VSÍ hefur tekið?" Það sem Þorsteinn Pálsson er raunverulega að gera er einfald- lega það, að hann er að taka undir þann áróður vinstri manna í áratugi, að þegar Morgunblaðið sé í andstöðu við þá ríkisstjórn, sem situr í landinu hvetji það launþega til að setja fram kröfur um háar kauphækkanir og fylgja þeim eftir með verkföllum en þegar Morgun- blaðið styðji ríkisstjórn sjái það enga möguleika á kjarabótum launþegum til handa. Þetta hefði framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambands íslands átt að segja umbúðalaust í stað þess að vefja skrif sín inn í umbúðir eins konar „kersknipólitíkur" í garð Morgunblaðsins en eins og hann sjálfur segir þá er þessi „gamal- dags kersknipólitík ekkert fram- lag til þeirrar nýsköpunar", sem við þurfum á að halda og eiga þau ummæli bezt við um „þrætubóka- list“ hans sjálfs. Fyrsta ásökun Þorsteins Vinstri flokkarnir hafa allir rekið þá pólitík árum saman að hvetja launþegasamtökin til stífrar kröfugerðar í launamálum, þegar þeir hafa verið utan stjórn- ar. Þeir hafa beinlínis beitt áhrif- um sínum í launþegasamtökunum til þess að bola frá völdum ríkis- stjórnum, sem þeim hafa ekki verið þóknanlegar. Versta dæmið um þetta er að sjálfsögðu sú barátta, sem hafin var veturinn 1978 gegn febrúarlögum ríkis- stjórnar Geirs Hallgrímssonar. Þá misnotuðu Alþýðubandalag og Al- þýðuflokkur launþegasamtökin í þágu stjórnarandstöðunnar á ósvífnari hátt en dæmi eru um í íslenzkri stjórnmálabaráttu síðustu 25 ár a.m.k. Fjármunum félaganna og starfskröftum var beitt í því skyni að hefja stórfellt stríð á hendur þeirri ríkisstjórn. Þessi misnotkun bar árangur. Þáverandi stjórnarflokkar töpuðu miklu fylgi. Ný vinstri stjórn tók við völdum. Þá brá svo við, að Alþýðubandalag og Alþýðuflokkur sneru við blaðinu. Þeir gengu til kosninga undir kjörorðinu: samn- ingana í gildi. En um leið og þeir voru komnir í ríkisstjórn sviku þeir þetta loforð við kjósendur og hófu að skerða vísitöluna með nákvæmlega sama hætti og ríkis- stjórn Geir Hallgrímssonar hafði gert. Það er eitt mikilvægasta verk- efnið í stjórnmálabaráttunni hér að leiða þennan tvískinnung í ljós, að koma því til skila til fólksins í landinu, að talsmenn þessara flokka segja eitt fyrir kosningar og annað eftir kosningar, að þeir fylgja sömu stefnu í ríkisstjórn og þeir berjast á móti, ef þeir eru utan ríkisstjórnar. Ástæðan fyrir því, að þetta er svo mikilvægt er einfaldlega sú, að um leið og almenningur gerir sér rækilega grein fyrir þessum tvískinnungi má búast við því, að í stað þess að verðlauna þá stjórnmálaflokka, sem reka ábyrgðarlausa pólitík af þessu tagi eins og kjósendur gerðu sumarið 1978, muni þéir refsa þeim. Og þá er kominn grundvöll- ur til þess að hér verði rekin ábyrg stefna í efnahagsmálum. Markviss viðleitni Morgunblaðsins í þessum efnum er því engin „kersknipóli- tík“, hún er engin „þrætubókar- list“, hún er þvert á móti mikils- vert framlag til þeirrar nýsköpun- ar í efnahagsmálum sem hér þarf að verða. Og það er aldeilis furðulegt, að framkvæmdastjóri Vinnuveitendasambandsins skuli ekki gera sér grein fyrir því, hversu þýðingarmikið það er í öllum umræðum um efnahagsmál að leiða þennan tvískinnung fram og að hann, í stað þess að fagna þessu framtaki Morgunblaðsins, skuli ganga í lið með andstæðing- um blaðsins til þess að koma því inn hjá fólki, að Morgunblaðið sjálft sé sekt um þann tvískinn- ung, sem það er að vekja athygli á hjá öðrum. Með því leggur Þor- steinn Pálsson ekki fram skerf til þess að stuðla að nýsköpun í þjóðmálaumræðum, heldur þvert á móti stuðlar hann að því að þær haldi áfram í þeim farvegi, sem þær hafa verið. • • Onnur ásökun Þorsteins í grein sinni segir fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins: „Það hefur ekki tíðkast, að launþegasamtök styddu kröfur sínar efnahagslegum rökum. í raun réttri ætti þó ekki að taka kröfur þeirra til alvarlegrar um- fjöllunar, nema þær væru studdar slíkum rökum. Samningaráð VSÍ hefur á hverjum fundi með samn- inganefnd ASÍ sett fram ósk um, að báðir aðilar settu niður sameig- inlega sérfræðinganefnd til þess að meta þær efnahagslegu for- sendur, sem endurnýjun kjara- samninga ætti að taka mið af. Þessari ósk hefur alfarið verið hafnað af ASÍ. Vinnuveitenda- sambandið telur þar á móti, að það skipti verulegu máli, hver greiðslugeta atvinnuveganna er, hvað kaupkröfurnar kosta í heild, hvort þær geti skilað kaupmáttar- aukningu, eða séu aðeins vatn á mylluhjól verðbólgunnar, hvaða áhrif þær hafa á samkeppnis- hæfni • atvinnuveganna, gengi krónunnar og viðskiptajöfnuð. ASI vill ekki horfast í augu við þessar spurningar. Og Morgun- blaðið sýnist vera við sama hey- garðshornið, þó að þar liggi e.t.v. aðrar ástæður að baki.“ Þetta er dæmalaus staðhæfing, sleggjudómur, sem er fram- kvæmdastjóra Vinnuveitendasam- bands íslands ekki samboðin. Enginn fjölmiðill á íslandi hefur varið jafn miklum tíma og rúmi, starfskröftum og fjármunum til þess að upplýsa lesendur sína um þær efnahagslegu staðreyndir, sem kjarasamningar hverju sinni taka mið af og þjóðarbúið stendur frammi fyrir. Þetta er áreiðanlega í fyrsta sinn, sem sú ásökun er borin fram á hendur Morgunblað- inu, að það taki ekki nægilegt tillit til efnahagslegra staðreynda í skrifum sínum, þvert á móti hefur blaðið hingað til verið ásakað um það, að „jórtra" alltaf á þeirri sömu „tuggu", að enginn grund- völlur væri til kjarabóta. Ef skýringin á þessari dæma- lausu staðhæfingu er sú, að Þor- steinn Pálsson eigi einungis við þetta tiltekna Reykjavíkurbréf er svarið það, að höfundur Reykja- víkurbréfs fjallar hverju sinni um kjaramál og önnur mál út frá því sjónarhorni sem honum sýnist og tekur ekki við neinum fyrirmæl- um um það, hvernig það er gert frá höfuðstöðvum vinnuveitenda í landinu. Þannig segir Þorsteinn Pálsson í grein sinni: „í nefndu Reykjavíkurbréfi er ekki gerð minnsta tilraun til þess að meta þær efnahagslegu aðstæður sem setja þjóðinni mörk við útgjalda- ákvarðanir. Því síður er tekin afstaða til markmiða og leiða í þeim efnum." Svarið er: það stóð ekki til. í nefndu Reykjavíkurbréfi var fjall- að um allt aðra þætti þessara mála, þ.e. tvískinnunginn í mál- flutningi hinna nýju valdhafa og spurt var hvernig landbúnaðar- pólitíkin gæti samræmst launa- stefnunni. Þriðja ásökun Þorsteins Morgunblaðið þarf ekki að skammast sín fyrir skrif blaðsins um kjaramál á undanförnum ár- um. I þeim efnum hefur blaðið verið sjálfu sér samkvæmt í einu og öllu. Síðustu stóru kjarasamn- ingar voru gerðir í júní 1977. I byrjun júnímánaðar 1977, þeg- ar samningaviðræður stóðu enn yfir varaði blaðið við því, sem að stefndi. I forystugrein Morgun- blaðsins 2. júní það ár sagði m.a.: „Á þessu stigi verður að sjálfsögðu engu spáð um það, hvers konar kjarasamningar verða gerðir að lokum. Einungis er hægt að vekja athygli á því á grundvelli þeirra hugmynda, sem fyrir liggja, að samningaviðræður þessar eru þeg- ar komnar á hættumörk. Hætta er á enn einum verðbólgusamningn- um með þeim áhrifum og afleið- ingum, sem það hefur fyrir þjóð- arbúskap okkar og lífskjör al- mennings í landinu. Það er óhrekjanleg staðreynd, að bezta kjarabótin, sem hægt er að tryggja láglaunafólki er sú að draga úr verðbólgunni. Óðaverð- bólga undanfarinna ára hefur leitt til þess, að kjör þeirra, sem við lægri laun búa og lífeyrisþega hafa versnað mun meira en hinna. sem efnameiri eru.“ í raun má segja, að þessi ummæli í forystugrein Morgun- blaðsins fyrir þremur árum lýsi stefnu blaðsins í kjaramálum í dag. Þegar kjarasamningar höfðu verið undirritaðir birti Morgun- blaðið forystugrein, þar sem fjall- að var um þá hinn 24. júní 1977. Þar sagði: „Kjarasamningar þeir, sem undirritaðir voru á Loftleiða- hótelinu í fyrradag eru verðbólgu- samningar, líklega einhverjir mestu verðbólgusamningar, sem hér hafa verið gerðir." í samræmi við þessa afstöðu Morgunblaðsins beitti blaðið sér gegn verkfallsbaráttu opinberra starfsmanna haustið 1977. Morg- unblaðið studdi einnig eindregið viðleitni Geirs Hallgrímssonar og ríkisstjórnar hans í febrúar 1978 til þess að ná tökum á verðbólg- unni með skerðingu vísitölubóta á laun annarra en lægst launaða fólksins. En hvað gerðist svo? Sam- kvæmt kenningum Þorsteins Pálssonar ætti Morgunblaðið að hafa tekið upp „kersknipólitík" í launamálum haustið 1978, þegar ný vinstri stjórn hafði tekið við völdum. Fyrst reyndi verulega á stefnu hennar í launamálum í desember 1978, þegar vinstri stjórnin skerti vísitölubætur á laun. Hver voru viðbrögð Morg- unbiaðsins þá? Hafi fram- kvæmdastjóri Vinnuveitendasam- bandsins rétt fyrir sér ætti Morg- unblaðið þá að hafa ráðist á vinstri stjórnina fyrir að skerða vísitöluna. Því fór fjarri. í for- ystugrein Morgunblaðsins 28. nóv- ember 1978 sagði svo um þá stefnu vinstri stjórnar: „Hins vegar vill Morgunblaðið nú, þegar þetta frumvarp er komið fram, ítreka ánægju sína með það, að forystu- menn þessara tveggja stjórnmála- flokka og þessi hópur verkalýðs- foringja gera sér nú raunsærri grein fyrir því, hvað nauðsynlegt er að gera til þess að ráða við verðbólguna ... ekki verður dregið úr núverandi verðbólgustigi með því vísitölukerfi, sem hér er við lýði.“ Og í forystugrein 30. nóv- ember segir blaðið: „Öllum er ljóst, að visitöluskerðing nú var jafn óhjákvæmileg og hún var í febrúar sl.“ Morgunblaðið var sjálfu sér samkvæmt, hvort sem það studdi ríkisstjórn eða var í stjórnarandstöðu. Eigi Þorsteinn Pálsson hins vegar við það, að í skrifum blaðs- ins nú undanfarnar vikur hafi ekkert „bitastætt" verið um af- stöðu blaðsins sjálfs til kjaramál- anna er svarið það, að þau hafa ekki verið á dagskrá að nokkru ráði. Morgunblaðið hefur haft öðru að sinna undanfarnar vikur, eins og Þorsteinn Pálsson veit vel og fram til þessa hafa kjaramálin ekki verið á því stigi að ástæða væri til að fjalla um þau sérstak- lega. Framkvæmdastjóri Vinnu- veitendasambandsins ætti því að hafa til að bera þá þolinmæði að bíða eftir umfjöllun Morgunblaðs- ins um kjaramál áður en hann hefur áróður gegn blaðinu um ábyrgðarlausa pólitík. Er hægt að auka kaup- máttinn? Þá er komið að þeirri spurningu, sem Þorsteinn Pálsson beinir til Morgunblaðsins í grein sinni þ.e. hvort hægt sé að auka kaupmátt launa, að mati blaðsins. Þetta er óþörf spurning. Framkvæmda- stjóri Vinnuveitendasambandsins veit mæta vel, hver afstaða Morg- unblaðsins er. Hún hefur ekkert breyzt frá því í júní 1977. Nú eru ekki betri aðstæður en þá til þess að bæta kjör fóiksins í landinu. Þvert á móti hafa aðstæður versn- að. Olíuverðið hefur farið upp úr öllu valdi, verðlag lækkar heldur á Bandaríkjamarkaði o.s.frv. En það stendur, sem sagði í forystugrein Morgunblaðsins 2. júní 1977, að kjör láglaunafólks og lífeyrisþega hafa versnað að mun í óðaverðbólgunni. Efnamunurinn í landinu hefur aukizt á þessum síðustu 10 árum óðaverðbólgu. Hinir ríku hafa orðið ríkari og hinir fátæku fátækari. Fari svo fram sem horfir endar það með allsherjar sprengingu. Samvizka okkar krefst þess að við beinum athygli okkar að þeim þjóðfélags- þegnum, sem við skarðastan hlut búa. Að því marki eiga bæði vinnuveitendur, launþegasamtök og ríkisstjórn að vinna. í þessu felst hins vegar ekki, að Morgunblaðið styðji fjármála- ráðherra og núverandi ríkisstjórn í launapólitík þeirra. Ástæðan er einfaldlega sú, að eins og málefna- samningur ríkisstjórnarinnar er settur upp er augljóst, að hún mun reka ábyrgðarlausa efnahagspóli- tík. Fjármálaráðherra segir, að ekki sé grundvöllur til grunn- kaupshækkana en hann virðist vera tilbúinn til þess að leggja fram mikið fé til að aðstoða bændastéttina, sem vissulega þarf á aðstoð að halda. Því hefur verið haldið fram, að útgjöld ríkissjóðs muni aukast um 25—30 milljarða á þessu ári. Það er auðvitað augljóst, að ríkisfjármálin stefna í botnlaust fen. Það er ekkert vit í því að segja í öðru orðinu, að ekki séu forsendur fyrir grunnkaups- hækkunum en stefna svo ríkis- fjármálum út í tóma vitleysu. Framkvæmdastjóri Vinnuveit- endasambandsins ætti fremur að fjalla um þennan dæmalausa tvískinnung í efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar en veitast að Morgunblaðinu. Við sköpum ekki svigrúm til umtalsverðra kjara- bóta á ný nema með því að leysa framtak einstaklingsins úr læð- ingi, gefa fólkinu frelsi til þess að Þorsteinn Pálsson: Stjórnmálaumræður bera þess stundum merki að þeir sem að þeim standa gera lakmarkaðar kröfur til sjálfra sin um röksemdafcrslu og skýra afstoðu Hofundur Reykja- víkurbréfs Morgunblaðsins síðast- innudag sýnir af sér þetta Kersknipólitík í launamálum andstæðinga af þvi að þeir snúast eins og vindhanar með launahækkun- um eða á móti eftir þvi, hvort þeir eru í stjórn eða stjórnarandatoðu. og draga óskylda aðila eins og VSt inn I þó þrætubókarlist. Auðvitar er það hlutverk blaða að vekja athyglí á taka megi á. En þessi skrif verða ekki skilin Oðru vísi en þannig, að Morgun- blaðið er að setja Vinnuveitendasam- bandið I það Ijós að það sé verkfæri I höndum rfkisstjórna til þess að brjóta á bak aftur sanngjarnar kröf- ur um launahækkanir. En þar sem Morgunblaðið horfir framhiá ollum muni lækka á þessu ári. Birtar hafa verið tölur, er aýna að viðskiptakjör hafa versnað um 19%. Þessi tala sýnir rýrnun kaupmáttar útflutn- ingstekna þjóðarbúsins Deilan, sem nú atendur snýat um það, hvort unnt er að auka kaupmátt launa um 25% eða meira þegar kaupmáttur útflutn- verði ekki um frekari rýrnun við- skiptakjara að ræða. Yrði á hinn bóginn gengiö að kröfum ASt stæðum við frammi fyrir 80—90% verðbólgu í lok ársins. Tillögur VSÍ gætu á hinn bóginn fært verðbólguatigið niður I rúmlega 40% á þessu ári. fumræóum um endurnýjun kjarasamninga geta eða séu aðeins vatn á mylluhjól verðbólgunnar, hvaða áhrif þær hafi á samkeppnishæfni atvinnuveganna, gengi krónunnar og viðskiptajöfnuð. ASÍ vill ekki horfast i augu við þessar spurningar. Og Morgunblaðið sýnist vera við sama heygarðahornið, þó að þar liggi e.t.v. aðrar áatæður að baki. bæta lífskjörin með eigin sköpun- arkrafti í stað þess að reyra athafnavilja og dug þjóðarinnar í fjötra vaxandi ríkisafskipta. Um þetta eru Morgunblaðið og Þor- steinn Pálsson áreiðanlega sam- mála. Eins og hér hefur verið sýnt fram á er Morgunblaðið sjálfu sér samkvæmt í skrifum sínum um kjaramál, hvort sem það styður ríkisstjórn eða er í stjórnarand- stöðu. En hvað um Vinnuveitenda- sambandið sjálft? Hvert er sam- ræmið í orðum þess og gerðum? Hingað til hefur einn aðalvandi efnahagsmálanna verið sá, að vinnuveitendur hafa lýst því yfir við upphaf kjarasamninga að ekki væru forsendur fyrir kauphækk- unum. Nokkrum vikum síðar hafa þeir gefist upp og skrifað undir stórfellda verðbólgusamninga. Þeir hafa ekki verið sá hemill á kauphækkanir, sem þeir eiga að vera. Það hefur ekkert samræmi verið í orðum þeirra og gerðum. Þorsteinn Pálsson ber ekki ábyrgð á því. En nú er hann ábyrgur fyrir orðum Vinnuveit- endasambands og gerðum. Og nú eru miklar kröfur gerðar til hans um samræmi milli orða og gerða. Það færi vel á því, að hann stæði við þær áður en hann gerði kröfifr til annarra. Þorsteinn Pálsson hefur sýnt mikla hæfni í starfi sínu hjá VSÍ og var ábyrgur ritstjóri Vísis. Morgunblaðið þolir vel gagnrýni og grein Þorsteins var raunar kærkomið tækifæri til að benda á þær staðreyndir, sem hér hafa verið áréttaðar. Það er langt frá því, að Morgunblaðið sé hafið yfir gagnrýni, ritstjórar þess gera sér öðrum fremur grein fyrir því. En það merkir ekki það, að þeir telji, að blaðið eigi að þegja þunnu hljóði þegar að því er vegið með gagnrýni, sem það á ekki skilið. Morgunblaðið fagnar því, að nú er það öllum ljóst, að hvorki forystumenn VSÍ eða ASÍ eru ánægðir með stefnu þess í kaup- gjaldsmálum. Það er hvorki hand- bendi eins né neins en heldur við það, sem það telur réttast.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.