Morgunblaðið - 24.02.1980, Side 32
Sími á ritstjóm og skrifstofu:
10100
Lækkar
hitakostnaðinn
SUNNUDAGUR 24. FEBRÚAR 1980
Frekari framtals-
frestur fæst ekki
— álagning ekki síðar á ferð en venjulega
r.ÞAÐ HEFUR iðulega komið íyrir,
þó ekki hafi það verið undanfarið,
að skattstigar hafi ekki verið
ákveðnir, þegar framtalsfrestur
rennur út. bað fæst því enginn
aukafrestur út á það,“ sagði Sigur-
björn Þorbjörnsson rikisskatt-
stjóri, er Mbl. spurði hann hvort
vöntun skattstiga í skattaiögin
gæti leitt til frekari framtalsfrests,
en fresturinn er til 10. marz.
„Þetta verður þá komið mánuð
framyfir venjuna og ég hugsa, að
það verði lítið svigrúm til að veita
einstaklingsbundna fresti framyfir
það,“ sagði rikisskattstjóri. Hann
kvað hins vegar skattskrána eiga
að verða tilbúna á venjulegum
tíma, þar sem nú yrði komið við
mun hraðari vinnubrögðum við
álagningu en áður.
„Breytingarnar á lögunum hafa
það í för með sér, að nú verður
mikið lagt á með hraðskoðun og
hlutirnir keyrðir meira í vélum,
þannig að ég á ekki von á því að
skattskráin verði neitt seinna á
ferðinni en venjulega, þótt fram-
talsfresturinn sé þetta lengri," sagði
ríkisskattstjóri. „En við tökum okk-
ur svo tíma á eftir til að fara
nákvæmlega í gegnum allt saman."
Helgi Tómasson með
dansílokk á Listahátíð?
ÞJÓÐVERJARNIR tveir, sem
handteknir voru um borð i togaran-
um, koma upp úr tollbátnum i fylgd
lögreglumanna, hafnarvarða og
umboðsmanna. Innfellda myndin er
af togaranum Geeste á ytri höfn-
inni. Tollbáturinn með lögregluna
er á leið út i togarann.
Ljósm. Mbl. KrÍHtján
V-þýzkur togari kyrr-
settur á ytri höfninni
— fjórir skipver jar handteknir vegna nauðgunarkæru
VESTUR-ÞÝSKI togarinn Geeste BX-738 frá Bremer-
haven var í gær kyrrsettur á ytri höfninni í Reykjavík
vegna nauðgunarkæru á hendur skipverjum. Laust eftir
hádegi í gær fóru lögreglumenn út í~skipið og handtóku
tvo skipverja. Voru þeir fluttir í land til yfirheyrslu.
Einnig voru tveir strokumenn af skipinu handteknir
eftir hádegi í gær og lék grunur á því að þeir ættu
einnig aðild að hinu meinta broti.
Togaranum snúið við
Togarinn kom til Reykjavíkur í
fyrrakvöld. í fyrrinótt fór 28 ára
gömul íslenzk kona um borð í
skipið. í gærmorgun sneri hún sér
til lögreglunnar og kærði skip-
verja fyrir nauðgun. Rannsóknar-
lögreglu ríkisins var falin rann-
sókn málsins. Gerði hún strax
ráðstafanir til þess að handtaka
þá menn, sem grunaðir voru um
hið meinta nauðgunarbrot. Togar-
inn hafði þá nýlega látið úr höfn
og var kominn aðeins út á sundin.
Haft var samband við skipstjór-
ann í gegnum talstöð og sneri
hann skipinu við og lagðist það við
ankeri á ytri höfninni.
Um eittleytið í gær fóru
lögreglumenn með Þóri Oddsson
vararannsóknarlögreglustjóra
ríkisins í broddi fylkingar með
tollbátnum Erni um borð í togar-
ann. Tveir skipverjar voru hand-
teknir og var komið með þá í land
klukkan rúmlega tvö og hófust
yfirheyrslur yfir þeim strax.
Strokumenn handteknir
í Kokkhúsinu
Tveir skipverjar struku af tog-
aranum í fyrrinótt og var þeirra
leitað í gærmorgun og gærdag.
Þegar ekið var með hina hand-
teknu menn eftir Lækjargötu á
þriðja tímanum í gær sá skipstjór-
inn strokumennina, þar sem þeir
sátu að snæðingi í Kokkhúsinu, en
skipstjórinn hafði fylgt lögregl-
unni í land. Voru mennirnir um-
svifalaust handteknir en grunur
leikur á því að þeir kunni að eiga
aðild að málinu.
Á togaranum eru 62 skipverjar
af mörgum þjóðernum, Þjóðverj-
ar, Portúgalir og Alsírmenn. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum, sem
Mbl. hefur aflað sér, munu hinir
handteknu menn vera Þjóðverjar.
í þeim hópi er kokkur skipsins.
Þegar Mbl. fór í prentun stóð
frumrannsókn málsins yfir og
litlar fréttir af því að fá.
Tekinn fyrir landhelgisbrot
Togarinn Geeste er 3500 tonn að
stærð. Hann var í fréttunum í
vikunni fyrir landhelgisbrot við
Grænland. Vegna þess brots var
skipstjórinn dæmdur til að greiða
eina milljón þýzkra marka í sekt
eða um 230 milljónir íslenzkra
króna.
„ÞAÐ er verið að kanna mögu-
leika á þvi að fá Helga Tómasson
dansara hingað á Listahátið i
vor ásamt dansflokki frá Banda-
ríkjunum,“ sagði Njörður P.
Njarðvík formaður Listahátiðar-
nefndar i samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Sveinn Einarsson
Þjóðleikhússtjóri er að kanna
þetta mál. Við höfum heyrt að
þetta sé mögulegt og erum að
kanna allar aðstæður, hvort
þetta sé fjárhagslega kleift.
Einnig langar okkur að fá Helga
til þess að dansa með íslenzka
dansflokknum og þá er inni i
myndinni að reyna að fá heim
sem flesta isienzka dansara er-
lendis.“
Sveinn Einarsson Þjóðleikhús-
stjóri sagði í samtali við Mbl. í
gær, að stefnt væri að því að
Reynt að fá alla
íslenzka dansara
erlendis heim
bjóða upp á kvöld þar sem allir
íslenzku dansararnir sem starfa
erlendis og þeir sem starfa hér
heima kæmu fram. hann kvað
málið ekki ljóst ennþá. Helgi er
nú að kanna í New York mögu-
leikana á því að hann komi með
bandarískan dansflokk á Lista-
hátíð og mun það væntanlega
skýrast á næstunni.
Helgi Tómasson hefur að und-
anförnu fengið afburða góða
dóma víða um heim og líklega
aldrei betri, en þó hefur hann um
árabil verið í fámennum hópi
beztu dansara heims.
Helgi Tómasson.
Afli togaranna á síðasta ári:
Ögri með yfir
einn milljarð í
brúttóverðmæti
AFLAHÆSTUR skuttog-
aranna á síðasta ári varð
Bjarni Benediktsson RE
210 með 5.722 tonn en af
minni skuttogurunum
varð Guðbjörg ÍS 46 afla-
Úraþjófur
handtekinn
í Ólafsvík
LÖGREGLAN í Ólafsvík
handtók Reykvíking nu í
vikunni við innbrotstil-
raun. Þegar betur var að
gáð fundust armbandaúr
í fórum mannsins. Haft
var samband við Rann-
sóknarlögreglu ríkisins
og kom þá í ljós að hér
voru komin úr, sem stol-
ið var úr verzlun við
Laugaveg í Reykjavík
nýlega. Alls voru úrin
sjö að tölu og verðmæti
þeirra rúm ein milljón
króna. Þjófurinn er nú í
vörzlu lögreglunnar.
hæst með 5.628 tonn og
varð næstaflahæsta skipið
í togaraflotanum. Skipta-
verðmæti var mest á Guð-
björgu eða liðlega 830
milljónir króna, en brúttó-
aflaverðmæti var hins veg-
ar langmest hjá Ögra RE
72, eða liðlega einn millj-
arður króna. Það ber þó að
hafa í huga í sambandi við
verðmæti afla Ögra, að
skipið landaði oft erlendis
og kostnaður því veru-
legur við öflun þessara
tekna.
Meðalafli á úthaldsdag var
10.2 tonn hjá minni skuttogur-
unum á síðasta ári, en 8.7 tonn
1978. Hjá stærri togurunum
var meðalafli á úthaldsdag
13.3 tonn, en 11.2 tonn árið á
undan. Aukning á afla á út-
haldsdag hjá togaraflotanum
nam í heildina 17.4% á milli
ára. Meðalafli á úthaldsdag
var mestur hjá vestfirzku tog-
urunum eða 13.1 tonn, 10.11. á
togurum af svæðinu frá Vest-
mannaeyjum til Snæfellsness,
9.41. á Norðurlandi og 8.8 tonn
á Austurlandi.
Sjá nánar bls. 2:
Fer frystingar-
loðnan í bræðslu?
ÞRJÚ loðnuskip komu með
loðnu til frystingar að landi í
gær, Keflvíkingur 170, Hilmir
II 100 og Haförn 30 tonn.
Loðnuna fengu skipin við
Snæfellsnes, en engar fréttir
hafa borizt af austangöng-
unni. Um 1000 tonn voru í gær
komin á land til frystingar af
8 bátum. Lítill áhugi er fyrir
frystingunni hjá flestum
frystihúsaeigendum og t.d. var
ekki vitað um hádegi í gær
hvort afli Hilmis færi yfirleitt
í frystingu.